Morgunblaðið - 29.03.1956, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.03.1956, Blaðsíða 16
32 MORGVTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 29. marz 1956 Eisenhower er fuilviss um að kynjiáttaeðskiinaður muni brátt hverfa í Bandaríkjunum WASHINGTON í marz. EISENHOWER Bandaríkjaforseti lét nýlega í ljós þá fullvissu sína að heilbrigð skynsemi bandarísku þjóðarinnar myndi verða vfirsterkari tilfinningaseminni, og frekari árangur myndi brátt nást í sambandi við lausnina á kynþáttavandamálinu í Banda- líkjunum. — Eisenhower gaf þau svör við spurníngum, sem fyrir l\ann voru lagðar á blaðamannafundi, að fólk léti um of tilfinn- ■ingarnar ráða í sambandi við kynþáttavandamálið, en hann vakti othygli manna á þeim framförum, sem þegar hafa átt sér stað i Suðurríkjunum, þar sem rúmlega 250,000 svertingjabörn sækja . kóla fyrir börn af báðum kynþáttum. 'NAUÐSYN ÞOLINMÆÐI OC SKILNINGS Hér fara á eftir nokkur svör, er Eisenhower gaf á blaðamanna •fundinum: „. .. . Við megura ekki gleyma þvi, að nú þegar hafa miklar og margvíslegar framfarir átt sér stað. Eítir því sem ég kemst næst sækja u. þ. b. 250,000 svert- ingjabörn skóla, sem opnir eru börnum af báðum’kynþáttum, og að undanteknu vissu svæði, þar sem örðugleikarnir eru mestir, þá hafa miklar framfarir orðið. Það er staðreynd, að fyrir stuttu síðan gaf hæstiréttur í Texas út yfirlýsingu þess efnis, að ef fyrirfyndist eitthvað atriði í lögum eða stjórnarskrá Texas- fylkis, sem bryti í bága við stjórnarskrá Bandaríkjanna, þá væri það ógilt. Við skulum muna eftir því, að til er fólk, sem er reiðubúið til þess að fjalla um þetta mál með . tillingu, og er ákveðið í því að koma á þeim framförum, sem hæstiréttur bað um. Ef nokkurn tíma er nauðsyn á því að vera þolinmóðir án þess fþó að vera ánægður með sjálfan sig, nauðsyn á því að skilja mik- il tilfinningamál annarra, eins vel og okkar eigin þá er það núna. Efast ég ekki um að þjóðin leysi þetta vandamál á skynsam- legan hátt. Ofstæki á báða bóga mun ekki geta bætt ástandið í þessu máli, og við verðum að trúa því og treysta, að hinn góði skilningur, og heilbrigð skynsemi Banda- ríkjamanna, muni koma þessu máli áleiðis, mér dettur ekki í hug að gera nokkrar áætlanir um, hversu langan tíma það mun taka, því að ég hefi ekki hug- mynd um það. Hér er yfirleitt ekki verið að ræða um kúgun eða valdsbeit- ingu; við munum aðeins fylgja stjórnarskrá Bandaríkjanna, og sjá um, að þeim framförum, sem samkvæmt henni á að hrinda í framkvæmd, raunverulega eigi sér stað. Við skulum muna eftir einu atriði, sem er mjög mikil- vægt: Fólk það, sem stjórnast hef ur af tilfinningum sínum í þessu máli s.l. þrjá mannsaldra, gerði það ekki þvert ofan í gildandi lög, Það fylgdi þeim lögum, sem samþykkt voru af hæstarétti Bandaríkjanna árið 1896. Nú hefur þessum lögum verið breytt, og það tekur tíma fyrir þetta fólk, að skilja nýju lögin og fara eftir þeim. En ég hef ennþá aldrei efast um það, að bandaríska þjóðin muni, nú eins og endranær, leysa þetta mikil- væga vandamál á skynsamlegan hátt, og sýna við það bæði þolin- mæði og skilning. Og við munum leysa það: En ég harma allt ofstæki frá báðum hliðum þessa máls.“ Nýjimt báti hleypt af stokkunum í Hafnarfirði HINN 17. marz sl. var hlevpt af ■ tokkunum hjá Skipasmíðastöð- inni Dröfn hf. í Hafnarfirði, nýj- um vélbát. 59 rúmlesta að stærð. Var honum gefið nafnið Baldvin Þorvaldsson EA 24. Eigendur bátsins eru Aðalsteinn Loftsson og fleiri í Dalvík. Báturinn er smíðaður úr eik, en með yfirbyggingu úr stáli. — Hann er með 270 hestafla dísel- vél, Mannhein-gerð. Hann er með vökva-linu og dekkvindu, dýptarmæli með ardic-úrfærslu og yfirleitt búinn öllum beztu tækjum, sem völ er á og að öllu levti mjög vandaður. Smiði þessa vélbáts var hafin nemma á síðasta ári. Hann er sm.ðaður eftir teikningum eftir Egil Þorfinnsson, skipasmíða- meistara. Yfirumsjón með verk- inu hafði Sigurjón Einarsson, . kipasmíðameistari, en yfirsmið- ur var Hans Lindberg. Yfirbygg- ingu, niðursetningu á vél og alla íárnsmíði og hitalögn, annaðist Vélsmiðjan Klettur hf. Raflögn lögðu rafvirkjameistararnir Jón Guðmundsson og Þorvaldur Sig- urðsson, málun framkvæmdu mál irameistararnir Sigurjón Vil- hjálmsson og Aðalsteinn Egils- son. Reiðar og segl voru gerð af Sören Valentínussyni, dýptarmæl ir settur niður af Friðriki A. Jónssyni, útvarpsmeistara, þil- far- og línuvinda var smíðað af vélaverkstæði Sigurðar Svein-1 björnssonar. Þetta er 9. vélbáturinn, sem Skipasmíðastöðin Dröfn hf. hefur byggt á þeim 14 árum, sem skipa- 6 A iýr'\' X- •■■ ■’".’ í/. / I smíðastöðin hefur starfað, og er i undirbúningur hafinn að smíði ! þess tíunda. Nám við verkfræði- háskélann í Níðarósi VERKFRÆÐIHÁSKÓLINN í Nið arósi (Norges Tekniske Högskole, Tronheim) mun veita íslenzkum stúdent skólavist á hausti kom- anda. Þeir, sem kynnu að vilja koma til greina, sendi ráðuneyt- inu umsókn um það fyrir 1. maí næstkomandi. Umsókn fylgi fæð- ingarvottorð, skírteini um stúd- entspróf, upplýsingar um nám og störf að loknu stúdentsprófi og meðmæli, ef til eru. Hér er einungis um inngöngu í skólann að ræða, en ekki styrkveitingu. (Frá menntamálaráðuneytinu) Nýv feálias- lil Ey|ci um löndiR lyrir bolni PARÍS, 22. marz. — Franska ut- anríkismálaráðuneytið tilkynnti í dag, að franska stjórnin hefði boðið Bretum og Bandaríkja- mönnum til ráðstefnu um mál- efni landanna fyrir botni Mið- .jarðarhafs. Utanríkisráðherrar landanna þriggja munu sitja þessa ráðstefnu. Gert er ráð fyr- ir, að þríveldaráðstefna þessi verði haldin í byrjun maímánað- ar í París — á sama tíma og ráð Norður-Atlantshafsbandalags ins heldur fund sinn. — Reuter. Námssfyrfrur við í KSIn HÁSKÓLINN í Köln býður stúdent við Háskóla íslands styrk til námsdvalar í Köln mánuðina maí til september 1956. Fyrir- lestrar á sumarmisseri hefjast í maíbyrjun og lýkur í júlílok. Styrkurinn nemur 1000 DM, þ.e. 200 DM á mánuði. Veittur verður helmingsafsláttur á far- gjaldi frá landamærum Þýzka- lands til Köln. Skólagjöld verða gefin eftir, nema tryggingargjöld o. f 1., alls um 27 DM. Umsóknir skal senda skrif- stofu Háskóla íslands í síðasta lagi fimmtudag 5. apríl. Þrjú systfcini hiulu við Seykjanesshóla ÞÚFUM, 24. marz: — Prófum í bóklegum greinum er nú lokið við Reykjanesskóla. — Hæstu einkanir hlutu í efri deild, Guð- ríður Hannibalsdóttir frá Han- hóli, í Bolungarvík, 8.21, og Jón Hannibalsson, bróðir Guðríðar, 7.70. í yngri deild var með hæstu einkunn, Lilja, systir þeirra Guð- ríðar og Jóns, 8.78. Með næst hæstu einkunn í yngri deild, var Guðrún Guðmundsdóttir frá Betaníu í Önundarfirði, 8.16. Prófdómari var Ásgeir Svan-- bergsson, Þúfum. Próf í verkleg- um greinum hefjast á mánudag. — Páll. M.B. STÍGANDI VE 77, eign Helga Bergvinssonar skipstjóra, Gísla Þorsteinssonar frkvstj. og Ágústs Ma'tthíassonar frkv.stj., Vestmannaeyjum, kom ti> Eyja á miðvikudag eftir 4 sólarhringa siglingu frá Hambo’g. Firmað D.W. Kremer Sohn, Elmshorn, Þýzkalandi, smíðaði bátinn, en umboðsmenn firmans eru Kristján G. Gislason & Co. h.f. Báturinn er 22.57 metrar á lengd, 76 lestir og hefur 240 hestafla MAK aflvél. Hann er búinn fullkomnustu tækjum og vandaður að öllum frágangi. Lestin er klædd með aluminium. Vistarverur og allt fyrirkomulag er afar vandað. —■ Hefur í því tilliti verið farið eft- ir teikningum og ráðleggingum Egils Þorfinnssonar. í bátnum er þrýstivatnskerfi fyrir drykkjar- og þvottavatn. Báturinn, sem að öllu leyti kom útbúirm til þorsk- og síldveiða, hefur þegar hafið róðra með þorskanet, og er skipstjóri Helgi Bergvinsson. Ekkert hefur verið til sparað að gera bátinn sem bezt úr garði. Mýjiim véibáli hleypt af stekkuiiiEm á Isafirði Eáíxhn mnn hefja rtðra í þcssari viku ísafirði, 24. marz. GÆRMORGUN var bleypt af stokkunum í Skipasmíðastöð M. Bernhardssonar h.f. nýjum vélbáti, 48 rúmlesta. Var hon- um gefið nafnið Guðbjörg, ÍS 14. Eigandi bátsins er Hrönn h.f. á ísafirði. Báturinn er smíðaður úr eik, en yfirbygging og vélar- íeisn úr stáli. VEL ÚTBÚINN 240—270 hestafla GM-dísilvél er í bátnum, einnig norsk vökva- línu- og þilfarsvinda, dýptarmæl- ir með Asdic-útfærslu, miðunar- stöð og yfirleitt öll þau beztu tæki, sem nú eru notuð í fiski- bátum, enda er báturinn að öllu leyti hinn vandaðasti. Yfirsmiður við bygginguna var Marzelíus Bernhardsson, skipa- smíðameistari. Niðursetningu á vélinni annaðist vélsmiðjan Þór h.f., en Neisti h.f. sá um allar raflagnir i bátinn. Byggingarkostnaður DAS nemur nú 7 millj. kr. AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði, var haldinn sunnu- daginn 11. marz. Formaður stjórnar Fulltrúa- ráðsins skýrði frá störfum stjórn- arinnar á s.l. árí. Kostnaður við byggingarframkvæmdir Dvalarheimilis aldraðra sjó- manna nam á árinu um 2.5 millj.i króna, en alls nemur byggingar- kostnaður Dvalarheimilisins nú um 7 millj. kr. Eignir í verð- bréfum og peningum nema um 900 þús. kr., en skuldir um 1 milljón kr. ÁRSTEKJUR HAPPDRÆTTIS DAS 2,5 MILLJ. Happdrætti DAS hefur gengið mjög vel. Áætlaðar tekjur á yfir- standandi happdrættisári, sem lýkur 3. apríl n.k., eru 2,5 millj. Álls hefur happdrættið skilað til Dvalarheimilisins frá því það var stofnað um 2.7 millj. kr. KVIKMYNDASÝNINGAR í BORÐSAL Mikið vantar ennþá til þess að rekstur Dvalarheimilisins geti hafizt, Til dæmis skortir margt til þess að byggingin sé fullgerð, að innan. Auk þess vantar öll i áhöld í eldhús, þvottahús, sjúkra- deild og allt innbú til starfsem- innar. Á meðan að þetta er ekki fengið verður rekið kvikmynda- hús í borðsal hússins, en það er saiur, sem tekur rúmlega 200 manns í sæti. Mun kvikmynda- hús þetta taka til starfa á næst- unni og nefnast Laugarásbíó. Þegar hafa nokkrir aldraðir sjómenn flutt í einstaklingsher- bergi i byggingunni og munu þeir gerast þar vistmenn, þegar Dvalarheimilið tekur til starfa. Á fundinum kom fram mikill og einhuga áhugi á, að reyna að stuðla að þvi, að rekstur Dvalarheimilisins geti hafizt á 20. Sjómannadaginn, eða um vor- ið 1957, en byggingin eins og hún er nú getur rúmað á annað hundrað vistmenn. STJÓRN í stjórn Fulltrúaráðsins voru kjörnir: Henrý Hálfdánarson form. og Þorvarður Björnsson gjaldk., báðir endurkjörnir. Rit- ari var kjörinn ísleifur Guð- mundsson. Varaform. var kjör- inn Sigurjón Einarsson, vara- gjaldk. Theódór Gíslason og vararitari Gunnar Friðriksson. 2 BÁTAR FULLGERÐIR í SAMA MÁNUÐI Þetta er annar báturinn sem sjósettur er í skipasmíðastöð M. Bernhardssonar h.f. á tæpum mánuði. Hinn báturinn hlaut nafnið Gunnvör ÍS-270, en eig- andi hans ^r Gunnvör h.f. á ísafirði. — Báðir þessir bátar eru smíðaðir eftir teikninpu Egg- erts B. Lárussonar, skipasmíða- meistara og eru þeir að öllu leyti eins, nema hvað innrétting er lítið eitt frábrugðin. Gert er ráð fyrir að Guðbjörg geti hafið róðra í næstu viku, en skipstjóri verður Ásgeir Guð- bjartsson, sem undanfarið hefur verið skipstjóri á m.b. Ásbirni. — J. iórn sefur á slofn fæfcni- I LOGBIRTINGABL. 22. marz , er auglýst til umsóknar staða ’ forstöðumanns tæknideildar Hús- næðismálastjórnar. Staðan veit- ist byggingarfróðum manni, i arkitekt eða byggingarverkfræð- ' ingi. Samkvæmt lögum eru Hús- næðismálastjórn falin víðtæk verkefni á sviði húsbyggingar- mála, og er ráðgert að setja á fót stofnun, er verði húsbyggj- endum til leiðbeiningar um byggingarmál, hafi byggingarefni til sýnis, sömuleiðis teikningar af hentugum íbúðum og annist aðra þjónustu í byggingarmálum, Er ætlazt til þess, að sá sérfræð- ingur, sem nú verður ráðinn, verði forstöðumaður þessarar stofnunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.