Morgunblaðið - 05.09.1956, Page 16

Morgunblaðið - 05.09.1956, Page 16
Veðrið Hægviðri, skýjað, en úrkomu- laust að mestu. jtttlritaMfe Við túngarðinn Sjá blaðsíðu 9. 202. tbl. — Miðvikudagur 5. september 1956. „XjaUnrinn" byggður ofnnjarðar LÓGREGLAN í Reykjavík heíur nú fengið iil urnráða lóð fyrir starfsemi sína vestan Síðumúla og austan ónefndrar götu, ér liggur í framhaldi af Selsmúla. Staður þessi er skammt sunnan við hina nýju símstöð sem risin er sunnan Hálogalands og liggur vel við umferðaæðum til bæjarins — skammt frá Suðurlandsbraut og Miklubraut og stutt að Reykjanesbraut. ★ MIÐSTÖÐ LÖGREGLUNNAR Mbl. sneri sér í gær til Sigur- jóns Sigurðssonar lögreglustjóra og spurðist fyrir um, hvaða starfsemi lögreglunnar ætti að vera á hinni nýju lóð. Sagði lögreglustjóri, að þarna yrði ný lögreglustöð af smærra tagi — útibú frá aðalstöðinni. Þar yrði svo ennfremur fanga- geymsla og þar yrði í framtíð- inni bifreiðastöð lögreglunnar, talstöðvaþjónusta og ýmislegt annað sem ekki er hentugt að hafa inni í miðbænum. ★ FYRSTI ÁFANGINN — En fyrst af öllu höfum við hug á, hélt lögreglustjórinn á- fram, að koma upp nýrri fanga- geymslu í stað „kjallarans". Það mun því verða byrjað á fram- kvæmdum við byggingu fanga- geymslunnar og fyrsti áfanginn er hús er rúmar 20 fanga, og Töðufengur góður í V-Skaftafellssýslu KIRKJUBÆJARKLAUSTRI 3. sept. — Heyskapur hefur gengið ágætlega hér í sumar. Spretta á túnum var góð og heyskapartíð hin bezta, sérstaklega seinnihluta júlí-mánaðar og fyrstu vikuna í ágúst. Hefur því mikið aflazt af góðum heyjum í fyrra slætti. Háarvöxtur hefur aftur á móti verið lítill og spretta á útengjum víða með lakasta móti. Annars er taðan -orðin það mikill hluti af heyfeng bænda á Síðu, að það hefur orðið lítið að segja, hvernig fer um engjaheyskap. í lágsveit- um, sérstaklega Meðallandi og Álftaveri eru samt enn miklar slægjur á mýrum og áveitum, en túnrækt er að aukast þar. verður það byggt eftir nýjustu kröfum þar um. En þetta verður aðeins hluti af heildarfangageymslunni, sem þarna rís, er fullbyggt verður á þessari lóð lögreglunnar. Það er Trillubátur fekinn af Kirkjusandi UM helgina var lítill óyfirbyggð- ur trillubátur tekinn úr fjörunni á Kirkjusandi og hefur hann ekki fundizt enn, þótt eigandinn hafi víða farið meðfram ströndinni til að leita að honum. Bátur þessi er um 1 tonn á stærð með loft- kældri vél. Hann er grænn að neðan en ljósgrár að ofan. Máln- ingin orðin gömul. Engin hefur hann einkennismerki. Þeir, sem skyldu verða bátsins varir eru beðnir um að gera rannsóknar- lögreglunni viðvart. ekki hægt að fara hratt, því það er og brýn nauðsyn að byrja á lögreglustöð, en fjárfestingarleyfi eru af skornum skammti. Lögreglustjóri kvað vonir standa til að hægt væri að byrja framkvæmdir í haust, en nú væri unnið að því að ljúka við teikn- ingar þess hluta, er byggður yrði í fyrsta áfanga. „KJALLARI'* OFANJARÐAR Það eru gleðitíðindi, að nú eru dagar „kjallarans“ senn taldir. Það hefur alltaf verið neyðar- ráðstöfun að nota hann sem fangagey msiu, og engum hefur það verið leiðara en lögreglunni. Það hefur um árabil verið í und- irbúningi að hefja framkvæmdir við byggingu nýrra fanga- geymslu. Fyrrverandi dómsmála- ráðherra var búinn að leyfa framkvæmdirnar og nú mun ný fangageymsla upp rísa „kjall- £u-i“ sem er ofanjarðar eins og mannabústaðir, en ekki gluggu- laus rakastía. Góð sala TOGARINN JÚNÍ seldi afla sinn í Bremerhaven í gær. Voru það 165 léstir og seldist fyrir 100 þús. mörk, sem er mjög gott verð. Ágœtt héraðsmót Sjálf- stœðismanna á Blönduósi SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Austur-Húnavatnssýslu efndu til hins árlega héraðsmóts síns á Blönduósi síðastl. sunnudag. Var mótið fjölsótt og hið ánægjulegasta. Stefán Jónsson, formaður Jör- undar félags ungra Sjálfstæðis- rnanna, setti mótið og stjórnaði því. Hófst mótið kl. 4 síðdegis í hinum myndarlega fimleikasal barnaskólans. Var þar sameigin- leg kaffidrykkja og fóru dag- skráratriði fram meðan setið var undir borðum. Alþingismennirnir Magnús Jónsson og Jón Pálmason fluttu aðalræðurnar á mótinu og ræddu um stjórnmálaviðhorfið frá ýms- um hliðum. Var mjög góður róm- ur gerður að máli þeirra. Auk Sýning mœlitœkja- og áhalda opnuð í Reykjavík í GÆR kl. 5 síðdegis var opnuð mælitækja- og áhaldasýning í gamla Iðnskólanum í Reykja- Islenzkur sigur FJÓRÐA umferð skákmótsins í Moskvu var tefld í gær. ís- land mætti Vestur-Þýzkalandi. Friðrik gerði janftefli við Un- sicker, Baldur gerði jafntefli við Darga, Ingi vann Schmied, sem var í miklu tímahraki, og Freysteinn á biðskák við Niephennells. — Þannig hafa íslendingar fengið 11 vinninga og eiga 3 biðskákir. Er það mjög glæsilegur árangur, því að V-Þýzkaland er ein af sterkari skákþjóðum heims ísland, Argentína, Bretland og V-Þýzkaiand bítast um það að k'»mast upp úr 1. riðli í A- riðil mótsins. Þegar íslending- ar haf nú unnið Þióðverja — vaxa sigurlíkur þeirra að mun. vík. Eru þar sýnd ýmis mæli- tæki, sem rafveitur i landinu þurfa að nota, ennfremur verk- færi, notuð við lagningu og við- hald raftækja. Steingrímur Jónsson, rafrpagns stjóri, bauð gesti velkomna og skýrði frá þvi, að Samband ís- lenzkra rafveitna hefði efnt til þessarar sýningar í sambandi við ársþing sitt á Akureyri í sumar. Hefði hún þótt þess virði, að flytja hana hingað suður. Sýningin er fyrst og fremst ætluð rafvirkjum og öðrum raf- magnsstarfsmönnum, en er einn- ig fróðleg fyrir almenning. — Til sýningar þessarar er efnt að frum kvæði Jakobs Gíslasonar, raforku málastjóra. Jakob Gíslason sagði nokkur orð og gat þess hve þýðingar- mikið væri að allur tækniútbúnað ur væri sem beztur. Hann skýrði frá því, að framlag til rafvæð- ingar væri 90 milljónir á ári. Formaður sýningarnefndar S. í. R. er Guðjón Guðmundsson, en aðrir í nefndinni eru Jakob Guð- johnsen og Knut Otterstedt. — Sýningin verður opin alla þessa viku kl. 16 til 19,30 daglega. þeirra téku til máls Guðbrandur ísberg, sýslumaður, Guðmundur Jónsson ,garðyrkjumaður, og Jón ísberg, lögfræðingur. Auk ræðuhalda voru fjölbreytt skemmtiatriði. Halldór Jónsson, bóndi á Leysingjastöðum, flutti frumort kvæði. Kristinn Halls- son, óperusöngvari, söng einsöng við undirleik Ragnars Björnsson- ar, söngstjóra. Ævar Kvaran, leikari, las upp og Árni Tryggva- son, leikari, flutti gamanþætti. Var öllum þessum listamönnum vel fagnað. Um kvöldið voru skemmtiatr- iðin endurtekin í samkomuhús- inu, og að lokum voru dánsleik- ir í tveimur húsum. Mótið sótti fólk víðsvegar að úr héraðinu, enda eru héraðsmót Sjálfstæðismanna með vinsælustu samkomum í Austur-Húnavatns- sýslu. Kristján heldur á öndinni meðan dr. Finnur Guðmundsson setur fuglamerkið á hana, en allar endurnar eru merktar. — Sjá frétt á bls. 2. Lítil vinna í irystihúsunum vegnn lítilla iisklandana VEGNA nokkurrar aflatregðu að undanförnu munu aðeins þrir togarar landa afla sínum í þessari viku til vinnslu í frysti- húsunuirf í Reykjavík. Af þessu leiðir, að lítil vinna verður í frysti- húsunum í Reykjavik þessa vikuna, því að þau þurfa 6—7 togara- farma á viku til þess að vinna sé nægileg í þeim. UM 500 STARFA VH) FRYSTIHÚSIN Frystihúsin í Reykjavík eru þessi: ísbjörninn, Hraðfrystistöð- in. Sænsk-islenzka frystihúsið og Frystihús Júpiters og Marz á Kirkjusandi, sem öll eru í Sölu- miðstöð Hraðfrystihúsanna. Þá kemur frystihús SÍS á Kirkju- sandi og Fiskiðjuver ríkisins. — Samtals hafa 500—550 manns vinnu hjá öllum þessum fyrir- tækjum til samans. Nýtt félagsheimili vi gt að Hofi í Vopnafirði A SUNNUDAGINN var vígði séra Jakob Einarsson prófastur nýtt félagsheimili að Hofi í Vopnafirði. Heitir það Staðar- holt. Undirbúningur og bygging félagsheimilisins hefur staðið um það bil fimm ár. Að byggingu þess standa, Hofsdeild ungmenna félagsins Einherja í Vopnafirði og Hofsdeild Kvenfélags Vopna- fjarðar. Athöfnin hófst með messu. — Séra Jakob Einarsson prédikaði. Þar næst fór vígslan fram. Við það tækifæri fluttu ræður m. a. prófastsfrú Guðbjörg Hjartar- dóttir og Sigurjón Friðriksson, Ytrihlíð, formaður ungmennafé- lagsins Einherja. Fleiri ræður voru fluttar og sungið á milli. Kl. sex hófst hátíðadagskrá. — Sjónhverfingamaður frá Akur- |eyri sýndi listir sínar, þrjár ung- ar stúlkur úr Vopnafirði sungu með gítarundirleik og fluttur var leikþátturinn „Lási trúlof- ast“. Bragi Dýrfjörð, Vopnafirði, stjórnaði leiknum, en leikendur voru allir úr héraðinu. Þrjú til fjögui þúsund manns sóttu há- tíðina sem fór í alla staði vel fram og menn skemmtu sér hið bezta. Hið nýja íélagsheimili rúmar um 200 manns í samkomusal. — Auk hans er leiksvið, eldhús og fleira. Félagsheimilið hefur að mestu leyti verið byggt í sjálf- boðavinpu. Nú er í byggingu ann að félagsheimili í Vopnafjarðar- kaupstað, að því er Kjartan Björnsson stöðvarstjóri tjáði tíðindamanni, en hjá honum fék blaðið framanskráðar upp- iýsingar. í þessari viku munu aðeins þrir togarar landa afla sínum í Reykjavík. Eru það Akurey og Askur, sem eru nú að landa og Uranus, sem kemur seinna í vik- unni. Afli þeirra er ekki nema hálft verkefni fyrir frystihúsin, svo að óhjákvæmilegt er, að lítið verði um vinnu hjá hinu fjöl- menna starfsliði frystihúsanna. Þessi hráefnaskortur hjá frysti- húsunum stafar af aflatregðu, sem menn vona að sé aðeins tíma bundin. En í síðari hluta mán- aðarins er allt útlit fyrir að fisklandanir í Reykjavík drag- ist aftur saman, svo að atvinna verði rýr í frystihúsunum, hvernig sem annars aflast. Nú stunda 12 togarar veiðar fyrir Þýzkalandsmarkað, og útlit fyrir að 8 bætist í hópinn seint í sept. Ef svo verður, má búast við að frystihúsin í Reykjavík og víðar skorti alvarlega hráefni til að vinna úr. AKRANESI, 4. sept. — Fimmtán reknetjabátar héðan voru á sjó í nótt, og létu flestir reka suður- frá. Síldveiðin var mjög treg. Hæstir voru Höfrungur með 75 tunnur, Heimaskagi með 69 og Farsæll með 60. Undanfarna daga hafa trillubátar róið og eru þeir á sjó í dag. Hafa þeir fiskað frá 400 til 500 kg. í íóðri. —Oddur. HAFNARFIRÐI — Bridgespilar- arnir frá Osló spila hér í dag kl. 13,30 við sveit Reynis Guðmunds- sonar, en í henni eru auk hans Árni Þorvaldsson, Kristján Andrésson og Kári Þórðarson. — Er öllum heimill aðgangur að keppninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.