Morgunblaðið - 23.09.1956, Síða 1
24 slður
VAR LÁTIIMN
tFTIR 10 IVIÍN.
KHÖFN. — Nokkrir menn
hafa látizt i sumar í Dan-
mörku af völdum vespubits.
Fyrir nokkrum dögum lézt
enn einn maður af völdum
þessa — og var það rúmlega
fimmtugur maður, sem hafði
fundið vespuhreiður í garði
sínum og ætlaði að hylja það
mold — og reyna þannig að
drepa ófögnuðinn. Flaug þá
ein vespa upp, stakk hann í
annað augað — og var mað-
urinn látinn 10 mínútum síðar.
Ein
tilraunin enn
HAAG, 21. sept. — Júlíana
Hollandsdrottning fól í dag
jafnaðarmanninum Burger að
gera tilraun til stjórnarmynd-
unar í Hollandi. — Er hann
fimmti stjórnmálamaðurinn
sem drottning biður um að
mynda stjórn frá því að kosn-
ingarnar fóru íram í landinu
hinn 13. júní sl. — Reuter.
Stormur mikill
og óveður grand
aði þessu stóra
ameríska skipi
undan Noregs-
ströndum á dög-
unum. Skipið hét
Pelagia og flutti
járngrýti. (Sjá
mynd að ofan).
Einu mennirnir
sem af komust
voru þessir, er
sjá má í björg-
unarbát er brezki
togarinn Nort-
hern Duke fann.
Leit að hinum er
á skipinu voru
hefur verið hætt
og þeir allir tald-
ir af.
154 verkamönnum
stefnt fyrir rétt
í Poznan
Þeir eru sokoðir um cð eigu upptök
nð kröfu félksins um bruuðM
Warsjá 22. sept.
AFIMMTUDAGINN kemur hefjast réttarhöld yfir þeim mönnum,
sem sakaðir eru um að eiga upphaf að verkföllunum og óeirð-
unum er urðu í Poznan í júnímánuði. Hefur pólska stjórnin gefið
út tilkynningu þar sem frá þessu er skýrt.
+ 154 í STAÐ 323
Saksóknarinn, Marian Cy-
bicki, hefur látið svo um mælt,
að felldar hafi verið niður
ásakanir á hendur 169 mönn-
um. Upphaflega hafði verið
gert ráð fyrir, að 323 yrðu
kvaddir fyrir réttinn, en nú
hefur verið ákveðið, segir sak-
Ný hœtta á sjónum:
Ef Andrea Doria eða Stokkhólm Lefðu
verið atómknúin—hefðu hundruð farizt
Og slík skip geta eyðilagt dýrmœt fiskimið^
1.000.000
fléttumenn
BERLÍN — Á fimmtudaginn
leitaði milljónasti Austur-
Þjóðverjinn hælis í Vestur-
Berlin sem pólitískur flótta-
maður. Er þá talið frá árinu
1949. Meira en helmingur þess
ara manna hefur verið undir
25 ára aldri. Hér er aðeins um
að ræða fólk, sem leitað hefur
hælis í Berlín, en álitið er, að
þeir A-Þjóðverjar séu jafn-
margir, sem hafa farið yfir
landamærin — beint til V-
Þýzkalands.
KJ
San Fransiskó, 22. sept.
" JARNORKUFRÆÐINGURINN Dr. Richard Fayram sem er
sérfræðingur í öllu er lýtur að kjarnorkuknúnum skipum segir
að gera megi ráð fyrir því að öll hafskip heims verði atómknúin
1970. Bendir hann á að það hafi i för með sér nýja hættu — geislun
í skipsskrokkum.
★ MIKIÐ TJÓN
Sérfræðingurinn segir t.d.
að ef Andrea Doria eða Stock-
holm hefðu verið knúin kjarn-
orkuvélum, þá hefðu mörg
hundruð menn farizt vegna
kjarnorkugeislunar í skrokk-
um skipanna. Hann segir einn-
ig að ef bandaríska skipic
Pelagía sem fórst fyrir
skömmu við Noregsstrendur
hefði verið knúið með kjarn-
orku, þá hefði flakið af því
eyðilagt helztu sardínumið
Norðmanna.
★ FYRSTU SKIPIN
Dr. R. Fayram segist búast við
því að fyrsta kjarnorkuknúna haf
skip Bandaríkjamanna verði full-
gert 1959. Ekki kveðst hann vita,
hvenær fyrsta kjarnorkuskip
Norðmanna verði fullgert, en
hann hefir lagt drög að smíði
þess.
★ REYNT AÐ FINNA BJARG-
RÁÐ
Loks má geta þess að kjarn-
orkufræðingurinn segir að búast
megi við því að 7 kjarnorkuskip
farist á ári hverju, 2—3 á hafi
úti og geti því litinn skaða gert,
en hin við strendur. Muni stafa
af þeim mikil hætta. — Nú verði
vísindamenn að athuga, hvort
ekki sé hægt að byrgja svo orku-
kerfi skipanna að útgeislun geti
ekki átt sér stað, þegar óhöpp
verða.
Danir hufo
valið 23 til
Melboorneferðor
Verða sennilega
um 30
KAUPMANNAHÖFN, 22. sept.:
— Þrátt fyrir hinn mikla kostn-
að sem þátttaka í Olympíuleik-
unum í Melbourne hefur í för
með sér, hafa Danir þegar á-
kveðið 23 þátttakendur í leik-
unum .og búizt er við að innan
fárra daga, er danska olympíu-
nefndin lýkur vali íþróttamanna,
verði þeir orðnir 30, sem hljóta
„draumferðina" til Ástralíu.
Þegar er ákveðin þátttaka
Dana í frjálsum íþróttum (Gunn-
ar Nielsen og Thyge Tögersen),
hjólreiðum, róðri, siglingum og
skotfimi. Eftir er að ákveða um
þáttöku í sundi m.a.
Talsföð nofuð við knaffleiki
FLEST hafið þið séð hinn
bandaríska „football" í kvik-
mynd, en bandaríski fótbolt-
inn er ekki líkur því sem hann
er leikinn hér. Mikil hcrka er
í bandaríska leiknum. Þar er
bæði beitt höndum og fótum
— og leikmenn hafa heljar-
mikla hjálma á höfði til þess
að verjast hörkulegri fram-
göngu andstæðinganna.
Nú hefir eitt slíkt „foot-
ball“ lið í New York tekið
nýstárlegan hlut í notkun, en
það er eins konar talstöð. Hef-
ur hún að undanförnu verið
notuð við æfingar — og er
það á þann hátt, að í hjálm-
um leikmanna er komið fyrir
örlitlum móttakara — og hlust
unartæki við annað eyrað.
Uppi á áhorfendapöllum situr
þjálfari Iiðsins og gefur fyrir-
skipanir sínar til einstakra
leikmanna — og samkvæmt
sögn bandarískra blaða hefur
nýjung þessi gefið góða raun.
Ekki er ólíklegt, að atvinnu-
liðum verði síðar meir heim-
ilað að nota þetta hjálpartæki
í kappleikjum.
sóknarinn að fara með mál-
sókn á hendur 154.
★ ★ ★
Réttarhöld þessi vekja heims-
athygli. Fólkið í Poznan gerði á
sínum tíma verkfall og uppþot
og heimtaði brauð. Herlið var
kvatt á vettvang og fékk komið
á ró. Mikil ólga var rikjandi í
Poznan en yfirvöld heyktust á
því, að kúga verkafólkið en lof-
aði þeim í staðinn ýmsum kjara-
bótum. Neitað var ósk um að
vestrænir lögfræðingar fengju að
vera ver jendur í máli verkafólks-
ins.
Og nú er að því komið, að rétt-
arhöldin hefjast. Þess er gerist
við þessi réttarhöld er beðið með
eftirvæntingu um allan heim.
íslendingar
nú efstir
E F T IR 8 umferðir var ís-
lenzka sveitin efst á skákmót-
inu í Moskvu (í miðflokkn-
um), en Svíar og Austurríkis-
menn voru næstir og jafnir.
í 8. umferðinni tefldu ís-
lendingar við Frakka og unnu
þá Friðrik og Freysteinn sínar
skákir og Baldur gerði jafn-
tefli, en skák Inga fór í bið
í annað sinn.
í 9. umferð tefldu þeir svo
við Austurríkismenn og urðu
fyrir þeirri óheppni, að Ingi
tapaði slysalega, en Baldur
gerði jafntefli og biðskákir
urðu hjá Friðriki og einnig
hjá Freysteini. — í sömu um-
ferð unnu Norðmenn Svía.
í 1. flokki töpuðu Danir fyr-
ir Rússum nema Bent Larsen,
sem gerði jafntefli við Bot-
vinnik og hafði reyndar alltaf
betra tafl.
Fár yisr heimshai tíi aÖ vínna
64000 dali — en hiaut aÖeins 64
NEW YORK, 19. sept.: — Það
eru ekki allar ferðir til fjár,
þótt farnar séu — eru jrð að
sönnu um för enska blaða-
mannsins Randolph Churc-
hills, (sonar Churchills fyrrv.
forsætisráðherra) frá Eng-
landi til Bandaríkjanna.
Randolph Churchill tók sér
ferð á hendur til þess eins að
koma fram í sjónvarps- og út-
varpsþætti og freista þess að
vinna 64 þús. dollara í spurninga
þætti.
Hann valdi spurningaflokkinn
„enskt mál“ og svaraði fyrstu
spurningunni þegar í stað — og
hlaut fyrir 64 dollara. Á næstu
þegar 128 dalir voru í veði brást
Churchill hinn ungi.
Spurningin var á þá leið, að
hann átti að nefna orð sem upp-
haflega voru mannanöfn en hafa
komizt inn í enzka tungu yfir
hugtök tengd ákveðnum mönn-
um. M.a. sagði spyrjandinn:
„„Landstjóri" Jarlsins af Erne i
Mayo county 1880 var svo mikill
harðstjóri, að fólk í héraðinu
tók sig saman um-að hafa engin
viðskipti við þennan harðsvíraða
mann. Hvað orð er af þessu
dregið?"
Tíminn sem Churchill hafði til
að svara rann út. Hann mundi
ekki eftir orðinu „boycott“!
Hann fer nú heim við svo búið,
og þótti hann endasiepptur bessi
mjög auglýsti spurningaþáttur.