Morgunblaðið - 23.09.1956, Síða 13

Morgunblaðið - 23.09.1956, Síða 13
Fjársafn Gnúpverja í Árnessýslu rennur niður með Þjórsá hjá Gauksliófða. Til vinstri riðandi gangnamaður. — Ljósm. Mbl. Ól. K. y Reykjavikurbréf: Laugardagur 22. september Ein og hálf milljón Ijár af fjalli - Egnf fil illinda um þjóðnyljafyririæki - Ríkisstjórnin fékk enga trausisyfir- lýsingu frá Stéttarsambandsiundinum - Bráðahirgðalagabrölt - Heimsókn fuillrúa Allantshafsbandalags- ins - Sovét-áhrif flæða yfir fsland - Mikil ógæfa getur henl - Fulltrúar heimskommúnísmans í ríkisstjórn Sauðfjáreign Islendinga 1,5 milljón fjár GÖNGUR og réttir standa nú sern hæst. SauSfjáreign íslend- inga á s.l. vetri voru 700 þús. fjár á fóðrum. Áður en slátrun hófst í haust, var telið að heild- arsauðfjáreignin væri Wi millj. fjár. Ef gert er ráð fyrir að svipaður fjárfjöldi verði settur á í haust og á s.l. hausti, má reikna með að 700-—800 þúsund fjár verði slátrað á þessu hausti. Fjárskipti fóru í fyrrahaust fram í tveimur hreppum í Dala- sýslu vegna mæðiveiki, sem þar kom upp. Þessir hreppar fá nú líflömb af Vestfjörðum til eldis í vetur. En skorið verður niður fé í 5 öðrum hreppum sýslunnar og í meginhluta eins hrepps í Strandasýslu. Verður þar sauð- laust í vetur. Tíðarfar hefur verið fremur hagstætt um göngurnar, það sem af er. Engin stórhret hafa gengið yfir. Nýjar réttir hafa verið tekn- ar í notkun i ýmsum landshlut- um. Þvættingur Tímans um Aburðarverksmiðjuna ALLIR íslendingar eru sammála um það, að Áburðarverksmiðjan sé eitt gagnlegasta fyrirtæki, sem hér hefur verið sett á stofn. Hún hefur ekki aðeins fullnægt þörf- um íslenzkra bænda fyrir köfn- unarefnisáburði, heldur hefur hún framleitt verulegt magn til útflutnings. Nú hefur veritf ákveðið að byggja hér einnig fosfatverk- smiðju, þannig að íslendingar geti framleitt sjálfir allan til- búinn áburð, sem I&ndbúnað- ur þeirra þarfnast. Er gert ráð fyrir atf slík verksmiðja muni kosta um 35 milljónir króna, þar af um 15 mlllj. króna í erlendum gjaldeyri. Langt er síðan byrja® var að undirbúa byggingu þessar- ar verksmiðju. Ber mjög brýna nauðsyn til þes« að henni verði hraðað. Fosfat- framleiðsla í landinu sjálfu hefði í för með sér mjög auk- ið öryggi fyrir landbúnaðinn. Tíminn hefur undanfarið ver- ið með alls konar þvætting og skæting í garð Sjálfstæðismanna I sambandi við Áburðarverk- smiðjuna. Hefur hann lát ð að því liggja, að nýsköpunarstjórn- in hafi sýnt tómlæti gagnvart byggingu verksmiðjunnar og jafnvel tafið framkvæmdir í mál- inu. Auðvitað er þetta alger upp- spuni. Það var nýsköpunarstjórn- in, sem fyrst tók þetta mikla framfaramál fösíum tökum og lét undirbúa framkvæmdii í því. — Áður hafði Vilhjálmur Þór gert tillögu um byggingu smáverk- smiðju, sem fjarri fór að full- nægði áburðarþörf íslenzkra bænda. Pétur heitinn Magnússon fól nýbyggingai-ráði að undirbúa málið betur og niðurstaðan varð sú, að byggð var stór og glæsileg verksmiðja, sem nú hefur unnið íslenzkum landbúnaði og þjóð- félaginu í heild mikið gagn. Það hefði vissulega verið illa farið, ef byggt hefði verið eitt- hvert verksmiðjukrili, sem engan veginn hefði fullnægt þörfum ís- lenzks landbúnaðar. Egnt til illinda Það er mjög heimskulegt þeg- ar Tíminn er sífellt að egna til illinda um Áburðarverksmiðjuna. Síðan ákvörðun var tekin um stærð hennar og byggingu, hafa allir flokkar — nema kommún- istar — stutt málið með ráðum og dáð. Kommúnistar voru hins vegar mótfallnir Marshall-aðstoð- inni, sem gerði byggingu verk- smiðjunnar og raforkuveranna við Sog og Laxá, kleifa. En Tím- inn skammar þá ekki fyrir fjand- skap við Áburðarvei’ksmiðjuna. Hins vegar rægir hann gjálfstæð- ismenn árið út og árið inn og lýgur því hreinlega upp, að þeir hafi sýnt óvild í garð verk- smiðjunnar, enda þótt alþjóð viti, að þeir hafa unnið manna drengilegast að byggingu hennar. En þannig er di-engskapur Tímamanna. Sjálfstæðismenn kippa sér ekkert upp við hann. Þeir þekkja Tímadrengskap- inn af langri og fjölþættri reynslu. Fengu ekkert traust hjá Stéttasambandinu LEIÐTOGAR Fi’arrsóknarflokks- ins höfðu haft töluverðan við- búnað til þess að afla sér trausts- yfirlýsingar af hálfu aðalfundar Stéttarsambands bænda við hina nýju ríkisstjórn. En þegar á fund- inn kom, töldu Framsóknarmenn ekki ráðlegt að sýna slíka til- lögu. Þeir fundu, að fulltrúar bænda töldu stjórnarmyndun Framsóknar með kommúnistum og krötum hina tortryggilegustu. Engin tillaga um traustsyfirlýs- ingu var þess vegna flutt á fundi Stéttarsambandsins á Blönduósi. Hiiis vegar kom fram rök- studd gagnrýni á fundinum á þá ráðabreytni ríkisstjórnar- innar að hafa ekki samráð við samtök landbúnaðarins um ráðstafanir þær, sem stjórnin gerði með bráðabirgðalögum gagnvart kaupgjaldi og verð- lagi fyrir skömmu síðan. Þess- ari gagnrýni var ekki linekkt og raunar alls ekki svarað af hálfu Framsóknarmanna. Brask með bráðabirgðalögum RÍKISSTJÓRNIN hefur nú í vik- unni gefið út enn ein bráðabirgða lögin. Er það „vitlausi maðurinn í skutnum“, sem fyrir þeim stend- ur, eins og nokkrum öðrum bráðabirgðalögum, sem stjórnin hefur gefið út. Svo virðist, sem þessi komm- únistaráðherra haldi, að ekkert sé sjálfsagðara og eðlilegra en að stjórna landinu með bráða- birgðalögum. Virðist hann nú þegar vera farinn að líta á sig sem einræðisherra. Um breytingarnar á lögunum um húsnæðismálastjórn er annars það eitt að segja, að þær fela fyrst og fremst í sér pólitískt brask. Ráðhei'rann getur ekki beðið eftir Alþingi til þess að gera þá breytingu á lögunum að tryggja honum pólitísk völd í húsnæðismáiastjórn. Þess vegna rýkur hann til og setur bráða- bii’gðalög. Þess verður atf vænta, að stjórnin flýti sér eins mikitf atf því atf útvega lánsfjármagn til íbúffabygginga eins og til þess aff afla sér pólitískra yfirráffa í húsnæðismálastjói-n. Almenn ingur í landinu myndi áreiff- anlega fagna slíkum ráðstöf- unum meira heldur en hinu einræffiskennda bráffabirgffa- lagabrölti Hannibals. Heimsókn Lester Pearsons TILKYNNT hefur verið, að Lester Pearson, utanríkisráð- herra Kanada muni koma í op- inbera heimsókn til íslands í byrjun næstu viku. En hann er eins og kunnugt er einn þeirra þriggja manna, sem ráð Atlants- hafsbandalagsins hefur falið að athuga nýjar leiðir til þess að treysta samtökin og gera starf- semi þeirra fjölþættari og áhrifa- meiri til gagns fyrir meðlima- þjóðir þeirra og til eflingar heims friðnum. Það er mjög óheppilegt, að þegar þessi fulltrúi frá NATO ltemur hingað til lands, skuli ut- anríkisráðherra fslands ekki geta í’ætt við hann. En eins og kunn- ugt er, er Guðmundur f. Guð- mundsson utanríkisráðherra er- lendis sér til heilsubótar. Standa vonir til þess að hann hafi kom- izt til heilsu sinnar, þannig að hann geti tekið upp störf sín í næsta mánuði, um svipað leyti og Alþingi kemur sarnan. Þang- að til gegnir Emil Jónsson störf- um utanríkisráðherra. En hann mun líta svo á, aff hinum raunverulega utanrík- isráffherra beri fyrst og fremst aff stýra þeim umræffum, sem framundan eru um öryggismál íslands, bæffi viff forráðamenn Atlantshafsbandalagsins og viff Bandaríkjamenn í sambandi viff uppsögn varnarsamnings- ins og samþykktina um brott- flutning varnarliffsins frá Keflavíkurflugvelli. ísland og kommúnisminn í ERLENDUM blöðum, bæði á Norðurlöndum og meðal annarra vestrænna lýðræðisþjóða, er stöð- ugt mikið í’ætt um hina nýju af- stöðu íslands í alþjóðamálum. Það hefur einnig vakið mikla at- hygli í nágrannalöndum okkar, að Rússar virðast nú leggja mikla áhei-zlu á að auka áhrif sín á íslandi. Er bent á það, að íslendingar geri sér þetta naum- ast ljóst sjálfir. Tveir borgai-a- legir iýðræðisflokkar, Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðu- flokkui’inn, sitji í stjórn með kommúnistum og hjálpi þeim til þess að opna ailar gáttir fyrir rússneskum áhrifuxn. Kemur víða fram mikill uggur um framtíð íslands, eins og nú horfi málum. Þaff er rétt aff íslendingar viti sjálfir ,hvert álit nágranna þjóffa þeirra er á þvi, sem hér hefur veriff aff gerast undan- farnar vikur og mánuffi. Það er rétt, aff Sovét áhrif flæffa nú yfir ísland. Allra bi’agffa er leitaff af hálfu kommúnista til þess aff gera íslendinga háffa Rússum á sem flestum sviffum, bæffi menn- ingarlega og efnahagsiega. Þaff væri blindur maður, sem ekki sæi, aff þetta er þaff, sem er aff gerast á íslandi i dag. Stefna núverandi for- sætisráðherra og kommúnista í utanríkis- og öryggismálum landsins hefur þegar þokaff ís- landi geigvænlega nálægt skugga hins austræna ein,- ræffis. . Ef íslendingar gera sér þetta ekki ljóst í tæka tíff, getur mikil ógæfa lxent þessa Þjóff. Hrapallegt gáleysi ! KJARNI málsins er sá, að tveir lýðræðisflokkar, Framsókn og Alþýðuflokkurinn, hafa gerzt sekir um hrapallegt gáleysi. Þeir hafa gert bandalag við samsæris- menn, sem. hinar frjálsu þjóðir mynduðu varnarbandalag sitt til þess að verjast. Samvinna við kommúnista hér á landi er nefni- lega jafnframt samvinna við heimskommúnismann. Lúffvík Jósefsson og Hanni- bal eru fulltrúar hans í ráðu- neyti Hermanns Jónassonar. Þaff er skuggalegasta staff- reyndin um þá stjórn, sem nú fer meff völd í landinu. Þess vegna fylgjast valdamenn í Kreml og Ieppríkjum komm- únista meff öllu því, sem ger- ist í ríkisstjórn íslands. Þess vegna hefur hin nýja ríkis- stjórn skapað megna andúð og vantraust á íslenzku þjóðinni meffal frjálsra þjóða; og þess vegna ríkir einlægur fögnuffur í Moskvu yfir hinni breyttu stefnu íslendinga í utanríkis- og öryggismálum. Það er vissulega engin tilvilj- un, að Rússar leggja nú höfuð- kapp á að auka áhrif sín hér á landi. Að sinni skulu aðferðir þeirra til þess ekki ræddar nán- ar. En íslendingum er það lífs- nauðsyn að vera vel vakandi gagnvart því, sem hér kann að gei’ast á næstu mánuðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.