Morgunblaðið - 23.09.1956, Page 15

Morgunblaðið - 23.09.1956, Page 15
Sunnudagur 23. sept. 1956 M O R G TJ 'JV B L 4 Ð 1Ð Ég vona að ég eigi enn eítir að ioro í Lengstn leit og það oft — sagði fjollhóngnr Gnúpverja, Jóhonn d Horaorsheiði í hinni nýju Skaftholtsrétt ÓSVIKIN RÉTTARSTEMMING Þarna ríkti hin ósvikna réttar- stemming yfir öllu og öllum, þó veðrið hefði mátt vera betra. Á réttarveggjum sváfu nokkrir ör- þreyttir hundar, sem ekki vökn- VIÐ vorum á leið í hinar gömlu og merku Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi og komnir upp fyrir Sandlæk, er við mættum langri hestalest, sem 2 menn voru með. Þetta hljóta að vera trússarar, sagði ferðafélagi minn, og trúss- arar voru það. Þeir voru að koma af fjalli og voru hestarnir klyfj- aðir töskum og tjöldum og þeir höfðu farið á undan rekstrinum af Skeiðum og úr Flóa. Þarna voru rúmlega 30 hestar með far- angurinn. Svo sem 4 km. innar mættum við safninu, 4—5000 fjár og var það á leið niður á Murn eyrar, þar sem það var haft í fyrrinótt, en í Skeiðaréttum mun hafa verið réttað á föstudaginn. Fánar voru við hún í Skaft- holtsrétt, enda merkisdagur í sögu þessarar fornfrægu réttar, sem menn segja að til hafi verið á þessum stað samkvæmt fyrstu sögnum. Það er nýbúið að endur- byggja Skaftholtsrétt svo ramm- byggilega, að hún getur staðið uðu þótt hávaði væri mikill. Al- menningurinn var fullur af fal- legasta fé og bændur önnum kafnir við að draga í dilka. Hróp- að er af öllum kröftum öll möguleg bæjanöfn í sveitinni: Hæli, Geldingarholt, Hamars- heiði, Skaftholt o. fl. o. fl., og bændurnir grípa handföstu taki í horn dilka sinna, sem þeir svo draga yfir almenninginn, sem vegna rigningar er mjög blautur, hver í sinn dilk, sem greinilega er merktur með viðkomandi bæjarnafni. Þrátt fyrir miklar annir gefa menn sér tíma til að fá sér í nefið og taka tal saman stutta stund og einstaka ferðapeli sést ganga manna á milli. Kindurnar jarma hundruð- um saman og eru raddböndin í sumum tekin að slakna nokkuð. í gegnum þennan réttarsöng berast hnegg frá trússhestunum, sem standa tugum saman í girð- ingu hjá gerðinu. Leitarmenn eru glaðir og ánægðir yfir því að vera komnir til byggða með svo Um aldir hafa þessir tveir verið ómissandi og tryggir vinir fjalla- manna, og svo mun vonandi lengi enn. enn um langan aldur. Skaftholts- rétt rúmar nú allt að 12000 fjár og hún er hlaðin úr fornu hraun- grjóti í axlarhæð og veggir þakt- ir torfi að ofan. Almenningurinn er sporöskjulagaður, en kringum hann eru 29 dilkar og er sumum þeirra skipt með trégrindum. Gerðið er ekki hlaðið, en afgirt og liggur breiður hlaðinn gangur að almenningnum. Gnúpverjar hafa tekið þann kost að byggja þessa nýju rétt úr efni er til fellur á staðnum. Fellur hún því vel í umhverfið og er skemmtileg tilbreyting í bygg-1 ingamáta á þessari steinsteypu- öld. Dregið hafði verið úr safninu fé Skeiðamanna um morguninn og var búið að rétta talsverðan hluta af fénu er við komum íallegt fé af fjalli. Mikill er mun- urinn á fénu nú og er réttað var í fyrrahaust. Þeir telja sennilegt að dilkarnir muni almennt leggja sig á 13—15 kg. — Sumir segja meira og það sé ekki alveg að marka fyrr en féð hafi hvílt sig, því það sé slæpt eftir rign- inguna. Það er kringum 6000 fjár í réttunum og hefur aldrei verið jafnmargt síðan í gamla daga. HANN RÆÐUR ÖLLU Á FJALLI OG í RÉTTUM Steinþór Gestsson á Hæli bend- ir mér á aldraðan mann í leður- jakka, olíubuxum, með nokkuð snjáða húfu á höfðinu og með svipu fyrir aftan bak. Þetta er Jóhann Kolbeinsson bóndi á Hamarsheiði, sem þú munt kann- asr. ,7’ð nð hafa heyrt nefndan á nafn, en Jóhann er fjallkóngur okkar í Gnúpverjahreppnum. — Það er hann sem stjórnar hér öllu frá því göngur hefjast unz réttum lýkur hér í dag. Jóhann stóð inni í miðjum fjárhópnum í almenningnum. Þá stundina hafði hann öðrum hnöppum að hneppa en ræða við okkur blaða- mennina. Steinþór á Hæli sagði mér að nú hefði Jóhann á Hamarsheiði, farið í lengstu leit sem og í öll hin skiptin þau 29 ár, sem hann hefur verið fjallkóngur Gnúp- verja. — Með því er*att við, að farið er allt inn að Arnarfelli hinu mikla í Hofsjökli. Eru fjall- menn 9 daga í þeim leiðangri í óbyggðum. Jóhann er nú 73 ára. Hvar sem á hann er litið er hann hinn kempulegasti og sýni- lega vel til forustu fallinn. Hann er mestur fjáreigandi í Gnúp- verjahreppi og á nú um 600 fjár. LENGSTI AFRÉTTURINN Afréttur Gnúpverja liggur inn á öræfin meðfram Þjórsá og er talinn með lengstu afréttum landsins. Inn að Arnarfelli er 120 km leið frá Skriðufelli í Þjórs árdal. Þar er víða mikil náttúru- fegurð, háir fossar, víðlend og frjósöm graslendi með fjölbreytt- um gróðri, straumharðar og vatns miklar ár, fjöll og sandar og jöklar. íslenzk öræfanáttúra birt- ist gangnamönnunum í sinni fjölskrúðugustu og tignarlegusíii mynd. ★ ★ Það fjölgar óðum í dilkum bændanna. Hundarnir sem sváfu á réttarveggnum er við komum, eru vaknaðir. Kvenþjóðin lætur ekki sitt eftir liggja í almenn- ingnum og krakkarnir, sem sum- arlangt hafa hlakkað til þessa dags, hjálpast að við- að draga féð. — Útundir vegg standa nokkrar konur og karlar og taka úr sér hrollinn og syngja „Det var en lördagaften“. Duglegur strákur kemur með dilk og spyr nærstaddan föður sinn, hver eiga muni markið. — Það er frá Ás- um. — Stráksi kallar eins og hann hefur rödd til bæjarnafnið og Ásabóndinn kemur fljótt á vettvang og grípur kindina. í al- menningnum stendur Pétur bóndi Guðmundsson á Þórustöð- um í Ölfusi með nokkur börn í kringum sig: — Ég er að sýna Reykjavíkuræskunni hvernig virkilegur réttardagur er. í sveit, sagði hann. Og í almenningnum er önnum kafinn við réttarstörf- in vngstur fjalimanna, Gestur sonur Steinþórs á Hæli, 15 ára. Þetta er stór dagur í lífi hans. Við hliðið að 29. dilknum í Skaftholtsrétt stendur á svörtu skilti með hvítum stöfum: HAM- ARSHEIÐI. — Fjallkóngurinn er að stinga enn einum hinna fallegu dilka sinna þar inn. EKKI í JAFNMIKILLI VEÐURBLÍÐU Á FJALLI — Hvernig gekk nú smala- mennskan að þessu sinni? — Alveg prýðilega, sagði Jó- hann. — Ég minnist þess ekki að hafa verið í jafnmikilli veður- blíðu í göngum, og í slíku veðri er gaman að koma í Arnarfell. Jóhann á Hamarsheiði sagði mér að þetta hefði verið sín 29. ferð sem fjallkóngs. — Já, bless- aður vertu, það er ekkert að vera fjallkóngur í 29 ár eða lengur, þegar maður er með jafnhraust- um mönnum og duglegum gangna mönnum sem sveitungum mín- um. Og þó á ýmsu hafi gengið i ferðunum í misjöfnum haust- veðrum, þá er mér ekki kunnugt um að mönnum hafi nokkru sinni orðið sundurorða, jafnvel ekki þótt kappræður um þjóðmál hafi verið í tjöldunum. En margt ber á góma þar sem áhugasamir bændur koma saman. Síðan tókum við að ræða um búskap bænda í Gnúpverja- hreppi. — Þegar við úrðum að fella fjárstofninn hér á árunum, þá tóku menn upp nautgripa- rækt og mjólkurframleiðslu og er allmikið af kúm hér í sveit- inni nú, miklu meira en áður var. Þá var það fyrst og fremst fjár- búskapur sem bændur ráku. KÚABÚ EÐA FJÁRBÚ — Hvort myndir þú þá kjósa, ef þú værir ungur bóndi að byrja búskap á Hamarsheiði? — Ég skal ekki um það segja, hvort verður almennara hér, að bændur stundi mjólkurfram- leiðslu eða fjárrækt, en hvað mér viðvíkur, þá myndi ég velja mér fjárbú. Ánnars er það vissulega alvarlegt mál hjá okkur, sagði Jóhann síðan, að ungt fólk hræð- ist framleiðslustörfin og þar tel ég skólana bera nokkra ábyrg. Ég hef hvergi orðið þess var í skólum landsins, að kennslunni væri þannig hagað að reynt væri að skapa náið samband og áhuga unglinganna á þeim meginstoð- um sem renna undir þetta litla þjóðfélag okkar, nefnilega fram- leiðslunni til sjávar og sveita. — RAFMAGNIÐ — Er ekki rafmagnið það, sem þið bíðið hér eftir? Jóhann í Hamarsheiði fékk um 600 fjár af fjalli. Er hann hér í dilk sínum. — Jú, við það eru auðvitað miklar vonir tengdar. Við bænd- urnir hér höfum oft rætt um þessi mál. Einhvern veginn er það svo að við óttumst að geta ekki haft eins mikil afnot af því sem æskilegt og nauðsynlegt væri fyrir heimili okkar og bú. Við erum nefnilega hræddir um að það verði of dýrt. Ég get sagt þér að nokkuð þekki ég til þessa. Ég veit þess dæmi tun bæ hér í sveitinni, þar sem dieselrafstöð er, að þar er rafmagnið bóndan- um ódýrara til heimilishalds og bús heldur en hjá bónda á orku- veitusvæði. En við sjáum nú til þegar sá dagur rennur upp að rafmagnið kemur í sveitina, en það mun vera áætlað eftir svo sem tvö ár. Enn barst tal okkar að bú- skaparmálum, húsbyggingum, votheysgerð, landbúnaðarvélum og sauðfjárrækt og var fróðlegt að heyra Jóhann í Hamarsheiði segja frá reynslu sinni og skoð- unum í þessum efnum. HVÍLD, SEM MANNI ER NAUÐSYNLEG — Hvað viltu svo segja mér um þínar mörgu göngur? — Ég finn alltaf hvíld í því að fara á fjall, sagði Jóhann. — Sama hvort ferðin hefur verið ströng eða ekki, svo sem stund- um hefur verið. Mér finnst mað- ur fá hvíld í óbyggðaferðunum, sem manni er lífsnauðsynleg á þessari öld hraðans. Ég þrái alltaf fjöllin og afrétt- urinn finnst mér vera rétt eins og gamall, góður vinur. Ég vona, sagði Jóhann á Hamarsheiði, að ég eigi enn eftir að fara í löngu- leitina, inn til Arnaríeils hins mikla og það oft. Hann tók nú up dósir sínar, silfurdósir, og bauð í nefið. Á lokið er grafið nafn hans en á bakið þetta, sem segir mikla og langa sögu í fáum orðum: Frá nokkrum fjallamönn- um. Sv. Þ. Þessi mynd er tekin ofan af Ska holti, yfir hina miklu fjárré Gnúpverja. Er hún í tölu him stærri og merkari rétta hér landi. (Myndirnar tók ljósm. M ÓI. K.M.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.