Morgunblaðið - 23.09.1956, Page 24
Veðrið
Sunnan kaldl - sumstaðar rigning
rogttttMftWfr
218. tbl. — Sunnudagur 23. september 1956
Reykjavíkurbréf
Sjá. bls. 13.
Ætlaði fram úr bíl en
|)á kom maður á bifhjóli
Slys í fyrrinótt á Suðurlandsbraul.
IFYRRINÓTT slösuðust tveir menn hér í bænum í umferðar-
slysum. Á Laugarnesvegi varð maður fyrir bíl og á Suðurlands-
braut rákust saman maður á skellinöðru og sendiferðabíll. — Slas-
aðist þessi maður talsvert, en hinn fyrrnefndi minna..
Þessar myndir voru teknar í Búnaðarbankanum þegar höggmynd Ólafar Pálsdóttur var valinn þar
staður. f miðið er listaverkið, til vinstri Hilmar Stefánsson bankastjóri Búnaðarbankans og til hægri
Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Búnaðarbankinn kaupir högg-
mynd eftir Ólöfu Pálsdóttur
Listaverkið verður í afgreiðslu-
sal bankans
IAFGREIÐSLUSAL Búnaðarbankans í Reykjavík hefur verið
komið fyrir höggmynd af ungum manni eftir frú Ólöfu
Pálsdóttur myndhöggvara. Hefur Búnaðarbankinn keypt myndina
og látið koma henni þarna fyrir á fótstalli, sem er í stíl við inn-
réttingu aígreiðslusalarins. Fer myndin ágætlega á þessum stað.
<S>-
í fyrrakvöld voru akstursskil-
yrði slæm, eins og oft vill verða
þegar rigning er og göturnar
blautar.
Slysið á Suðurlandsbrautinni
/arð með þejm hætti, að sendi-
ferðabíllinn R-1958 var á leið til
Reykjavíkur og ætlaði bílstjór-
inn að aka fram úr öðrum bíl.
En er hann var í þann veginn
að fara fram úr, tók bílstjórinn
eftir ljósi framundan aðeins fá-
einar bíllengdir. Hann snar-
hemlaði, en bíllinn rann eftir
blautri, sleipri götunni og á-
rekstri varð ekki forðað. Maður-
inn á skellinöðrunni, Emst Jen-
sen, Suðurlandsbraut 85, meidd-
ist allmikið á höfði, er hann skall
framan á vélarhús bílsins af því-
líku afli að bíllinn skemmdist
mikið. Grindin framan á vélar-
húsi og vélarhlífin sjálf dælduð-
ust mikið. Auk þess sem Ernst
Siglufjarðartogap
arnir afla vel
SIGLUFIRÐI, 22. sept. — Báðir
Siglufjarðartogaranir eru nú á
veiðum á heimamiðum. Hafa þeir
aflað vel undanfarið. Tveir bálar,
sem stunda fiskveiðar héðan,
hafa lagt upp með togurunum í
frystihúsin og hafa þeir einnig
aílað vel.
Unnið er nú við síldina sem
var söltuð hér í sumar. Er verið
að ganga frá henni til útflutnings.
Úrslit ísinnds-
mótsins í dog
f DAG klukkan 2, fer fram úr-
slitaleikur íslandsmótsins í knatt
spyrnu. Til úrslita leika Valur
og KR og standa leikar þannig
fyrir leikinn, að Valur hefur 8
stig, en KR 7 stig. Nægir því Val
jafntefli til sigurs í mótinu.
Skipið hlauf nafnið
Hamrafell
f GÆRDAG fór fram í Nynas-
skaddaðist mikið á höfði hlaut
hann mjög slæmt fótbrot. í gær
var líðan hans eftir atvikum og
var hann kominn til meðvitund-
ar. Bifhjólið gereyðilagðist en
það lagðist alveg saman.
Á Laugarnesvegi varð drukkinn
maður fyrir bíl og slapp b'+ið
meiddur.
15-20 þús. fjár sláfr-
að hjá Kaupfélaoi
Stykkishólms
STYKKISHÓLMI, 22. sept.: —
Slátrun hófst hjá Kaupfélagii
Stykkishólms fyrir nokkrum dög-
um og eins hjá verzlun Sigurðar
Ágústssonar. Verður slátrað þar
mjög miklu fleira fé en síðast
liðið ár. En gert er ráð fyrir, að
slátrað verði hjá Kaupfélaginu
15—20 þús. fjár á félagssvæðinu,
en það mun vera í 6—7 stöðum.
Félagssvæðið nær yfir fimm
hreppa í Snæfellsnessýslu og
þrjá hreppa í Dalasýslu, en í
Dalasýsiu verður fé skorið niður
vegna mæðiveikinnar.
Hjá Sigurði Ágústssyni mun
verða slátrað milli 4 og 5000 fjár.
Er það mun fleira en í fyrra, en
þá var slátrað hjá honum þrem
þúsundum. Verður slátrað á veg-
um þeirrar verzlunar á fjórum
stöðurn. — Árni.
LmuGRI, Ströndum, 21. sept: —
Veður hefur verið mjög slæmt
hér síðasta sólarhring, stormur
og haugabrim. Var veðrið svo
vont að Flóabáturinn ,sem átti
að koma hingað í dag, tepptist
vegna veðursins. — Regína.
HLAUT FRÁBÆRA DÓMA
Höggmynd þessi er meðal
þekktustu verka frú Ólafar. —
Hún er gerð árið 1952 og kom
fyrst fram á sýningu i Charlott-
enborg 1953 og var fyrsta högg-
mynd listakonunnar á þeim sýn-
ingum. Hlaut myndin frábæra
dóma listgagnrýnenda dönsku
blaðanna. Nú hefur myndin verið
steypt í eir og Búnaðarbankinn
keypt hana eins og fyrr segir.
Búnaðarbankinn hefur áður
keypt listaverk til að fegra með
húsakynni bankans, og má nefna
hið stóra málverk Jóns Engil-
berts í afgreiðslusalnum, auk
fleiri listaverka á öðrum stöðum
í húsinu. Hafa forráðamenn bank-
ans þar í senn í huga hag stofn-
unarinnar og stuðning við listir
í landinu.
HEFUR HLOTIÐ MIKLA
VIÐURKENNINGU
Frú Ólöf Pálsdóttir hefur þeg-
ar hlotið mikla viðurkenningu
sem listakona, og hafa opinberar
stofnanir erlendis fest kaup á
verkum eftir hana. Bæjarstjórn
Árósa í Danmörku keypti fyrir
nokkru telpumynd, íem vakti
mikla athygli á sýningu þar, og
nýlega hefur hún selt til Ítalíu
konumynd, sem verið er að
steypa í brons í Kaupmannahöfn.
Fennti í fjöll á Vesl-
fjörðum
FLATEYRI, 21. september: —
í dag hefur verið norð-austan
hvassviðri hér í önundarfirði og
í nótt fennti í fjöll, svo að við
lá að Breiðadalsheiði tepptist. í
dag hefur snjóinn þó tekið upp
að miklu leyti og er búizt við að
leysi af heiðinni svo ekki þurfi
að moka hana. — Baldur
Sagði sig ói
JUþýðaflokknum
FORMAÐUR Verkalýðsfálags A-
Húnvetninga á Blönduósi, Jón
Einarsson, hefur nýlega sagt sig
i'ir Alþýðuflokknum. — Ritaði
hann miðstjórn Alþýðuflokksins
bréf og tilkynnti hcnni úrsögn
sína.
Lílil kartöfluupp-
skera í Arnarfirði
BÍLDUDAL, 21. sept.: — Kartöflu
uppskera er hér með minna móti
og er mjög misjöfn. Næturfrost
gerði í ágúst og féll þá karöflu-
grasið og má kenna því um hve
uppskeran er léleg. Rigning hefur
verið alla þessa viku og tíð frek-
ar stirð til lands og sjávar.
— Friðrik.
Ógæftir fyrir vestan
BÍLDUDAL, 21. sept.: — Rækju-
veiðin hefur verið fremur treg
undanfarna daga. Hafa verið
stormar og veiðiveður ekki gott.
Bátarnir hafa haft lítið næði og
ekki getað verið úti heilan dag
í einu. í dag er austan bræla
en rækjubátarnir eru þó á sjó.
Tveir bátar hafa stundað línu-
veiði og hefur aflinn verið innan
við eina lest í róðri, á 50 lóðir.
— Friðrik.
STYKKISHÓLMI, 22. sept.: —
Síldveiði hefur engin verið und-
anfarið en trillubátar hafa róið
öðru hverju til fiskjar og aflað
sæmilega. — Árni.
hafn í Svíþjóð afhending oh'u-
skips þess er SÍS og Olíufélagið
hafa lteypt hingað til landsins
Skýrði blaðafulltrúi SÍS blaðinu
svo frá því í gær að skipið hefði
hlotið nafnið Hamrafell.
Á hvaö seljast nú
Kiljan og Einar
Uppboð Signrðar Benediktssonar
hefjast aftur
NÚ um mánaðamótin hefur Sigurður Bcnediktsson hin kunnu
bóka- og listaverkauppboð sín aftur eftir sumarlangt hlé. Sig-
urður hefur sem kunnugt er haldið siík uppboð nokkra vetur við
hina beztu aðsókn og góðan róm manna, einkum safnara sem þykj-
ast sjaldnast fara þangað erindisleysu. Fyrst heldur Sigurður nú
bókauppboð, en síðan annað uppboð í október og er það listaverka-
uppboð.
MEST FRUMÚTGÁFUR
Á bókauppboðinu verða ýmsar
fágæfar bækur, sem aðeins
má segja að séu í höndum
safnara, en hafa nú verið ófáan-
legar á frjálsum markaði langan
Happdrætti Sjálfstæðisflokksios
SALA happdrættismiða í hinu nýja bifreiðarhappdrætti
Sjálfstæðisflokksins hófst fyrir tveimur dögum og hefur
verið mikil eftirspurn eftir miðum.
Skrifstofa happdrættisins er í Sjálfstæðishúsinu, sími 7100,
og verður skrifstofan opin í dag til kl. 5 síðdegis.
Þeir, sem vilja tryggja sér ákveðin númer, ættu ekki að
láta dragast að hafa samband við skrifstofu happdrættisins.
Sjálfstæðisfólk! Sameinumst um að ljúka sem fyrst sölu
miða í happdrætti þessu. Kaupum öll miða og fáum kunn-
ingja okkar einnig til að gera það. Með þvi leggjum við
nokkurn skerf til hinnar mikilvægu starfsemi Sjálfstæðis-
flokksins og fáum jafnframt tækifæri til þess að keppa um
glæsilegan happdrættisvinning.
tíma. Ber þar fyrst og helzt til að
telja frumútgáfur af öllurn verk-
um Kiljans. Er fróðlegt að vita
á hve háu verði sú útgáfa selst
nú, einkum þar sem margir hafa
byrjað að safna frumútgáfum af
verkum Kiljans eftir að hann
gerðist „nóbílismaður". Þá er og
að nefna írumútgáfur af öllum
verkum Einars Benediktssonar,
sjaldgæfar bækur mjög og þó
einkum Sögur og kvæði. Fyrsta
útgáfa af Snót verður og þarna
og mikið af frumútgáfum ís-
lenzkra ljóðabóka.
ENSKAR FERÐABÆKUR
Svo sem af þessu sést eru þetta
að aðalstofni til islenzkar bæk-
ur, en auk þess hefur Sigurður
nokkrar af ferðabókum um ís-
land á ensku til sölu, en þær
seldi hann flestar í fyrravetur.
Þetta bókauppboð Sigurðar er
hið 19. í röðinni, en sérstaklega
hyggst hann vanda til hins 20.,
sem er listmunauppboðið, að því
er hann tjáði blaðinu í vor.