Morgunblaðið - 14.10.1956, Síða 4
-4
M O R G V /V B L 4 Ð 1Ð
Sunnudagur 14. okt. 1956
í dug er 288. dagur ársins.
Sunnu'dagur 14. okt<^er.
Árdegisflæði kl. 2,23.
SííWegisflæði kl. 13,06.
Slysavarðstofa Reykjavíkur í
Heilsuvemdarstöðinni, er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. (fyrir vitjanir), er á sama
stað, kl. 18—8. — Sími 5030. —
NæturvörSur er í Ingólfs-apó-
teki, sími 1330. — Ennfremur eru
Holts-apótek, Apótek Austurbæj-
ar og Vesturbæjar-apótek opin
daglega til kl. 8 nema á laugar-
dögum til kl. 4. Holts-apótek er
opið á sunnudögum milli kl. 1 og 4.
Hafnarfjarðar- og Keflavíkur
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga frá kl. 13-16.
Hafnarfjörður: ‘— Næturlæknir
er Garðar Ólafsson.
Akureyri: — Næturvörður er í
Stjörnu-apóteH, sími 1718. Nætur-
læknir er Erlendur Konráðsson.
□ EDDA 595610167 = 7.
□ MlMIR 595610157 == 3
I.O.O.F. 3 = 13810158 =
I.O.O.F. = Ob. 1. P. = 13810168%
— 9. P. St.
• Veðrið •
Framan af degi í gærdag, var
hægviðri og víðast úrkomu-
laust. Seinni part dagsins
gerði suð-austan stinnings-
kalda með rigningu, á Suður-
landi. — í Reykjavík var hiti
6 stig, á Akureyri 1 stig, á
Dalatanga 1 stig og á Galtar-
vita 4 stig, kl. 3 í gærdag. —
Mestur hiti mældist í Rvík og
á Loftsölum kl. 3 í gær, 6 st.,
en minnstur hiti var á sama
tíma, á Raufarhöfn, 0 stig.
1 London var hiti á hádegi í
gær, 13 stig, í París 14 stig,
í Berlín 13 stig, í Osló 9 stig,
í Stokkhólmi 11 stig, í Kaup-
mannahöfn 12 stig, í Þórs-
höfn í Færeyjum 10 stig og í
New York, 9 stig.
• Messur •
Bessastaðir: — Messað í dag kl.
2. — Séra Garðar Þorsteinsson.
Óháði söfnuðurinn: — Messa í
Aðventkirkjunni kl. 11 árdegis. —
Séra Emil Bjömsson.
Frikirkjan í Hafnarfirði: —
Messa kl. 2. Kristinn Stefánsson.
Eliiheimilið Grund: — Guðs-
þjónusta kl. 2. — Séra Bjarni
Jónsson. —■
• Brúðkaup •
I gær voru gefin saman í hjóna
band Þorbjörg Valgeirsdóttir og
Ólafur Hannesson, prentari,
Rauðarárstíg 7.
1 gær voru gefin saman í hjóna
band af séra Jóni Thorárensen,
ungfrú Valdís Kristjónsdóttir frá
Svignaskarði í Borgarfirði og
Björn Jónsson, vélstjóri, Kirkju-
teig 7, — Reykjavík.
• Afmæli •
Sigurður ' Sigurðsson, fyrrv.
kennari og amtsbókavörður á
Seyðisfirði, er hálf-níræður í
dag. Hann var fyrrum kennari
við Hólaskóla.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag Islands h.f.:
Brúarfoss fór frá London 12. þ.
FERDINAND
Dagbók
og litskrúð eilífðarinnar
flæddi um sál mína.
Ég varð gagntekinn óræðri þrá
og tók ofan höfuðið
og sveif gegn um lokaðan glugga,
inn í dýrð hins óskynj anlega.
Atómskáld Hússin.
SannfœrSust þœr!
m. til Boulogne, Antwerpen, Hull
og Reykjavíkur. Dettifoss er í
Reykjavík. Fjallfoss er í Hull. —
Goðafoss fór frá Sauðárkróki í
gærdag til Súgandafjarðar, Flat-
eyrar, ísafjarðar, Þingeyrar,
Bíldudals og Patreksf jarðar. Gull-
foss er í Reykjavík. Lagarfoss fór
frá Reykjavík í gærkveldi til Flat-
eyrar og ísafjarðar og þaðan til
New York. Reykjafoss fór frá
Rvík 12. þ.m. til Flateyrar, Isa-
fjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar,
Húsavíkur, Seyðisfjarðar, Norð-
fjarðar og Eskifjai-ðar. Tröllafos
fór frá Rotterdam 13. þ.m. til
Hamborgar og Reykjavíkur. —
Tungufoss fór frá Gautaborg 12.
þ.m. til Kristiansand, Siglufjarð-
ar og Reykjavíkur.
• Flugferðir •
Flugfélag tslands h.f.:
Millilandaflug: Gullfaxi er vænt
anlegur til Reykjavíkur kl. 17,45 í
dag frá Hamborg og Kaupmanna-
höfn. — Innanlandsflug: í dag er
áætlað að fljúga til Akureyrar og
Vestmannaeyja. — Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar.
Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar
Isafjarðar og Vestmannaeyja.
Kominn heim
Brynjólfur Daggson béraðslækn
ir í Kópavogi er kominn úr sumar-
leyfi. Sami viðtalstími og áður. —
Bólusetningar gegn mænusótt hefj
ast á morgun kl. 10—12 og 1,15—
4, og standa yfir næstu daga.
Kirkjufundurinn
Forgöngumenn kirkjufundarins,
sem hefst laugardaginn 20. októ-
ber, vilja láta þess getið, til viðbót
ar við áður tilkynnt, að samkomu-
lag hefur orðið um að annar fram-
sögumaður dagskrárliðsins, safn-
Fuíltrúar kvenna í japanska
þinginu og kvenfélagasamtök þar
í landi hafa ákveðið að berjast
gegn öllum nektar-sýningum
kvenna, ef telja verði að þaer séu
fyrir neðan virðingu þeirra. —
Japanska leikkonan Lily Miyoko,
sem er 21 árs, fékk leyíi til þess
að leika eitt sýningaratriði sitt
fyrir konurnar og fór sýningin
fram í þinghúsinu. Hinni ungu
fögru stúlku var ekið inn í bað-
keri, þar sem hún fékk sér froðu-
bað. Að sýningunni lokinni var
ekki hægt að fá hinar siðavöndu
konur til að Iáta í ljós álit sitt.
En sennilega hafa þær ekki skipt
um skoðun!
aðarstarfsemi og sálgæzla, verður
dr. med. Ámi Árnason, með séra
Lárusi Halldórssyni. Og ennfrem
ur að erindin tvö um sjálfvalið
efni kl. 9 að kveldi sunnudagsins
21. okt. (í Fríkirkjunni), flytja
þeir dr. Ásmundur Guðmundsson
biskup og séra Guðmundur Sveins
son skólastjóri.
K. F. U. K., Vindáshlíð
Hlíðarkaffið er í dag kl. 3. —
Bíll Berklavarnadagsins
Þann 8. þ.m. var dregið í merkja
happdrætti Berklavarnadagsins,
af fulltrúa borgarfógeta, um Mosk
vitch-bifreið. Upp kom nr. 3. Eig-
andi merkis með þessu númeri,
getur, nú þegar, vitjað bílsins til
S.I.B.S., Austurstræti 9.
Kvenfélag Neskirkju
Vetrarstarfsemin hefst með
fundi í Neskirkju, þriðjudaginn
15. okt. kl. 8,30. Félagskonur fjöl-
Kvenfélag Kópavogs
Fundur mánudagskvöldið kl.
8,30 í Barnaskólanui
KFUM og K, Hafnarfirði
Sunnudagaskólinn hefst kl. 10.
Kl. 1% er drengjafundur og um
kvöldið kl. 8% verður almenn
samkoma.
Reykjavíkurævintýri
Bakkabræðra
Segja má, að lítið hafi borið á
kvikmyndum við hæfi barna und-
anfarið í bíóunum. Óskar Gislason
kvikmyndari hefur gert tvær kvik
myndir fyrir böm, sem þau hafa
haft mikla skemmtun af, „Síðasti
bærinn í dalnum“ og „BakkabræS-
ur“. — Hefur hann tekið upp sýn
ingar á þeim annað veifið og ávallt
við beztu undirtektir yngstu bíó-
gestanrfa. — KI. 3 í dag sýnir hann
„Bakkabræður", í Stjörnubíói og
munu þeir ekki svíkjast um að
vekja ósvikinn hlátur krakka á
öllum aldri.
Skátar
1 dag selja Skátar merki sín á
götum bæjarins. — Bregðizt vel
við og kaupið merki skátanna,
sem kosta aðeins 5 krónur.
Vill fá fleiri Ijóð
Listakonunni, Nínu Tryggvadótt
ur, barst eftirfarandi vísa, fyrsta
daginn eftir að hún opnaði Mosaik
sýningu sína í „Skipinu“, á efstu
hæð Landsbókasafnsins. — Blað-
inu hafði verið smeygt undir hurð-
ina á sýningarsalnum. Listakon-
unni þykir vísan skemmtileg, og
um leið og hún þakkar „Atóm-
skáldi Hússins", fyrir ljóðið, ósk-
ar hún þess, að fá fleiri slíkar. —
Hér er vísan:
Með erfiðismnum hóf ég líkama
minn.
í sex stiga hæð.
Og sjá,
ég stóð í hásal listarinnar.
Við augum mínum blöstu gluggar
ómælisgeimsins
Vinningar í happdrætti
Skálatúnsheimilisins
Þessi nr. komu upp: 1640, 56769,
4057, Volkswagen-bílar, vitjað. —
13891 Flugfarmiði til Kaupmanna
hafnar og heim aftur, Flugfélag
íslands h.f., vitjað. 7626, flugfar-
miði til Kaupmannahafnar og
heim aftur, Loftleiðir h.f., ekki
vitjaS. 2000 Skipsfarmiði til Kaup
mannahafnar og heim aftur, Eim
skipafélag íslands h.f., vitjað. —
14252 Skipsfarmiði til Evrópuhafn
ar og heirn aftur, Skipadeild SÍS,
ekki vitjað.
Sólheimadrengurinn
Afh. Mbl.: Steinunn kr. 100,00;
A. F. kr. 100,00.
Lamaði íþróttamaðurinn
Afh. Mbl.: Frá hafnarverka-
manni kr. 30,00.
Morguntónleikar
útvarpsins í dag
Tokkata og fúga í d-moll eftir
Bach (Páll ísólfsson leikur á
orgel). — King’s College kórinn
syngur ensk sálmalög; Boris Ord
stjórnar. — Konsert í d-moll op.
3 nr. 11 eftir Vivaldi (I Musici
leika). — Hans Hotter syngur lög
úr lagaflokknum „Svanasöng"
eftir Schubei-t; Gerald Moore
leikur undir. — Tveir þættir úr
„Föðurlandi mínu“, sinfónísku
ljóði eftir Smetana (Tékkneska
fílharmoníuhljómsveitin leikur;
Karel Sejna stjórnar).
Orð lífsins:
En til þess að þér vitið að
Manns-sonurinn hefur vald á
jörðu til að fyrirgefa syndir, þá
seyir hann við lamaða manninn:
Statt upp, tak rekkju þína og far
heim til þín. Og hann stóð upp
og fór heim til sín. (Matt. 9, 6).
-mtíf
nía^WiícaffmiL
Hundar mega ekki vera einir á
ferð í skemiKitigarðinuin. — I*eir
verða að vera í bandi.
Á fínum sfað
— Fulitrúinn: — Get ég fengið
frí eftir hádegið á morgun til að
gera jólainnkaup með konunni
minni?
__ Forstjórinn: — Mér þykir
það leitt, Sigurður, en það eru
bara svo miklar annir hjá okkur,
að ég má ekki missa yður.
— Kærar þakkir, forstjóri, kær-
ar þakkir.
★
— Þér segizt hafa þyngst mikið
upp á síðkastið, sagði lækmrinn
við sjúklinginn. — Hvað hafið þér
orðið þyngstur?
— 180 pund.
— Nú, það er nú ekki mikil
þyngd á manni með yðar stærð, en
hvað hafið þér verið léttastur?
— 16 merkur.
★
___ Pétur lítli sagði kennarinn,
— getur þú búið til setningu þar
sem allir dagar vikunnar eru
nefndir.
_^ Já, ætli það ekki. Pabbi minn
fór út að veiða á sunnudegi, — og
___ og þá höfðum við nægan fisk
í soðið mánudag, þriðjudag, mið-
vikudag, fimmtudag, föstudag og
laugardag.
★
Tveir hermenn stóðu á götu-
horni og gláptu á ungar stúlkur
sem gengu framhjá.
— Hvernig stúlku mundirðu
vilja kvænast? spurði annar.
— Eg mundi helzt kvænast
stúlku sem væri mjög hlédræg og
feimin, þeirri tegundinni, sem
maður þarf að fIauta tvisvar á.