Morgunblaðið - 14.10.1956, Síða 21
Sunnudagur 14. okt. 1956
MORCUNBLAÐIÐ
£1
Eiiimitt svona virðist f ólkið vil ja bílinn
EITT af því sem svo mjög hefur
einkennt endurreisn Vestur-
Þýzkalands er bílaiðnaðurinn þar
í landi, en á því sviði hafa Þjóð-
verjar náð undraverðum árangri.
Meðal þeirra bílategunda þaðan
sem hæst bera eru Volkswagen.
Hafa þeir náð dsemafáum vin-
sældum um heim allan. Ekki
síður hér á landi er þessi litli
bíll vinsæll og þykir hagkvæm-
ur fyrir íslenzka vegi og stað-
hætti alla. Enginn bíll er sagður
dýrari í kaupum manna á milli,
— ef þeir þá fást á annað borð.
ELDRAUN A
SUDURNESJAVEGI
Hér á landi voru það einkum
Bandaríkjamenn suður á Kefla-
víkurflugvelli, sem þrautreyndu
þessa bíla á vegunum hér, áður
en þeir tóku að flytjast inn í
stærri stíl. Bandaríkjamenn, sem
yfirleitt fara ekki vel með bíla
sína, þræluðust á þessum litlu
bílum á veginum milli Kefla-
víkur og Reykjavíkur, og sögðu,
er nokkur reynsla var fengin á
bílana, að sennilega myndu eng-
ir bílar þola betur Suðumesja-
veginn en VW-bílamir, vegna
þess hvemig undirvagninn væri,
fjarðra- og hjólaumbúnaður.
Fyrir tveim ámm tóku bílarn-
ir að flytjast inn í landið í vax-
andi mæli og náðu þeir strax
vinsældum. Mörgum þótti fyrst
í stað bílar þessir heldur ljótir
í útliti, en furðu fljótt vöndust
menn hinum hreinu, einföldu
línum í bílnum. Nú munu vera
um 300 VW-bílar í eigu íslend-
inga. Þeim hefur fjölgað veru-
lega á síðasta ári.
Þetta er í stuttu máli sagan
af sigurför hinna þýzku Volks-
wagen hér á landi, sem einnig
hefur farið sigurför í öðrum
löndum, t. d. Svíþjóð.
Þó Svíðar sjálfir framleiði litla
Volvo bíla, þá er Svíþjóð það
land utan Þýzkalands, sem nú
munu vera flestir VW, sagði er-
indreki frá Volkswagenverk-
Samtal við erindreka frá hinum miklu
VW-bílaverksmiðjum í Wolfsburg
smiðjunum í Wolfsburg, Hans
Júrgen Laue, við tíðindamann
blaðsins, er hann hitti hann á
dögunum. Hann kom hingað til
slcrafs og ráðagerða við um-
boðsmenn verksmiðjunnar hér á
landi, Heklu h.f. Hafði hann
hér nokkra daga viðdvöl og hélt
síðan áfram til Bandaríkjanna.
BREYTINGAR EKKI
FYRIRIIUGAÐAR
— Eru þið að hugsa um að
breyta bílunum?
— Nei, ekki eins og þér eigið
við, sagði erindrekinn. Það er
álit okkar í Wolfsburg að tekizt
hafi að smiða einstaklega hag-
kvæman bíl. Honum hefur verið
frábærlega vel tekið í yfir 100
löndum heims. Það eru stað-
reyndir en ekki skrum, að hann
hefur forustuna í samkeppninni
á markaði litlu bílanna. Að okk-
ar dómi bendir þetta ótvírætt
til þess að einmitt svona vilji
fólkið að bíllinn sé. — Allar
rökstuddar breytingar, ég á við,
þær sem bæta bílinn að ein-
hverju leyti, verða gerðar, ef
rannsóknadeild verksmiðjanna
leggur slíkt til að undangeng-
inni ítarlegri rannsókn. — En
í dag liggur ekkert slíkt fyrir
og því má ég fullyrða að engar
breytingar eru fyrirhugaðar.
Hér vil ég geta þess, sagði er-
indrekinn, að fyrir ári síðan hófst
fjöldaframleiðsla á tveggja
manna lúxus-modeli VW-bíla,
með þýzk-ítalskri yfirbyggingu,
Karmann-Gia. — Þeir eiga þeg-
ar miklum vinsældum að fagna.
Enginn slíkur er þó til hér á
f landi.
Síðan framleiðsla VW-bíla
hófst aftur að styrjaldarlokum,
hafa verið gerðar miklar og
stórfelldar endurbætur á bíln-
um, þó hafa útlínur ekki breytzt
til stórra muna. Það er stöðugt
unnið að því að endurbæta bíl-
inn 1 rannsóknarstofunum, svo
sem vera ber, þar sem tækniþró-
unin er ör. Eins hefur vélakost-
ur verksmiðjanna verið stórlega
bættur og gamlar vélar vikið
fyrir nýjum sjálfvirkum vélum.
250 OG 1350 BÍUAR Á ÐAG
—Hve marga bíla framleiðið
þið á dag?
— í fyrra var á tæpu ári reist
ein allra fullkomnasta bílaverk-
smiðja sem til er í Þýzkalandi.
Það voru Volkswagenverksmiðj-
urnar sem bygðu hana í Hann-
over. Var það gert til þess að
létta á aðalverksmiðjunni í
Wolfsburg. Þar eru nú eingöngu
framleiddir sendiferðabifreiðar.
Er dagframleiðsla 250 bílar. í
aðalverksmiðjunum í Wolfsburg,
sem eins og ég sagði áðan, hafa
líka verið stórlega endurbættar
með sjálfvirkum vélum, eru nú
ímiðaðir á degi hverjum 1350
fólksbílar. Við verksmiðjurnar
starfa nú hátt upp í það eins
margir menn og búa hér í
Reykjavík, eða um 40,000.
Margir þessara manna tóku
meirl og minni þátt í því að end-
urreisa verksmiðjurnar, sem
voru að miklu leyti í rústum er
að var komið að lokinni heims-
styrjöldinni. — En sá sem
skipulagt hefur framleiðsluna
síðan, og byggt þetta mikla fyrir-
tæki upp af rústunum, er próf.
Nordhoff, sem nú er einn kunn-
asti maður Þjóðverja á sviði hins
hraðvaxandi iðnaðar Vestur-
Þýzkalands.
upp samsetningarverksmiðju í
Bandaríkjunum, en við það varð
að hætta í bili. Aftur á móti
hefur útflutningur bíla okkar
þangað aukizt gífurlega. Fyrir
tveim árum var ársútflutningur-
inn 7000 bílar og í ár seljum
við þangað 60,000 bíla. — Bíla-
framleiðendur þar eru ekkert
hræddir við slíkan smáinnflutn-
ing! — Þeirra mælikvarði á
hættulega samkeppni er miklu
hærri, en hver veit nema við
nálgumst það mark fyrr en varir.
HORÐ SAMKEPPNI
— En þið sjálfir, eruð þið ekki
hræddir við samkeppni?
— Jú, það verða allir að vera
sem eru í bílaiðnaðinum. En
Bretar og ftalir hafa gert hverja
atlöguna af annarri að okkur.
Enn sem komið er hefur þéim
ekki tekizt að hnekkja okkur,
þó eru ítalskir bílar mjög vin-
sælir heima í Þýzkalandi.
VAXANDI INNFLUTNINGUR
TIL AMERÍKU
— Segið mér, hve víða eru
samsetningaverksmiðjur?
— Við höfum slíkar verk-
smiðjur í írlandi, Belgíu, Suður-
Afríku, Ástralíu, Nýja Sjálandi
og Brazilíu. Við vorum komnir
á fremsta hlunni með að setja
KAPPAKSTUR
— Hvernig hafa kappaksturs-
keppnir gengið?
— Það kann að hljóma dálítið
einkennilega, að upp úr slíku
leggjum við ekki mikið. Ráða-
menn verksmiðjanna hafa aldrei
sent bíla til þáttöku í kapp-
ökstrum að því mér er kunnugt
um. Þegar VW-bílar hafa tekið
þátt í slíkum keppnum, eru það
ýmist umboðsmennirnir eða þá
eigendurnir sjálfir. En eftir því
sem ég bezt veit, þá hafa þeir
staðið sig mjög vel. Eru mér
minnisstæðar keppnir suður í
Ástralíu, þar sem vegirnir eru
sennilega svipaðir þvi sem hér
gerist eða jafnvel enn verri og
þar stóðu þeir sig vel.
HÉRÁLANDI
— Og hvað viljið þér svo
segja um bílana, sem þér hafið
séð hér?
— Ég hef skoðað hér allmarga
bíla frá okkur og rætt við eig-
endur þeirra, sem bera bílunum
góða sögu og það er eins hjá
ykkur og suður í Argentínu, að
þar fara bílamir á mjög upp-
sprengdu verði manna á milli,
enda þar eins og hér, skorður
settar við bílainnflutningi. Ég
hefi líka í þessari för kynnt
mér starfrækslu umboðsins hér
og rætt þjónustu þess við ýmsa
bílaeigendur, sem látið hafa í
ljós sérstaka ánægju og talið
þjónustuna um margt til mikill-
ar fyrirmýndar. En það er ein-
mitt eitt af veigamestu atriðun-
um fyrir alla starfsemi Volks-
wagenverksmiðjanna. Ég hefði
vart trúað því fyrr en ég sá
það með eigin augum, að hér
er rekstur bílaverkstæða erfið-
ari og arðminni heldur en í
nokkru öðrú landi, sem ég þekki
til.
— Og hvað viljið þér svo
ráðleggja mönnum hér, sem eiga
VW-bíla?
— Þeim ber að leggja á það
höfuðáherzlu, að vanrækja. ekki
5000 km eftirlitið á bílum sin-
um, svo sem segir í viðhalds-
ritlingnum, sem bílnum fylgir.
Mér virðist einmitt á þessum
vegum sé slíkt aðalatriðið.
Þúsundir VW-bíla hafa ekið
100,000 km. áður en vélin hefur
verið tekin til endumýjunar og
hundruð dæma eru til um 200,000
km. akstur á sömu vél.
Þeir eru ótrúlega seigir þessir
litlu bílar, hvort heldur þeir
þeysa yfir eyðimerkursanda suð-
ur í Afríku, eða skondra eftir
holóttum vegum norður á ís-
landi, sagði hinn ungi erindreki
frá Volkswagenverksmiðjunum,
Hans Júrgen Laue að lokum.
— Sv. Þ.
Vindáshlið
K.F.U.K.
Vindáshlíð.
HLÍÐAKAFFI
í dag verður hlíðarkaffi selt í húsi K.F.U.M. og K.,
Amtmannsstíg 2 B, til ágóða fyrir sumarstarfið í Vindás-
hlíð.
Kaffisalan hefst kl. 3 e. h. og verður kaffi selt allan
eftirmiðdag og einnig eftir samkomu um kvöldið.
Komið og drekkið eftirmiðdagskaffið hjá okkur og
styrkið Hlíðina.
Stjórnin.
Toiletpapplr
109 stórar rúllur í kassa
Fyrirliggjandi
Qía^óóon d^ernhö^t
Sími: 82790, 3 iínur.
ATVIIMIMA
Úra- og skartgripaverzlun vill ráða stúlku til afgreiðslu
og skrifstofustarfa. Þarf helzt að geta skrifað ensk verzl-
unarbréf. Umsókn sendist fyrir 17. þ. m. í pósthólf 377,
ásamt mynd og upplýsingum um menntun og fyrri störf.
“ HRINGUNUM
FRÁ
4—5 herbergfa íbúð
ó s k a s t til kaups. — Mikil útborgun.
Tilboð séndist Málflutningsskrifstofu Einars G. Guð-
mundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Pét-
urssonar, Austurstræti 7.
Stérkaupmenn
Ungur verzlunarmaður með þekkingu í rekstri heild-
verzlunar og enskum bréfaskriftum óskar eftir að gerast
meðeigandi í heildverzlun. Þeir, sem vildu sinna þessu,
leggi nöfn sín inn á afgr. blaðsins fyrir þriðjudagskvöld
merkt: „Þagmælska —2354“.