Morgunblaðið - 14.10.1956, Síða 24
í>ri0imMa!Öifo
236. tbl. — Sunnudagur 14. október 1956
Reykjavíkurbréf
Sjá. Ms. 13.
Stúientoróð kesið nm næstu helgi
T AVGARDAGINN 20. október fara fram kosningar til
Stúdentaráðs Háskóla íslands. Eru framboðslistar að þessu
sinni tveir, annar frá Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, en
'iinn frá stjórnmálafélögum sameiginlega.
Skorradals-
bændur gengu á
ráðlierraíund
Eista Vöku skipar eftirtalið fólk:
1. Bjarni Beinteinsson, stud. jur.
2. Grétar Ólafsson, stud. med.
3. Björn L. Halldórsson, stud. jur.
4. Einar Baldvinsson, stud. med.
5. Þórir Einarsson, stud. oecon.
6. Árni G. Finnsson, stud. jur.
7. Ragnheiður Torfadóttir, stud. mag.
8. Páll Þórhallsson, stud. med.
9. Gunnar Hafsteinsson, stud. jur.
10. Ólafur Sigurðsson, stud. theol. *
11. Helga Vilhjálmsdóttir, stud. phil.
12. Eiríkur Páll Sveinsson, stud. med.
13. Birgir Gunnarsson, stud. jur.
14. Karl Sveinsson, stud. med.
15. Hörður Sævaldsson, stud. odoni.
16. Ólafur Sr. Sigurðsson, stud. jur.
17. Sigurður Helgason, stud. jur.
18. Sigurður Líndal, stud. jur.
NOKKRIR bændur úr Skorra-
dalnum, þeir Sigurður Daníelsson
oddviti, Höskuldur Einarsson
hreppstjóri, Guðmundur Stefáns
son á Fitjum og Skarphéðinn
bóndi í Dagverðarnesi, komu
hingað til bæjarins fyrir fáeinum
dögum. Var förin hingað farin
til þess að ræða við landbúnaðar-
ráðherra um virkjunarfyrirætl-
anir við Skorradalsvatn, sem
skýrt hefur hefur verið frá í blöð
um, en bændum stendur stuggur
af því sem þeir kalla slælegan
undirbúning málsins. Mun land-
búnaðarráðherra hafa svarað
bændunum því til, að málið
skyldi hlutlaust rannsakað og
ekki myndi ráðizt í neinar frek-
ari virkjunarframkvæmdir við,
Skorradalsvatn án vitundar
bænda.
S.M.F. kýs fulltrúa
sina í dag og á morgun
AKVEÐIÐ hefir verið að allsherjaratkvæðagreiðsla fari fram um
kjör fulltrúa Sambands matreiðslu- og framreiðslumanna á 25.
þing A.S.Í. Kosið verður á skrifstofu sambandsins í Vonarstræti 8,
í dag frá kl. 10—18 og á morgun frá kl. 12—20.
í kjöri eru tveir listar, A og B
listi. Á B-listanum eru formenn
allra félaganna innan S.M.F. og
er sá listi studdur af þeim með-
limum sambandsins, sem vilja
vinna að sem mestri sameiningu
og samstarfi allra félaga innan
S.M.F. og fordæma þeir harð-
lega þá ráðstöfun kjörstjórnar,
að láta allsherjaratkvæðagreiðsl-
una aðeins standa yfir í tvo daga
og það síðustu dagana, sem heim-
ilt er að láta kjósa. Með því hefir
kjörstjórnin komið í veg fyrir, að
félagsmenn úti á'sjó ættu kost á
því að greiða atkvæði í þessum
kosningum. Kjörstjórninni hefði
þó verið í lófa lagið að láta kosn-
inguna hefjast ekki síðar en hinn
10. þ.m.
B-listann skipa eftirtaldir menn
og konur:
Aðalmenn:
Sveinn Símonarson, form. Félags
matreiðslumanna,
Guðný Jónsdóttir, form. Félags
starfsfólks í veitingahúsum,
Janus Halldórsson, form. Félags
framreiðslumanna,
Magnús Guðmundsson, form.
Matsveinafélags S. M. F.
Varamenn:
Böðvar Steinþórss., ritari S.M.F.
Guðlaug Pálsdóttir, starfstúlka á
Mjólkurbar,
Guðmundur H. Jónsson, vara-
form. Félags framreiðslum.,
Þórður Arason, ritari Matsveina-
félags S. M. F.
Þeir, sem vilja samstarf og
sameiningu innan S. M. F kjósa
B-listann.
KJÓSUM B-LISTANN
Yfirlýsing
í sambandi við þær kosning-
ar, sem nú fara fram til Alþýðu-
sambandsþings innan S. M. F
viljum við mndirritaðir lýsa því
hér ineð yfir, að þótt nöfn okkar
séu á A-listanunr munum við
ekki styðja kosningu þess lista,
heldur munum við vinna að
kosningu B-listans eftir mætti og
skorum á alla meðlimi S. M. F
að kjósa B-listann.
Reykjavík, 13. okt. 1956
Magnús Guðmundsson,
Skúlaskeið 26, Hafnarfirði,
Bjarni Jónsson,
Krosseyrarveg 2, Hafnarfirði
Þetta er annar þeirrar tveggja bíla, sem nær gjöreyðilögðust á
þilfari Gullfoss í gærmorgun. Skipunum er af vátryggingafélög-
unum bannað að flytja bíla í lestum, svo framarlega ekki sé um
að ræða nýja ónotaða bíla, sem koma beint frá verksmiðjunum.
Hnútur kom á Gullfoss -
9 bílar skemmdust á þilfari
IGÆRMORGUN er uppskipun
hófst úr Gullfossi, var
meðal þess fyrsta sem sett var
á land, bílar sem stóðu á þil-
fari framan við brú skipsins. Var
ljót sjón að sjá flesta bílana,
sem skemmzt höfðu af sjó á leið-
inni til landsins. Voru það níu
bílar sem meira og minna
skemmdust.
Flestir þessara bíla voru í eigu
manna búsettra hér í bænum,
sem verið höfðu á sumarferða-
lagi í Evrópu. f gluggum þeirra
mátti sjá skjaldarmerki Berlínar
og Parísar og fleiri stórborga á
meginlandinu.
Það voru einkum tveir bílar
sem illa höfðu farið og eru þeir
gjörsamlega ónýtir. Annan þeirra
á einn duglegasti skipstjórinn á
síldarflotanum Ármann Friðriks-
son á m.s. Helgu. Var öll yfir-
bygging bílsins lögð niður í sæt-
in. Líkt var á komið fyrir öðrum
bíl, sem tilheyra mun starfs-
manni við sænska sendiráðið. —
Glæsilegur Mercedes Benz var
stórskemmdur og Opelbíll alveg
glænýr svo og Volkswagen og
•landbúnaðarjeppi. —
Svona höfðu bílarnir allir far-
ið er hnútur kom á skipið fram-
anvert. Urðu einnig nokkrar
minni háttar skemmdir á skip-
inu. Var Gullfoss þá staddur
nokkuð norðan Færeyja. Þá var
veðurhæðin kringum 10 vindstig
IRÐABÓKARNEFND átti fund
ið fréttamenn í gær, og skýrði
.rmaður nefndarinnar, próf.
Alexander Jóhannesson, frá því
að komið væri út 4. hefti af Ný-
yrðum, og hefur það að geyma
um 5000 tækniheiti varðandi flug
og veður. Dr. Halldór Halldórsson
annaðist ritstjórn þess eins og
tveggja fyrri hefta, en þau voru
um sjávarútveg og landbúnað.
Við undirbúning þessa siðasta
heftis hafði ritstjórinn í ráðum
með sér ýmsa sérfróða menn, m.a.
Sigfús H. Guðmundsson, sem var
aðalráðunautur nefndarinnar,
Sigurð Matthíasson (um rekstur
flugvéla), Jón A. Stefánsson (um
flughreyfilinn), Jón Eyþórsson
(um veður) og Agnar Kofoed-
og varð skipið að fara með hægri
ferð áfram.
Mbl. spurðist fyrir um það hjá
Eimskip í gær, hver þetta tjón
bæri. — Fékk blaðið þær uppl.
að bílarnir væru settir á skipið
á ábyrgð eigenda, sem sjálfir
skyldu tryggja bíla sína.
IDAG verður opnuð sýning á
nokkrum tegundum austur-
þýzkra bíla að Laugavegi 103. —
Verið var að ljúka smíði hússins
í gærkvöldi. — Auk þess sem bíl-
Grímseyjar-börn
bólusett í gær
VARÐSKIP flutti í gær héraðs-
lækninn á Siglufirði út í Gríms-
ey. Fór læknirinn þangað í þeim
erindum að bólusetja börn þar
í fyrsta sinn með mænusóttar-
bóluefninu. Ferðin gekk vel og
kom varðskipið aftur til Siglu-
fjarðar í gærkvöldi. — Læknir-
inn mun hafa bólusett kringum
20 börn.
Hansen flugmálastjóra, sem var
einn aðalhvatamaður verksins cr-
lagði fram fé til orðtökustarfsin:
en það annaðist Baldur Jónssor
stud. mag.
Alls eru nú komin um 17.000
nýyrði í þeim heftum, sem komið
hafa út fram að þessu, en í ráði
er að halda verkinu áfram og
safna nýyrðum um byggingamál,
undir umsjón Sigurðar Guð-
mundssonar húsameistara, og
verzlun og viðskipti undir um-
sjón dr. Halldórs Halldórssonar.
Þegar öll heftin eru komin út,
verður gerð úr þeim sérstök
tækniorðabók með um 30.000 orð-
um. Síðar verður sagt nánar frá
þessu merkilega nýyrðasafni hér
í blaðinu
Á þessu korti er sýnt hvar
brezki togarinn var staddur í
Húllintu, sundið milli Eldeyjar
og Reykjaness, er hann fórst.
Grynnslið þarna er á tiltölul.
litlu svæði. Kortið sýnir að
þeim skipum er einkum hætta
búin, scm djúpt fara í gegn-
um Húllið, eins og t.d. togur-
um og ÖÖrum fiskiskipum, er
þau skipta um fiskislóðir vest-
an og sunnan Reykjaness.
Skissa þessi er gerð eftir hinu
venjulega ísl. sjókorti af þessu
svæði.
arnir verða sýndir, sýna nokkur
fyrirtæki hér í bænum
Vagninn h.f. er nýtt fyrirtæki
hér í bænum, sem hefir tekið að
sér söluumboð hinna þýzku bíla.
Er það hlutafélagið DESA, sem
stofnað hefir verið til þess að
annast innflutning á austur-þýzk
um bílum. Austur-Þjóðverjar
munu vera þess mjög fýsandi, að
í vöruskiptum milli landanna
verði leyfður hér innflutningur
á 'bílum þaðan.
Sýndur verður þarna lítill
fólksbíll, sem heitir P-70 og líka
„station“-gerð þessara bíla. Er
yfirbygging bílsins öll úr plasti.
Er það talið ótrúlega sterkt og
þolir miklu meira en venjulegt
stál í bílayfirbyggingum. Þá er
sýndur laglegur bíll, sem heitir
Wartburg. Er það 5 manna bíll.
Báðir þessir bílar eru með fram-
hjóladrifi. Þá eru svonefndir
Garant-bílar sýndir, en það eru
sendiferða- og vöruflutningabílar
Magnús Júl. Magnús, forstjóri
Jagnsins h.f., lét þess getið, að
ókleift hefði verið að fá á
ýninguna bíla frá Horche
/erksmiðjunum, 6 manna fólks-
)íl og 5 tonna vörubíl. Forstjór-
nn sagði, að sýningin myndi
tanda í vikutíma, og vonaðist
ann til þess, að sem flestir
æmu og kynntu sér þessa bíla,
einkum með tilliti til þess, að
fyrirsjáanlegt væri, að með á-
framhaldandi viðskiptum við
Austur-Þýzkaland, myndi inn-
flutningur þeirra hefjast til lands
ins.
Ennfremur sína framleiðslu
sína þarna — en það var ekki
búið að koma þeirri vörusýningu
fyrir í gærkvöldi — Flugfélag
íslands, Vélasalan h.f., rafmagns-
deild SÍS, Vátryggingafélagið hf.,
raf geymaverksmið j an Pólar og
Vinnufatagerðin og blómaverzl-
unin Rósin.
Fíugmálið íslenzkað
5000 nýyrði í þessu safni
Austur-þýzk bílasýning