Morgunblaðið - 17.10.1956, Page 8

Morgunblaðið - 17.10.1956, Page 8
MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 17. okt. 1956 Það eru lögbrolin og svikin, sem nu eru réttilegu útulin SÍÐAN ég flutti mína framsögu- ræðu um þetta afbrotamál s.l. fimmtudag hafa nokkrar ræður verið fluttar af fulltrúum ríkis- stjórnarflokkanna. En yfirleitt hafa þeir gefist upp við að koma með nokkur frambærileg eða sæmandi varnarrök fyrir kosn- ingasvikum Hræðslubandalags- ins. Ég verð þó að segja hér nokkur orð í tilefni af því er fram hefir komið hjá þessum mönnum. Byrja ég á framsögumanni meirihluta 1. kjördeildar, þeim manni sem við verðum hér illu heilli að kalla: háttvirtan þing- mann Akureyrarkaupstaðar. Það er mjög við hæfi, að stjómarliðið skyldi velja þenna mann til að verja hér á Alþingi «11 sín afbrot gegn stjórnarskrá og kosningalög- um í síðustu kosningum. Ég segi svo af því að þessi maður er sjálfur einn allra sekasti aðilinn í þessu máli. En af því að þetta er full- orðinn maður og lögfræðing- ur, ætti hann að vita hvað hann hefir aðhafzt, og mátti því ætla, að hann hefði það vakandi blygðunartilfinningu, að hann forðaðist það öðrum fremur í þessum sal að taka til máls við þessar umræður. Ég ætla nú að segja fáein orð til þessa manns, meðfram vegna þess hver saga hans er í síðustu kosningum. En einkum vegna þess, að hann lét í ljós mikla undrun í ræðu sinni á fimmtu- daginn, út af því, að ég skyldi leyfa mér að tala hér um lögbrot. Rétt eins og það sé ákaflega lítilfjörlegt að tala um svo smá- vægilega hluti í sambandi við síðustu alþingiskosningar. SAMVINNAN ALGER Við Sjálfstæðismenn höldum því fram, að samvinnan í Hræðslu bandalaginu hafi verið svo alger og náin, að ekki sé annað fært en skoða það sem einn flokk við úthlutun uppbótarþingsæta. Und- ir þetta tóku tveir aðrir flokkar af fullum krafti í vor, Alþýðu- bandalagið og Þjóðvarnarflokk- urinn. Þessu neitar Hræðslu- bandalagið harðlega. Það segist vera tveir flokkar áfram, en bara cinn á meðan á kosningunum stóð. Það vill annan daginn vera einn flokkur, hinn daginn tveir flokkar og hefir nú keypt upp þingmenn Alþýðubandalagsms til að samþykkja að það séu tveir flokkar. Ber því að ræða útkom- una með hliðsjón af því og sýna fram á lögbrot þau og óheilindi sem augljós eru þegar við það er miðað. Út frá þeirra sjónarmiði hefir því verið mótmælt hér, að nokkur af frambjóðendum Hræðslubandalagsins hafi í síð- ustu kosningum verið frambjóð- andi fyrir tvo flokka. Fyrir því hafa þau ein rök verið færð, að þess hafi hvergi verið getið í framboðsyfirlýsingu nokkurra þessara manna, að þeir væru frambjóðendur fyrir tvo flokka, eða fleiri. Það er vitað og rökstutt með tilvitnunum í þrjár greinar kosn- ingalaganna af minni hálfu, að lögin gera ráð fyrir framboðum fyrir fleiri en einn flokk. Þau banna það lögbrot og ákveða hegninguna fyrir það. En ég hygg að engum lagasmið hafi nokkurn tíma komið til hugar, að svo mikill glópur væri samþykkt ur í framboð við alþingiskosning ar, að hann gæfi um það yfirlýs- ingu fyrirfram í framboði sínu, að hann byði sig fram fyrir tvo flokka og væri þar með að brjóta kosningalögin. Ég hefi heldur aldrei heyrt þess getið, að þeir menn sem ætla á öðrum sviðum að fremja afbrot gegn lögum, hvort heldur það er þjófnaður, fölsun, svik eða aðrir klækir, auglýstu ætlun sína fyrirfram. Það kann að vera, að þeir sém betur þekkja sakamálasögurnar viti um slík dæmi. Ég er ófróður Svarræða Jóns Pálmasonar um kjörbréiamálið á því sviði. Hef heldur aldrei heyrt getið um slíkt. Eins er þetta með framboðin. Afbrotin koma fram í verkinu sjálfu. Það er reynslan sem sannar afbrotið, en ekki neinar yfirlýsingar um ákvarðanir fyrirfram. Ég og niargir aðrir hafa til- greint hin landskunnu dæmi um kjöriista beggja flokkanna í Reykjavík og í Árnessýslu, þar sem á lista við hlutfalls- kosningu er raðað saman mönnum úr tveim flokkum og þar á meðal alþekktum for- ystumönnum líka úr þeim flokki sem ekki er talið að listinn sé borinn fram fyrir. Þarna eru sannanirnar um af- brotið svo augljósar að þær blasa við augum allrar þjóð- arinnar. En tökum næstu dæmin úr einmenningskjördæmunum t. d. Akureyri og víðar. Hverjir skyldu þar vera sannanirnar fyr- ir því lögbroti, að frambjóðand- inn er frambjóðandi tveggja flokka? Þær sannanir liggja líka nokkuð ljóst fyrir. 1. Sönnun: Flokksféiög tveggja flokka samþykkja á fundum hvert hjá sér, að stilla fram sameiginlegum frambjóðanda fyrir báða flokkana, þó hann megi ekki bera heiti neman annars, svo hægt sé að svíkja út uppbótarþingsæti á hin at- kvæðin. 2. Sönnun: Forystumcnn beggja flokkanna raða sér saman á meðmælalista hins sameigin- lega frambjóðenda. 3. Sönnun: Flokksfundir eru lialdnir til að herða upp kjós- endur til íylgis við frambjóð- andann. Einkum í þeim flokknum, sem maðurinn telst ekki til. 4. Sönnun: Blöð beggja flokka skrifa um það viku eftir viku og dag efíir dag hver nauðsyn sé að fólkið í báðum flokkum fylki sér um hinn sameigin- lega frambjóðanda beggja flokka. Enginn megi ganga undan. „Enginn megi svíkja“ eins og áróðursmennirnir ham ast á. Allir verði að fylgjast að. 5. Sönnun: Launaðir sendimcnn eru látnir fara hús úr húsi og bæ frá bæ. Stundum með frambjóðandanum. Slundum án hans, til að tala um fyrir fólkinu að kjósa mannirii, þó hann sé úr öðrum fiokki, en Framsóknarflokknum, eða Al- þýðuflokltnum, eftir því hver á í hlut. C. Sönnun: Á framboðsfundum flytja helztu áhugamenn heit- ar ræður til að skora á flokks- menn, að fylgja nú hinum tvöfalda frambjóðanda, og um að gera, að fara ekki til andsíæðinganna. 7. Sönnun: Atkvæðatölurnar, þeg ar talið er upp úr kössunum í lögbrotakjördæmunum, sanna það svo enginn getur verið í vafa um það að spiiið liefir heppnazt. í mörgum þessum svikakjör- dæmum voru allar þessar sann- anir til staðar í síðustu kosning- um og að talningu lokinni. Brotið gegn 29. grein kosningalaganna sannað svo ekki var um að vill- ast. í öðrum lágu sumar sannan- imar fyrir en ekki allar. HVERGI EINS LJÓST OG Á AKUREYRI í engu einmenningskjördæmi var þó sönnunin eins ljós eins og í Akureyrarbæ. Þar lá það ljóst fyrir, að kjördæmið var með lögbrotum svikið af heiðarlegum og ágætum alþingismanni, Jónasi Rafnar. Kosningatölurnar eru örugg asta sönnunin: 1953 fékk Fram- sóknarflokkurinn þarna 877 atkv. en Alþýðuflokkurinn 518 aíkv Jón Pálmason. 1953 fékk Jónas Rafnar 1400 atkv. Nú 1562. Nú fékk Friðjón Skarphéðinsson 1579 atkvæði eða 184 atkvæði umfram sameigin- lega tölu beggja flokka 1953. Hjá báðum byggðist hækkunin á fólks fjölgun í bænum vegna samein- ingar Glerárþorps. Undanfarið hefir Framsóknarflokkurinn unn ið á í þessu kjördæmi. Engar lík- ur til annars en að svo hefði einn- ig verið nú ef það hefði komið í ijós með sérkosningu. Sennileg hlutföll því, að sá flokkur hafi átt 1000 atkvæði af fylgi hins nýja þingmanris. En Framsóknar- flokkurinn var vonlaus um að fella Jónas Rafnar á löglegan hátt. Þess vegna var gripið til lög- brotanna. Sá flokkur er þarna aðalsakaraðili. En franibjóðand- inn ber ábyrgðina. Og hún er miklu þyngri og alvarlegri vegna þess að maðurinn er bæjarfógeti í hinu virðulega bæjarfélagi og á að gæta þar laga og réttar. Þegar svo þessi herra kemur inn á Alþingi, þá er hans fyrsta verk, að ganga fram fyrir allt svika- félagið til að verja lögbrot sin og annarra. Óg hann lætur mikla undrun í ljósi yfir því, að nokk- ur heiðvirður maður á Alþingi skuli leyfa sér að tala um lög- brot. Þessi maður sem talinn er lög- fræðingur sýnir um leið svo dæmalausa vanþekkingu á lög- um, að halda því fram, að úr- skurður landskjörstjórnar um kjörbréf sé endanlegur úrskurð- ur sem ekki sé hægt að hagga við. Þegar ég heyrði þetta koma, þá datt mér í hug: Hefir þessi lög- fræðingur aldrei lesið kosninga- lögin? Mér þætti það satt að segja nærri trúlegast, að þessi og marg ir aðrir frambjóðendur „Hræðslu j bandalagsins“ hafi aldrei lesið kosningalögin. Að minnsta kosti ekki fyrir kosningar. Þess vegna hafi þeir látið sér verri menn leiða sig eins og blindingja út á þá braut sem þeir hafa farið. En það ættu þeir að vita, sem lesið hafa lögin og að minnsta kosti ættu lögfræðingar, að'vita það að Alþingi á að úrskurða um allar kosningar. Það getur líka ógilt útgefin kjörbréf, þó engin kæra hafi komið fram, og þó máiið hafi alls ekki verið tekið fyrir í landskjörstjórn. Þetta er meðal annars ákveðið í 142. gr. kosningalaganna, ef frambjóð- andi sem nær kosningu hefir brot ið 29. gr. sömu laga. Sagan um Akureyrarkosn- inguna er fjarri því að vera búin með því sem ég hefi hér sagt. Viðbótin er meðal ann- ars sú, að út á hér um bil 1000 Framsóknarflokksatkvæði úr þessu eina kjördæmi á nú Al- þýðuflokkurinn að fá uppbót- arþingsæti „til jöfnunar milli þingflokka"! Og þessi furðu- legi þingmaður Akureyrar sem er dómari í höfuðstað Norðurlands, hann telur það „algjört brot á stjórnarskrá og kosningalögum, brot á við- urkenndum lýðræðisreglum og ofbeldi gegn þessum kjós- endum“ ef Alþýðuflokkurinn skyldi ekki fá uppbótarsæti út á atkvæði þessara 1000 kjós- enda Framsóknarflokksins á Akureyri og nokkur þiisund annarra Framsóknarkjósenda. Akureyrarkosningin er svartasta dæmið frá síðustu kosningum, þó mörg önnur séu ljót. Að svo er stafar af því, að þarna var eina dæmið á landinu, þar sem frambjóðandi nær kosn- ingu og fellir vinsælan alþingis- mann með því móti, að yfirgnæf- andi meirihluti þeirra atkvæða sem hann fær er bersýnilega frá öðrum stjórnmálaflokki en þeim, sem hann telur sig í framboði fyr- ir. Og það er að vilja og vitund frambjóðandans, að hinn stærri flokkur vinnur að því með marg- víslegum opinberum og leynileg- um aðferðum, að fá sína kjósend- ur til að kjósa þenna tvöfalda frambjóðanda, sem er úr öðrum flokki en þeim, sem sá kjósenda- hópur fylgir, sem er miklu stærri en hinn. Þó þessi tvöfaldi frambjóðandi þykist vera einfaldur þá er það fyrir hann engin aísökun. Mörg önnur dæmi frá Hræðslu bandalaginu eru á sömu línunni, en öll í smærri stíl. RÖKVEILUR BERNIIARÐS Næst þykir mér ástæða til að segja fáein orð útaf ræðu hátt- virts 1. þ.m. Eyfirð’.nga er hann flutti á föstudaginn var. Verð ég að byrja á að geta þess, að það veldur mér sárum vonbrigðum og hrygð, að þessi vinur minn, sem ég tel að öllu eðlisfari virðu- legan mann og góðan dreng, skuli leggja sig í það, að verja svo vondan málstað sem hann hefir nú gert. Það sannast á honum að hættulegt er að vera í vondum félagsskap, og hver dregur nokk- urn dám af sínum sessunaut. Það er eins og þessi háttvirti þm. hafi fallið í trölla hendur og komizt í álagaham við það að lenda í þessu rótspilta félagi, sem við köllum Hræðslubandalag. Sú er þó bót í máli, að flest af því, sem hann hefir hér sagt nú er ekki frá honum sjálfum, heldur endur- tekning á því sem aðrir honum verri menn hafa áður haldið fram. Öll vörn þessa háttvirta þing- manns er byggð á því, að öll starf semi og aðferðir Hræðslubanda- lagsins séu eins og var hjá banda- lagi Sjálfstæðisflokksins og Bændaflokksins fyrir 19 árum. Ég hef nú í minni fyrri ræðu sýnt fram á hvílík regin fjar- stæða þetta er. En ég vil bæta því við að nefna aðra hlið þessa máls. Ég var andvígur þessu banda- lagi forðum eins og háttvirtur 1. þ.m. Eyfirðinga tók fram. En ég tel það ekki mér sæmandi, að þræta um það nú hvort einhverj- ir menn lifandi eða dauðir hafa framið einhver lögbrot fyrir 19—20 árum. Háttvirtur þing- maður talaði aðallega um afbrot framliðinna manna til afsökun- ar fyrir sitt Hræðslubandalag. 'Setjum svo að einhverjir slíkir menn hefðu brotið lög fyrir 19—20 árum, sem ég segi ekkert um, þá væri það engin afsökun fyrir lögbrotum starfandi stjórn málamanna nú. Það er langt fyrir neðan virðingu slíks manns, sem Bernharð Stefánsson, 1. þ.m. Eyfirðinga er, að fara niður í þá for, sem sannar pólitíska spill- ingu á hæsta stigi, og sem þekkt er frá sumum hans flokksbræðr- um. Hún einkennist með þessu: Ef einhver annar maður hefir gert rangt, þá er mér frjálst að gera það líka, hvað langt sem um er liðið. Ég vona og óska að vinur minn Bernharð, geti að fullu hrisst af sér þann álagaham að fara nokkru sinni aftur inn á þvílíkar götur. Hann sagði, þessi sami háttv. >.m. að ég hafi haldið því fram, . að sumir frambjóðendur Hræðslu bandalagsins hafi framið refsi- vert athæfi. Þetta er rétt. Hitt er rangt, að ég hafi nokkuð ymprað á tugthúsvist í því sam- bandi. Maðurinn veit, að refsing fyrir brot á 29. grein kosninga- laganna er samkvæmt 147. gr. sömu laga, 20—200 kr. sekt. En kjörbréf sekra þingmanna getur líka Alþingi ógilt ef því sýnist KUSU FRAMSÓKNARÞINGMENN ALÞÝÐUFLOKKINN? Þá skal ég geta þess, að hátt- virtur 1. þ.m. Eyfirðinga talar svo nú, að ætla má, að hann sem kjósandi í Akureyrarbæ hafi 24. júní kosið Alþýðuflokksmanninn Friðjón Skarphéðinsson. Kann- ske líka verið hans meðmælandi. Það sýnir að hann hefir talið þann frambjóðanda líka fram- bjóðanda Framsóknarflokksins. í þessu mundi ekki felast geitt lög- brot frá háttvirtum þingmanni. En ég nefni þetta af þvi, að heldur sýnir það skásett augu í okkar pólitík ef slíkur héraðshöfðingi og fulltrúi ey- firzkra bænda sem Bernharð Stefánsson er hefur gerzt kjós- andi Alþýðuflokksforingja á Akureyri. En þetta mun síður en svo einsdæmi: Framsóknar flokknum nú. Hér í Reykja- vík eru svo sem kunnugt er búsettir 6 alþingismenn Fram sóknarflokksins. Hæstv. for- sætisráðherra Hermann Jón- asson. Háttv. 1. þm. Skagfirð- inga Steingrímur Steinþórs- son, fyrrverandi forsætisráð- herra. Iláttv. þm. Norður- Þingeyinga, Gísli Guðmunds- son. Háttv. 1. þ.m. Norður Múlasýslu, Páll Zóphóniasson. Hæstv. fjármáiaráðherra Ey- steinn Jónsson og háttv. þm. Barðstrendinga, Sigurvin Ein- arsson. Vafalaust hafa allir þessir menn notað sinn at- kvæðisrétt og fylgt þeirri reglu sem þeir sjálfir börðust fyrir. Þeir hafa kosið lista Al- þýöuflokksins. Kannske einkum vegna Rann- veigar. Fyrir því er jafn mikil vissa, þó kosningin sé leynileg, eins og fyrir því hvernig þeir þingmenn og frambjóðendur lcjósa, sem búsettir eru innan síns kjördæmis. Samkvæmt þessu hafa 7 af 17 þingmönnum Fram- sóknarflokksins kosið Alþýðu- flokkinn í síðustu kosningum. Út á þessa 7 þingmenn Fram- sóknarflokksins og allt þeirra fólk á nú Alþýðuflokkurinn að fá uppbótarþingmann til jöfn- unar milli þingflokka. Og bæjar- fógetinn á Akureyri mundi dæma að það væri brot gegn stjórnar- skránni, kosningalögunum og öllu lýðræði og ofbeldi við þessa 7 Framsóknarþingmenn ef Al- þýðuflokkurinn fær ekki upp- bótarþingmenn út á þá. Senni- lega hafa líka þessir 6 þ.m. Fram- sóknarflokksins í Reykjavík líka verið meðmælendur að lista Al- þýðuflokksins. Ég veit það nú ekk.i En ég mundi bezt treysta hæstv. menntamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasyni, til að upplýsa það hér hvort hann hefir ekki haft alla þessa 6 herramenn í greip sinni sem meðmælendur á lista Alþýðuflokksins. En Alþýðuflokkurinn hefir ekki getað borgað þetta í sömu mynd, því enginn þingmaður Al- þýðuflokksins mun hafa kosið Framsóknarmann. Þeir verða því að færa greiðsluna í annari mynd. EINAR OLGEIRSSON í ÓGÖNGUM Þá vil ég hér segja örfá orð út af ræðum háttv. 3. þm. Reykja- víkur, Einars Olgeirssonar, þó hann hafi áður fengið all ræki- legar ádrepur. í þau 19 ár, sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.