Morgunblaðið - 17.10.1956, Page 9

Morgunblaðið - 17.10.1956, Page 9
MiSvIkudagur 17. okt. 1956 MORGWSBLAÐIT § ég hefi verið með þessum flóð- mselska og gáfaða stjórnmálafor- ingja, hefi ég heyrt hann flytja hundruð af ræðum. En ég minn- ist þess ekki, að hann hafi nokkru sinni komizt áður í slíkar ógöng- ur og í ræðu sinni út af lögbrot- um Hræðslubandalagsins s.l. fimmtudag. Þetta sýnir og sannar að mál- staðurinn er vondur. Raunar hef- ir þessi háttv. þm. oft áður haft hæpinn málstað, en þetía mun þó vera skítugasta málið sem komið hefir til kasta Alþingis lengi. Það hafa verið lesnar hér upp ýmsar lýsingar á aðferðum og starísemi Hræðslubandalagsins er birtust í Þjóðviljanum um siðustu kosningar. Margt af þvi er rétt fram tekið og í fullu gildi, enda hefir formaður Sócialista- flokksins, Einar Olgeirsson, ekk- ert tekið aftur af því, sem heldur ekki stendur til. En hann hefir komizt út á haettulega glerhálku í rökvillum, sem þó er ekki hon- um líkt. Hann viðurkennir og játar, að Hræðslubandalagið hafi í aðferðum sínum og kosninga- svikum farið alveg ólöglegar leiðir. En hann vill faéra allar sakir þess vegna- á landskjör stjórn. Ég varð nú að segja það, að þessi þríklofna landskjörstjórn er nægilega aum þó ekki séu born ar á hana meiri sakir en hún á fýrir. Hún á engin upptök að þeim lögbrotum sem framin hafa verið, þó hana hafi skort þrótt til að taka á málinu sVo einbeitt- lega og heiðarlega, sem efni stóðu til. En það slær alvarlega útí fyrir háttv. 3. þm. Reykvíkinga þegar hann eftir allar skammirnar um landskjörstjórn heldur þvi fram, að vegna þéss, að meirihlúti henn ar hafi úrskurðað málið þá geti Alþingi ekki breytt því. Ég undr- ast miklu minna þó svona rök- villa komi frá háttv. þm. Akur- eyrarkaupstaðar, en að hún skuli ganga aftur frá svo gáfuðum rnanni sem háttv. 3. þm. Reyk- víkinga er. Og frá honum er vit- leysan enn verri, því hann viður- kennir ósómann frá byrjun sem hinn gerir ekki. Setjum nú svo að háttv. 3. þ.m. Reykvíkinga væri dómari í hæstarétti, sem samsvarar Alþingi í þessu til- felli, og að hann ætti að dæma í stóru afbrotamáli sem komið væri frá þríklofnum undirrétti. Þá er hans afstaða í málinu sam- kvæmt ræðunni þessi: Ég veit og skil og viðurkenni, að hinir kærðu eru sekir svo ekki er um að villast. En af því að einn hluti undirréttar hefir sýknað þá, þá get ég sem hæstiréttardómari ekki breytt því. Aumari uppgjöf á allri eðlilegri röksemdarfærslu hefi ég sjaldan heyrt og aldrei frá svo greindum manni sem Einar Olgeirsson er. En það er auðséð hvað veldur. Skoðanir, sál og sannfæring Alþýðubanda- lagsins hefir verið keypt í þessu máli, og nú eiga fjórir alþingis- menn, sem eru ólöglegir, að kom- ast hér inn á Alþing á þeim grundvelli að nokkrir þingmenn Alþýðubandalagsins hafa tekið borgun fyrir að brjóta gegn sinni sannfæringu og brjóta lög og rétt. — Ég freistast til þess að halda það, að þessi aðferð frá Alþýðu- bandalaginu sé viðhöfð til þess, að geta á öðrum sviðum okkar þjóðlífs farið eftir fyrirmyndinni sbr. Iðju-kosninguna o. fl. TILGANGURINN AÐ STOFNA RÍKISSTJÓRN MEÐ SVIKUM Háttv. 3. þ.m. Reykvíkinga hélt því fram, að núverandi ríkis- stjórn sé lýðræðisleg og ekki byggð á sviknum grunni. Ef mið- að er við daginn í dag þá mun þetta geta staðist. En hver var og hver er tilgangur Hræðslu- bandalagsins. Hann var sá og er sá, að geta íengið meirihluta á Alþingi og stofnað ríkisstjórn með lögbrotum og svikum. Að þetta tókst ekki 24. júní s.l. valt á örfáum atkvæðum. Það valt á 6 atkvæðum í Vestur-Skaftafells- sýlu og um leið á nokkrum Al- þýðuflokkskjósendum í Suður- Múlasýslu, sem voru svo frelsis- gjarnir, að þeir hlýddu ekki fyr- irskipun. Þeir vild.u ekki kjósa Framsóknarflokkinn, en kusu landslista síns eigin flokks. Að svona fór er ekki að þakka forystumönnum Hræðslubanda- lagsins. Það er að þakka örfáum heiðarlegum kjósendum í þeim sýslum landsins sem eru einna lengst í burtu frá spillingargreni bandalagsins. En fyrir ríkisstjórnina og flokka hennar er að þessu leyti i ekki allur dagur liðinn eða öll ' nótt úti. Það skyldi háttv. 3. þm. Reykjavíkur hugsa um. Annað eins hefir skeð sem það, að Sam- einingarflokkur alþýðu sócíal- istaflokkurinn, klofnaði frá. Það þýddi að Alþýðubandalagið klofn aði í sín frumefni. Hæstvirtur félagsmálaráðherra sem er þróttmikill maður og ekki allra manna líklegastur til að sleppa stjórnartaumunum fyrir- varalaust, gæti ásamt félaga sín- um háttv. 1. landkjörnum, setið kyrr og lofað hinum 6 að róa. Þá væri um leið komið svo, að stjórn okkar lýðveldis hvíldi á sviknum grunni eins og ég héfi tekið fram. Þá yrði og háttv. 3. þm. Reykvíkinga að taka sín slagorð aftur um núverandi ríkisstjórn. Söiumaður Áreiðanlegur og reglusamur ungur maður sem hefði áhuga fyrir sölumanns starfi getur fengið góða atvinnu strax hjá vel þekktri heildverzlun hér í bænum. — Um- sóknir með mynd og upplýsingum um fyrri starfa og menntun, sendist til afgreiðslu blaðsins, merkt: „Ungur sölumaður — 4931“. I Ferðaradíófónar kr. 1950.00— áður 2.830.00. PSötuspiSarar kr. 900.00, áður kr. 1125.00. Næstu daga verða seldir nokkrir ferðaradíófónar (Port- able), með þriggja hraða spilara, á sérstöku tækifæris- verði kr. 1.950.00 einnig þriggja hraða plötuspilarar H. M. V. í lokuðum kassa á 900.00 kr. FÁLKINN HF. hljómplötudeild. Háttv. 3. þm. Reykvíkinga var með harðvítuga ádeilu á Sjálf- stæðisflokkinn fyrir það, að Morgunblaðið hafi 1953 verið með bollaleggingar um að flokk- urinn gæti með 344 atkvæða aukningu í vissum kjördæmum náð meirihluta á Alþingi. Þetta hefir sennilega verið rétt reikn- að. En þessi grein var áróðurs- grein í kosningabaráttu, meinlaus en ekki mjög hyggileg. Engar áætlanir, áskoranir eða bollalegg- ingar um lögbrot í kosningum. Þessi árás háttv. þingm. er því máttlaus og dauð. Sjálfstæðis- flokkurinn fékk í vor 42,3% af öllum löglegum atkvæðum. Hefði hann fengið út á það meirihluta þingmanna eftir löglegum leið- um þá væri ekkert við því að segja. Framsóknarflokkurinn fékk hreinan meirihluta þingmanna 1931 út á um 30% allra atkvæða. Ég hian ekki eftir að neinn sak- aði hann um brot á stjórnarskrá og kosningalögum þá. Hans þing- menn voru löglega kosnir. Þó Hræðslubandalagið hefði nú fengið 27 þingmenn út á 37% atkvæða þá var ekkert um að segja ef farið hefði verið að lög um að öllu leyti. Það eru lögbrotin, svikin og hrekkirnir sem nú er réttilega átalið. Annað ekki. Alger höfðatöluregla er ekki viður- kennd í okkar stjórnarskrá cc verður væntanlega ekki þó henni verði breytt. Það hefur sýnt sig hér, að for- ystumenn Hræðslubandalagsins kæra sig ekki um það, að þetta mál sé rætt hér á Alþingi. Og það mátti hér áðan heyra það á hæstvirtum forsætisráðherra, að hann vill vera laus við umræður og áskoranir út af þessu stór- máli. Þetta er mjög eðlilegt. Mennirnir vita hvað þeir hafa framið. Þeir vita, að þeirra verk og framkoma er að vonum óvin- sælt meðal alþjóðar. Þess vegna óska þeir eftir þögn. En við Sjólf stæðismenn hér á Alþingi, sem erum fulltrúar fyrir meira en 35 þúsund kjósendur og þá kjósend- ur, sem unnið var gegn með lög- brotum og svikum, látum ekki þeim er það hafa framið haldast uppi að fá þögn. Hér á Alþingi á málið fyrst og fremst að ræð- ast. Hér á það að afgerast og hér verður það að koma í ljós hvort meirihluti þingmanna vill leggja blessun sína yfir allan ósómann. Umræðurnaar og réttar lýsing- ar af framferðinu verða þeir að þola sem fyrir því hafa staðið. Þjóðin á heimtingu á þeim upp- lýsingum. Húsgagnabólstrarar óskast strax. Mikil eftirvinna. ESólsturgerðin Brautarholti 22 — Sími 80388. 50 — 70 fermetra húsnæði óskast fyrir léttan iðnað nú þegar. — Tilboð sendist Steinari Waage Skipasundi 35, sími 5793 CÐMMINS dieselvélin ryður sér æ meira til rúms sem aflgjafi í bíla, báta og hverskonar vinnuvél- ar. Hið einfalda PT olíukeríi er jafn auðvelt í stillingu og karborator á bíl. Cummins dieselvélin er hentug til niðursetn- ingar í ýmsa stærri vörubíla hér á landi. Leit- ið upplýsinga um yfirburði Cummins. — Áherzla lögð á varahlutabirgðir. M .F Laugaveg 166 Getum útvegað frá U. S. A flestar tegundir af þungavinnuvélum, not- aðar eða verksmiðju-endurbyggðar. — T. d.: Jarðýtur Veghefla Steypubíla Vörulyftur Krana Skurðgröfur o. m. fl. Getum einnig útvegað flesta varahluti til slíkra véla. Kristján Ágústsson Mjóstræti 3 — Sími 82194

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.