Morgunblaðið - 02.11.1956, Síða 1
24 siður
Oflugar hcrcveitir úr Rauða hern-
um streyma inn í Ungverjaland
Síðusiu fréttir i nótt:
Nasser óttasi londgSaga —
Ókyrrð í Rúmenín —
Rússar nmkringja alla
flugvelli Dngverjalands
KAUPMANNAHÖFN, 2. nóv.l
Nasser hélt ræðu í kvöld og'
sagði að Bretar og Frakkar
niundu sennilega setja herlið
á land í Egyptalandi i nótt.
Mörg herflutningaskip þeirra
væru á leið til Egyptalands.
Hann skoraði á rikisstjórnir
allra Arabalandanna að j
sprengja i loft upp olíuleiðsl-
nr þær, sem Vesturveldin
hafa lagt í löndum þeirra.
Biulganin hefir sent Eisen-
Kínverjar með
Ungverjum
LUNDÚNUM, 1. nóv. — Fregn
ir frá Kina herma að kín-
verska kommúnistastjómin
hafi í dag lýst yfir samúð
sinni með ungversku þjóð-
inni. Sagði Pekingútvarpið að
Kínastjórn liti svo á, að sér-
hver þjóð ætti að fá að ráða
sér sjáif og málum sínum.
— Reuter.
Ungverjar eru gengnir úr Varsjár-bandalaginu — Rússar umkringja Búdapest og ber-
^ka aftur flugvöll borgarinnar — Frelsissveitirnar halda Búdapest — Fréttaritarar
óttast nýtt blóðbað
Búdapest, 1. nóv. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
\TAGY, núverandi forsætisráðherra Ungverjalands, hélt ræðu í dag. Tilkynnti hann enn einu sinni
1 að hann myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að frjálsar kosningar gætu farið fram í landinu.
rann sagði og að Ungverjar krefðust þess að Rauði herinn færi frá Ungverjalandi hið bráðasta
S lýsti þvi síðan yfir að Ungverjar hefðu sagt sig úr Varsjárbandalaginu. Þá skýrði hann svo frá
3 ungverska stjórnin hefði sent erindreka til Sameinuðu þjóðanna. Væri honum falið að krefjast
ess að rætt verði um Ungverjaland í ráðinu, áður en önnur mál verði tekin þar fyrir. Þá kvað
úann stjóm sina vilja að Ungverjaland verði hlutlaust riki og skyldu stórveldin slá skjaldborg um
ílutleysi þess.
Nagy hóf mál sitt með því að
lýsa yfir að Ungverjaland væri
loks orðið frjálst og fullvalda
ríki. Langþráðu takmarki þjóðar-
innar væri náð. „Ef mér,“ hélt
hann áíram, „tekst ekki að efna
til frjálsra kosninga, segi ég af
mér.“
NAGY FRÁ?
Fréttamenn segja að ráð
frelsissveitanna og borgara
kref jist þess nú að landvarna-
ráðherrann taki við forsætis-
ráðherraembættinu af Nagy.
Hann njóti ekki stuðnings
þjóðarinnar, enda sé hann
gamall kommúnisti, þótt hann
sé sporgöngumaður Títós hins
júgóslavneska.
Útvarp frelsissveitanna í
vesturhluta landsins segir að
Rússar séu í óðaönn að flytja
herlið og hergögn inn í Ung-
verjaland og sé augljóst að
þeir hafi í hyggju að láta til
skarar skríða gegn ungversku
þjóðinni. — Borgararnir í
Búdapest eru uggandi yfir
herflutningum Rússa í og ut-
an við höfuðborgina. Þá eru
staðfestar fyrri fregnir um að
Rauði herinn hafi umkrmgt
borgina.
Síðusfu frétlir frá
Ungverjalandi
Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
VÍN, 1. nóv. — Það er nú vit-
að að Nagy, forsætisráðherra
Ungverjalands, gekk í kvöld
á fund rússneska sendiherr-
ans í Búdapest og tilkynnti
honum að Ungverjar hefðu
gengið úr Varsjárbandalaginu
og krefðust þess að Rússar
færu úr landinu. Mótmælti
Framh. á bls. 2
hower bréf, þar sem Banda-
rikjamenn eru hvattir til að
taka höndum saman við Rússa
og hindra frekari vopnavið-
skipti í Egyptalandi.
Nasser segist vera i strsði v/ð
Breta og Frakka - Eden mótmœlir
Danska útvarpið skýrði frá Floti Breta og Frakka nálgast Súez, en hermenn hafa ekki
því i nótt að Rauði herinn í enn gengið á land
Ungverjalandi hefði umkringt
alla flugvelli landsins og stæði
nú grár fyrir járnum andspæn
is ungverska flughernum.
Þykir ekki ólíklegt að til tíð-
inda dragl. I»á sagði útvarpið
cnnfremur að stúdentar i
Rúmeniu hefðu farið í kröfu-
göngur í kvöld og boðið
kommúnistaflokkl landsins
Lundúnum, Kairó og Tel Aviv, 1. nóvember.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
YFIRHERSHÖFÐINGI Breta og Frakka við austanvert Miðjarð-
arhaf, Sir Charles Keichtley, sagði í dag, að hann hefði fyr-
irskipað flugher sinum að halda áfram árásum á flugvelli í Egypta-
landi. Hershöfðinginn sagði að gerðar hefðu verið loftárásir í
morgun á þá flugvelli sem ráðizt var á i gær og miðuðu hern-
aðaraðgerðir þessar að því að ganga milli bols og höfuðs á egypzka
flughernum. Hann sagði ennfremur að flugherinn gerði aðeins
árásir á hernaðarstöðvar. — Þá gat hershöfðinginn þess að hern-
aðaraðgerðum yrði hætt, um leið og Egyptar féllust á úrslita-
kosti Breta og Frakka. Sem kunnugt er, krefjast Bretar og Frakkar
þess að þeim verði heimilað áð senda herlið til Súez sem tryggja
á frjálsar siglingar um skurðinn, tsraelsher hverfi burt af egypzku
landssvæði og hernaðaraðgerðum verði hætt.
byrginn. Urðu nokkur átök,
cn fregnir enu heldur óljósar
ennþá um atburði þessa.
Bardagar hófust aftur í
Búdapest í kvöld, að því er
Reuterfréttir herma. Var bar-
izt á götum borgarinnar og
voru m.a. notaðar vélbyssur.
Nýtt heimsmet í kúlu
WASHINGTON, 1. nóv. í dag
setti bandaríski kúluvarpar-
inn Parry O’Brien, nýtt heims
met í kúluvarpi. Hann varp-
aði kúlunni 19,253 metra.
ÓRÓASAMT ÞING
Spurningatíminn í Neðri mál-
stofu brezka þingsins í dag var
með sögulegasta móti. Sir Ant-
hony Head, hermálaráðherra
Breta, flutti skýrslu um hernað-
araðgerðir í Egyptalandi. Stjórn-
arandstæðingar hófu þá köll að
ráðherrum íhaldsflokksins og
spurðu í kór: Hafa Bretar sagt
Egyptum stríð á hendur? — Ráð-
herrarnir svöruðu ekki, en sátu
þögulir á bekkjum sínum. Loks
stóð Eden, forsætisráðherra, á
fætur, og þegar hann hafði fengið
hljóð, lýsti hann því yfir að hern-
aðaraðgerðir Breta og Frakka
væru í samræmi við úrslitakosli
þá sem Egyptum hefðu verið sett-
ir. Hófu stjórnarandstæðingar þá
enn hróp og gat forseti deildar-
innar við ekkert rúðið. Tók hann
þann kost að slíta fundi í hálfa
Fyrsiu sjálfboða-
liðamir
RÓM, 1. nóv. — Fyrstu sjálf-
boðaliðarnir eru nú á leið til
Egyptalands. Eru þeir frá
Ítalíu. Sendiherra Egypta í
Róm var spiurður að því i
kvöld, hve margir þeir væru.
Hann svaraði: „Það gef ég
ekki upp. En þeir eru alltaf að
láta skrá sig. — Reuter.
klukkustund. Hefir það ekki
gerzt s. 1. þrjátíu ár og þótti tíð-
indum sæta. — Þegar fundur var
settur í ný, tók leiðtogi Verka-
mannaflokksins, Hugh Gaitskell,
til máls og réðist heiftarlega á
framkomu stjórnarinnar. Sagði
hann að það væri krafa Verka-
mannaflokksins að Bretar beygðu
Frétt kL 3 í nótt:
Mindzsenty
— leiðtogi Ungrverja
Mindzsenty kardúáli.
sig undir ókvörðun Allsherjar-
þings S. Þ.
STJÓRNMÁLASAMBANDI
SLITIÐ
Formælandi brezku stjórnar
Innar tilkynnti í dag að Egypt-
ar hefðu slitið stjórnmálasam-
Framh. á bls. 2
í nótt skýrði brezka útvarpið
frá því að augljóst væri að Nagy
hefði misst traust ungversku
fþjóðarinnar og stjórn hans riðaði
til falls. Þá væri það viðurkennt
að Mindzsenty kardínáli, sem ver
ið hefir í fangelsi kommúnista sl.
7 ár, væri raunverulegur leið-
togi wngversku þjóðarinnar og
formælandi kommúnista í land-
inu lýsti því yfir í kvöld, að hamt
væri hinn eini sem ætti traust
allrar þjóðarinnar og gæti frið-
að landið.
Mindzsenty sagði í kvööld að
hann mundi ávarpa þjóðina eftir
tvo daga og benda á þær leiðir,
sem forystumenn Ungverjalands
hyggjast fara í framtíðinni.
Þá sagði brezka útvarpið enn-
fremur að þúsundir stúdenta í
Rúmeníu hefðu sýnt kommún-
istastjórninni andúð sína og mikl
ar róstur væru mUli þeirra og
1 lögreglunnar.