Morgunblaðið - 02.11.1956, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.11.1956, Blaðsíða 20
20 TrlORGUWBLAÐlÐ Föstudagur 2. nóv. 1.956 ' ; ! LOUIS COCHRAN: . •SONUR h ? A M A A /S Glærir pokar stærð 16x23 cm glær límbönd Vz“ — 5/8“ — %“ Framhaldssagan 67 „Jæja, ég verð að fara að halda af stað“, hún snéri sér við, sýni- lega treg til þess að yfirgefa hann. „Komdu, komdu heim með mér, Lije. Ég. er einmana.“ Skyndilega lagði hann hand- leggina yfir um mitti hennar og hann hló stuttum, gleðisnauðum hlátri: — „Við erum góðir vinir, Carrie. Ég og þú, er það ekki? Og mér geðjast vel að þér. Heyrirðu það? Geðjast vel að þér“. Næstum hranalega sveigði hann höfuð hennar afíur á bak og kyssti hana: — „Jaeja, nú skulum við koma heim til þín.“ 13. kafli. Þhgar Lije vaknaði um sólar- upprás, næsta morgun, var hann hresstur, fylltur af þeirri ákvörð un, sem hafði ólgað og vaxið í huga hans, allt frá því er hann yfirgaf Carrie, nokkrum klukku- stundum áður. Hann sveiflaði löngum fótun- um fram á gólfið og gekk út að glugganum, án þess að verða var við kuldagustinn sem smaug inn um rifurnar á milli bjálkanna, þar sem leirinn hafði hrunið nið- ur og hratt honum opnum. Lannig stóð hann um stund og horfði út, þangað til honum var orðið hroilkalt, þá skellti hann glugganum aftur og tók að klæða sig í svellþykkar vaðmálsbuxurn- ar. Hann nefndi ekkert atburði dagsins áður við móður sína. Hún hafði nóg að hugsa um, þótt við ■ það bættust ekki áhyggjur út af honum og auk þess vissi hann vel hvað hann vildi og skyldi gera. Gamla frú Fortenberry eða Dink og lögfræðingurinn skyldu ekki geta gabbað hann til neins. Hann brosti þegar honum varð hugsað til Carrie Finney, en hlýn aði þó ósjálfrátt um hjartarætur. Martin Fortenberry til mikillar undrunar var Lije nákvæmlega eins og hann átti að sér að vera, ÚTVARPIÐ Föstudagur 2. nóvember: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 18.30 Framburðarkennsla í sam- bandi við bréfaskóla S.l.S.: Franska. 18,50 Létt lög. — 19,10 Þingfréttir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt mál (Grímur Helgason kand. mag.). 20,35 Ull og tóskap- ur; — samfelld dagskrá gerð af Hallfreði Erni Eiríkssyni stud. mag. 21,30 Raddir að vestan: Finn bogi Guðmundsson ræðir við Vest- ur-íslendinga. 22,00 Fréttir og veð urfregnir. — Kvæði kvöldsins. — 22,10 Upplestur: „Gatan“, smá- saga eftir Guðlaugu Benediktsdótt ur (Frú Sigurlaug Árnadóttir). 22.30 Tónleikar: Bjöm R. Einars- son kynnir djassplötur. — 23,10 Dagskrárlok. Laugardagur 3. nóvember: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14,00 Héimilis- þáttur (Þóra Jónsdóttir). 10,30 Veðurfregnir. -— Endurtekið efni. 18,00 Tómstundaþáttur bama og Unglinga (Jón Pálsson). — 18,30 Útvarpssaga barnanna: „Leifur“ eftir Gunnar Jörgensen; II. (Frú Elísabet Linnet). 19,00 Tónleikar (plötur). 20,20 Leikrit: „Anna á Stóru-Borg“ eftir Guðmund M. Þorláksson, samið cftir skáldsögu Jóns Trausta; Ævar Kvaran bjó leikritið til útvarpsflutnings og hefur leiksctjóm á hendi. — 22,10 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárl. þegar hann kom til vinnunnar, en gamli maðurinn reyndi eftir megni að leyna þeirri undrun og bauð hann velkominn með góð- látlegu brosi. Svörtu aðstoðarmennirnir voru þegar komnir á vinnustaðinn og stríddu hver öðrum með góðlát- legri gamansemi. Múrsteinum hafði verið komið fyrir í vel- hlöðnum stöflum, þar sem grunn urinn skyldi standa og bjálkar og viðarbolir, vandvirnislega birkt- ir og tilhöggnir, lágu víðs vegar um staðinn, þar sem auðveldast var að ná til þeirra, þegar til skyldi tekið. Til annarrar hliðar stóð allhár timburhlaði, sem að mestu leyti var úr sögunarmyllunni hans. Martin gamli Fortenberry, sem sat á naglakvarteli við viðarhlað- ann, með stuttu, klumpslegu píp- una á milli tannanna, brosti góð- látlega og blés út úr sér bláum, þykkum reykjarstrók: „Kominn aftur til vinnunnar, eh? Jæja, það var nú ágætt, drengur minn. Nú skaltu hóa niggurunum saman og sýna þeim, hvernig þeir eigi að hlaða múr- steina. Svo ættirðu að útbúa dá- lítið af sementsblöndu. Sementið er þarna yfir í skýlinu." Hann benti með hendinni aftur fyrir sig um leið og hann talaði og Lije gekk yfir að sementspokun- um, sem hlaðið hafði verið upp við vegginn á skýlinu: — „Já, herra, ég skal sjá til þess að dreng irnir geri þetta eins vel og hægt er, höfuðsmaður." Hann reyndi að brosa glaðlega á móti, eins og ekki væri um neinar dapurlegar endurminning- ar að ræða. „En heyrðu mig aðeins“. Martin gamli stöðvaði hann með skip- andi bendingu annarrar handar. „Hver sér um starfrækslu sögun- armyllunnar þinnar, á meoan þú vinnur hér hjá mér? Ekki get- urðu verið á báðum stöðunum í einu, þótt þú sért flestum mönn- um duglegri, Lije.“ Lije nam staðar og það kom eins og dálítið hikandi svipur á andlit hans: — „O, ég hefi séð fyrir því öllu“, svaraði hann loks og heldur seinlega. — „Dink sér um allan útreikning og það sem að fjármálunum lýtur, en svert- ingjarnir mínir eru orðnir verk- inu vanir og vita vel hvað gera þarf. Auk þess fer ekki langur tími í þessa byggingarvinnu hérna hugsa ég og svo ætlar líka Spike Turner að koma til mín. Hann vinnur núna í veitingakrá í Vicksburg. — Hann verður verk stjóri hjá mér.“ Martin Fortenberry kinkaði alvarlepr kolli og augu hans hvíldu stöðugt á svörtu verka- mönnunum: — „Spike gæti orðið góður maður við hvað sem hann fengizt, þ.e.a.s. ef hann stilltist einhvem tíma og yrði ráðsettur." Hann glotti til Lijes og breytti svo skyndilega um umræðuefni. „Með þessu áframhaldi munt þú verða auðugur maður, áður en lýkur, Lije.“ „Það er nú einmitt það sem ég ætla mér að verða“, svaraði Lije, með skyndilegum hörkusvip. Og svo byrjaði hann alveg ósjálfrátt að segja frá uppástungu Dinks. „Ég er ekki hræddur við neina vinnu, hversu erfið sem hún kann að vera“, sagði hann loks. Vinnuveitandi hans horfði á hann með lymskulegri góðvild í svipnum: „Nei, það veit ég að þú ert ekki, Lije. En gættu þess bara að ætla ekki að annast of mörg störf í einu. Það verður engum affarasælt að vasast í of mörgu, mundu það drengur minn. Auð- vitað kemur mér timburmyllan þín og starfræksla hennar ekkert við svo lengi sem þú leysir störf þín hérna hjá mér sómasamlega af hendi. Ég var bara svolítið for vitinn. Það var allt og sumt.“ Skyndilega laut hann höfði og bætti svo við, dáiítið vandræða- legu mrómi: — „Og svona okkar á milli sagt, Lije, þá þarftu ekki að taka of mikið tillit til þess sem frú Fortenberry sagði við þig um daginn. Hún hefur ekki verið með sjálfri sér upp á síðkastið. Hún er veik. Hún hefur verið veik í sjö ár.“ Lije svaraði engu orði, en and- lit hans varð dökkrautt yfirlit- um um leið og hann snaraði full- um sementspoka upp á öxl sér og skjögraði stirðlega með hann í áttina til svörtu verkamann- anna. Með hverjum deginum sem leið miðaði byggingunni óðum áfram og að þremur vikum liðnum gerði hin kassalaga lögun hennar um- heiminum það kunnugt, að hér eftir þyrfti ekki að flytja baðm- uilina alla leið til Vicksburg eða Greenville til hreinsunar. Bænda fólk nágrennisins reyndi að lífga svolítið hina daufu vetrardaga með því að koma og skoða þetta nýsköpunarverk. Vélarnar voru enn ekki komn- ar, en sérfræðingur frá New Orleans átti að hafa umsjón með lagningu þeirra og fyrst varð að þekja allt tréverkið með brúnni málningu, sem Silas frændi hafði útvegað frá firma í Ohio. Þetta var falleg og fullkomin bygging að allra dómi og líklegt j þótti, að Martin Fortenberry myndi moka saman peningunum I fyrirliggjandi Zrricirih (i3erteláen jjT* (jjo h^. Hafnarhvoli — Sími 6620 Laus staða Aðstoðarmaður óskast til starfa á Fiskideild Atvinnu- deildar Háskólans, Borgartúni 7. Störf bæði á rannsókn- arskipi og rannsóknarstofu. Laun samkv. 10. launaflokki. Skrifleg umsókn sendist Fiskideild fyrir 5. þ.m. »*• •*• •*• •*♦ •*• • • •*• •*♦ •*♦♦*• •*• *•*♦ ♦*• *j« •*♦♦ j»**« »*♦ •*♦ •*. ,ihJ»*J» •*• •*• •*• •*• •** *t* *t* *t* *♦* *•* *•* *•* *•* *•* **• *•* *•* MARKÚS Eftir Ed Dodd á m. AW GEE, MARK.. HEV) WHATS \ rVE BEEN WRONG, FELLA?) TRVINS TO GET ...VOU LOOK y MOTHER TO LET KINDA LOW/TT ME GO WITH . A . ^sJ&fcYOU TO CANACA. ‘COUNTRV SQUIRE 15 PROUD TO PRESENT ONE OF AMERICA'S LEAD/NG FAM/UES, THE JOHN MASON \..TH/S WEAR MR. AND MRS. 1 BROCKMAN WILL SPEND THE FALL AT THE/R BLACK ROCK HOME, M/SS CVNTH/A PLANES TO EUROPE, AND MASTER JOHN W/LL BE !N CANADA W/TH THE FAMOUS OUT- DOORSMAN, MARK TRAILF _______ „ BROCKMANS JT. 1) — Hvað amar nú að þér. Þú ert eitthvað svo niðurdreginn? — Ég var að reyna að telja mömmu á að leyfa mér að fara, en hún svaraði nei. •2) Seinna: Frú Karolína situr og er að lesa í tímariti um fé- lagslíf. 3) Þar stendur: — Hér birtist mynd af Brockmanns-íjölskyld- unni. 4) — Hjónin ætla að vera f sumar í bústað sínum við Svart- hamar. Dóttirin fer fljúgandi til Evrópu, en sonurinn ungi, Jón, fer til sumardvalar norður i Kan. ada hjá hinum fræga veiðimanni Markúsi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.