Morgunblaðið - 06.01.1957, Qupperneq 1
Eisenhower biður um heimild til uð veitu núlægum
Austurlöndum efnuhugs- og hernuðuruðstoð
Egyptar vanhelga
minningu verjenda
sinna
London, 5. jan. Frá Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Ástralínu hefur látið í
ljós undrun sína og gremju í
sambandi við það, að unnin
hafa verið skemmdarverk á
minnisvarða um hermenn frá
Ástralíu og Nýja Sjálandi,
sem reistur hafði verið í Port
Said eftir fyrri heimsstyjöM.
Hann spurði, hvort Nasser
hefði gleymt því, að þessir
hermenn létu lífið, þegar þeir
tóku þátt í að verja flgypta-
land. Hann sagði að þessi
óheyrðu níðingsverk kynnu
að hafa verið unnin af ungum
óaldalýð, en egypzka stjórnin
hefði átt að bera fram opin-
bera afsökun á óhaefunni.
Krúsjeff var hjá
skjólstæðingnum
Moskva, 5. jan. Frá Reuter.
KRÚSJEFF, aðalritari rússueska
kommúnistaflokksins, sagði
austurþýzkum fréttamönnum í
dag, að hann hefði verið í Búda-
pest síðan um nýár til viðrseðna
við ungverska ráöamenn. Hann
átti tal við fréttamennina i
veizlu, er haldin var austur-
þýzkri sendinefnd, sem nú er
stödd í Moskvu til að fá leið-
beiningar Sovét-leiðtoganna. —
Hann neitaði að láta nokkuð uppi
Um viðræðurnar í Búdapest eða
ræða um ástandið í Ungverja-
landi, en sagði að opinber yfir-
lýsing um heimsóknina yrði birt
í Moskvu-blöðunum á morgun.
Washington, 5. jan.:
Ý DAG, tveim dögum eftir að 85. þjóðþing Bandaríkjanna kom
saman, flutti Eisenhower forseti því áramótaboðskap sinr
Talaði hann fyrir báðum deildum þingsins og lagði fram áætlun
sína um leiðir til að tryggja friðinn við austanvert Miðjarðarhc
Eisenhower lagði áherzlu á þrjú mcginatriði í ræðu sinni
1) Áætlunin „heimilar Bandaríkjunum að hafa samstar'
við og hjálpa hverju ríki eða ríkjasambandi við austan-
vert Miðjarðarhaf til að efla efnahagsstyrk sinn, sem st'
helgaður því að tryggja algert sjálfstæði þess“.
2) „1 öðru lagi heimilar hún forsetanum að láta í té
hernaðaraðstoð og hafa samstarf um hernaðarmál við þau
ríki eða ríkjasambönd á þessu sama svæði, sem þess æskja“.
3) „í þriðja lagi gefur hún heimild til þess, að umrædd
hjálp og samvinna feli í sér notkun bandarískra herja til
að tryggja og verja landsvæði og pólitískt sjálfstæði þeirra
ríkja, sem um aðstoð biðja, gegn vopnaðri árás einhvers
ríkjanna, sem lúta alþjóða-kommúnismanum".
í ANDA S.Þ.
Forsetinn benti á, að tillögur
hans yrðu að vera í samræmi við
þá samninga, sem Bandaríkin
væru bundin, m.a. við stofnskrá
S.Þ., enda yrði haft fullt samstarf
við S.Þ. og tekið tillit til allra
ályktana þeirra. Ennfremur væru
tillögur hans takmarkaðar við
vald og aðgerðir öryggisráðsins,
ef til vopnaðrar árásar kæmi.
Til viðbótar við þrí-liða áætlun
sína bað forsetinn um heimild til
að nota ýmsa sjóði, sem ætlaðír
eru til öryggisþarfa, til efnahags-
legrar og hernaðarlegrar aðstoð-
ar við nálæg Austurlönd, án til-
lits til þeirra takmarkana ,sem
notkun þessa fjár eru nú settar.
400 MILLJ. DOLLARA
Á 2 ÁRUM
Hann skýrði þjóðþinginu einn-
ig frá því, að hann hefði í hyggju
að biðja síðar um lögheimild til
að nota 400 milljónir dollara í
nálægum Austurlöndum til „ým-
issa þarfa“. Mundi helmingur
þess fjár koma á fjárlögin 1958,
en hinn helmingurinn 1959.
Eisenhower lagði áherzlu á, að
Súez-skurðurinn fær
öllum skipum í maí
Fær 10.000 tonna skipum í marz,
segir Wheelcr
KAIRÓ, 2. jan.:
WHEELER HERSHÖFÐINGI, sem hefur yfirumsjón með hreins
un S.Þ. á Súez-skurðinum, tilkynnti nýlega, að í marz mundi
skurðurinn verða fær skipum allt upp í 10.000 tonn að stærð. En
talið er, að i maí verði hann orðinn fær öllum skipum, sem um
bann gátu farið, áður en hann var stíflaður.
Skurðurinn verður hreinsaður
í þremur áföngum, segir Wheel-
er. Fyrst verður lögð áherzla á að
gera hann færan skipum, sem
rista 25 fet eða minna. Þessu er
þegar lokið umhverfis Port Said
og 35 km. inn í skurðinn. Eftir
er að ná upp 9 skipum ennþá og
fjarlægja 2 fallnar brýr, og er
þá fyrsta áfanga lokið. Það verð-
ur að líkindum í byrjun marz.
ANNAR OG ÞRIÐJI ÁFANGI
Annar áfanginn er í því fólg-
inn að ná upp um 30 skipum, og
verður skurðurinn þá fær öllum
skipum. Jafnhliða þessu fara
fram viðgerðir á ljósum og öðr-
um útbúnaði, sem nauðsynlegur
er siglingum um skurðinn. Búizt
er við, að því verði lokið í maí.
Síðasti áfanginn er svo hreins-
un allra hafna, viðgerð á bryggj
um og öðrum hafnarmannvirkj
um. Þetta verður að líkindum
gert samhliða hreinsun sjálfs
skurðarins.
í þessu starfi taka þátt 30
björgunarskip S.Þ., og eru 23
þeirra þegar komin á staðinn.
Hin 7 koma einhvern næstu
daga.
S.Þ. bæru meginábyrgðina á því
að halda uppi friði og öryggi í
heiminum, en hins vegar væru
þær ekki „algerlega öruggur
verndari frelsisins, þegar tekið
er tillit til yfirgangs Sovétrikj-
anna“. Benti hann á hið „kald-
rifjaða skeytingarleysi" Rússa
varðandi ályktanir S.Þ. um Ung-
verjaland.
FRELSI, EKKI ÞRÆLKUN
Bandaríkin styðja afdráttar-
laust fullveldi og sjálfstæði hvers
einasta ríkis við austanvert Mið-
jarðarhaf, sagði forsetinn og bætti
við: „Það er almennt viðurkennt,
bæði i nálægum Austurlöndum
og annars staðar, að Bandarikin
sækjast ekki eftir pólitískum eða
efnahagslegum yfirráðum yfir
nokkurri annarri þjóð. Við óskum
eftir andrúmslofti frelsis í heim-
inum, ekki þrælkunar. Hins vegar
eru margar, ef ekki allar, þjóðir
við austanvert Miðjarðarhaf sér
meðvitandi um hættuna, sem
þeim stafar af alþjóða-kommún-
ismanum, og þær taka tveim hönd
um samstarfi við Bandarikin um
að gera að veruleika markmið sín
og S.Þ., sem eru: sjálfstæði, efna-
hagsleg vellíðan og andleg
grózka“.
Framh. á bls. 2.
Flutningaskipin enn kyrr-
sett í Súez-skurðinum
London, 5. jan. Frá Reuter.
j ¥jAU 12 FLUTNINGASKIP, sem hafa verið innilokuð í
* Súez-skurðinum s.l. tvo mánuði, komast ekki leiðar
sinnar ennþá. Wheeler hershöfðingi tilkynnti í dag, að
brottfararleyfi þeirra væri enn til athugunar hjá egypzkum
stjórnarvöldum. Hann hafði áður tilkynnt, að þau mundu
leggja af stað í dag.
Formælandi flotamálaráðuneytisins í London lét svo um
mælt, að þessi skip hefðu getað farið frá Súez-skurðinum
fyrir 6 vikum, en þá höfðu björgunarskip Breta og Frakka
hreinsað skurðinn frá Port Said til E1 Cap, þannig að hann
var fær skipum, sem ristu 25 fet eða minna. Þetta var 26.
nóv. s.l., og síðan hefur ekkert verið því til fyrirstöðu tækni-
lega, að skipin sigldu inn í Miðjarðarhaf um Port Said.
Algert öngþveiti í
otvinnulífi Ungverja
New York, Búdapest, 5. jan, Frá Reuter.
jKAÐ VAR tilkynnt á Aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í dag,
" að fjórir efnahags-sérfræðingar frá þeim væru nú staddir í
Búdapest til að rannsaka þörf Ungverja á erlendri aðstoð. For-
maður þessarar nefndar er aðstoðar-framkvæmdastjóri S.Þ., sá er
fer með efnahagsmál.
Fréttamenn segja, að Kadar-
stjórnin hafi fallizt á að leyfa
þessum sérfræðingum að koma
til Ungverjalands með því skil-
yrði að ekkert yrði látið uppi
um för þeirra, fyrr en þeir væru
komnir á staðinn. Hins vegar
neitar kvislings-stjórnin enn að
leyfa eftirlitsmönnum S.Þ. að
koma til landsins og rannsaka al-
mennt ástand þar.
Útvarpið í Búdapest skýrði
frá því, að iðnaðarmálaráð-
herrann hefði tekið á móti
námumönnum frá suðurhluta
landsins, sem tjáðu honum, að
hægt væri að hefja fulla vinnu
í kolanámunum, ef ákveðin
efnahagsleg skilyrði væru
uppfyllt af stjórninní. Ráð-
herrann hét því að láta hjálp-
ina við námumenn ganga fyrir
öllu öðru, sagði útvarpið.
Hann lagði áherzlu á,að efna-
Framh. á bls. 2
Löndin fyrir botni Miðjarðarhafs, sem Eisenhowcr hyggst styðja til aukins efnalegs sjálfstæðis.