Morgunblaðið - 06.01.1957, Blaðsíða 7
Sunnudagur 6. janúar 1957
MORGUISBLAÐIÐ
7
neitt við velferðarríkið að at-
huga, ef það yrði ekki annað og
verra í framkvæmdinni, nefni-
lega forræðisríki eða fjárhalds-
ríki. Þeir eru uggandi um að með
þessu skipulagi verði einstakling-
arnir smám saman gerðir ófull-
veðja, ómyndugir, hvorki fjár
síns, né athafna, ráðandi. Manna
á meðal er vitanlega langmest
kvartað yfir sköttunum, bæði
beinum og óbeinum. Nú eru
skattar hér miklu tilfinnanlegri,
en verið hefur, ekki einungis
vegna vaxandi útgjalda til alls
konar félagsmála, heldur af því
að eytt er meira fé til landvarna
en áður, og það er mjög andstætt
dönskum hugsunarhaetti, að
kjósa heldur fallbyssur, en smjör
FER ILLA MEB GEBSMVNI
MANNA
En fyrir utan sviðann af skatt-
gjöldunum sjálfum fer eftirlitið
og aðhaldið ilia með geðsmuni
manna. Framtalið verður að
vera ákaflega nákvæmt og smá-
smugulegt og því er sjaldan trú-
að af yfirvöldunum, fyrr en eftir
miklar yfirheyrslur og jafnvel
njósnir um hagi manna og líf-
erni. Forsjá verður ekki fram-
kvæmd, nema með eftirliti og að-
haldi. Menn reka sig alls staðar
á skorður, án þess að þeir muni
eða ski'.ji, hvers vegna þær voru
upphaflega reistar. Það þarf leyfi
til alls og þetta fer óskaplega í
taugarnar á fólki. Kvartað er um
óhæfilega kostnaðarsamt ríkis-
bákn, skriffinnsku, mannfjölda,
sem tekinn sé frá gagnlegum
störfum til þess að tefja þá, sem
eitthvað vilji gera. Um armæð-
una að þurfa að fara með alls
konar lítilræði frá Hei'ódesi í
þessari skrifstofunni til Pílatus-
ar í þeirri næstu. Bíða í halaróf-
um. biðja og þrasa. Með þessu
hvoru tveggja, sköttunum og
hömiunum íinnst mörgum öllu
framtaki og vilja til þess að gera
betur en í meðallagi vera settur
stóllinn fyrir dyrnar. Því má
skjóta hér inn, að enn sem kom-
ið er, virðist þetta ekki háska-
legra en svo, að á hverju ári
sprettur upp dálítið af nýjum
rnilljónunguin í Danmörku,
hvernig sem þeir fara nú að því
að sigla slíkum gróða í höfn, gegn
um brim og boða skattakerfis-
ins. En hinu verður ekki neitað,
að einstök dæmi sýna, hversu
jafnvel fátæku fólki getur þar
verið vandstýrt milli skers og
báru. Til dæmis vann barnakenn-
ari með stóra fjölskydu sér inn
fyrir utan föst laun sín 750 kr.
með súrum sveita. En þar yfir-
sást honum iila, því að fyrir
bragðið komst hann í hærri
tekjufiokk og missti meðal ann-
ars 800 krónur í framfærslu-
styrk, sem hann hefði fengið, ef
hann hefði unnið sér inn 50 kr.
minna. í flestum mönnum togast
að einhverju leyti á, þótt í mis-
munandi hlutföllum sé, viljinn til
framtaks og áreynslu og viljinn
til þess að leggja árar í bát. Þess
vegna má fara varlega í að taka
frá fólki annars vegar vonina um
að njóta einhvers ávinnings af
starfi sínu og hins vegar ábyrgð-
ina á sjáifu sér. Og með síhækk-
andi meðalaldri er það ekki laust
við að vera kvíðvænlegt, að með
tímanum hvíli eftirlaunagreiðsla
til allt of margra gamalmenna,
sem engu hafa safnað til elliár-
anna á allt of fáu vinnandi fólki,
hvernig sem raunin verður.
AUKNING FRAM-
LEIBSLUNNAR
Núverandi forsætisráðherra
Dana hefur sagt, að með lögunum
um almenningseftirlaun og
aamningunum um sjúkralaun é
svo komið, að ekki verði talin
nauðsyn á fleiri stórvægilegum
íélagslegum umbótum, heldur
megi nú beina allri orku að því
að auka framleiðsluna og efla
með því velmegun þjóðarinnar
á þessum grundvelli. En það er
alis ekki auðvelt að auka til veru-
legra muna framleiðsluna í Dan-
mörku. Landbúnaður stendur
þegar á svo háu stigi, að um stór-
stígar framfarir er þar vart að
ræða og sem iðnaðarland er Dan-
mörk mjög fátæk, þar sem hér
vantar algerlega kol, olíu, vatns-
afl, málma og jafnvel beztu teg-
undir trjáviðar. Viðgangur
danskra fyrirtækja í iðnaði, sigl-
ingum og verzlun, sem aflar land-
inu mikils af nauðsynlegum er-
lendum gjaldeyri, er annars veg-
ar að þakka vel menntuðum og
vandvirkum starfsmönnum en
hinsvegar og ekki síður stórhug
og framtaki einstakra afburða-
manna.
Það er varla furða, þótt slíkir
menn bíti illa í brisið, þegar
þeim er gert of erfitt fyrir að
efla starfsemi sína, bæði með
því að taka of mikið af rekstrar-
fé þeirra í skatta og með því að
auka svo dýrtíð innanlands, að
fyrirtæki þeirra verði miður
samkeppnisfær erlendis. Nú
spyrja andstæðingar stjórnarinn-
ar storkandi: Getum við þá
treyst því, að Alþýðuflokkurinn
stilli sig um stóru loforðin í
næstu kosningum? Það er nú
einu sinni svo um stjórnmála-
flokka, að þeir njóta þess síður
við kosningar, sem þeir hafa
fengið framgengt, en hins, sem
þeir lofa að gera.
HAFA EFNT OF MIKIÐ
Voldugir flokkar eins og frjáls-
lyndir í Bretlandi og vinstri í
Noregi hafa hreinlega veslazt
upp á þvi að efna of mikið af því
sem þeir hafa lofað. Ef um ofvöxt
ríkisvalds og ríkisíhlutunar er
hér að ræða, þá stafar hann ekki
sízt af sífelldri samkeppni og yf-
irboðum stjórnmálaflokkanna,
sem alltaf verða að finna upp á
einhverju nýju til þess að póli-
tíkin staðni ekki. Það er býsna
athyglisvert, að einn af sann-
gjörnustu og vitrustu stjórn-
málamönnum Dana, Torkel
Kristinsen, heíur haldið því
fram, að ágreiningurinn milli
fjögurra aðalflokkanna væri nú
ekki meii'i en svo, að eðlilegast
væri að þeir mynduðu stjórn all-
ir saman í stað þess að vera sí-
fellt að leita dauðaleit að ein-
hverju til þess að berjast um.
Eitt af því, sem oft er kvartað'
um hér í Danmörku og þykir í-
skyggilegt tímanna tákn, er á-
hugaleysi æskulýðsins á stjórn-
málum. Við skoðanakönnun með-
al háskólastúdenta fyrir skömmu
kom í ljós, að 70 af hverjum 100
sögðust ekki geta fylgt neinum
stjórnmálaflokki og mundi slíkt
hlutleysi meðal íslenzkra stúd-
enta þykja saga til næsta máls.
Ekki er auðvelt að vita, hvað und
ir þessu hlutleysi býr, en mér er
nær að halda, að þessum ungu
mönnum finnist eldri kynslóðirn-
ar hafa haft oftrú á löggjöf og
opinberum ráðstöfunum til þess
að tryggja mannlega velferð.
KENNA RÍKINU UM ALLT
Ef fólki er innrætt að ríkið
eigi að leysa og geti leyst öll
þess vandamál, fer það að lokum
að kenna ríkinu um öll sín mein.
Hvorttveggja er vitanlega jafn-
fjarstætt. Það verður bæði að
grafa dýpra, skyggnast víðar um
og seilast hærra en ríkisvaldið
getur nokkurn tíma náð til þess
að finna brýnustu þarfirnar,
estu verðmætin, alls konar
mannlegt böl og bölvabætur. Og
það hefur verið gert allt of mik-
ið að því líka meðal lýðræðis-
þjóða að reyna að gera tíma-
bundnar stjómmála- og félags-
málastefnur að allsherjar lífs-
skoðun. Eitt er þegar augljóst af
umræðunum um velferðarríkið,
að sá æskulýður, sem alinn er og
verður upp í því og gengur að
þeim arfi, sem sjálfsögðum hlut,
kemst ekki hjá þvi fremur en
fyrri kynslóðir að taka vanda-
málið um afstöðu einstaklingsins
til heildarinnar upp til nýrrar og
jafnróttækrar íhugunar. En um
þá niðurstöðu, sem hann kemst
að fyrir sig og sína samtíð, er
hyggilegast að spá sem fæstu.
Að lokum vil ég þakka þeim, sem
hafa hlustað á þetta ófullkomna
spjall um mikið mál og óska öll-
um íslendingum friðar og far-
sældar á nýja árinu.
■ Reykjavik — Laugaveg 166
Kennsla hefst í kvölddeildum fullorðinna fimmtu-
daginn 10. þ.m. kl. 8 e.h. Innritun samtímis fyrir
nýja nemendur.
Kennsludeildir:
Myndhöggvaradeild, kennari Ásmundur Sveins-
son, myndh.
Málaradeild, kennari Hörður Ágústsson, listm.
Teiknideild, kennari Ragnar Kjartansson,
keramiksm.
Barnadeildir hefjast mánudaginn 14. þ.m. Nánar
auglýst síðar.
Upplýsingar í síma 80901.
Unglinga
vantar til blaðburðar í
Kleifarveg
Sjafnargötu
Laugav. III.
Laufásveg
Mýbýlaveg
Sjómannafélagar
Hafnarfirði
Kosið verður í dag frá kl. 1—5
Komið og kjósið.
Kjörstjómin.
HðFIIM K/UIPENDUR
að fokheldum 2ja og 3ja herbergja íbúðum.
Öskum eftir C—7 herbergja einbýlishúsi í skiptum
fyrir 4ra herbergja íbúð. Fleiri skipti koma til
greina.
Sala og Samningar
Laugavegi 29 — Sími 6916
Kvensokkar
Svartir Bemberg sokkar
Ullarsokkar, bezta tegúnd
Baðmullarsokkar fyrirliggjandi
Hagstætt verð,
Þórbur Sve/nsson & Co. hf.
Mercedes Benz 180
til sölu af sérstökum ástæðum. Verður til sýnis
kl. 1—3 e.h. í dag við Leifsstyttuna.
Kven-strkuskór
grœmr
Sterkustu og beztu
morgunskómir
Skóverzlun Péturs Andréssonar
Laugavegi 17 — Framnesvegi 2