Morgunblaðið - 06.01.1957, Side 16
Veðrið
S Off SV kaldi. Éljagangur.
0r0Wttií»íat>líl
4. tbl. — Sunnudagur 6. janúar 1957
Reykjavíkurbréf
er á bls. 9
S./.S. borgobi ekki grænan eyri Gligoric og Larsen 6V4,
í útsvar i Reykjavík árih /955 Friðrik og O’Kelly 6
„Endurgreibstur' samvinnureksfursins
aðeins brot af hagnaðinum af
skattfríðindunum
Almenningur borgar gjöldin tyrir
samvinnureksturinn
SKAKMÓTINU í Hastings lauk í gærdag og varð keppnin harðarl
nú en um langt árabil. Gligoric frá Júgóslavíu sigraði Friðrik
Ólafsson í síoustu umferð og tryggði sér með því efsta sætið ásarat
Bent Larsen sem gerði jafntefli við O’Kelly frá Belgíu í loka-
umferðinni. O’Kelly komst með þessu jafntefli við Laisen í þriðja
sætið ásamt Friðrik. 5. sæti skipa Szabo og Clarke.
Frammistöðu Friðriks má telja afburða góða.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉ-
LAGA hefur gefið út „fréttatil-
kynningu" um „endurgreiðslur
samvinnufélaga. Er þar um að
ræða „endurgreiðslur" S.Í.S. _ til
t upfélaga á tekjuafgangi S.I.S.
og svo „endurgreiðslur“ kaupfé-
laga til félagsmanna.
í þessu sambandi spyr „Tím-
inn“ hvað hafi orðið „af þeim
arði kaupmanna, sem er hlið-
stæður þeim arði S.Í.S. og kaup-
félaganna, sem þau hafa endur-
greitt eða lagt í nytsamar fram-
kvæmdir“. í>að má segja að þessu
sé sjálfsvarað enda alkunnugt.
Eins og allir vita nýtur sam-
vinnureksturinn stórkostlegra
fríðinda bæði um greiðslur
tekju- og eignaskatts svo og
útsvars en annar rekstur, þar
á meðal kaupmenn, verða að
borga þessi gjöld að fullu.
Verzlanir í landinu ,að sam-
vinnurekstrinum fráteknum, er
einn helzti skattstofn ríkis,
sveita- og bæjarfélaga.
Allt or þetta mál marg-
rakið en sem dæmi um að-
stöðumuninn í þessu efni
milli samvinnurekstursins
annars vegar og almennra
verzlana hins vegar má á
það benda að Samband ísl.
samvinnufélaga borgaði
ekki grænan eyri í útsvar í
Keykjavík, árið 1955 vegna
þess, að það taldi sig hafa
„tapað“ stórfé á þeim við-
skiptum, sem lögin heimila
að leggja á, en það er ekki
nema takmarkað. Var lagt
á S.Í.S. það ár 1.155 þúsund
kr. en það útsvar var fellt
niður að fullu vegna „taps-
ins“.
Hins vegar er útsvar lagt á
aðrar verzlanir þótt þær sýni
tap. S.f.S. hefur heldur ekki borg-
að útsvar sitt fyrir árið 1954 og
er í málaferlum út af því. Á sama
tíma greiða svo aðrar innflutn-
ingsverzlanir útsvör, sem nema
milljónum á milljónir ofan.
Þetta er aðeins eitt dæmi um
hinn gífurlega aðstöðumun hvað
viðvíkur opinberum gjöldum en
almenningur verður svo að borga
fyrir samvinnureksturinn, það
sem hann sleppur við vegna sér-
réttinda sinna. Það er mál út af
fyrir sig hvernig beri að haga
skattlagningu samvinnufélaga, en
auðvitað hlýtur að vera meira
en lítið bogið við þær regl-
ur, sem undanþiggja mesta og
raunar einasta auðhring landsins
frá útsvarsgreiðslum á sama tíma
og almenningur og allur rekstur
stynur undir hinum opinberu
gjöldum.
Þegar um er að ræða að S.f.S. eða
kaupfélög „endurgreiði" einhvern
hagnað er vitaskuld ekki þar um
að ræða nema brot af því, sem
þessi rekstur hagnast á skatt-
og útsvarsfríðindum sínum. Sum
kaupfélög greiða alls engan arð
af viðskiptum, heldur aðeins hið
lögboðna stofnsjóðstillag. — í
„fréttatilkynningu" S.Í.S. er alls
ekki sundurgreint hvað er arð-
greiðsla og hvað er hið lögbundna
stofnsjóðstillag kaupfélaganna og
væri fróðlegt að fá það sundur-
greint.
Hvemig, sem almenning-
ur veltir þessu máli fyrir
sér, hlýtur meginstaðreynd
in að verða sú, að sam-
vinnureksturinn nýtur svo
stórkostlegra fríðinda að
jafnvel S.Í.S. hefur sloppið
við að greiða eyri í útsvar
en allir aðrir verða að
borga gjöld sín að fullu.
Þær „endurgreiðslur“, sem
samvinnureksturinn telur
að um sé að ræða hjá sér
er hins vegar auðsjáanlega
ekki nema hluti af því, sem
þessi rekstur yrði að greiða
í opinber gjöld ef hann
nyti ekki fríðinda og sér-
réttinda fram yfir almenn-
ing og allan annan rekstur.
★ RÖÐIN
Endanleg röð í mótinu varð
þessi:
Vinn.
1.—2. Gligoric Júgóslavíu
og Larsen Danm. 6%
3.—4. Friðrik og
O’Kelly Belgíu 6
5.—6. Szabo Ungverjalandi
og Clarke Englandi 4%
7. Toran Spáni 3'A
8. Horseman Englandi 3
9. Penrose Englandi 2%
10. Alexander Englandi 2
Ef farið er nánar út í loka-
niðurrödun og stig látin ráða
milli þeirra sem jafnir eru að
vinningstölu, hefur Gligoric
sigur og Friðrik hefur hag-
stæðari „punktatölu" en
O’Kelly.
★ SÍÐASTA SKÁKIN
Friðrik hafði svart á móti Gli-
goric í síðustu umferð. Varð
skák þeirra langdregin nokkuð,
því aðeins 22 leikir voru leiknir
3 fyrstu klukkutímana. Þá höfðu
þeir skipt upp, drottningar voru
farnar og eftir stóðu báðir hrók-
ar beggja og biskup hvorum
megin, en Gligoric hafði sóknar-
stöðu og betri peðstöðu — og
það nægði til vinnings, enda
virðist Friðrik hafa verið í tíma-
hraki. En skákin varð 42 leikir.
Skákin er birt í heild á bls. 2.
Larsen og O’Kelly gerðu jafn-
tefli í 59 leikjum. Hafði Larsen
peð yfir, en það réði ekki mslit-
um.
Szabo og Clarke skildu jafnir.
Horseman vann Alexander en.
Penrose og Toran skildu jafnir.
- * *
Verðlagsyfirvöldin leyfðu
hækkun iðnaðarvara
Nýársgjöf Lúðviks Jósefssonar:
Hvernig okursamning
urinn við SÍS varð til
Fromleiðendur innlendru tollvörutegundu höfðu
þegor stöðvuð sölu ú vörum sínum
VIB gildistöku laganna um I
útflutningssjóð o. fl. urðu
hækkanir bæði á framleiðslu-
gjaldi og söluskatti af innlend-
um iðnaðarvörum og þjón-
nstu. — Framleiðslugjaldið
hækkaði talsvert cn söluskatt-
urinn úr G% í 9%.
KKKI LEYFÐ HÆKKUN
í fyrstu bar á nokkurri
tregðu verðlagsyfirvalda um
að leyfa iðnrekcndum að
bæta söluskattshækkuninni
við vöruverðið eins og tiðkazt
hefur.
Sömuleiðis hafði komið til
greina hjá verðlagsstjóra að
framleiðendur innlendra toll-
vara tækju á sig nokkurit
hluta framleiðslugjaldsins.
STÖÐVUÐ SALA
Af þessum sökum var stöðv-
uð sala innlendra töllvöruteg-
unda frá framleiðendum með-
an beðið var eftir að fá að
hækka vöruverðið sem gjalda-
hækkuninni nam.
FÉLLUST Á HÆKKUN
Við nánari umræður ákvað
innflutningsnefnd og verð-
lagsstjóri að fallast á að iðn-
rekendur fengju að leggja
þessa skatta á vöruverðið eins
og venja hefir verið. Mun sala
innlendra tollvörutegunda,
sælgætis, öls og gosdrykkja
hefjast að nýju á morgun.
í fyrradag hélt Félag ísl.
iðnrckenda fund og skýrði
stjórnin frá gangi þessara
mála. Ennfremur leitaðist hún
við að gera fundarmönnum
grein fyrir ákvæðum laganna
um útflutningssjóð o.fl., eins
og kostur var, að þvi er snert-
ir iðnaðinn.
ÁLYKTANIR UM TOLLA-
LÆKKUN HRÁEFNA
Fundurinn samþykkti nokkr-
ar ályktanir í sambandi við
verðlagningu, skattamál o. fl.
Ennfremur um það að breyt-
ing fengist á tollun nokkurra
hráefnistegunda, sem notaðar
eru af iðnaðinum og settar
hafa verið í mjög háan toll.
HLUTUR IÐNAÐARINS
VERÐI TRYGGÐUR
Fundurinn fól stjórn félags-
ins að fylgjast mjög vel með
þessum málum og leitast við
að tryggja að hlutur iðnaðar-
ins yrði ekki fyrir borð bor-
inn af hálfu ríkisvaldsins með
óviturlegum ráðstöfunum.
Á GAMLÁRSDAG kom til Reykjavíkur olíuskipið AMADA.
Þetta skip var leigt til flutninga hingað á togaraolíu fyrir
220 sh. pr. smálest. Það er einmitt þessi farmur, sem Lúðvík
Jósefsson viðskiptamálaráðherra hindraði að væri fluttur á
120 sh. pr. smálest með því að neita olíufélögunum um leyfi
til leigu á skipi við því verði. Nokkru seinna „samdi“ svo
þessi ráðherra við S.Í.S. og Olíufélagið h.f. um okurleiguna
á „Hamrafellinu" og var þá þessi háa leiga á skipinu AMADA
einmitt notuð til að „afsaka“ okurleiguna á „Hamrafellinu“.
Gangurinn í þessu máli er táknrænn. Fyrst neitar Lúðvík
Jósefsson um leyfi til olíuflutninga og bíður þess að skipa-
markaðurinn hvað viðvíkur einstökum ferðum, eins og hér
er um að ræða, hækki, en síðan þegar hækkunin er orðin
mjög mikil er í skyndi gerður samningur við S.f.S. og Olíu-
félagið — samherja Lúðvíks — um okurleigu. Með þessu at-
ferli hefur Lúðvík Jósefsson ekki aðeins skaðað útgerðina um
milljónir vegna leigunnar á AMADA heldur einnig valdið
neytendum stórtjóni með okursamningum við S.f.S. og Olíu-
félagið h.f. sem nemur 15—20 millj. kr.
Til samanburðar má svo geta þess að ef olíufélögin væru
frjáls að kaupum og flutningum á olíunni þá gætu þau
fengið hana flutta nú fyrir um 50 sh. á smálest á sama tíma
og skip Lúðvíks kostar 220 sh.
„Tíminn“ segir að AMADA, sem kom á gamlárskvöld sé
„nýjársgjöf íhaldsins“ en eins og að ofan sést er verðið á
þessum farmi eihmitt sérstök nýjársgjöf Lúðvíks Jósefssonar
til þjóðarinnar.