Morgunblaðið - 20.01.1957, Page 14

Morgunblaðið - 20.01.1957, Page 14
«. \ ft % \ ý» w Vi fv «1. H U 14 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 20. janúar 1957 Ef... þá gæti salan orðið há SVO hagstæour hefur Bretlands- markaður verið fyrir isl. fisk í þessum mánuði, að nú mun að- eins ein sala fara fram til við- bótar þar í þessum mánuði. Gæti þá orðið um mjög góða sölu að ræða, því í Bretlandi er nú mjög litill fiskur ú boðstólum, vegna þess h\e erfiðlega hefur gengið á djúpmiðum veðurs vegna, hvort heldur er hér við land eða þá á öðrum fjarlægum miðum hér í norðurhöfum. Togarinn Gylfi seldi í Bretlandi í gær, en fisk- urinn mun ekki hafa verið sér- lega góður, því salan varð 8343 sterlingspund. Þegar næstu togarasölu er lok- i« í Bretlandi er iöndunarkvót- inn fullur fyrir janúarmánuð. Mynd er af himbrima á eggjum, tekin af Birni Björnssyni frá Norðfirði. Merkilegar fuglamyndir sýnd- ar á kvöldvöku Ferðafélagsins Rjúpnamyndir Björns Björnssonar vökfu athygli SÍÐASTLIÐIÐ fimmtudags- kvöld hélt Ferðafélag ís- lands skemmti- og fræðslufund í Sjálfstæðishúsinu. Var þeð fyrsti fundur félagsins á hinu nýbyrj- aða ári. Fjölmenni var, svo sem ævinlega á slíkum fundum fé- lagsins. FUGLAMYNDIR Sýndar voru litskuggamyndir af íslenzkum fuglum, sem Bjöm Bjömsson á Norðfirði hefur tek- ið; en hann er einn af snjöllustu ljósmyndurum á Iandinu og þó sérstaklega þekktur fyrir ljós- myndir sínar áf fuglum. Finnur Guðmundsson skýrði mynd- „Hann tók þátt í „gagnbyltingunni" 44 VÍNARBORG, 18. jan. — Búda- pestútvarpið sagði. frá því í dag, að kvislingsstjórn Kadars hefði tilkynnt brezka hermálafulltrú- anum í Búdapest ,að hann væri „persona non grata“ og þess væri vænzt, að hann færi. úr landi innan 48 klukkustunda. — Kadarstjórnin heldur því fram, að hermálafulltrúinn, James Cowley, hafi tekið mikinn þátt í októberbyltingu ungverskrar alþýðu. . — Reuter. irnar og hélt fyrirlestur um fugla. GÓDAR MYNDIR Voru margar myndanna góðar og sumar ágætar, og nutu sín mjög vel með skýringum dr. Finns Guðmundssonar. Sýndar voru milli 40 og 50 fuglamyndir og einnig voru sýndar myndir úr hreiðrum. Sérstaklega vöktu at- hygli rjúpnamyndir Bjöms, sem voru afburða vel teknar. MYNDAGETRAUN Að myndasýningunni lokinni fór fram myndagetraun. Brugðið var upp mörgum myndum, ein- göngu af fossum, viða á landinu. Að lökum var dansað til kl. 1. Creiða ber heimilislœkni 5 kr. fyrir hvert viðtal og 10 kr. fyrir hverja vitjun LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur gaf út tilkynningu um það 29. des. s.l. að samlagsmönnum I Sjúkra- samlagi Reykjavikur beri að greiða heimilislækni sinum kr. 5 fyrir hvert viðtal á stofu og kr. 10 fyrir hverja vitjun á heimili sjúklings. Þetta er breyting frá því sem áður var en þá þurftu sjúklingar ekki að greiða heim- ilislæknum sínum neitf gjaid, hvorki fyrir vitjun né viðtal, að- eins hið fasta sjúkrasamlagsgjald sitt. Þessi breyting er gerð sam- kvæmt heimild í lögum sem Al- þingi setti í fyrra að tilhlutan milliþinganefndar til endurskoð- uuar tryggingalöggjöfinni. Voru lögin samþykkt 26. marz í fyrra. í samræmi við þessi iög hafa Árið sem leið var Loft- leiðum mjög hagstætt Faiþegaflutningar jukust um tæp 30%» ARIÐ 1956 fluttu L.oftleiðir 21.773 farþega, en það er um 5 þúsund farþegum fleira en árið áður og nemur aukningin því 29.49% miðað við 1955. — Vöruflutningar urðu 230 tonn og reyndist það 30.71% meira en fyrra ár. Póstflutningar jukust um 38.93% og aukning farþegakílómetra varð 25.13%. — Alls var flogið 3.110.098 km vegalengd á 9.911 flugstundum. Á tímabilinu frá 20. maí til 15 október voru fimm vikulegár ferðir farnar milli New York og Norður-Evrópu með viðkomu á l'Slandi og auk þess £rá miðjum júlí mánuði ein terð í viku milli íslands og meginlands Norður- Evrópu. Upp úr miðjum október var New York ferðunum fækkað niður í fjórar í viku og mun svo verða þangað tíl 20. maí í vor, en þá er ráðgert að taka upp dagleg ar ferðir milli New York og Norð ur-Evrópu. Loftleiðir tóku eina Skymaster- flugvél á leigu í sl. ágústmánuði og hefir félagið því nú ráð á fjórum Skymasterflugvélum. Frá því í haust hafa þó ekki nema þrjár verið í förum í senn, þar sem einhver ein þeirra hefir jafn an verið bundin við hina lögskip- uðu árlegu skoðun og eftirlit. Á sl. hausti lagði félagið niður ferðirnar til Luxembourg, en mun hefja þær aftur að vori með viðkomu í Glasgow. í haust hófu Loftleiðir Skot- landsflug að nýju og koma nú tvisvar í viku við á Renfrew-flug velli, sem er í námunda við Glasgow. í ráði er að hefja flug- ferðir til London með vorinu. Á Nikósía. — Orðrómur gengur um það á Kýpur, að flytja eigi Makarios biskup frá eyjunum i Indlandshafi til Möltu. Brezk yfirvöld sögðu í dag að þær fregnir væru rangar. Hjúkrunarfélagið Líkn leysf upp efiir 41 árs sfarf Félagið hefur innt af höndum frábærf sfarf á sviði heilbrigðismála FRÉTTAMENN áttu í gær viðtal við frú Sigríði Eiríksdóttur, sem verið hefur formaður hjúkrunarkvennafélagsins Liknar, í tilefni þess, að félagsskapur þessi sem búinn er að starfa yfir 40 ár, verður nú lagður niður. Starfskraftar Líknar sameinast þó aftur hjá Heilsuverndarstöðinni, sem nú leysir Líkn af hólmi eftir mikið og gott starf. Læknafélag Reykjavíkur og Sjúkrasamlagið hér í bænum gert með sér samning þar sein greiðsl- ur til heimilislækna frá samlag- inu eru Iækkaðar um 14% með hliðsjón af þessu nýja uUkagjaldi, i sem sjúklingunum er gert að grelða samkvæmt þessum nýju lögum, Munu læknarnir sjálfir hafa haft frumkvæði að þessari breytingu, en allmikið hefur þótt bera á þvl að læknar væru sóttir að nauðsynjalausu eða nauðsynjalitlu og er ætlunin að reyna að valda þvi með þessu að slíkur siður aftakist. Gjald það sem læknar fengu frá Sjúkrasamlaginu í fyrra var 140—150 kr. fyrir hvert númer (mann) en hámark númera sem hver læknir hefur er 1250. Þritt fyrir þessa breytingu haldast greiöslur til sérfræðinga óbreyttar. | LIKN STOFNUÐ Likn var stofnuð árið 1915. Stóðu að stofnuninni nokkrar konur og var frú Christepine Bjarnhéðinsson, fyrsti form. fél., eða tíl 1931, að frú Sigríður Eiríksdóttir tók við og hefur sið- an gegnt formannsstörfum. Til- gangur þessara stofnunar var sá, að veita sjúkum hjálp. BERKLAVARNASTL_iN 1919 gekkst Líkn fyrir stofnun berklavarnastöðvarinnar sem varð fyrsti vísirinn að skipulögð- um berklavörnum hér meðal al- mennings. Fyrstí íæknirinn var Katrin Thoroddsen Ungbarna- vetnd Líknar var stofnuð 1927. 1936 voru fengin gegnumlýsing- artæki að berklavarnastöðinni með aðstoð Berklavamafélags ís- lands. Þess má geta, að fyrstu árin unnu ókeypis við stöðina lækn- arnir Katrín Thoroddsen, Magn- ús Pétursson og Sigurður Magn- ússon. Síðustu árin hafa átta hjúkr- unarkonur starfað hjá félaginu, enda hefur starfið verið umsvifa- mikið. Síðan 1927 hafði Líkn ung- barnavernd og var hún stóraukin 1941. Þá tók Líki, að sér 1943 eft- irlit með barnshafandi kon„. . Þá hefur hún annazt heimilisvitjan- ir og skipta þær tugum þúsunda. Fiá upphafi hafa verið farnar slíkar vitjanir til 277.098 sjúk- linga. Öll þessi sjúkrahjálp hefur verið ókeypis og greidd af for- ráðamönnum félagsins að und- anskildum einstöku sjúkravitjun- um sem fólk óskaði eftir að greiða. Stjórn Hjúkrunarfélagsins Líknar hóf snemma baráttu. fyrir aukinni heilsuvernd í bænum, með mjög takmarkað fjármagn. Þótt seint gengi framan af og baráttan virtist stundum vonlítil, hefur féiagið nú að afloknu starfi sinu séð þann draum rætast, að hér hefur risið upp heilsuvernd- arstöð sem að öllum útbúnaði jafnast fyllilega á við það bezta með stærri þjóðum og kjarni hinnar nýju heilsuverndarstöðvar er starfslið Liknar. GEÐVERNDARSTOÐ FYRIR BÖRN Frú Sigríður sagði, að Likn hefði látið það vera sínu siðustu ósk til bæjaryfirvaldanna, að komið yrði á stofn geðverndar- stöð fyrir böm í Heilsuverndar- stöðinni, en Líknarkonur tryðu svc mjög á giidi slíkrar starf- semi, að þær teldu hana ekki bera minni árangur en þá starfeemi sem þegar hefur verið minnzt á. Er þegar farið að undirbúa stofn- un slíkrar stöðvar og er ungur læknir að kynna sér slíku starf- semi erlendis. STJÓRNIN Síðustu stjóra Líknar skipuðu eftirtaldar konor: frú Sigriður Eiríksdóttir, formaður, frú Anna Zimsen, frú Ragnheiður Bjama- dóttír, sem verið hefur í stjóm félagsins frá fyrstu tíð, frú Sig- ríður Briem Thorsteinsson og frú Sigrún Bjarnason. Sonarsynir MacmiHans stríða vinum Butlers Á FIMMTUDAGINN, áður en vitað var, hvor þeirra Mac- millans og Butlers yrði for- sætisráðherra, safnaðist múg- ur manns fyrir utan bústað Butlers á Sraith Square 3 til að votta honum hollustu sína og stuðning. Allt í einu sáu menn hvar stórt skilti, letrað rauðum stöfum, birtist i glugg anum á Smith Square 4. Á því stóð: „Macmillan verði for- sætisráðhe*ra“. Smith Square 4 er hús Maurice Macmillans þing- manns, sem er sonur forsætis- ráðherrans. Kona hans sagði, að þar hefðu verið börn þeirra hjóna, sem gerðu skUtið tU að lýsa SÍNUM stuðningi við afa. — Þótti þetta einkar skemmtileg glettni. Bömin eru Alexander 13 ára, Joshua 9 ára og Adam 8 ára. Anna Ú. Björnsdóttir IVIinningarorð LAUGARDAGINN 12. þ. m. and- aðist á Landakotsspítala frú Anna Ú. Björnsdóttir. Hún var fædd hér i bænum 10. jan. 1902. Foreldrar hennar voru Björn Hannesson, sjómaður og Sesselja Þórðardóttir. Þau hjón voru skyld að nokkru, bæði komin af hinni kunnu Bergsætt. Úlla, eins og hún var oftast kölluð, var ein af 6 systkinum og ólst upp með foreldrum sínum tU 10 ára ald- urs, en var þá tekin í fóstur af L. Kaaber, bankastjóra og fyrri konu hans, frú Astrid. Reyndust þau hjón henni með ágætum og' hlaut hún hina beztu menntun, sem þá var völ á, bæði hér á landi og í Danmörku. Var hún hjá þessari fjöiskyldu þar til hún giftist 1924 Torfa Þórðarsyni, stjórnarráðsfulltrúa. Eignuðust þau hjón 3 böm, og eru þau öll gift, dæturnar tvær búsettar hér í bænum en sonurinn við verk- fræðinám í Þýzkalandi. Ég sem þetta rita kynntist frú Úllu, þegar bömin voru farin að ganga í framhaldsskóla og minmst ávallt þessa beimilis með þakklæti síðan. Þarna kom fram hjá húsmóðurinni hin mikla fórn arlund, að hugsa alltaf um æsk- una og framtíð hennar. Á heim- ilinu voru sífelldar annir því mörg skólasystkini þurftu að mætast þar, og urðu þá oft fjör- ugar umræður um ýmis mál er efst voru á baugi á þeim tíma. Alltaf fylgdist húsmóðirin með, gladdist yfir sigrum ungling- anna, tók þátt í áhyggjum þeirra, leiðbeindi og uppörvaði. Veit ég :tð mörg okkar, ekki sízt þau er voru utan af landi, stöndum í mikilli þakklætusskuld við þessa ágætu konu, þvi þetta var á þeim árunum, um og eftir síð- ustu stycjöld, er miklir umbrota- t'mnr voru í ö!lu þjóðlífi voru eins og kunnugt er, en trúin á það að hið góða mundi sigra, var óbifanleg hjá henni. Því miður fór heilsu frú Úllu mjög að hraka skömmu síðar og gat hún því ekki sinnt eins mik- ið þessunr. áhugamálum sínum eins og hún heíði óskað, an ávallt var þó sami áhuginn til að leið- beina og hjálpa. Á síðustu árum naut hún þeirrar ánægju að sjá 7 bamabörn sín vaxa dálítið úr grasá, enda var hugur hennar all- ur hjá þeim þar til yfir lauk. Það er gott að hafa kynnzt svona góðri og ástríkri móður. Blessuð sé minning hennar. S. H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.