Morgunblaðið - 20.01.1957, Síða 15

Morgunblaðið - 20.01.1957, Síða 15
Sunnudagur 20. janúar 1957 MORGVNBL AÐ1Ð 15 — / fáum orðum sagt Framh. af bls. 11. að mér og segir: Sæll Helgi! ’Það þótti henni undarlegt. í sumar var ég staddur í fyrsta skipti austúr í Laxárdal og hitti þar bónda nokkurn. Hann þekkir mig ekki í sjón og spyr mig að nafni. Ég segi honum það, þá fagnar hann mér hið bezta og segir: Sæll vertu Helgi, þig þekki ég vel. (Við þetta svar er bundið fallegt ævintýri - en það er önnur saga). Síðan dró hann fram brennivíns- p>ela og bauð mér snaps, en ég sagði honum auðvitað, að það væri sama og gefa bakarabarni brauð. — Þú vinnur hjá Guðbrandi í Áfenginu? — Já, ég hef oítast unnið við einhvers konar verzlun. Um tíma var ég í íslandsbanka. Svo var mál með vexti, að ég hitti Guð- mund Oddgeirsson á horninu við Hafnarstræti og Pósthússtræti. Það var í apríl 1915. Hann bauð mér vinnu í Islandsbanka. Ég sagði honum, að ég kynni ekkert til þeirra starfa, en þó varð það úr, að ég hitti bankastjórana að máli. Þeir voru Hannes Hafstein, Sighvatur Bjarnason og Tofte, sem talaði ekkert nema dönsku. Ég sagði þeim sem var, að ég þekkti ekkert til bankastarfa, en þá kváðust þeir mundu kenna mér þau. Ég spurði hvenær ég setti að byrja og svaraði þá Haf- stein: Laugardag til lukku. Það varð svo úr. Um nóttina varð bruninn mikli í miðbænum og var mér sagt, þegar ég vakn- aði, að kviknað væri í íslands banka. Þótti mér bankaferill minn hefjast heldur óglæsilega, eins og þú getur ímyndað þér, en þegar ég kom I bæinn, sá ég að þetta var á misskilningi byggt. Það kviknaði ekkl i íslandsbanka heldur Landsbankanum og ég fékk tækifæri til að læra ýmislegt sem við kemur bankastarfsemi — og hrafl I dönsku í þokkabot. — Tofte talaði aldrei annað. — En svo að við snúuin okkur nftur að ferðalögunum. Þau eru þér auðvitað flest minnisstæð? — Já, auðvitað. — Nokkur minnisstæðari en önnur? — Má ver*. Annars er það efni I margar bækur að skrifa um íerðálögin. Ja, Þórisdalsförin þótti t.d. merkileg á sínum tíma. Ég man líka vel eftir því, þegar við fórum með 80 manna hóp á Skjaldbreið og Sigurður Nordal flutti stórmerkilegt erindi um Jónas Hallgrímsson og skáldskap hans á tindi fjallsins. Þetta var 13. júlí 1941 — hundrað árum eft- ir að skáldið orti Fjallið Skjald- breiður. Það var gott veðúr á tindinum, en rauk upp á norðan og var komið moldrok á völlun- um, þegar við komum niður. — En Þórisdalsförin? — Það hvíldi mikil leynd yfir þessum dal, menn vissu lítið sem ekkert um hann annað en það sem segir í þjóðsögum. Þar er hann t.d. kallaður Áradalur. Og menn voru jafnvel þeirrar skoð- unar að þarna væri allt fullt af diaugum, forynjum og útilegu- mönnum. Að vísu höfðu tveir prestar farið í Þórisdal á 17. öld og Björn Gunnlaugsson hafði komið þar við á ferðum sínum um landið. En það var ekki nóg. Það var eins og menn héldu fast við trúna á þjóðsögurnar og — — já, og svo hefur þjóðsagan í Grettissögu vafalaust haft sín á- hrif? — Heyrðu góði minn, svarar Helgi í miklum vígahug og ég sé að Þórisdalur er gleymdur á svip- stundu, heyrðu, það er alltaf ver- ið að segja að íslendingasögurnar séu ekkert nema þjóðsögur og skáldskapur. Ég er á öðru máli. Ég er sannfærður um, að sögurn- ar segja yfirleitt frá staðreynd- um. Sannsögulegum atburðum. ★ Og svo kemur eftirfarandi saga Helga frá Brennu um bardagann við Grettisodda. Kannski finnst einhverjum, að hún styrki sann- fræði sögunnar: — Það var sumarið 1954. Ég var gestur Jóhannesar á Borg við Hítará, ásamt Guðbrandi Magn- ússyni, forstjóra, og enskum vin- kaupmanni, Thorm Newman að nafni. Dag einn var hann að veið- um við svokallaðan Grettisodda, sem gengur út í ána vestanverða, en ég sat nokkru neðar og las í bók. Laxinn var tregur, en veðr- ið gott. Newman fer allt í einu yfir ána og kastar, þar sem Tálmi fellur í hana, en veiðir ekkert. Hann leggur þá stöngina á öxl sér, gengur til mín og segir: Helgi, hefur verið háð orrusta hér? Ég segi: . Af hverju haldið þér það? — Af þvi svarar hann. að ég hef verið að horfa hér á orrustu og féllu 10— 14 menn og margir særðust. — Ég áttaði mig ekki á, hvað þetta gæti verið og sagði Jóhannesi sög- una, þegar heirn kom.Jóhannes áttar sig strax og segir: Jú, veiztu það ekki, hér var bardaginn háð- ur við Mýramenn. — Newman hafði með öðrum orðutn séð bar- daga, sem háður var fyrir um 900 árum, og hafði hann þó aldrei lesið aðra í&lendingasögu en Njálu. Og Helgi bætir við: — Þú getur flett upp á þessu í Greítlu, mig minnir, að það sé sagt frá bardaganum í 60. kapítula. — Já, þetta er skemmtileg saga. En Helgi, við vorum að tala um Þórisdalsförina, hvað —------ — Ég má ekki vera að þessu lengur. Þú getur líka séð allt um Þórisdalsförina í Eimreiðinni. Svona er Helgi. Kann ekki við sig inn'án fjögurra veggja. — M. Fjórði maðurinn pctSS Smásaga eftir Codfried Bomans han« úr sér og sá þá þrjá, sem eftir voru, standa út í horni. SPILAKLÚBBURINN hafði aldrei almennnilega getað komið sér niður á, hvort af kaffi- húsunum tveimur væri skemmti- legra. Starnwiel hélt með „Nám- unni“ af því þar voru bjálkar í þakinu. Honum fannst þá eins og hann sæti í káetu eða litlum kofa, sagði hann. Starnwiel var piparsveinn og hafði þessa löng- un í hóglífi, sem stafar af skorti á lífsþægindum. Honum fannst notalegt að sitja undir lágu bjálkaþakinu í „Námunni“, þeg- ar stormurinn vældi við glugg- ana. Honum fannst hann þá vera svo öruggur. Oft hafði hann hugs að um hve gaman það væri, ef hann sjálfur gæti komizt yfir íbúð. En honum blöskraði allt umstangið við að kvænast. Næsta ár, hugsaði hann, eða eftir tvö ár. Það væri nógur tími. Þannig var Stamwiel. Kommenijn lifði af eignutn sín- um og hann tók „Einhyrningin“ fram yfir „Námuna“. Það væri rýmra þar, sagði hann og maður hefði að minnsta kosti svigrúm fyrir fæturaa. Auk þess væri engin ástæða til að óttast að snafsinn væri dreginn af manni. Glasið væri fullt, þegar það væri borið fram, alltaf fullt. Komm- enijn þótti gaman að fá sér tár. Höfuðið á honum var stórt og rautt og hann blés þegar hann gekk upp stiga. Wieliga læknir haíði sagt við hann: ,,Þú skalt foraðst geðshræringar og þá get- ur þú lifað lengi og svo væri pípa betri heldur en vindill. Og einu glasi minna.“ Kommenijn féllst á að þetta væri gott ráð. Einu sinni hafði hann meúa að segja tekið þá ákvörðun að byrja á morgun. Þannig var Komm- enij. Bikker og Hespens mynduðu eins konar miðflokk: Bikker var latur við að hugsa Og Hespens var óákveðinn. Stundmn fannst þeim „Einhyrningurinn” skárri og stundum féll þeim betur við „Námuna" og smátt og smátt varð það að vana að skipta kvöld unum á milli þessara tveggja kaffistofa. Bikker gat verið dá- lítið hryssingslegur og honum stóð svo að segja á sama. „Ef maður hefur þægilegt sæti, þá er það nóg“, Og maður sæti í raun- inni alls staðar vel og alltaf væri hægt að taka eina og aðra á- kvörðun. Hespens var alltaf í efa. Stundum þegar hann vakti á nætumar, fór hann að hugsa um þennan flokkadrátt út af kaffihúsunum. Báðir hefðu eitt- hvað til síns máis. Það væri bezt að yfirvega þetta eitthvað nánar. Hespens hugsaði mikið og svo var hann málari. Oft datt honum í hug: „Ef ég gæti nú hætt þessu klessuverki með myllur og barna höfuð og gæti farið að eiga við eitthvað af lífi og sál. Eitthvað stórt“. Hann hló íbygginn við aessa hugsun. Hann hafði tekið þá föstu ákvörðun að gera ein- hvem tímann eitthvað og ein- hvers staðar. Þannig voru þeir Bikker og Hespens. Eitt kvöld hittust þessir fjór- ir vinir í Námunni. Önnur rúb- ertan var rétt að byrja. Klukk- an var hátf tólf. Það var ein- mitt stund til hátíölegrar yfir- vegunar. Starnwiel raðaði spilunum og hlustaði á vindinn. Svo sagði hann: „Oft dettur mér í hug: Hvað verður manni úr lífinu? Árin líða framhjá og ekkert ger- ist. Tvö lauf.“ „Ég segi pass“, sagði Hespens. „Tvö hjörtu“, muldraði Bikk- er. Kommenijn horfði yfir vindil- inn og niður í spilin. „Já, mér hefur oft dottið í hug að fara í ferðalag", sagði hann. „Vera alveg þurr á ferðinni, fá mér aðeins við og við pípu. Og líta vel í kringum mig og læra eitt- hvað. Eg hefi ferðaáætlunina heima hjá mér, Ítalía, Grikkland, Tyrkland og síðan yfir Egypta- land og Túnis aftur heim. Það væri skolli skemmtileg ferð. Ég dobla“. „Ég dobla aftur", sagði Stam- wiel strax. „Kommenijn á að láta út. Augnablik!" Hann lagði spilin niður á borðið og hélt áfram: „Er það ekki undarlegt. Alltaf ætlar maður að gera eitthvað. Og aldrei gerir maður neitt. Oft finnst mér þetta leiðinlegt. Við spilum og spilum og svo hugs- ar maður: Bara ef eitthvað gerð- ist. En guð má vita hvað það svo sem ætti að vera." „Eitt spark“, sagði Bikker. „Eitt hvað?“ spurði Stam- wiel. „Eitt spark þyrftum við að fá allir", sagði Bikker. „Meim þurfa við og við að fá spark, svo að þeir hrökkvi við. Hjarta er tromp. Kommenijn á að láta út.“ Kommenijn lá út af og höfuð- ið hallaðist aftur á bak yfir stórbríkina. Augun voru lokuð og hægri höndin hvíldi kreppt á spilunum. „Svefnpurka“, sagði Bikker, „þú átt að láta út“. En Kommenijn svaf ekki. Hann gat ekki framar látið út. Hann var dauður. Þegar Paverick læknir hafði lokið við rannsókn sina, rétti „Fjölskyldan hefur verið iátin vita. Þið getið farið heim. En þama kemur þá líka doktor Wieliga. Ef að ykkur er sama, þá fer ég með ykkur." Þeir fóru allir fjórir í káp- urnar og gengu út í kalt nætur- loftið. Þeir töluðu ekkert sam- an. í „Einhyrningnum" sáu þeir ljós gegnum rifu á hurðinnL „Hvað er klukkan?" spurðá Paverick. „Hálfellefu", sagöi Hespens. Állir þögðu. „Eigum við?“ sagði Starnwiel hikandi. „Finnst þér það?“ spurói Hespens. „Finnst þér það eiga við?“ „Eiga við, eiga við“, muldraði Bikker. „Eg fer ekki svona í rúmið. Þetta situr enn í skrokkn- um á mér.“ Þeir gengu inn. Þar var þægi- lega hlýtt. Paverick gaf spilin. „Þrjú hjörtu", sagði hann. „Pass“, anzaði Hespens. „Pass“ sagði Stamwiel. Bikker tók glasið og renndi út úr því í einum teig. „Mikill skolli. Þetta var »1- deilis--------. Ég segi pass“. Gamalnieima- skemmtun á Akranesi AKRANESI. — Gamalmenna- skemmtunin var haldin hér aS Hótel Akranesi sl. sunnudag, og hófst með kaffidrykkju kl. 4. Þá las sóknarpresturinn séra Jón M. Guðjónsson hugvekju. Fyrir og eftir hugvekjulestur- inn voru sungnir sálmarnir: „Ó, þá náð að eiga Jesúm“ og „HvaS boðar nýjárs blessuð sól.“ Þá var sýnd afbragðs kvik- mynd á vegum Upplýsingaþjón- ustu Bandaríkjanna frá Vestur Virginíu. Næst kvað Ragnar Jóhannesson skólastjóri kafla úr hinni snjöllu rimu um Odd Sig- urgeirsson eftir örn Arnarson. Meðan snæddur var kvöldverður söng karlakórinn Svanir undir stjórn Geirlaugs Árnasonar. Dans að var og lék E.F. kvintettinn. Fjöldasöngur var undir stjórn frú Sigríðar Sigurðardóttur. Kvenfélag Akraness hefir nú starfað í 30 ár og er þetta 29. gamalmennaskemmtunin, sem það gengst fyrir, en henni lauk laust fyrir miðnætti. — Oddwr. í Reykjavík I) verður haldinn í fulltrúaráði og trúnaðarmannaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik í dag. klukkan 2 e. h. í Sjálfstæðishúsinu. Fundarefni: Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálunum Frummælendur: Björn Ólafsson alþm. og Ólafur Björnsson alþm. Fulttrúar og trúnaSarmenn eru minntir á að mæta stundvíslega og sýna skírteini við innganginn. STJÓRNIN. Fulltrúaráð og trúnaðarmannaráð Sjálfstæðisfélaga F II IM D

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.