Morgunblaðið - 16.03.1957, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. marz 1957
FramtíBarskí^aland Reykvíkinga í Henglinum
En nú verður að nœgja upplýst skíða-
brekka með dráttarbraut í Hveradölum
Frá heimssókn með SKRR
i Hveradali
'jVrÚ er kominn tími skíða-
’ íþróttarinnar. Nægur er
snjórinn í fjöllunum hér í
kring og vistlegir og glæsilegir
skálar hinna ýmsu félaga bíða
aðeins eftir að þeir séu not-
aðir — ekki svo að skilja að
enginn noti þá, þvert á móti.
Það gætu aðeins fleiri notið
þeirra. Nú er dagurinn farinn
að lengjast og sá sem kynnist
dásemdum eins dags í sólbak-
aðri skíðabrekku, vill umfram
allt ekki sleppa þeim gullnu
tækifærum sem tii slíks gef-
ast. Menn eru því hvattir til
að reyna einu siuni, „verða
dús“ við brekkur og sól, skála
og glaða æsku.
-*• DRÁTTARBRAUT
Vel á minnzt, dráttarbrautar-
skúrinn. Það hefur sem mörgum
er kunnugt verið starfrækt drátt-
arbraut í Hveradölum, sem dreg-
ið hefur skíðafólkið upp snar-
bratta brekkuna á augabragði. —
Dráttarbrautin var á kafi í snjó
núna, og brautin hefur ekki verið
í notkun, vegna þess að ófært
hefur verið í skálann lengi sakir
fannfergis. En nú er ráði að
Skíðaráðið kaupi dráttarbrautina
og starfræki hana.
— Okkur er nauðsyn að
koma brautinni í gang, sagði
Úlfar Skæringsson, form. Skíða-
ráðsins, er við vorum seztir að
kaffiborðum í Skíðaskálanum.
Við höfum barizt mjög við að fá
komið upp lýsingu brautarinnar
helgar eða á laugardagskvöldum,
heldur er það nauðsynlegt reyk-
vískum skíðamönnum að komast
oftar á skíði, sagði Úlfar. Ákveðn
ar eru, svo framarlega að veður
leyfi, ferðir upp eftir á þriðju-
dags- og fimmtudagskvöldum. —
Er þá farið frá BSR um kvöld-
matarleytið, verið við æfingar í
2 tíma og komið um miðnættið
í bæinn. Þessar ferðir eru opnar
öllum, og þegar dráttarbrautin
fer í gang næstu daga, þá er þessi
kvöldstund drýgri til skíðaiðk-
unar en heill bjartur dagur, þeg-
ar menn ganga upp á milli. Svo
að ekki sé talað um hina róman-
tísku hlið málsins!
★ FRAMTÍÐARLAND
Með kaupum á skíðalyftunni
vili Skíðaráðið hefja aðgerðir
í því áhugamáli sínu, að koma
upp einni sameiginlegri mið-
stöð fyrir skíðaiðkun. Það yrði
dýrt spaug ef öll félögin sem
skála eiga hygðust koma upp
En ljósmyndavélin nær þjótandi skíðamönnunum ekki óhreyfðum.
Ljósin tvö sýna hve myndin er hreyfð. — Ljósm. Jakob Albertsson.
Skíðaráð Reykjavíkur — sam-
nefnari allra skíðafélaganna í
Reykjavík — bauð blaðamönnum
í skyndiför kvöldstund eina í
vikunni sem leið að skíðaskálan-
um í Hveradölum. Með í förinni
voru ráðamenn og nokkrir af
beztu skíðamönnum bæjarins,
þessum keppniskörlum, sem
verða að nota hverja stund sem
færi gefst, ef þeir eiga að geta
staðið sig vel á skíðamótum.
★ BREKKAN UPPLÝST
Þegar í Hveradali kom blasti
við upplýst brekkan, glitraði til-
sýndar í fögru kvöldveðrinu. —
Hún stóð ekki lengi ónotuð. Skíða
kapparnir voru að vörmu spori
komnir á skíði sín og upp á við.
Síðan komu þeir þjótandi fram
af bungu brekkunnar fyrir ofan
skálann, fóru í alls konar beygj-
um, stórum sveigum og litlum
niður eftir brekkuræmunni, sem
ljósin féllu á. Skuggar þeirra
voru ýmist pínulitlír við hlið
þeirra eða ægistórir á undan eða
eftir. Það var eins og þetta marg-
faldaði ferð þeirra í sviginu
niður hvíta, bratta brekkuna,
þennan upplýsta depil, þessa
vin í svartnætti íslenzkra
fjalla. En þarna ríkti gleði og
kátína, það voru ærslin, leikurinn
og viljinn til að ná settu marki
sem fengu útrás. Niðri við drátt-
arbrautarskúrinn lá Jakob Al-
bertsson á maganum og tók
myndir í sífellu, m.a. þær er hér
fylgja.
og tekizt það fyrir aðstoð og vel-
vild rafveitustjóra Reykjavíkur,
sem lét okkur í té staura og kast-
ara og velvild Steingríms veit-
ingamanns hér í Skíðaskálanum,
sem lætur okkur í té rafmagnið,
— eins og fleira.
★ Á ÞRIÐJUDÖGUM
OG FIMMTUDÖGUM .
Tilgangurinn með því að fá
brautina upplýsta er ekki einung
is sá að hafa hana upplýsta um
dráttarbrautum, og þær gætu
aldrei orðið fullkomnar. Finna
verður framtíðarskíðaland
Reykvíkinga og samstilla
skíðaferðir þangað að miklu
leyti, þó að sjálfsögðu verði
skíðaskálarnir áfr;rm notaðir
engu minna en nú er. Að
þessu framtíðarskíðalandi þarf
ekki að leita. Það eru allir
sammála um það, að það er í
Henglinum, helzt í Marardal.
Frh. á bls. 19.
Svona var umhorfs á veginum við Hamrahlíð góðviðris-sunnudag einn um daginn. Hundruð bíla
stóðu á veginum meðan eigendur þeirra og gestir þeirra voru við iðkun skíðaíþrótta.
— Ljósm. Guðm. Ágústsson.
Það er vel bjart í brautinni — sem um miðjan dag og hún er laðandi
til að sjá í myrkrinu. — Ljósm. J. A.
! Bridge -jyáttur j
Einmenningsmeistari Tafl- og
Bridgeklúbbsins varð Hjalti Elí-
asson og einmenningsmeistari
Bridgefélagsins varð Guðm. Ó.
Guðmundsson. Báðir þessir menn
eru í röð sterkustu spilamanna
landsins, og má segja að sigurinn
hafi ekki verið óvæntur, þar sem
þeir voru báðir búnir að taka
forystuna fyrir siðustu umferð.
Fyrsta umferð í parakeppninni
var spiluð á mánudaginn og eru
efstu pörin þessi:
Marg. Jensd. og Jóhann Jóns-
son með 206 stig.
______________l
Guðríður Guðmundsd. og
Sveinn Helgason með 194
stig.
Karitas Sigurðsson og Kristján
Ásgeirsson með 193 stig.
Elín Jónsd. og Guðl. Guðmunds
son með 190 stig.
Næsta umferð verður spiluð á
mánudaginn í Skátheimilinu.
Reykjavíkur meistarakeppnin
í tvímenning hefst á sunnudag-
inn og standa öll félögin í Rvík
að henni. Tilkynning um þátt-
töku skal hafa borizt fyrir laug-
ardag til Eggerts Benónýssonar.
Spurnarþóttui III
11. Sveitakeppni, báðir á hættu:
V. N. A. S.
U 1 G 2 V ?
Þú ert Suður og átt
♦ 6-3
V K-10-5
♦ Á-6-3
A D-7-6-3-2
Hvað segir þú?
12. Rúbertubridge, N-S á hættu:
N. A. S. V.
2 G pass 2 ♦ pass
3 G pass ?
Þú ert Suður og átt
* 4
V D-5-3
* K-G-8-6-4-2
* D-10-2
Hvað segir þú?
13. Rúbertubridge, báðir á hættu:
V. N. A. S.
14 2 V pass ?
Þú ert Suður og átt
♦ K-6
V K-10-6-5-4
♦ Á-6-3
X K-7-3
Hvað segir þú?
14. Sveitakeppni, N-S á hættu:
V. N. A. S.
1 ♦ pass pass dobl
1 A pass 2 ♦ ?
Þú ert Suður og átt
♦ D-9-5-4-3
V Á-K-10-2
♦ Á-6
X K-6
Hvað segir þú?
15. Parakeppni.báðír á hættu:
N. A. S. V.
1 * pass 2 ♦ pass
3 * pass ?
Þú ert Suður og átt
♦ 10-4
V Á-7-5
♦ Á-9-6-5-3
X Á-4-3
Hvað segir þú?
Svör við spurnurþætti II
dæmi 6 dæmi 7 dæmi 8 dæmi 9 dæmi 10
Róbert Sigmundsson .. 2 G dobl dobl 3 * 2 G
Guðm. Ó. Guðmundsson pass pass 1 G 4 * 3 G
Guðlaugur Guðmundss. 3 * pass 2 ♦ 4 X 3 G
Stefán Stefánsson .... 3 * 2 V dobl 4 X 3 G
Gunnlaugur Kristjánss. 3 X pass dobl 4 * 3 G
Sagnir og skoðanir bridgeþáttarins:
3 lauf, gefa upp skiptinguna og ifm leið góða opnun.
Pass er bezt, en sé eitthvað sagt, þá dobl, sem gefur upp að
báðir hálitirnir eru sagnfærir. Þetta er aldrei gróðadobl:
Pass: Gildrupass, því andstæðingarnir- segja aftur.
4 spaðar: Við höfum ekki eftir neinu að bíða, úr því félagi er
búinn að segja, að hann eigi minnstu opnun.
3 grönd: Sjálfsagt að reyna game með 8 slagi og níunda ef spaði
kemur út.