Morgunblaðið - 05.04.1957, Blaðsíða 3
FÖstudagur 5. apríl 1957
MORCVNBLAÐIÐ
S
Kona landkönnuðarins, Dagmar
Freuchen hefur teiknað tizku-
myndir í 13 dr
HINGAÐ til lands kom í fyrra
dag hinn heimskunni vísinda-
maður Peter Freuchen í boði
Stúdentafélags Reykjavíkur,
ásamt konu sinni frú Dagraar
Freuchen. Frúin fellur alloft
í skugga hins fræga eigin-
manns hennar, en þar sem við
höfum nú heyrt svo mikið
um hann, er ekki úr vegi að
kynnast frú Dagmar ofurlítið.
Mbl. hitti hana að máli á
Hótel Borg í gær.
VORTIZKAN
Frú Dagmar vinnur við hið
þekkta bandaríska tízkutímarit
Vouge, að teikningum. Hún er
ekki tízkuteiknari í þess orðs
fyllstu merkingu.. heldur teiknar
hún eftir myndum og sýnmgum
seril ritstjórar blaðsins segja fyr-
ir um.
— Þér gætuð þá e.t.v. sagt okk
ur eitthvað um tízkuna í dag,
— Tízkan í dag. Já, það má
segja að í rauninni sé ekkert nýtt
sem kom fram á vortízkusýning-
unni í París, sem ég er nýlega
komin frá. — Og þó, — allflestir
kjólarnir voru úr chiffon, mikið
bará doppóttum efnum, og að-
altízkulitir vorsins og sumarsins
eru alla vega gulir litir, appel-
sínulitur (orange) beige, rautt og
laxableikt.
— Hverjir af hinum frönsku
meisturum falla yður bezt í geð?
— Mér finnst einna mest til
um Lanvin, Dior, Balmain og
Fath. Þá kom núna fram ungur
maður í fyrsta sinn, Guy Lar-
ouehe, sem sýndi mikið af kné-
stuttum pilsum og öðrum fötum
fyrir ungar stúlkur.
Lanvin sýndi mikið af kjólum
með japönsku sniði, víðum erm-
um og hattar hans voru einnig
japanskir og sumir með prjón-
um að japönskum sið. Hattar
Diors voru síðari að aftan en
framan, mjög klæðilegir.
— Hver voru helztu hattaefn-
in?
— Chiffon og eiginlega ekkert
nema chiffon. Stangað í sumum
höttunum og draperað í öðrum.
— Þá voru einnig kynstrin öll af
stráhöttum.
— Skórnir?
— Þeir voru ákaflega „smart“,
langir og mjóir með örmjóum
en háum hælum.
— Er ekki Madam Chanel
komin aftur á sjónarsviðið?
— Jú. Hún var eins og kunnugt
er mjög fræg á árunum 1920—
30. Nú er hún byrjuð aftur og á
vorsýningunum átti hún m.a.
ullarpils og jakka, sem fóðraður
var með silki og útsaumuð silki-
blússa við. Slíkur klæðnaður er
mjög vinsæll meðal Bandaríkja-
manna og nýtur Chanel geysi-
mikilla vinsælda vestan hafs.
ER DONSK
— En svo við snúum okkur að
yður sjálfri, þér eruð fædd í
Danmörku?
— Já, en ég hef nú verið 20 ár
í Bandaríkjunum og hef fengið
bandarískan ríkisborgararétt.
Maðurinn minn hefur aftur á
mpti haldið sínum danska ríkis-
borgararétti.
— Hafið þér unnið lengi við
Vouge?
— Já, ég er búin að vera þar í
13 ár, en áður en ég kom þangað
teiknaði ég fyrir Harpers Bazar,
sem einnig er mjög þekkt tízku-
tímarit og sl. 12 ár hef ég kennt
tízkuteikningu við Art Students
League, sem er mjög þekktur
listaskóli í New York. Hann er
Ullarpilsið og fóðraði jakkinn eftir Chanel vekur mikla athygli
í New York.
Bætt sambúð á vinnustað
Þessi klæðnaður er frá Dior. —
Þarna sést hvernlg hatturinn er
siðari að aftan en framan.
FRAMKVÆMDARÁÐ Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar (ILO)
hélt nýlega fund í Genf til þess
að ræða hvaða ráðstafanir stofn-
unin gæti gert til að stuðla að
bættri sambúð verkamanna og
vinnuveitenda á vinnustað. Var
samþykkt, að stofnunin léti til
skarar skríða í þessum efnum,
m.a. með því að láta nú þegar
fara fram ýtarlega rannsókn á
ástandinu í þessum efnum i ein-
stökum löndum. Þá var ákveðið,
að ILO skyldi veita aðstoð þeim
ríkisstjórnum og einstaklingum,
er áhuga hafa á þessu máli, og þó
einkum frumstæðum þjóðum er
kynnu að óska aðstoðar á þessu
sviði atvinnumálanna.
Fundurinn samþykkti m.a., að
ILO skyldi hafa til taks sérfræð-
inga, sem gætu ráðið ríkisstjórn-
um, verkalýðsfélögum og vinnu-
veitendafélögum heilt á þessum
sviðum. Það var talið mikilsvert,
að yfirvöldum, sem koma vilja á
sáttasemjarakerfi hjá sér, yrði
veitt til þess aðstoð, svo og þeirn
er hafa í hyggju að stuðla að
rétti verkamanna til að semja á
félagslegum grundvelli um kjör
sín, eða sem gera vilja aðrar ráð-
stafanir til þess að góð samvinna
haldist milli verkamanna og
vinnuveitenda.
Þá er í ráði, að senda út af
örkinni sérfræðinga til landa,
sem óska að kynna sér nýjung-
ar á sviði sambúðarinnar miili
verkafólks og vinnuveitenda.
Einnig er í ráði, að ILO veiti
embættismönnurn námsstyrki
til að kynna sér þessi mál. Þá
voru uppi raddir um, að ILO
ætti að stofna til námskeiða
fyrir verkalýðsleiðtoga og
verkstjóra, þar sem þeir gætu
kynnt sér allar nýjungar og
aðferðir til þess að gott sam-
komulag haldist milli þessara
aðila.
Loks var samþykkt, að ILO
léti prenta handbækur, sem
nota mætti til kennslu eða
sjálfsmenntunar í þessum efn-
um.
Máli Ádams læknis
:kki frestað
LONDON, 3. apríl — Dómar-
inn í máli enska læknisins
John Bodkins Adams, hafnaði
í dag ósk verjandans að mál-
sókninni gegn lækninum yrði
frestað á þeim forsendum að
saksóknaranum hefði ekki
tekizt að fella grun á Adams.
Dómarinn kvað upp þann úr-
skurð að það yrði hlutverk
kviðdómsins að kveða á um,
hvort læknirinn yrði talinn
sekur. —Reuter.
Sendiherra í Belgíu
HINN 28. marz sl. afhenti Agnar
Kl. Jónsson Belgíukonungi trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra ís-
lands í Belgíu með aðsetri í París.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Frú Dagmar Freuchen.
orðinn yfir 90 ára gamall og er
eingöngu rekinn fyrir það fé er
nemendurnir greiða í námsgjöld,
og ákveða þeir sjálfir hverjir
eru kennarar o.s.frv.
Og svo að lokum, hvernig lýst
yður á það litla, sem þér hafið
séð af íslandi og fslendingum?
— Ég verð að segja að mér
lízt vel á allt sem ég hef séð og
ég varð undrandi þegar ég sá
Reykjavík. Hélt ég ekki að hún
(Ljósm.: Studio)
væri eins stór og raun ber vitni,
og hér er allt svo hreint og loftið
svo tært og gott.
Lízt mér fólkið gjörvulegt og
konurnar hafa hreinlegt og fall-
egt yfirlit. Við hjónin hlökkum
mikið til þess að fá tækifæri til
þess að ferðast eitthvað um hér
á meðan við stöndum við, en
héðan höldum við heimleiðis
fyrrihluta næstu viku, sagði frú
Dagmar að lokum. — A. Bj.
Hinn víðþekkli Smelana-
kvarfetf heldur hér 3 tónleika
EINS og áður hefur verið skýrt frá er hinn víðkunni tékkneski
Smetana-kvartett kominn hingað á vegum Tónlistarfélagsins,
og leikur hann hér á tveimur tónleikum, er ætlaðir eru styrktar-
félögum Tónlistarfélagsins. Verða þessir tónleikar í Austurbæjar-
bíói á föstudags- og laugardagskvöld kl. 7. Þá verða einir tónleikar
fyrir almenning og verða þeii í Austurbæjarbíói á mánudagskvöld
klukkan 7.
Smetanakvartettinn er nú á
heimleið til Tékkóslóvakíu eftir
hljómleikaför um Bandaríkin.
Héldu þeir þar 32 tónleika á 27
stöðum við mjög góðar undir-
tektir og blaðadómar eru sérlega
góðir. Smetanakvartettinn er og
einn frægasti kvartett heimsins
sinnar tegundar, og sá bezti sem
Tékkar eiga, en þar stendur
kammermúsik á mjög háu stigi.
Blaðamenn ræddu í gær við
þá fjórmenninga ásamt forráða-
mönnum Tónlistarfélagsins, Ragn
ar Jónsson í Smára og Björn
Jónsson. Ragnar sagði að tvo tón-
listarviðburði bæri að hans dómi
hæst í sögu Tónlistarfélagsins.
Það væri koma Pragar-kvartetts-
ins 1937 og koma Busch-kvartetts
ins fyrir um 10 árum. Nú kæmi
þessi heimsfrægi Smetanakvart-
ett og mætti búast við að þess
atburðar yrði lengi minnst í sögu
félagsins.
NAFNIÐ
Smetanakvartettinn ber nafn
hins víðþekkta tékkneska tón-
skálds, Smetana. Þeir félagar
kváðu nafnið ekki einungis vera
valið honum til heiðurs, heldur
sem einskonar takmark um að
þeim mætti auðnast að leika í
hans anda. En Smetana er mjög
dáður af Tékkum og hann er svo
þjóðlegur í tilfinningum, að hann
þykir ná betur til þjóðarsálar-
innar en Dvorsak, sem er þó
frægastur tékkneskra tónskálda
út á við.
í 11 ÁR
Þeir félagar hafa leikið sam-
an í 11 ár eða frá því að kvart-
ettinn var stofnaður. Þeir eru á
aldrinum 28—37 ára, en bættu
því við, að þeir væru ennþá yngri
í anda. Á tónleikunum hér leika
þeir verk eftir Mozart, Janácek
og Smetana. A almenningstón-
leikunum á mánudaginn verður
breytt efnisskrá og leika þeir þá
verk eftir Beethoven, Bramhs og
Dvorsak. Kvartettinn skipa: Jirí
Novak 1. fiðla, Lubomír Kost-
ecký 2. fiðla, dr. Milan Skampa,
viola og Antonín Kohout selló.
Héðan halda þeir heim en eft-
ir 2 vikur fara þeir hljómleika-
för um Þýzkland, síðan leika
þeir á tónlistarhátíð í Prag, en
halda þaðan til tónlistarhátíðar-
innar í Bergen í maí-lok.
Smetanakvartettinn, frá vinstri: Novák, fyrsta fiðla; Kosíecky,
önnur fiðla; Kohout, selló; dr. Skampa, vióla.