Morgunblaðið - 05.04.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.04.1957, Blaðsíða 13
Föstudagur 5. apríl 1957 M ORGUISBLAÐÍÐ W nefndar um leyfi til þess að fá að byggja hóflegar íbúðir og vita allir, hvernig slíkar leyfisveit- ingar yrðu framkvæmdar undir Stjóm þeirra manna, sem nú fara með völd. Þá kemur það ástand, sem þessir menn telja seskilegast í húsnæðismálum sem öðrum málum, að ríkið sé hin allsherjar forsjá einstaklinganna. Með fjárfestingarhömlunum verð Ur aukið svo á húsnæðisskortinn, að það mun þykja næg yfirskins- ástæða til þess að setja ný húsa- leigulög, svo að ríkið geti ráðs- mennskazt með húseignir manna, en með því yrði aðeins sköpuð ný húsnæðisvandamál, sem ekki eru til í dag. Það er þetta, sem okkur er boðað í stjómarblöðun- um þessa dagana. Þetta eru fram- tíðarúrræðin, sem ríkisstjórnin er búin að ganga með, síðan hún tók við völdum. En fyrst nú þyk- ir málum ltomið í slíkt öngþveiti, að þorandi sé að sýna almenn- ingi hugarfóstrið. REYNT AÐ BJARGA ÆRUNNI Ríkisstjórnin öll ber ábyrgð á því ófremdarástandi, sem er ver- ið að leiða yfir okkur í húsnæð- ismálunum. Allir stjórnarflokk- arnir eru þess vegna hræddir við ábyrgðina. S4 hræðsla kemur fram í þeim fáránlegu ásökun- um, sem þeir bera á hendur Sjálfstæðisflokknum og ég hef áður lýst. Þó er einn stjórnar- flokkanna, sem mesta ábyrgðina ber, en það eru kommúnistar, sem fara með húsnæðismálin í ríkisstjóminni. Þeir óttast því mest sína ábyrgð. Þeir eru al- varlega orðnir hræddir við hin- ar pólitísku afleiðingar. Þeir sjá, að það eru alltaf færri og færri, sem trúa blekkingum ríkisstjórn- arinnar í húsnæðismálunum og ásökunum í garð Sjálfstæðis- flokksins. Þetta verður þeim þess vegna ekki til pólitískrar bjarg- ar. Þeir eru að sjálfsögðu jafn- ákveðnir og áður í því, að þeir eigi ekki sökina. En þá er ekki öðrum til að dreifa en hinum slæmu samstarfsflokkum, Al- þýðuflokknum og Framsóknar- flokknum. f forystugrein í Þjóð- viljanum 17. marz s.l. er sagt, að ráðherrar kommúnista berjist fyrir því dag hvern innan ríkis- stjórnarinnar að koma fyrirheit- unum af pappírnum út í daglegt líf, eins og það er orðað. f sömu , forystugrein blaðsins segir, að það væri auðleyst að afla fjár- magns til húsbygginga, ef ráð- herrar Framsóknar og Alþýðu- flokksins gætu tekið ákvörðun. En blaðið gefur í skyn, að þess sé víst ekki að vænta, því að þeir séu önnum kafnir við að undirbúa íbúðarhúsabyggingar fyrir Bandaríkjamenn á Kefla- Víkurflugvelli! KENNA HVER ÖÐRUM AFGLÖPIN Þannig er þá komið nú, að stjórnarflokkarnir eru farnir að kenna hver öðrum afglöpin í hús- næðismálunum. Þeir eiga eftir að gera það enn betur, og sá tími mun áreiðanlega koma, að þeir eiga ekki nógu stór orð til að brigzla hver öðrum um svik í húsnæðismálunum. Þeir fáu, ef nokkrir eru, sem enn trúa fleipri Btjórnarflokkanna um hinn illa erf, sem þeir hafa þótzt taka við af Sjálfstæðisflokknum, munu þá verða búnir að gera sér grein fyrir hinu sanna í þessu máli. Allur þessi skrípaleikur á ekki eftir að skaða Sjálfstæðisflokk- inn, en hann hefur þegar orðið dýrkeyptur almenningi í landinu. Almenningi eru húsnæðismálin mikilvæg, og það er ekki í þágu almennings, að nein ríkisstjórn sitji ráðalaus, athafnalaus og uppvís að skrumi einu og blekk- ingum um svo þýðingarmikil mál. EÐLI HÚSNÆÐISMÁLANNA Því má ekki gleyma, að hús- næðismálin eru ein allra þýð- ingarmestu mál hvers þjóðfélags. Það er ekki einungis, að húsnæði er öllum mönnum nauðsynlegt, heldur hefur húsnæðisástandið, sem þjóðin býr við hin víðtæk- ustu áihrif. Þrátt fyrir allt, sem gert er nú í heilbrigðismálum, er gott húsnæði bezta heilsugæzlan. Húsnæðið með sínum séríbúðum er undirstaða heimilislífsins. Heimilið er í kristnu þjóðfélagi aðaluppeldisstofnun hinnar ungu kynslóðar, þrátt fyrir allt, sem kostað er til skóla og mennta- mála. Húsakostur þjóðarinnar hefur bein áhrif á framleiðslu- getu hennar og þar með alla hennar hagi. Og húsnæðismálin hafa ennþá sérstöðu við ýmis önnur mál, að þótt tiltölulega fáir búi við slæmt ástand, þá. er það alltaf mjög alvarlegur hlut- ur. Fólk, sem býr í heilsuspill- andi íbúðum eða í ofþrengslum eða getur ekki stofnað heimili vegna húsnæðisskorts getur átt við ósegjanlega erfiðleika að stríða. Þeir geta haft banvæn áhrif á heilsufar, leyst upp heim- ilistengsl og gert framtíðarvonir að engu. Fólk, sem þolir böl hús- næðisskortsins, getur leiðzt til hvers konar örþrifaráða, sem rið- ið geta efnahag þess að fullu. Allir heilbrigðir menn hafa sam- úð með fólki, sem lendir í slíkum erfiðleikum. Einmitt vegna þess- arar sérstöðu húsnæðismálanna verða þau oft frekar en flest önnur mál vettvangur hins lág- kúrulegasta lýðskrums. Skortir þá ekki á, að farið sé hinum hug- næmustu orðum um raunir hinna húsnæðislausu og úthellt fögrum tárum og meiri áherzla lögð á þann söng en hin einu raunhæfu úrræði, sem til bjargar eru, en það eru auknar byggingarfram- kvæmdir. BEZTA RÁÐH> Aldrei hefur þetta komið bet- ur fram en hjá núverandi ríkis- stjórn. Aldrei hefur heldur hlot- izt meiri skaði af. Ríkisstjórnin tók við húsnæðismálunum í betra ástandi en nokkru sinni áður hef- ur þekkzt. Þjóðin bjó við góðan og glæsilegan húsakost og það var um það bil verið að fullnægja eftirspurninni eftir slíku húsnæði og útrýma húsnæðisskortinum. Búið var að stoína hið almenna veðlánakerfi og þar með lagður grundvöllur að lausn lánamál- anna. Nú reið á að halda verk- inu áfram. Enginn arfur nýtist nema hans sé gætt og hann ávaxtaður. En ríkisstjórnin brást sinu hlutverki. Ekki var hún einung is aðgerðalaus. Hún hefur gerzt ber að samvizkulausara lýð- skrumi og blekkingum en áður eru dæmi til. Á þennan hátt og með öðru sínu framferði hafa stjórnarflokkarnir kippt grund- vellinum undan eðlilegri þróun húsnæðismálanna. Efnahagsmál- um þjóðarinnar hafa þeir komið svo, að geigvænleg rýrnun spari- fjármyndunar hefur orðið. Þar með er lánastarfsemin til íbúða og byggingarframkvæmdir í voða. Ríkisstjómin kann ekkert ráð, og sízt það, sem bezt myndi duga, að láta af stjórn og völd- um. Ödýr skófatnaður : Kvenskór, stórt úrval Telpuskór Kven-inniskór 29,00, 35.00 kr. Barnaskór Barnagúmmístívél, frá kr. 12.00. ★ Kvenstrigaskór Uppreimaðir strigaskór, með svam-innleggi. Allar stærðir. Karlmanna sandalar Barnaskór, uppreimaðir, hvítir og brúnir. Skóverzlunin Framnesvegi 2 Nýjoi hvöldvökur í nýjum búningi RitiB hefur skipt um eigendur og ritstjóra NÝJAR KVÖLDVÖKUR, 1. hefti þessa árgangs, eru nýkomnar út. Kvöldvökurnar eru eitt af elztu tímaritum, sem nú eru gefin út hér á landi; verða fimmtugar á þessu ári. Á síðastliðnu ári urðu eigenda- og ritstjóraskipti. Þorsteinn M. Jónsson, sem gefið hafði blaðið út í 28 ár, seldi það Kvöldvökuútgáfunni á Akureyri, en ritstjórar eru nú Jónas Rafnar, fyrrv. yfirlæknir, og Gísli Jónsson, menntaskólakennari. Framkvæmdastjóri ritsins er Kristján Jónsson, bæjarfógetafulltrúi. Blaðið mun verða í svip- uðum sniðum og áður, en hefir fengið nýja kápusíðu, sem frú Alice Sigurðsson hefir teiknað. Enn sem fyrr er höfuðtilgang- ur ritsins að flytja þjóðlegan fróðleik og góðar og skemmti- legar sögur, en fjölbreytni i efnis vali er nú meiri en áður. MARGVÍSLEGT EFNI Af efni hins nýja heftis vekur mesta athygli upphaf að endur- minningum og hugleiðingum Ólafs Tryggvasonar að Hamra- borgum við Akureyri, en hann er víðkunnur orðinn fyrir dul- skyggni og lækningar. Framhald þessarar greinar mun birtast í síðari heftum þessa árgangs og næstu árgöngum. Þá er kvæða- syrpa eftir Hjört Gíslason, verka mann á Akureyri, og þáttur af Þorsteini Þ. Þorsteinssyni, rithöf- undi, eftir Björn R. Árnason, fræðimann á Grund í Svarfaðar- dal. Enn er að telja fróðl. grein um töku togarans York City í ís- lenzkri landhelgi. Greinin er skrifuð af Kristjáni Jónssyni og er hin merkasta 'heimild um töku fyrsta erlenda togarans í 4 mílna ísl. landhelgi. Pálmi Einarsson, landnámsstjóri, svarar spurning- unni: Hvað kostar að reisa ný- býli? og er það upphaf að fræðslu og spurningaþætti ritsins. Þá er vísnaþáttur og nýir þættir, svo sem Syrpa og skákþáttur undir stjórn Júlíusar Bogasonar, og bridgeþáttur undir stjórn Hall dórs Helgasonar. Þá er þess að geta, að í heftinu byrja tvær nýj- ar framhaldssögur, sem verða mjög spennandi. Önnur nefnist klaustrið í Sendomir og er eftir hinn kunna þýzka skáldsagna- höfund, Franz1 von Grillparzer, þýdd af Friðriki Þorvaldssyni og Gísla Jónssyni, en hin nefnist Brown hinn þrautseigi eftir brezka rithöf. C. S. Forester. Þá lýkur í þessu hefti sögunni Pit- cairneyjan. SMEKKLEGUR FRÁGANGUR Heftið er prýtt nokkrum mynd- um og er prentað á góðan pappír. Það er 48 lesmálssíður og kostar í lausasölu 15 kr., en verð ár- gangsins, sem verður 176 bls., er 50 kr. Ritið er prentað í Prentsm. Björns Jónssonar, og er frágang- ur hinn smekklegasti. Allan snjó ab taka upp á Héraði EGILSSTÖÐUM, 3. apríl. — Hér hefir verið afbragðs veður í heila viku og asahláka. Er allan snjó að taka upp í byggð. Ófært er yf ir Fagradal og Fjarðarheiði öll- um bifreiðum nema hvað snjó- bílar halda uppi samgöngum. Skrifstolustúlka Stúlka með Verzlunarskóla- eða hliðstæða mennt- un óskast til vélritunar og annarra skrifstofustarfa. Tilboð leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins sem fyrst, merkt: „12“ —2560. Til sölu 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í Hlíðunum. Sala og samníngar Laugavegi 29 — sími 6016. Nýtízku amerísk kjólaefni nýkomin. Þýzkar domublússur hvítar — nýkomnar í glæsilegu úrvali. BOSCH i iMotendur Dieselhreyfla! Gætið þess að draga aldrei of lengi að láta okkur yfirfara og innstilla fyrir ykkur olíuverkið. Illa stillt olíuverk margfaldar olíueyðsluna og spillir notagildi hreyfilsins. Þaulæfður fagmaður frá BOSCH með fullkomnustu tækjum annast viðgerðina. Varahlutir eftir þörfum. Bræburnir Ormsson hf. SÍMI 1467 VESTURGÖTU 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.