Morgunblaðið - 05.04.1957, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.04.1957, Blaðsíða 20
Veðrið Þykknar upp með SA-átt. PIoícipeMíiMííji >» 80. tbl. — Föstudagur 5. apríl 1957. Kosningarnar í Indlandi Sjá grein á blaðsíðu 11. Beykjavik veitir sama Iródrótt é átsvar rg álnrsðið um tekjuskatt Listkynning Morgunbla&sins Borgarstjóri beitir sér fyrir að athuga hvort útsvarsfrádráttur sjómanna aukizt verulega FYRIR nokkrum vikum, eða um það leyti, þegar Alþingí fjallaði um skattfrádrátt sjómanna, ræddi Gunnar Thor- oddsen borgarstjóri við formann niðurjöfnunarnefndar um moguleika á því að sjómönnum yrði veittur ennþá meiri frá- dráttur við álagningu útsvara, heldur en fólst í stjórnar- frumvarpinu um álagningu tekjuskatts. Hefur formaður nefndarinnar þetta nú til athugunar. Við álagningu útsvara í Reykjavík hefur það verið regla, að sami frádráttur sé veittur eins og lög segja fyrir um við tekju- skatt. í sumum kaupstöðum landsins er sjómönnum þó ekki veittur eins mikill frádráttur. Þessar athyglisverðu upplýs- ingar komu fram við umraeður í bæjarstjórn Reykjavíkur í gær. Upphaf þeirra var það að Þórður Björnsson lagði fram til- lögu um að beina því til niður- HÍP bárust stór- gjafir í gær GLATT VAR Á HJALLA í Félagsheimili prentara í gærdag, en þar var minnst 60 ára afmæl- is Hins íslenzka prentarafélags. Á svölum hússins blökktu fánar, og þangað var fjölmennt. Bárust félaginu mesti fjöldi gjafa frá einstaklingum og félagssamtök- um og skeytaregn með hamingju óskum rigndi yfir stjórn félags- ins og margar fallegar blóma- körfur voru því sendar. Félag prenstmiðjueigenda og Ríkis- prentsmiðjan Gutenberg gáfu mjög vandaðan radíógrammófón með segulbandsupptökutæki, Al- þýðusamband íslands gaf pianó. Þá gaf starfsfólkið í Prentsmiðj- unni Odda h.f. stækkaðar myndir af 12 forvígismönnum H.Í.P., sem stóðu að stofnun þess fyrir 60 árum. Eddu-konur, konur prentara, gáfu 10 þús. kr. til þess að skreyta félagsheimilið. Ýms- ar aðrar góðar gjafir bárust og færði Magnús Ástmarsson, for- maður félagsins, gefendum inni- legar þakkir. Konur prentara í Kvenfélaginu Edda, önnuðust rausnarlegar kaffiveitingar, en „opið hús“ var í Félagsheimilinu í gær og kom þangað fjöldi gesta. jöfnunarnefndar að veita sjó- mönnum verulegan frádrátt við ákvörðun útsvars. Ekki kom Þórður samt með neina ákveðna uppástungu um það hve mikill frádrátturinn skyldi vera. Hann minnti á það, að þegar rætt var á þingi nýlega um skattfrádrátt sjómanna hefðu heyrzt sterkar raddir um að með því frumvarpi væri elski nógu langt gengið. Enda væri nú orðið vandræða- ástand á fiskiflotanum, þegar gera yrði hann út með útlendum sjómönnum. Taldi Þórður óhjá- kvæmilegt fyrir Reykjavíkurbæ að horfast í augu við þennan vanda með því að veita sjómönn- um sérstakan frádrátt á útsvari. MINNST JAFNMIKIÐ Við umræður um þetta mál, kom það í ljós, að þessi til- laga Þórðar Björnssonar var óþörf með öliu. Borgarstjóri Gunnar Thoroddsen upplýsti á fundinum, að það hefði um langt skeið verið regla hjá niðurjöínunarnefnd að veita sama frádrátt á útsvari eins og lög kvæðu á um varðandi tekjuskatt. Því færi einnig jvo nú. að minnsta kosti jafnmik- ill frádráttur yrði veittur við útsvar eins og hin nýju lög um skatt sjómanna ákvæðu. ATHUGUN Á MEIRI FRÁDRÆTTI En borgarstjóri bætti því við, að er málið var til umræðu á Alþingi, hefði hann rætt við for- mann niðurjöfnunarnefndar um það hvort ekki væri hægt að veita sjómönnum meiri frádrátt á útsvari heldur en hin nýju lög ákveða á tekjuskatti. Væri nefnd arformaðurinn nú að athuga Æskstn ú ekki aSgang að vist a iiskiskipum f UMRÆÐUM í bæjarstjórn í gær um útsvarsfrádrátt sjómanna létu tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ljós, að fleira þyrfti að gera til að laða unga menn til sjómennsku en að veita þeim frádrátt í opinberum gjöld.um. Þeir sögðu báðir að skatt- frádrátturinn væri spor í rétta átt. Hann væri þó ekki nein fulln- eðarlausn á þessu vandamáli. þetta og óskaði hann eftir að til- lögu Þórðar yrði frestað meðan sú athugun stæði yfir. Ýmsir fleiri tóku tii máls við þessa umræðu. M. a. fagn- aði Guðbjartur Ólafsson því að Þórður Björnsson hefði hér gerzt slíkur málsvari sjó- mannastéttarinnar. Því miður væru litlar líkur til að full- trúar kommúnista og Alþýðu- flokksins í bæjarstjórn myndu styðja þessa tiliögu hans um aukinn frádrátt sjómanna, því að á Alþingi hefðu þingmenn þessara flokka fellt allar til- lögur Sjálfstæðismanna um raunhæfan frádrátt sjómönn- um til handa. Þórður Björnsson féllst á það að málinu yrði frestað og var svo gert. Hann þakkaði borgarstjóra fyrir hinar greinargóðu upplýs- ingar. Þessi mynd er af einu málverka frú Kristínar Jónsdóttur, listmál- ara, sem verið hafa til sýnis þessa viku á vegum Listkynningar Morgunblaðsins. Heitir hún „Ferðafólk". Nokkur af málverknnum hafa þegar selzt. Ætli unga fólkið sé hrætt við bólusetningarnálina? Borgarlæknir verður að senda því orðsend- ingu vegna lítillar aðsóknar BORGARLÆKNISEMBÆTTIÐ hefur orðið að snúa sér til blað- anna hér í bænum, til þess að reyna að vekja nokkur þúsund manns af værum svefni. Er hér um að ræða fólk á aldrinum 16—25 ára, sem boðað hefur verið til bólusetningar gegn mænuveiki. — Hefur aðeins lítill hluti þessa fólks látið bólusetja sig. Sumir gizka á að líklega sé fólkið hrætt við nálina í bóluefnissprautunni. UNGLINGAR Á SKIPIN Guðbjartur Ólafsson vakti máls á því að þegar vantaði menn á fiskiskipin, þá væri alltaf óskað eftir vönum sjómönnum. Vegna þessa fengi æskan ekki ■>Tist á skipunum. Áður fyrr voru ung- lingar ráðnir á skip sem hálf- drættingar og var þá ekki ætlazt til að þeir legðu fram eins mikla vinnu og fullorðnir menn. Nú er þetta ekki til og æskan á ekki lengur þann skóla sem nauðsyn- legur er til þess að hún laðist að sjávarútveginum. Þessu taldi Guðbjartur nauðsynlegt að kippa í lag. SKÓLASKIP Einar Thoroddsen tók undir orð Guðbjartar. Hann sagði að það hefði um langt skeið verið hin mestu vandræði á fiskiskipaflot- anum, bæði á togurunum og línu- skipunum að noíast yrði við allt- of mikið af óvönum mönnum. Þetta mætti ekki skilja svo að hann væri að kasta rýrð á sjó- mannastéttina, heldur hefði þetta verið þróunin og stafaði það af því að unglingum væri ekki gefið tækifæri til að hljóta skólun á sjónum. Einar sagði að bezta lausnin á þessu væri að reka skóla skip. Ríkið og aðrir aðiljar ættu að beita sér fyrir því, og væri það eitt grundvallarat- riðið til að breyta þeirri þró- un sem nú ætti sér stað flóít- anum frá sjómeiuiskunni. „Eldslökkingar- lið“ ÞÓRSHÖFN — í ráði er að stofna slökkvilið í Klakksvík. Mun það sennilega verða skipað 12 mönn- um. Á það að heita „Klakks- víkar eldslökkingarlið". 2 íslondsmet í Sundhöllinni Sundmót KR fór fram í Sund- höllinni í gærkvöldi. Þar vonu sett 2 ísl. met. Guðm. Gíslason ÍR setti met í 50 m baksundi karla á 32,7 sek. og bætti sitt fyrra met um 1/10 úr sek. Þá setti Ágústa Þor- steinsdóttir Á met í 50 m bringusundi kvenna á 40,3 sek. Gamla metið átti Þórdís Árnadóttir 40,9. Bæði þessi met eru unglingamet jafn- framt. Við því hafði verið búizt að einmitt fólk á þessum aldri myndi ekki láta á sér standa, er röðin kæmi að því, Eru af þessu hin mestu óþægindi fyrir fólkið, sem vinnur að þessu og í rauninni með öllu óverjandi og beinlíms háskalegt. Út af þessari tregu aðsókn hef- ur skrifstofa borgarlæknis beðið Mbl. fyrir eftirfarandi: Mænusóttarbólusetning á full- orðnu fólki hefur nú staðið yfir um nokkurt skeið. Er ákveðið að gefa fólki upp að 45 ára aldri kost á henni. Það hefur komið í ljós að fólk er mjög áhugalítið fyrir bólusetningunni og hafa þeir aldursflokkar, sem þegar hafa verið boðaðir, þ.e. 16—25 ára, aðeins mætt að litlum hluta. Af þessu tilefni þykir rétt að vekja athygli á eftirfarandi: Nú fer í hönd sá árstimi, sem mænusóttar verður helzt vart, og því nauðsynlegt að leita bólu- setningar sem fyrst. Nokkurn tíma þarf til að ónæmi myndist, og getur því orðið of seint að hefja bólusetningu þegar farald- ur er byrjaður, aiuk þess sem þá —3>kann að verða erfiðara um fram Unga konau skrapp iuu í Heilsuverndarstöð; á leiðinni i búðir. kvæmd slíkrar bólusetningar. Á það má einnig benda að mænu- sótt er allt að því jafntíð meðal fullorðinna sem barna, og eftir- köst oft alvarlegri. Þeim tilmæum er því alva.rlega beint til þeirra, sem vilja notfæra sér bólusetninguna að láta slíkt eigi dragast og koma til bólusetn- ingar á þeim tímum, sem auglýst- ir eru. Ennfremur skal á það minnt, að ef fulls árangurs er vænzt af bólusetningunni, ber að koma til 2. og 3. bólusetningar á tilsettum tíma. Bólusett er í Heilsuverndarstöðinni frá kl. 9— 11 árd. og kl. 4—7 síðdegis alla daga. Utanríkisráð- herra minnist NATO-afmælis STJÓRNARBLÖÐIN gleymdu í gær að minnast á átta ára af- mæli Atlantshafsbandalagsins, en í gærkvöldi talaði Guðmundur f. Guðmundsson, utanríkisráðherra, um afmæli samtakanna. Utanríkisráðherra ræddi um nauðsyn þess fyrir ísland að vera aðili að þessum varnarsam- tökum frjálsra þjóða. Hann kvað hlutleysið hvorki veita fslandi né öðrum þjóðum heims vernd. Þá drap ráðherrann á þá stríðshættu, sem allir viðurkenndu nú að ver- ið hafi í nóvembermánuði síðast- liðnum og komst hann hér m.a. svo að orði: „Friðarhorfur höfðu sjaldan verið verri og alvarlegri. Var þetta ekki aðeins mat okkar ís- lendinga, og annarra Noto-þjóða, heldur kemur þetta einnig reini- lega fram í bréfi sem Búlganin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, sendi Einari Gerhardsen, for- sætisráðherra Norðmanna, fyrir fáum dögum. Þar segir svo orð- rétt: Það er í rauninni engum neitt leyndarmál að í nóvember síðasta árs voru dagar þegar al- varleg stríðshætta ógnaði okkur öllum. Ég hygg að íslendingar yfirleitt séu sammála forsætis- ráðherra Sovétríkjanna um þetta atriði“, sagði utanríkisráðherr- ann. ÞÓRSHÖFN — Færeysir rithöf- undar hafa nýlega stofnða með sér félagssamtök til þess að gæta réttinda sinna og útbreiða fær- eyskar bókmenntir, eins og seg- ir í yfirlýsingu frá hinu nýstofn- aða félagi. Formaður þess er William Heinesen, rithöfundur, — og félagarnir eru 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.