Morgunblaðið - 27.04.1957, Síða 12
12
M ORGUIV BL AÐ1Ð
Laugardaguv 27. apríl 1957.
Vilhjólmur á oð geto stokhið 7,50 m. í long-
stökki og Volbjörn 4,50 m. á stöng
segir Russman þjálfari á kveðjustund
íslandsmeistararnir
töpuðu fyrsta leiknum
UNDANFARNAR 4 vikur hefur
starfað hér þýzkur þjálfari í
frjálsum íþróttum, Eduard Riiss-
mann að nafni. Hann kom hingað
á vegum ÍR og er nú á förum.
Blaðamenn fengu tækifæri til að
spjalla við hann og stjórn ÍR á
dögunum.
Jakob Hafstein form. ÍR kvað
það hafa verið mikið happ að fá
Riissmann hingað til lands, en
Russmann er kennari við íþrótta-
háskólann í Köln og nýtur þar
mikils trausts og hefur þjálfað
suma af beztu íþróttamönnum
Þjóðverja. Koma hans hefur hrint
af stað áhugaöldu, sagði Jakob,
æfingar hafa aldrei verið eins vel
sóttar og íþróttamenn og þjálfar-
ar hafa lært margt nýtt og áhrifa
Riissmanns mun hér lengi gæta,
þó dvöl hans hafi verið stutt.
Jakob gat þess að fyrir tilstilli
Riissmans yrði nokkrum
iR-ingum boðið til keppni í
Köln í haust. Hann mun og
koma á skiptiheimsóknum
milli körfuknattleiksmanna ÍR
og körfuknattleiksliðs í Köln.
Fyrir hans tilstilli eb ákveðið
að einn nemenda hans, sprett-
hlauparinn Manfred Germar,
sem varð 4. í 100 m hlaupi
Melboumeleikjanna komi
hingað til keppni á frjáls-
íþróttamóti ÍR, sem haldið
verður um 20. júní, en þar
verða einnig að öllu forfalla-
lausu norski spjótkastarinn
Egill Daníelsson og rússneski
þrístökkvarinn Kreer, sem
varð næstur á eftir Vilhjálmi
Einarssyni í Melbourne.
framfarir spretthlaupara, kastara
og stökkvara, þá er ég illa svik-
inn.
Vilhjálmur ætti hiklaust að
geta stokkið 7.50 m í lang-
stökki og Valbjörn yfir 4.50 m
í stöng. Mér finnst Skúli Thor-
arensen líklegur til stórafreka
í kúlu (16—17 m). Þorsteinn
Löwe er öruggastur kringlu-
kastara og hefur að undan-
förnu áunnið sér aukið öryggi
í kastinu. Og engum þarf að
Stúdenfur töpnðn
leiknum 44:40
FYRSTI isl. körfuknattleiks-
liðið er fer utan tll keppni er
nú í Svíþjóð. Er það lið stúd-
enta en með í förinni eru tveir
tR-ingar þeir Helgi Jónsson
og Helgi Jóhannsson.
Á fimmtudag léku þeir
sinn fyrsta leik og mættu þá
liði Chalmers háskólans. —
Svíamir sigruðu 44:40.
Völlurinn var nokkru mjórri
en heima er. Helgi Jónsson
skoraði 17 stig og Helgi Jó-
hannsson 14.
Piltarnir biðja fyrir kveðj-
ur heim. Öllum líður vel.
— Guðm.
koma á óvart þó 3 menn færu
yfir 60 m í spjóti í sumar.
Rússmann lét í ljós ánægju yfir
samstarfi við ýmsa þjálfara hér,
og þjálfari ÍR Guðmundur Þór-
arinsson sagði að koma Rúss-
manns hefði ekki síður verið lær-
dómsrík fyrir þjálfara en íþrótta-
mennina. Koma hans var mér nýr
skóli, sagði Guðmundur.
Jakob Hafstein kvað það von
tR-inga að sem flestir hefðu haft
gagn af komu Rússmanns. Öðr-
um félögum og FRÍ var í upphafi
boðið að hafa not af komu hans.
Margir komu og létu vel af.
Koma hans varð því gagnleg ísl.
frjálsíþróttaum.
KNATTSPYRNA sumarsins
hófst á sumardaginn fyrsta með
leik milli Vals og Víkings í
Reykjavíkurmótinu. — Fyrsta
mark á þessu sumri var sjálfs-
mark. Ámi Njálsson í Val ætlaði
að gefa til markvarðar Vals, en
knötturinn hafnaði í netinu og
var þá 1 minúta af leik.
Leiknum lavk með þrem mörk-
um gegn tveimur Víking i hag.
Leikurinn gefur ekki góðar von
ir um miklar framfarir. Veður-
hæð mikil skemmdi mikið fyrir,
en margir okkar góðu manna
voru verri nú en oft áður í byrj-
un árs. Má þar einkum til nefna
Valsvörnina, Áma, Halldór Hall-
dórsson og Magnús Snæbjörns-
son. Margt gerðu þeir illa, en fátt
fallega. Sóknarleikmenn liðsins
skorti allt það sem er afgerandi.
Smásamleikskaflar sáust, en heil
brú var ekki í mörgu. Víkingur
vann Islandsmeistarana, Val, í
þessum fyrsta leik. Kanski eru
þau úrslit fyrirboði slæmur. Aðr-
ir segja „fall er fararheill", en
margt þarf að breytast og það
helzt á skömmum tíma, ef vel á að
fara.
Víkingar virtust baráttuglaðir
en þó er okkur sagt að ekki só
mikil æfing að baki. — Pétur
Bjamason var sterkasti maður
liðsins, klettur í vörn.
Guunar gaf fyrir og Matthías Hjartarson skorar laglegt mark.
Rússmann kvaðst eiga ljúfar
og skemmtilegar minningar um
dvöl sína hér og þakkaði ÍR höfð-
inglegar móttökur. Hann kvaðst
lítið hafa þekkt til ísl. íþrótta-
manna er hann réðist hingað fyr-
ir tilstilli eins nemenda sinna,
Valdimars Örnólfssonar. Þó hefði
hann sem aðrir þekkt nafn Vilhj.
Einarssonar og af því vitað að til
voru hér góðir íþróttamenn.
— En gleði mín var mikil er
ég tók til starfa hér, sagði Rúss-
mann og sá þennan stóra hóp
íþróttamanna, kröftuga, stóra og
glæsilega. I þessum hópi eru svo
margir líklegir til stórafreka, að
ísland þarf á sviði frjálsíþrótta
engu að kvíða í framtíðinni, ef
æft er. ísl. frjálsíþróttamenn eiga
við mikla erfiðleika að stríða —
meiri en mig hafði órað fyrir.
Höfuðóvinurinn er hin umhleyp-
ingasama veðrátta og ég undrast,
af hve mikilli elju þeir mæta
þeim erfiðleikum. Húsnæðisvand-
ræðin eru ógurleg og nauðsyn úr
að bæta. Það er stórfurðulegt og
jafnvel óskiljanlegt hvem árang-
ur og áhuga t. d. stangarstökkv-
aramir hafa sýnt í litla ÍR-hús-
inu. Þá sögu mun ég segja í
Þýzkalandi, þar sem menn reyna
ekki að stökkva inni nema á löng-
um brautum og í gryfjur. Það er
að vísu betra og hvað gætu ekki
ísl. piltarnir við beztu aðstæður?
Það þarf að skapa þeim skilyrði
og árangurinn verður á heims-
mælikvarða.
SKÓLAÍÞRÓTTIR
Rússmann kvaðst mjög hrifinn
af isl. skólaíþróttum eins og hann
kynntist þeim á sýningum síðustu
daga, þó frjálsar íþróttir verði
þar frekar útundan en annað.
Skólarnir skapa áhuga og skiln
ing á gildi íþrótta, en mér virðist
vanta að tekið sé við æskunni,
er hún hættir í skóla; það þarf
að fá hana til að halda áfram við
íþróttirnar.
Er talið barst að einstökum ísl.
íþróttamönnum sagði Rússmann
m. a.:
Ég kynntist fáum millivega-
lengdahlaupurum, en ef ekki
verður um að ræða stórkostlegar
20. skíðamót íslands:
Reykvíkingar sigursœlir
I Alpagreinum
Það er laugardagur 20. apríl.
Veður er fagurt, er á daginn líð-
ur, þótt um morguninn hafi ekki
litið sem bezt út. Keppni hefst í
bruni karla hátt uppi undir klett-
um við Snæhóla- Brautin er um
2,5 km á lengd og með um 500 m
falli. Toni Spiess hefir lagt hana
daginn áður eða svo, og það á
harða hjarni og við lagningu
brautarinnar gert ráð fyrir að
svo yrði á keppnisdegi. Nú er
hins vegar viðast nýfallinn snjór
í brautinni og reynist því eink-
um síðari hluti hennar of rennsl-
islítill. Menn skauta og reyna að
berjast áfram með stöfunum eins
og þeir mögulega geta. Austur-
ríkismaðurinn sjálfur skautar
meira að segja alla leið, líka
brattasta hluta brautarinnar.
Reykvíkingarnir raða sér í
fimm fyrstu sætin. Annars urðu
úrslit í bruninu sem hér segir:
1. Eysteinn Þórðarson, R 2.30,1
2. Úlfar Skæringsson R .. 2.33,4
3. Hilmar Steingrímsson R 2.38,2
4. Ásgeir Eyjólfsson R .. 2.38,8
5. Einar V. Kristjánsson R 2.39,6
BRUN KVENNA
Brun kvenna hófst strax að
loknu karlabruninu. Um braut
kvennanna er sömu sögu að segja
og karlabrautina, enda sú sama,
nema hvað efsta hlutanum er
sleppt. Brautin var nú 1,5 km. að
lengd og með um 300 m falli.
Jakobína Jakobsdóttir sigrar
að þessu sinni og Marta B. Guð-
mundsdóttir verður nú að láta
sér nægja 3. sætið, því Eyrný
Sæmundsdóttir úr Reykjavík
skýtur sér fram fyrir hana. Úr-
slit urðu þessi:
1. Jakobína Jakobsdóttir R 1.50,7
2. Eirný Sæmundsdóttir R 2.04,7
3. Marta B. Guðmundsd. f 2.06,8
4. Kristín Þorgeirsdóttir S 2.14,7
5. Karolína Guðmundsd. R 2.17,5
NORRÆN TVKEPPNI
TOGARASJÓMABUR SIGRAR
Laugardagurinn endar með
stökki í norrænni tvíkeppni. Sú
keppni er mjög skemmtileg. í 15
km göngunni hafði Gunnar Pét-
ursson frá ísafirði hlotið flest
stig tvíkeppnismannanna 239,2
stig, en Sveinn Sveinsson frá
Siglufirði 228,6 stig. Haraldur
Pálsson Reykjavík 214,4 stig og
Sveinn Jakobsson Keflavík mun
lægstan stigafjölda eða 155,1 stig.
Önnur grein
Nú fer svo í stökkinu að þetta
snýst nánast við. Sveinn Jakobs-
son sýnir mesta stökkhæfni
þeirra félaga en Gunnar minnsta.
Og þegar öll kurl koma til graf-
ar er það Sveinn Sveinsson, sem
ber sigur af hólmi í tvíkeppninni
og nægir honum til sigurs að
vera annar í báðum greinum. Mér
er sögð sú skemmtilega frásögn
um Svein, að hann sé fyrir rúmri
viku síðan stiginn á land af tog-
ara, en sjóinn hefir hann stundað
að mestu í vetur. Þannig er það
með marga okkar beztu skíða-
manna. Þeir verða að vinna fyrir
brauði sínu og hafa oft lítinn
tíma til æfinga. Sveinn keppir
nú í flestum greinum mótsins og
er allstaðar vel liðtækur. Úrslit
í tvíkeppninni urðu þessi í flokk
20 ára og eldri:
1. Sveinn Sveinnsson S 436,6 stig
2. Haraldur Pálsson R. 420,0 stig
3. Gunnar Pétursson f 417,1 stig
4. Sveinn Jakobsson K 402,1 stig
f flokki 17—19 ára sigraði
Matthías Gestsson Ak. 449,8 stig
f flokki 15—16 ára sigraði
Bogi Níelsson, Sigluf. 449,2 stig
2. Birgir Guðlaugss., S 429,0 stig
3. Jón Sæmss., Ólafsf. 412,3 stig
SPENNANDI SVIGKEPPNI
Á páskadag brást veðrið al-
gerlega. Þó voru þann dag háðar
mjög skemmtilegar keppnir.
Svigi karla var beðið með nokk-
urri eftirvæntingu, en þó munu
flestir hafa gert ráð fyrir að
Reykvikingarnir mimdu verða
þar í fyrstu sætum, ef miðað var
við bæði stórsvig og brun. f
vonskuhríðinni uppi í Fossgili
lagði Toni Spiess mjög skemmti-
lega svigbraut. Var hún eins og
flokkasvigbrautin mjög flókin og
með gildrum. Hann skaut auka-
portum upp að hárnálum svo
menn héldu að þar væri komin
einhver óskapleg portaflækja,
sem þó reyndist ekki annað en
einföld hárnál. Ruglaði þetta
suma og tafði fyrir þeim. Braut-
in var sem sagt mjög skemmtileg
og vel lögð. Hófst nú keppnin
og var Austurríkismaðurinn með-
al keppenda. Hann fékk betri
brautartíma en Eysteinn Þórðar-
son 64.9 sek. Eysteinn hafði 66,6.
Var nú fyrsta „grúppa" frá, en
í henni eru 13 beztu svigmenn
landsins. Mega þeir velja um
13 fyrstu rásnúmerin til þess að
hafa kost á brautinni áður en hún
er teljandi skemmd orðin. En nr.
22 kom unglingur einn frá Siglu-
firði, aðeins annarar „grúppu**
maður. Hann gerði sér hægt um
hönd og fékk langbezta brautar-
tíma íslendinganna í fyrri ferð
og meira að segja ögn betri tíma
en Austurríkismaðurinn. Jóhann
hlaut 64,8 sek. Setti nú margan
keppandann hljóðan en áhorfend-
ur sendu frá sér mikið gleðihróp
utan úr hríðinni.
F.YSTEINI HÆTT
Allir sáu nú að Eysteini var
hætt með meistaratitilinn. Ey-
steinn átti þvi öllu að tapa, en
Jóhann allt að vinna. Eysteinn
varð líka að hugsa um Alpa-þrí-
keppnina. Hann átti mikla mögu-
leika á sigri þar. Og Eysteinn tók
þann kostinn að keyra örugglega,
hætta sér ekki um of. Jóhann tók
hinn kostinn að keyra eins og
vitlaus maður, enda var það hans
eina von. Hann var kominn svo
til neðst í brautina á mettíma
og benti allt til þess að hann
ætlaði að fá mun betri tíma í
seinni ferðinni. Austurríkismað-
urinn hafði þó skotið sér niður
í 63,4 sek. En þá skeði slysið hjá
Jóhanni. Hann þoldi ekki hrað-
ann og fipaðist. Menn héldu
augnablik að hann ætlaði að
bjarga sér en þá datt hann. Hófst
nú æðisgengið rass- og handa-
hlaup gegnum nokkur hlið og
endirinn varð sá að Jóhann hafði
sig á lappir aftur án þess að stór-
tjón hlytist af, en þetta kostaðt
hann sigurinn. Úrslit:
1. Eysteinn Þórðarson R
66,6 63,9 130, 3
2. Jóhann Vilbergsson S
64.8 67,5 132,3
3. Kristinn Benediktsson 1
68.9 66,6 135,3
4. Hjálmar Stefánsson A
71,0 65,3 136,3
5. Ásgeir Eyjólfsson R
69,3 67,1 136,4
6. Stefán Kristjánsson R
70,1 67,0 137,1
13 luku ekki keppni og sjá
menn á því að brautin hefir ekki
verið neitt lamb að leika sér við.