Morgunblaðið - 27.04.1957, Page 13
Laugardagur 27. apríl 1957.
MORGUNBLAÐIÐ
1S
Kristján Jóhannsson fyrstur í mark
I) M S E vann sveitakeppnina
42 VÍÐAVANGSHLAUP XR fór fram á sumardaginn fyrsta. I>átt-
takan í hlaupinu nú var minni en oftast áður. 7 menn byrjuðu, en
6 luku hlaupinu. Sigurvegari varð Kristján Jóhannsson ÍR, sem
rann skeiðið á 9 mín. 49,4 sek.
KRogFH mætast ósigruð
i úrslitaleik um bikarinn
FH vann ÍR og KR Val á sunnudag
BARATTAN um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik verður
í ár milli FH Og KR. Slagurinn milli þeirra verður á sunnu-
dagskvöldið, en þá lýkur þessu umfangsmikla Islandsmóti, sem
Kristján hafði forystuna er
hlaupið var út ím: Hljómskála-
garðinum, en hópurinn þunni var
þó þéttur. Sunnan stormur var
og höfðu kepepndur hann í fangið
fyrri hluta leiðarinnar. Var það
erfið raun. Stefán Arnason frá
Eyjafirði leiddi er komið var inn
í garðinn aftur og 4—500 m voru
eftir af hlaupaleiðinni, sem var
um 3 km.
30 þátttukendur
í drengjahlapinu
á snnudaginn
DRENGJAHLAUP Armanns fer
fram að venju á sunnudagsmorg-
uninn. Hlaupið hefst kl. H) ár-
uegis við Iðnskólann og síðan er
hlaupið um Vonarstræti, Tjarnar-
götu, suður á holt og endað í
Hljómskálagarðinum. — Hlaupa-
leiðin er 2—2,5 km.
Þátttakendur eru 30 skráðir:
10 frá Keflavík, 7 frá Ármanni,
C frá KR, 5 frá IR, 1 frá UMSE
og 1 frá UMF Þröstur.
Keppendur og starfsmenn eru
beðnir að mæta kL 9,30 í Mið-
bæj arskólanum.
Eyfirðingarnir 3 unnu keppni
3 manna sveita, hlutu 10 stig.
ÍR-sveitin hlaut 11 stig og aðeins
þessir 6 menn luku hlaupinu. —
Hafnfirðingurinn hætti og fleiri
mættu ekki til leiks. Er það ó-
skiljómlegt tómlæti fyrir hlaup-
inu, að vel æfðir menn eins og
Kristleifur Guðbjörnsson skuli
vera í örðum áhorfenda.
Tími Kristjáns var 9:49,4 mín.
2 . Stefán Árnason UMSE 9:53,8.
3. Jón Gíslason UMSE 9:54,0. 4.
Sig. Guðnas. iR 10:14,0. 5. Sveinn
Jónsson UMSE. 6. Haraldur Páls-
son ÍR.
hófst 29. jan.
Bæði KR og FH léku í fyrra-
kvöld og bæði liðin sigruðu í
leikjum sínum. FH vann ÍR með
17:15 og KR vann Val með 30:17.
Óvitarnir litlu, sem notaðir eru
til að færa markatöluna fengu
því ráðið að bókuð úrslit eru
30:18, en fullvíst er, að Valsmenn
skoruðu aðeins 17 mörk. Svona
tilgangslítil getur keppni 14
manna og starf þriggja dómenda
verið, þegar óvita börn fá svo að
ráða markatölunni!!!
Leikur FH og ÍR var bragð-
daufari en búast mátti við. Var
það vegna deyfðar í ÍR-liðinu.
Það var eins og þeir kæmu inn
á völlinn í þeim tilgangi einum
að tapa. Vörn þeirra var iðulega
illa opin og 5—6 sinnum fengu
FH-menn að bruna frá eigin
markteig eftir endilöngum vell-
inum og skora. Voru ÍR-ingar í
þessum efnum sofandi mjög.
Sóknarmenn gerðu fáar tilraunir
til að dreifa vörn FH. Það að ekki
skildu nema 2 mörk í leikslok,
þrátt fyrir leik ÍR-inga, sýnir að
baráttan gat verið harðari. FH-
menn voru vel að sigri komnir.
Þó taugaóstyrks gætti hjá þeim
voru þeir fljótari og harðari og
umfram allt höfðu þeir meiri sig-
urvilja.
Leikur KR og Vals gefur ekki
tilefni til umsagnar. Yfirburðir
KR-inga voru miklir og marka-
munur frá byrjun svo mikill að
bæði lið urðu kærulaus. En ljóst
er að KR-ingar eru vel imdir það
búnir að mæta Islandsmeisturun-
um í baráttu um það hvort 1*-
landsbikarinn verður áfram f
Hafnarfirði eða sigurkeðja FH
verður brotin og bikarinn fluttur
til Reykjavíkur.
★
f kvöld verða nokkrir hörktt-
spennandi leikir að Hálogalandi,
m.a. úrslitaleikur í 2. fl. karla en
þar mætast Fram og ÍR en bæði
liðin eru mjög sterk,og er ómögu
legt að spá um úrslit.
Stefán hafði forystuna inn í garðinn, en Kristján og Jón fylgdu fast.
Ljósm. Mbl. Ol. K. M.
TAIVNLÆKIMASTOFA
Hefi opnað tannlæknastofu á Laugaveg 74.
Sími 2861. — Heimasími 5887.
Rósar Eggertsson, tannlæknir.
J
LESBÓK BARNANNA
Strúturinn R A SIU li S
Nei, sjáðu nú bara,
aagði annar litli negrinn
og benti upp í loftið. Þar
•áu þeir skínandi faliega
flugvcl svifa hátt uppi i
geimnum.
Svona flugvél þurftum
við að búa okkur til, sagði
hinn negrinn. Þeir flýttu
sér að ná í leikbróður
sinn, strútinn Rasmus.
Nú ætluðu þeir að breyta
honum í flugvél.
Þeir bundu á hann
stóra vængi og settu hjól
undir löngu lappirnar á
honum. Þá fannst þeim
hann vera orðinn alveg
eins og regluleg flugvéL
Og litlu negrarnir
skemmtu sér konunglega.
Frímerkjaþáttur
Frímerkjasiifnun hefst.
Frímerlkjasöfnun (eða
filateli, eins og hún heitir
á fínu máli), hófst sem
tómstundaiðja næstum
um leið og frímerkin voru
búin til.
Strax árið 1841 birtist
auglýsing í The Times,
frá konu, sem óskaði eft-
ii' að kaupa eintök af
Penny Black; hún ætlaði
að nota þau til að líma á
veggfóðrið i búningsher-
berginu sínu.
Frímerkjaverzlun var
eett á stofn i London 1856.
Fyrsti frímerkjaverðlist-
inn kom ut í Frakklandi
1861, en Englendingar
stofnuðu fyrsta frímerkja
tímaritið 1862 og fyrsta
frímerkjaklúbbinn 1869.
Á skömmum tíma hafði
frímerkjasöfnun hafist
sem skemmtileg tóm-
stundariðja manna af öll-
um stéttum og þjóðernum
i öllum löndum heims.
ISl
Rdðningar
úr síðasta blaði
Getraunirnar:
1. Hún slær.
2. Af því að það er of
langt fyrir þá að ganga.
3. Þeir eru blautir.
Kynjadýrið er með úlfs-
haus með hrútshernum,
framfætur af Zebradýri
og fíl, kroppurinn af leó-
parda, afturfætur af hana
og kú, og loks hefur það
hesttagl.
Gáturnar:
1. Skólataflan; 2. snjó-
élið; 3. hanakambur; 4.
tftuprjónninn; 5. tófan;
6. klukkan.
Skrítlur
GAMALSDAGS TÆR
Maður nokkur kom inn
i skóverzlun og ætlaði að
kaupa sér skó. Afgreiðslu
stúlkan sýndi honum
margar gerðir, en þeir
voru allir með mjórri tá.
Get ég ekki fengið
aðra, sem eru breiðari yf-
ir tána, sagði maðurinn.
Því miður, sagði af-
greiðslustúlkan, þetta er
nú nýjasta tízka.
Það má vera, svaraði
maðurinn, en tærnar á
mér eru nú eftir tízkunni
frá 1893.
— Pabbi, pabbi, Jóla-
sveinninn er að koma.
— Vitleysa, það er
mamma þín, sem hefur
fengið sér nýjan hatt.
ibfnmamm
12
1. ár|.
Kitstfóri: Kristján J. Gunnarsson -jr 27. apríl 1957
Svanir fljúga hratt til heiða
huga minn til fjalla seiða.
Vill mér nokkur götu greiða?
Glóir sól um höf og iönd.
Viltu ekki, löngun, leiða
litla barnið þér við hönd?
í vetur gat ég sagt með sannk
Svart er yfir þessu ranni.
Sérhvert gleðibros í banni,
blasir næturauðnin við.
Drottinn, þá er döprum manni
dýrsta gjöfin sólskiniðl
Nú finn ég vorsins heiði í hjarta.
Horfin, dáin nóttin svarta.
Ótal drauma blíða, bjarta
barstu, vorsól, inn til mín.
Það er engin þörf að kvarta,
þegar blessuð sólin skín.
Nú er hafinn annar óður.
Angar lífsins Berurjóður.
Innra hjá mér æskugróður.
Óði mínum Iétt um spor.
Ég þakka af hjarta,
guð minn góður,
gjafir þínar, sól og v«r.
Hillir uppi öldufalda.
Austurleiðir vil ég halda.
Seztu, æskuvon, til valda,
vorsins bláa himni lík.
Ég á öllum gott að gjalda,
gleði mín er djúp og rík.
Stefán frá HvitadaL