Morgunblaðið - 04.05.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.05.1957, Blaðsíða 1
16 siður. og Lesbók 44. árgangur 98. tbl. — Laugardagur 4. maí 1957 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sjukov á Rauða forginu 1. maí: Rússar álíta það skyldu sína að auka stöðugt baráttumátt herja sinna Moskvu, 3. maí — Frá Reuter. HÁTÍÐISDAGUR verkalýðsins, 1. maí, var hátíðlegur haldinn í höfuðborg Sovétríkjanna með geysilegum hersýningum í lofti og á láði. 178 sprenguþotur og orrustuþotur sveimuðu yfir Rauða torginu, hersveitir og skriðdrekadeildir fóru hjá pöllum valdamannanna, en erlendum ljósmyndurum var stranglega bann- að að stunda iðju sína. Tvennt vakti athygli erlendra gesta: Risamyndirnar af Stalin, sem prýtt hafa veggi Kreml 1. maí, voru mun „holdgrennri" en áður, og er það talið stafa frá þeirri skipun Sjukovs landavarnaráðherra, að allir foringjar í hernum verði að stunda leikfimi daglega. Aðalræðu dagsins hélt Sjukov sjálfur að þessu sinni. og var hann hvassyrtur í garð Vesturveldanna. Sagði hann m. a., að stefna Bandaríkjanna færi „hættuna á kjarnorkustyrjöld nær“. Hann kvað rússnesku þjóð- ina geta treyst herstyrk sínum fullkomulega. Rússneskir her- menn væru bæði undir góðum aga og gæddir miklu baráttu- þreki auk þess sem þeir væru búnir öllum þeim nýtízku-vopn- um, sem nauðsynleg væru til „að ryðja andstæðingnum úr vegi“. SKYLDA RÚSSA Sjukov marskálkur sagði enn- fremur: „Ákvörðun bandarísku stjórnarinnar um að hafa her- sveitir með kjarnorkuvopn í öðr- um löndum, og mótþrói hennar við að samþykkja tillögu okkar um bann gegn kjarnorkuvopn- um og við að eyðileggja kjarn- orkuvopnin, færir hættuna á kjarnorkustyrjöld nær“. „Sovétþjóðirnar álíta það skyldu sína að auka stöðugt bar- áttumátt herja sinna sem svar við árásarfyrirætlunum heimsvalda- sinnanna". HEIMSVALDASINNAR EIGA SÖKINA! „Heimsvaldasinnar reyna með öllum ráðum að koma af stað sundrung í búðum sósíalista og veikja afl þeirra. Með því að reka stjórnmálastefnu, sem mið- ar að því að koma aftur á gamla nýlenduskipulaginu, gera þeir allt sem þeir geta til að einangra Arabalöndin hvert frá öðru og brjóta á bak aftur baráttu þeirra fyrir sjálfstæði“. 4 TfMA LÖNG GANGA Sjukov marskálkur hélt því blákalt fram, að Sovétríkin væru andvíg stefnu kalda stríðsins og hernaðarblakkanna. Leiðtogamir í Kreml með Krúsjeff og Sjukov í broddi fylkingar voru heppnir með veðrið. Sólin skein yfir Rauða torgið, meðan Sjukov þrumaði, stríðsvélarnar drundu og herfylkin ásamt með íþrótta- fólki og verkamönnum gengu hjá broddunum í heila fjóra tíma. Fundi utanríkisráðherra NATO lokið Sameining Þýzkn- londs höfuðnnuðsyn Bonn, 3. maí — Frá Reuter. FYRSTA utanríkisráðherra-fundi Atlantshafsríkjanna, sem hald- inn hefur verið í Þýzkalandi, lauk í Bonn í kvöld eftir 2 daga setu. Aðalmál fundarins var sameining Þýzkalands, og lögðust allir ræðumenn á eina sveif um það, að sundrung landsins væri óeðlileg og stórhættuleg heimsfriðinum. Myndin er tekin á blaðamannafundi í danska utanríkisráðuneytinu þegar H. C. Hansen, forsætis- og utaríkisráðherra Dana, les upp bréfið, sem hann sendi til Búlganins, forsætisráðherra Rússa, fyrir nokkrum dögum. — Bréfið birtist í heild í blaðinu í gær. Vesturþýzki utanríkisráðherr- ann, von Brentano, sagði, að sameining Þýzkalands væri mik- ið hagsmunamál Atlantshafs- bandalagsins, þar eð áframhald- andi skipting landsins væri bein ógnun við friðinn í Evrópu. Dul- les utanríkisráðherra Bandaríkj- anna kvað Rússa eiga sökina á sundruðu Þýzkalandi og skoraði á þá að endurskoða afstöðu sína, áður en þeir hefðu framið „glæp sem hefur ófyrirsjáanlegar af- leiðingar“. Koma yrði í veg fyr- ir, að ranglætinu væri haldið áfram þangað til það yrði óþol- andi og leiddi af sér blóðbað. Anna Kethly heiðruð Strassborg, 3. maí — Frá Reuter. DÁÐGJAFARÞING Evrópuráðsins veitti í dag við hátíð- lega athöfn frú Önnu Kethly sérstök heiðursverðlaun ráðsins. Anna Kethly var ráðherra í stjórn Nagys í Ung- verjalandi fyrstu daga byltingarinnar og hefur verið leið- togi ungverskra jafnaðarmanna um árabil. Var hún einnig formaður byltingarráðsins í Ungverjalandi. Fulltrúar 16 Evrópuþjóða risu úr sætum og hylltu frúna með lófataki, þegar hún gekk inn í salinn klædd sorgarbúningi. Forseti þingsins, Dehousse frá Belgíu, rétti henni hinn táknræna heiðurspening með korti af Evrópu umkringda stjörnum, en það merki er á fána Evrópuráðsins. Anna Kethly hlaut heiðurslaunin fyrir baráttu sína í þágu lýðræðis í landi sínu. Jafnframt var ungverska þjóðin lofuð fyrir frammistöðu sína; hún hefði sett öðrum þjóðum fordæmi um það, hvernig berjast skyldi fyrir frelsi og fullveldi. Frú Kethly hélt ræðu við þetta tækifæri og sagði, að Ungverjar mundu sigra að lokum í baráttu sinni. Þjóðir annarra Austur-Evrópuríkja berðust einnig fyrir frelsi sínu. Sameiginlega mundu þessar þjóðir ná markinu sem þær keppa að, þ. •. að komast í samfélag frjálsra þjóða. Allt friðarhjal Rússa væri inn- antómt á meðan þeir héldu Þýzkalandi sundruðu. í sama streng og Dulles tóku Martino frá Ítalíu, Averoff frá Grikklandi, Pineau frá Frakk- Framh. á bls. 2 Fundabann Beirut, 3. maí. SHUKRI EL KUWATLY, forseti Sýrlands, bannaði í dag allar sam komur eða annan mannsöfnuð á götum úti á morgun í 4 borgum, þar sem kosnir verða þingmenn í stað þeirra fjögurra, sem í ferbúar s. 1. voru dæmdir í fang- elsi á þeim forsendum, að þeir væru að reyna að steypa stjórn- inni. Ein borganna er Damaskus. Úrslitin eru talin tvísýn og ættu þau að gefa einhverja hugmynd um afstöðu Sýrlendinga til vinstri stefnu Kuwatlys. Fagerholm situr líklega Helsinki, 3. maí KEKKONEN forseti Finnlands hefur farið þess á leit við Fagerholm forsætisráðherra, að hann taki aftur lausnar- beiðni sína. Kekkonen ræddi við hina nýju stjórn Jafnað- armannaflokksins, og kvaðst hún mundu styðja Fagerholm. Hann hafði sent forsetanum lausnarbeiðni sína, þegar breyt ingar urðu á stjórn Jafnaðar- mannaflokksins, sem túlka mátti sem vantraust á Fager- holm. Við austanvert Miðjarðarhaf 3. maí. JÓRDANÍA Stjórnin í Jórdaníu leysti í gær og í fyrradag upp öll verkalýðs- og vinnuveitendasamtök í land- inu. Ákvörðunin um þetta var tekin sama dag og föstu-mánuð- inum Ramadan lauk, og gekk Hussein konungur þá til bæna- hússins umkringdur öflugum líf- verði. Afi Husseins, Abdullah konungur, var myrtur í bæna- húsi í Jerúsalem árið 1951. Dag- ana fyrir endanlegt uppgjör Husseins við Nabulsi var torgið fyrir framan bænahúsið, sem hann heimsótti í fyrradag, helzti samkomustaður kommúnista og annarra vinstri afla, sem studdu Suleiman Nabulsi. LÍBANON f Beirut, höfuðborg Líban- ons, ganga þær sögur, að stjórnin þar muni leita hóf- anna hjá Hussein konungi um það hvort hann sé fús að eiga hlut að ráðstefnu með Sýrlend ingum og Egyptum um efl- ingu Arabaríkjanna og betri samvinnu. Sendiherra Sýr- lands í Amman fór til Dama- skus fyrir nokkrum dögum og kom til Amman í dag með persónulegt bréf frá Kuwatly forseta Sýrlands til Husseins konungs. Hinni sameiginlegu yfirlýsingu Husseins og Sauds konungs í Saudi-Arabíu eftir fund þeirra um daginn var fagnað í Kaíró, þar sem hún gaf til kynna að konungarnir tveir mundu eftir sem áður halda fast við þá stefnu Araba ríkjanna, sem ákveðin var á fundi hinna fjögurra Araba- leiðtoga í febrúar s. 1. Er talið að þessi yfirlýsing muni draga lítið eitt úr viðsjánum með Jórdaníu annars vegar og Sýrlandi og Egyptalandi hlns vegar. Formælandi brezku stjórnar- innar í lávarðadeildinni. Home lávarður, sagði í ræðu í fyrra- dag, að Sovétríkin hefðu að nýju byrjað vopnaflutninga til Sýr- lands í desember s. 1. og haldið þeim áfram síðan. Mánuðum saman hafi þau einnig sent ráð- gjafa og tæknilega sérfræðinga til landsins til að uppfræða sýr- lenzka herinn. Hann nefndi ekki, hvort sýrlenzku hersveitirnar í Jórdaníu fengju einnig rússnesk- ar vopnasendingar. Það er haft eftir sæmilegum heimildum í Washington, að Sýr- Iendingar muni kalla heim heri sína frá Jórdaníu innan viku. Mundi það treysta Hussein kon- ung i sessi og auka orðstír hans í nágrannalöndunum. Banda- rískir sérfræðingar þykjast sjá þess merki, að Rússar séu orðn- ir órólegir vegna hernaðarað- stoðar sinnar til Egypta og Sýr- lendinga, þar sem báðar þessar þjóðir kynnu að ganga lengra en Rússar kæra sig um í kröfum sínum og stríðshótunum. Ef sýr- lenzkar hersveitir verða kallað- ar heim frá Jórdaníu mætti túlka það á þá lund, að Rússar muni ekki vilja styðja Sýrlendinga í endanlegu uppgjöri við Jórdaníu. Sýrland, Saudi-Arabía og írak sendu í fyrrahaust hersveitir inn í Jórdaníu til að standa vörð um landið gegn væntanlegri árás Israelsmanna, þegar þeir réðust á Egypta. Síðar voru hersveitir fraks kallaðar heim. Milli 1500 og 3000 sýrlenzkir hermenn eru enn í Jórdaníu. Þegar ástandið var alvarlegast um daginn, átti Hussein konungur að hafa gefið hersveitunum 48 tíma til að hafa sig á brott, en þessum orðrómi var síðar neitað. Álitið er, að Sýrlendingarnir hverfi frá Jórdaníu m. a. af þeim ástæðum, að Hussein hefur gert það lýðum Ijóst, að hann vill enga erlenda íhlutun í málefni landsins. Allt bendir til þess, að hann álíti Egvpta og Sýrlendinga hafa reynt að steypa sér af stóli með aðstoð hins „alþjóðlega kommúnisma".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.