Morgunblaðið - 05.05.1957, Side 6

Morgunblaðið - 05.05.1957, Side 6
B MORCVNBT. 4Ð1Ð Sunnudagur 5. maí 1957 Anægjan og ávöxtur hennar Ný bók eftir norskan höfund, Agnur Mykle, vekur deilur í Noregi Agnar Myhle rithöfundur. MIKIL TÍÐINDI hafa verið að gerast í bókmenntaheiminum norska, en einna mesta athygli hafa vakið mál á hendur tveim þekktum höfundum, þeim Sigurd Hoel og Agnar Mykle. í ákær- unni gegn Hoel, sem er einn þekktasti og vinsælasti rithöfund ur Noregs, er sagt, að hann hafi höggvið of nærri opinberum em- bættismanni í síðustu bók sinni, en Mykle er ásakaður um klám- ritun. Hefir síðasta bók hans, „Sangen om den röde Rubin“ verið gerð upptæk í Noregi. Mykle er álitinn ágætt skáld, sem tekur sérhvert viðfangsefni sitt föstum tökum. Áður en hið opinbera höfðaði mál gegn hon- um, hafði bók hans selzt í 20 þús- und eintökum, en nú er ekki hægt að fá haSa keypta í bóka- verzlunum í Noregi, menn geta aðeins fengið hana lánaða hjá kunningjum. Bókin hefir verið þýdd á dönsku og verður gefin út í Danmörku innan skamms. — Fyrir skömmu var Mykle á ferða- lagi í Danmörku og átti eitt Kaup mannahafnarblaðanna viðtal við hann. Segir blaðamaðurinn, að hann líti ekki út fyrir að vera meira en 25 ára gamall en sann- leikurinn er sá, að hann er yfir fertugt. Um síðustu bók sína, sem er þrungin af ástalýsingum, vill hann sem minnst tala, á meðan rétturinn fjállar um efni hennar, en hann er aftur á móti fús til að ræða um hugmyndir þær um heilbrigði og sannleika, sem hann byggir frásagnir sínar á. Danski blaðamaðurinn spurði Mykle: — Hugtakið frelsi er eitt af höfuðviðfangsefnum yðar . . . — Ég lenti í hálfóhugnanlegu ævintýri fyrir nokkrum dögum, svaraði skáldið. Ég sat í veit- ingastofu á Nytorv og þar blasti við mér framhlið hæstaréttar. Fyrir ofan dyrnar stendur með geysistórum bókstöfum: „Með lögum skal land byggja“. — Hvað er óhugnanlegt við það? — Trúin á lögin er germönsk afskræming. Hugsið yður vík- ingana, hugsið yður ísland, þar höfðu menn ekki jafnmikið yndi af neinu og lögfræðilegum mála- flækjum á Þingvöllum. Nei, þess- ar vitlausu lagagerðir hafa í för með sér öfund, dráp, ættarríg, eilíf málaferli. Vitið þér, að hverju maður á að stuðla? Víð- tæku réttlæti .... Og hvaða höfuðþýðingu hefir það að byggja eitt land? Með landi á maður við þjóðríki. Fjandinn eigi öll þjóðríki! . . . — Ef þér gætuð breytt setn- ingunni á framhlið Hæstaréttar, hvað munduð þér setja í stað- inn? — Hægt er að byggja heim með kærleika....... Nokkru síðar í samtalinu spyr blaðamaðurinn: — Haldið þér ekki, að ýms- um verði mikið um að lesa hina djörfu bók yðar? — Getur verið. En ef ekkert er í bók, sem fær hárin til að rísa á höfðum manna, þá er hún einskis virði. Ég vil aðeins skrifa um lífið sem líf . . . Menn geta ekki fengið meira „taugaáfall“ af lestri bókmennta en í lífinu sjálfu. — Þér virðizt leggja meiri á- herzlu á kynlífið en aðra þætti, sem móta manninn og framferði hans? — Jæja; en hver gerir það ekki? Það er ekki mér að kenna, ef mönnum finnst ég ýkja, held- ur fordómunum. — Fordómunum. Við lifum á tímum upplýsingarinnar .... — Nei, langt í frá. Sú var tíð- in, að bannað var að ræða um samband kynjanna og lá þetta bann eins og mara á öllum mönn- um. Nú er talað svo fagurlega um það, að við höfum stigið stórt framfaraspor með þvi að innleiða í skólana kennslu í kynferðis- málum. Framfaraspor? Það eina, sem gerzt hefir ,er það, að æv- intýrið um sæðisfrumurnar hefir tekið við af ævintýrinu um stork inn. Og ávinningurinn er eng- inn. Enn er traðkað á sannleik- anum eins og gert var á Viktoríu- tímanum.......... — Viljið þér skýra það. — Sannleikurinn um kynlífið er gleðin, ánægjan sem því er samfara. Þetta vita allir, þetta hafa allir fundið, en aðeins fáir þora að segja það. Leyft er að veita börnum upplýsingar um æxlunina, en ekki má minnast á ánægjuna við hana. Og ánægjan er þó upphaf lífsins. Barn er ávöxtur ánægjunnar. Svo hag- lega hefir höfundur lífsins komið þessu fyrir. En mennirnir þora ekki, vegna uppeldisáhrifa, að viðurkenna þessa einföldu stað- reynd . . . Og síðan segir: — En hvað um samvizkuna? — Samvizkan er eins konar bergmál frá foreldrum okkar — eða með öðrum orðum: foreldr- arnir hafa að nokkru leyti tekið sér bólfestu í okkur. Samvizk- an er aðeins hryllilegri en for- eldrarnir. Það er hægt að fara á bak við foreldrana, en engin leið er til þess að losna við á- leitni samvizkunnar, það er ekki hægt að fara á bak við hana. Flest ir menn, sem ekki hafa gert sér þetta ljóst, hafa mikla þörf fyrir hegningu. Þegar breytt hefir ver ið gegn vilja foreldranna, er ein- asta leiðin sú að taka hegn- ingu. Hún ein getur strikað yfir víxlsporið. Samvizka fullorðins fólks er yfirleitt sömu lögmálum háð. Flestir menn hafa þörf fyrir hegningu. Þeir krefjast þess jafn asta leiðin sú að taka hegn- þeim — og ef það tekst ekki hegna þeir sjálfum sér. — Eigið þér við afbrotamenn? — Ég á við alla menn, einnig þá, sem fara til kirkju sérhvern sunnudag til þess að hlusta á hegningarræður prestanna. Or- sök glæpa er hegningarþörf sam- vizkunnar. Og þessi þörf á rætur að rekja til foreldranna, sem rembast við að innræta börnum sínum ákveðinn siðalærdóm: en árangurinn verður oftast í öfugu hlutfalli við áhugann....... Samtalið var lengra, en þetta verður látið nægja. Ef jafnmikið „púður“ er í síðustu bók Mykles og þessu samtali, ætti enginn að sofna undir lestrinum. Og eitt er víst, að skáldið hefir ákveðnar hugmyndir um manninn, ánægju hans og ávöxt hennar! Sundmeistaramót íslands hefst annað kvöld í MÁNUDAGSKVÖLD kl. 8,30 fer fram í Sundhöllinni fyrri hluti sundmeistaramóts íslands. f því taka þátt 8 félög og félagasambönd og verða þátttakendur flestir beztu sundmenn landsins. Meðal þeirra má nefna Ágústu Þorsteinsdóttur, Guðm. Gíslason, Sig. Sigurðsson, Pétur Kristjánsson og Helga Sigurðsson. TVÍSÝN KEPPNI Á mánudaginn verður keppt í 9 greinum: 100 m skriðsundi karla, 400 m bringusundi karla, 100 m baksundi kvenna, 200 m bringusundi kvenna, 100 m bringusundi og 100 m skriðsundi drengja, 50 m bringusundi og 50 m baksundi telpna, 4x100 m fjór- 3:3 í tveimur leikum KNATTSPYRNUMÓT Suður- nesja hófst á sunnudaginn. KFK og UMFK skildu jöfn 3:3 og Reynir, Sandgerði og IKF einnig jöfn 3:3. Völlurinn var blautur og erfiður en leikirnir fjörugir. Á þessum móti er keppt um bikar, sem Vörubílastöðin í Kefla vík hefur gefið. Er það glæsi- legur gripur. sundi. — Má búast við mjög harðri og tvísýnni keppni í flest- um greinum, t.d. í 400 m bringu- sundi karla, þar sem þeir mætast Sigurður Sigurðsson og Torfi Tómasson. Á fimmtudaginn var fór fram keppnin í 1500 ífí skriðsundi karla og urðu úrslit þau, að fyrstur varð Helgi Sigurðss. Æ á 20:35,0 mín, 2. Guðm. Gíslason ÍR 22:20,3 (drengjamet). Hann setti einnig drengjamet í 1000 m skriðsundi (millitími) á 14:50,3 mín. Þriðji í 1500 m varð Magnús Guð- mundsson Æ á 23:53,3 mín. Á innanfélagsmóti Ægis, sem var 2. maí setti Torfi Tómas- son Æ ísl. met í 1000 m bringu- sundi og synti vegalengdina á 16:40,0 mín., 2. Valgarð Emlis- son H.S.Þ. 17:06,0 sem einnig er undir gamla metinu. — Metið í 1000 m átti Sig. Jónsson H.S.Þ., sem var 17:25,2, sett 1946. 5 herb. íbúðarhæð 157 ferm. á hitaveitusvæði til sölu. Tvöfalt gler í gluggum. NÝJA FASTEIGNASALAN Sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546. Bankastræti 7. ,1 • 1 /■ 1 • 1 /■ Gott einbylis hus ekki of nærri Mi*5bænum, óskast til kaups. Mikil útborgun. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: 7996. Wá | shrifar úr daglega lífinu . HÉR er nú staddur á landinu Spánverji einn, sem starfar við ferðaMkáladeild utanríkisráðu- neytisins spánska. Er hann hing- að kominn til þess að eiga við- ræður við ferðaskrifstofufólk og hvetja íslendinga til Spánarferða. Við gyllta strönd SENOR Segarra hefur mörg orð og fögur um föðurland sitt og er mjúkmáll og sléttmáll þegar hann ræðir um sólgylltar strend- ur Costa Brava eða tignarleg fjallahéruð Katalóníu, mikilúðleg og fögur. Og senor Segarra getur trútt um talað og vist er, að ekki fer hann með neina lygi. Spánn er hið fegursta land, yfir því hvíl- ir einhver exótískur bjarmi, það er heimkynni rómantíkurinnar, ef um fastan samastað þeirrar ágætu hefðarfrúr er hægt að tala. Og það sem kannski er ailra bezt við landið eru ekki sjálf landgæði þess, sólin og vínið og ærið af hvoru tveggja, heldur "erðlagið, sem er eins og á tímum afa okkar og ömmu. Að minnsta kosti er það mikill kostur í aug- um íslendinga sem eiga langt að sækja. Framandi ævlntýraland AUGUM okkar norrænna manna er Spánn alltaf háif- art ævintýraland í bláma fjarsk- ns, gætt heillandi svip þess sem kunnugt er og framandi. Þær igur, sem okkur hafa af því orizt um andstæður þess, fegurð g eyðileggingu, stolt, óhamingju g háa reisn lands og þjóðar, uka á þá hvöt sem vafalaust býr mörgu brjósti að heimsækja þetta svipmikla land og þá þjóð, sem það byggir, og á svo margan hátt endurspeglar eigind landsins í skapgerð sinni. Cervatnes og Garcia Lorca hafa hver á sinn hátt skyggnt sál og vitund spönsku þjóðarinnar, þjáning hennar og gleði, og það dylst engum, sem hana þekkir að þar fer stolt og göfug þjóð. Á vínárl EN svo tekið sé upp léttara hjal þá mun mörgum íslenzkum ferðamanninum finnast það ærið ánægjuefni að potturinn af rauð- víhinu kostar ekki nema tvær íslenzkar krónur á Spáni og konjakkið ekki nema um fjórar krónur flaskan. Það er ástæðu- laust að vera að fara í launkofa með það sem reyndar er löngu vitað, að þegar landinn fer í sum- arleyfi þá er fjallafegurð og sum- ardýrð ekki nema hluti af því, sem hugur hans girnist þann hluta ársins. Því er Spánn ágætis land einnig út frá því sjónarmiði. Og þess má minnast, að í fyrra var mikið vínár á Spáni. Þá var uppskeran svo mikil, að bændur voru þar í standandi vandræðum hvað þeir ættu við vínið sitt að gera. Og ef maður var á ferð á hásléttunni sem Madrid stendur á og kom þar til lítils þorps eilítið sunnar í landi, þá var þar mikíll belgur fullur rauðvíns á járn- brautarstöðinni, þar sem hver vegmóður ferðalangurinn mátti drekka endurgjaldslaust. Og ekki voru þau fá öldurhúsin og fjallakrárnar, sem það haust höfðu hvítvín rennandi úr kalda krananum og rauðvín úr þeim heita, eftir gestanna þóknun og vild. Hjá slíkum veitingamönn- um er gott að dveljast, myndi margur maðurinn segja við sjálf- an sig, og forsmáir þó enginn fjallavatnið fagurtært. Og hver veit nema vínuppskeran verði líka góð í sumar.... Bófar I skúmaskotum OG í þessum ferðalagaþenking- um er ekki úr vegi að minn- ast á að ferðalög eru ekki ein- ungis dans á rósum um erlenda grund, heldur liggja þar stund- um stigamenn í leyni og skúrkur dylst við hvert götuhorn. AS minnsta kosti getur manni komið það í hug, þegar vitnast hvaS fyrir suma íslendinga kemur á erlendum slóðum. Um páskana fóru bankamenn og fleiri í mikla reisu til Parísar. En ekki tókst betur til en svo, að tveir ferða- mannanna komu æði miklu fá- tækari heim en þeir höfðu gert ráð fyrir, sökum þess að milli skírdags og annars í páskum voru þeir báðir gripnir af bófum og rændir öllum sínum veraldlegu eigum. Þetta er ekkert einsdæmi og mun hafa komið fyrir fleiri landa í skuggahverfum stórborg- anna. Skál! OG að lokum smásaga af tveim- ur á ferðalagi í erlendri borg. Þeir sátu í vínstofu og kneifuðu mikinn og eftir fimmtugasta og níunda sjússinn sagði annar: Skál! Hinn leit móðgaður á hann og svaraði: Heyrðu góði, ert þú kominn hingað til að drekka eða tala?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.