Morgunblaðið - 05.05.1957, Síða 9
Sunnudagur 5. maí 1957
MORCTJWBl JÐIÐ
§
GísSi Kærnesled — minning
GÍSLI KÆRNESTED var fædd-
ur í Reykjavík hinn 13. október
1914. Foreldrar hans voru hjón-
in Gróa og Óli Kærnested. Óli
var hagleiksmaður, sem lagði
gjörva hönd á margt, var t. d.
eimreiðarstjóri á fyrstu árum
hafnargerðarinnar hér í bæ, þeg-
ar grjót var flutt með þeim hætti
úr Skólavörðuholtinu og Eski-
hlíð vestur í höfnina. Síðar
dvaldi hann í Viðey, en þar var
þá útgerðarstöð, og um skeið
á Kjalarnesi. Óli er dáinn fyrir
all-mörgum árum, en frú Gróa
lifir enn, ern eftir aldri, og dvelzt
með dóttur sinni Sigrúnu lækn-
isfrú á Kleppjárnsreykjum, sem
er hið eina systkini Gísla, er upp
komst.
Snemma fór Gxsli að vinna fyr-
ir sér og var naumast af bernsku
skeiS, þegar hann hóf starf við
Járnvörudeild Jes Zimsens. Við
það fyrirtæki vann hann ætíð
síðan og naut trausts húsbænda
sinna og vinsælda meðal við-
skiptamanna. Gísli var lipur við
afgreiðslu og maður mjög hand-
laginn. Honum lék því í höndum
að gera við ýmsa hluti, þótt slíkt
vefðist fyrir öðrum. Eins átti
hann auðvelt með smíði smá-
hluta bæði til nytja og leiks og
hafði stundum af því nokkrar
tekjur.
Gísli kvæntist ungur Hildi
Björnsdóttur frá Ánanaustum.
Þau höfðu aldrei mikil efni en
því meira af samlyndi og holl-
ustu hvort við annað. Heimili
þeirra var ætíð fallegt enda ríktu
þar gestrisni og höfðingslund. —•
Þau áttu 4 börn: Óla Björn i
Verzlunarskólanum, Anton örn í
Reykholtsskóla, Ásthildi í barna-
skóla og Sigrúnu Gróu, sem enn
er aðeins á fjórða ári
Utan heimilis hafði Gísli auk
starfs síns, einkum íþróttir að
hugðarefni. Á æskuárum var
hann sjálfur ágætur íþróttamað-
ur og átti síðan fjölda verð-
launagripa fyrir ýmisleg afrek.
Hann var einkum góður hlaup-
ari og síðar áhugasamur knatt-
spyrnumaður í félaginu Val. Þá
var Gísli einnig söngvinn og var
áður fyrri félagi Fóstbræðra og
söng í fleiri kórum. Gísli var
eindreginn Sjálfstæðismaður og
um all-langt skeið í fulltrúaráði
flokksins hér í Reykjavík.
Gísli hefur lengi kennt
nokkurs lasleika fyrir hjarta.
Sá sjúkleiki ágerðist svo í
vetur, að í marz fór hann
um þriggja vikna skeið til lækn-
isathugunar á Landsspítalanum.
Eigi munu læknar þá hafa verið
vissir um, hvað að honum væri,
en eftir að Gísli kom af spítalan-
um leit hann hið bezta út og var
hinn hressasti í viðræðum. Sá
ég hann síðast sumardaginn
íyrsta í hóp tengdafólks og ann-
arra vina. Grunaði þá engan, að
þar yrðu síðustu samfundir. En
þremur dögum síðar hné hann
niður og var örendur eftir nokk-
ur augnablik. Kom þá í ljós, að
hjartabilun hans var alvarlegri
en nokkrum hafði komið til hug-
ar. Þar með var lífi mæts manns
lokið á meðan hann enn var á
léttasta skeiði. En eftir er minn-
ingin um einn þeirra, sem með
kyrlátu starfi og hollri félags-
þátttöku gerði sitt til, að Reykja-
vík yrði betri staður að búa í.
Bjarni Benediktsson.
★
Minningarljóð
(Lag: Lýs milda ljós).
Skjótlega hefur sumri brugðið sól
á sorgarstund.
Og dagsins ljóma
dauðaskugginn fól
því dreyrir und.
Tregandi kona harmar
hljóð og sár
og höfug falla af barnaaugum tár.
Bilið er mjótt á milli fjörs og hels
vor mund nær skammt.
Hið þyngsta böl
á bjarma himinhvels
oss bendir samt
því heima milli byggir sorgin brú
sem bindur sál í kærleik,
von og trú.
Félagar þakka
gengin góðs manns spor
í gleði og hryggð.
Þeir þakka og þitt mæra
manndóms vor
og mæta tryggð.
Sú minning breiðir
blómaskartið sitt
með birtu og yl á hinzta
rúmið þitt.
Nú leggur móðurmoldin línið sitt
svo mjúkt að þér.
í æðra heimi óskalandið þitt
þér ávöxt ber.
Ástvinir stefna þangað
hljóðum hug
sú hjartafró mun visa sorg á bug.
Himneski faðir! blessa búinn dag
og blíðan frið.
Legðu svo hvern, sem býr
við hryggðarhag
þitt hjarta við.
Framliðni bróðir! sof þú
sætt og rótt
sólinni mót vér hprfum.
Góða nótt.
Guðr. Magnúsd.
Skálholtshátíöin i
Vegna fyrirhugaðrar útgáfu bókar um hátíðina í Skálholti í
fyrrasumar, enx þeir sem eiga góðar ljósmyndir frá hátíðinni
eða atburðum í sambandi við hana, vinsamlega beðnir að
lofa séra Sveini Víking biskupsritara að líta á myndirnar.
Hann er við alla daga á skrifstofu biskups, Arnarhvoli, á |
venjulegum skrifstofutíma. .
Hæð og rishæð
góð 3ja herb. íbúð og 2ja herb. íbúð í Höfðahverfi til sölu.
NÝJA FASTEIGNASALAN
Bankastræti 7.
Sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546.
3p herb. íbúðarhæð
ásamt stofu og eldunarplássi í kjallara í Norðurmýri til sölu.
Útb. helzt 200 þús.
NÝJA FASTEIGN AS ALAN
Bankastræti 7.
Sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546.
Röskur unglingur
getur fengið atvinnu við sendiferðir og fleira á aðalskrif-
stofu vorri, hið allra fyrsta. — Umsækjendur komi til við-
tals á skrifstofuna mánudaginn 6. maí, klukkan 10 til 12
fyrir hádegi. — Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Raforkumálaskrifstofan,
Laugavegi 118.
SKODA
Varahlutir í model 1947—52.
Hljóðdeyfarar og rör
Spindilboltar, stýrisendar o. m. fl. j
SKODA-VERKSTÆÐEÐ
við Kringlumýrarveg
Tilboð
óskast f setuliðsskemmu við Hálogaland (Skeiðarvog), að
stærð 30x12,5 m. — Skemman selst til niðxxrrifs og brott-
flutnings nú þegar. — Nánari upplýsingar gefnar í skrifstof-
unni Skúlatúni 2. — Tilboðin verða opnuð hér í skrifstofunni
fimmtudaginn 9. maí n. k. kl. 10 f. h.
Skrifstofur bæjarverkfræðings.
Stúlkur 'óskast
í skóverksmiðju nú þegar.
Skóverksmiðjan Þór hf.
Skipholt 27
Fermingarskeyti
sumarbúða K.F.U.M. og K. í Vatnaskógi og Vindáshlíð eru
afgreidd að Amtmannsstíg 2B og Kirkjuteig 33, Drafnarborg
milli kl. 10 f.h. og 5 e.h. og í Ungmennafélagshúsinu við
Holtaveg frá 1—5.
Stjórnin.
Bifreiöaréttingamenn
óskast. — Upplýsingar í síma 6677 á morgun.
BIFREIÐAVERKSTÆÐI SÍS
Kópavogshálsi
Höfum til solu
Dodge Weapon Carry-all. — Uppl. í síma 466, Keflavík.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Til leigu óskast
strax 4—5 herbergja ÍBÚD fyrir hjón með 5 börn. Tilboð
merkt „Ríkisstarfsmaður 2774“ sendist Mbl.
BÚDVGLER
allar þykktir fyrirliggjandi
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
Bílamálun
Höfum opnað sprautu-verkstæði. —
Önnumst réttingar, ryðbætingar og
viðgerðir eins og áður.
Bílvirkinn
Síðumúla 19 — Sími 82560
Saumastúlkur
Stúlkur vanar saúmaskap og frágangs-
vinnu óskast nú þegar. — Uppl. á
mánudag.
Verksmiðjan ELGCR h.f.
Bræðraborgarstíg 34