Morgunblaðið - 08.05.1957, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.05.1957, Qupperneq 19
Miðvikudagur 8. maf 1957 MORCVTVBLAÐIÐ 19 Wyszinsky kardínáii í Róm RÓMABORG, 7. maí. — Wysz- ynski kardínáli, erkibiskup Pól- lands, er væntanlegur til Róma- borgar á morgun. Hann er íyrsti kardínálinn frá kommúnistaríki, sem kemur í heimsókn til páfa- dæmisins. Hann mun gefa Píusi XII páfa skýrslu um málefni kirkjunnar í Póllandi og þá meðal annars standa fyrir máli sinu, varðandi samning þann er hann gerði við Gomulka, stjórn hans til stuðnings. Páfadæmið gerir sérstakar ráð- stafanir til þess að Wyszinsky verði ekki hylltur sem þjóðhetja Póllands. Margir munu hafa vilj- að hylla hinn pólska kardínála, en páfadæmið lítur alvarlegum augum á samninginn við Gom- Ulka. Wyszinsky mun aðeins einu sinni koma fram opinberlega. — Reuter. tir Mývotnssveit Framh. af bls. 11 hafði verið getið um áður að hann mundi koma. Það jók á gremju manna að vitað var að fréttir af úrslitum mótsins voru komnar símleiðis út um land, áður en fyrri fréttatími hófst. Þannig var búið að tala við einn mann í Mývatnssveit í síma frá Akureyri og segja honum úrslit- in. Svona fréttaflutningur er svo bágborinn og fyrir neðan allar hellur að telja má óþolandi. Vonandi verður annað eins og þetta, ekki látið koma fyrir aft- ur, og séð um að menn sem má treysta, verði framvegis valdir til fréttaþjónustimnar. — Jóhannes. — Minning Framh. af bls. 17 veig, gift Jóni Kristjánssyni verkstjóra á Suðureyri, Guð- mundur skipstjóri í Reykjavík, giftur Guðfinnu Jónsdóttur frá Ólafsfirði, Hansína, gift Gunnari Guðmundssyni bílstjóra í Reykja vík og Lilja, gift Arinbirni Sig- urðssyni stýrimanni í Reykjavík. Magnús var mjög fjölhæfur maður og vandvirkur við öll sín störf. Hann var einnig mikill verkmaður og því eftirsóttur af mörgum. Sum verk hans munu lengi standa sem minnisvarði, sem halda uppi nafni hans. Hon- um var glaðlyndi gefið í vöggu- gjöf í svo ríkum mæli að það entist honum til æviloka. Þegar móti blés, gerði það honum lífs- baráttuna léttari. Jafnan hafði hann gamanyrði á vörum og varð mönnum því fljótt kær félagi og samverkamaður. Mörgum finnst því skugga hafa brugðið yfir, er hann hvarf svo skyndilega. En tilfinnanlegastur er missirinn konu hans, börnum og nánustu ástmennum, sem um langa ævi hafa notið ástríkis hans í ríkum mæli. Við, sem áttum með honum margar ánægjustundir, kveðjum hann með þakklæti og flytjum öllum ástvinum hans innilegar samúðarkveðj ur. K. G. Þ. Vinno Hreingerningamiðstöðin. Sími 81091. Vanir og vand- virkir menn til hreingerninga. Hreingerningar Vanir menn. Fljót og góð yinna. Sími 7892.ALLl Hreingerningar Vanir menn. — Fljót afgreiðsla. Símar: 80372 og 80286. HÓLMBRÆÐUR Málflutningsskrifstofa Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pctursson Aðalstrœti 6, III. hæð. Sítnar 2002, — 3202, — 3602. I. O. G. T. ST. EININGIN nr. 14 Fundur í kvöld kl. 8,30. — Vor- ljóð, sögur og söngur. Ritnefnd Einherja og spurningar. — Bók- arnefnd sér um atriðin. — Æ.T. Samkomur Kristniboðsflokkur K.F.U.K. heldur sína árlegu samkomu í kvöld kl. 8.30. — Bjarni Eyjólfs- son ritstjóri og Benedikt Jason- arson kristniboði tala. Einsöng- Félagslíf 4. fl. Handknatlsleiksdeildar Ármanns Mætir allir á æfinguna í kvöld kl. 6,30 í íþróttahúsinu við Lind- argötu. — Þjálfarinn. ur, kórsöngur o. fl. — Gjöfum til kristniboðs veitt móttaka. — Fjölmennið á samkomuna. HJÁLPRÆÐISHERINN í kvöld kl. 20.30. Samkoma í Másgerði 4 (smáíbúðahverfi) kl. 17 barnasamkoma. — Velkomin. Innilegustu þakkir til allra, sem réttu mér hjálparhönd í erfiðleikum okkar. Sérstaklega vil ég þakka séra Árelíusi Níelssyni fyrir hjálpsemi og góðvilja í okkar garð. Bið guð að launa ykkur öllum. Ekkjan við Snðurlandsbrant. Hafnarfjörður Hafnarfjörður Slysavarnadeildin HRALIMPRVÐI Á morgun 9. maí er hinn árlegi fjáröflunardagur Hraunprýðiskvenna. Selt verður kaffi í Sjálfstæðishúsinu og Alþýðuhúsinu frá kl. 3 e.h. og verður á boðstólum alls konar góðgæti eins og venjulega. Merki dagsins verða seld á götum bæjarins allan daginn. Börn, sem vilja selja merki vitji þeirra í skrifstofu verkakvennafélagsins í Alþýðuhúsinu eftir kl. 8 að morgni sama dag. Einnig verða sýningar í báðum kvikmyndahúsum bæjarins kl. 9. — Hafnfirðingar, við treystum velvild ykkar nú sem áður. Drekkið Hraunprýðiskaffið 9. maí. Kaffi- og merkjasölu-nefndirnar. STÍiKA sem er 25 ára eða eldri getur fengið atvinnu, sem aðstoðarstúlka í Laugarvegsapóteki. — Uppl. í skrifstofunni Laugaveg 16 III. hæð. Ég bið almáttugan Guð að launa öllum þeim, sem glöddu mig á níræðisafmæli mínu 30. apríl s.l. með heimsóknum gjöfum, skeytum og heillaóskum. — Guð blessi ykkur um alla framtíð. Kristín Jensdóttir, Ellih. Grund. Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu mig með gjöfum og hamingjuóskum á fimmtugsafmæli mínu 23. apríl. Haraldtur Júlíusson, Sjólyst, Stokkseyri. Innilegustu hjartans þakkir sendi ég öllum þeim sem á einn eða annan hátt glöddu mig á 80 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðilegt srnnar. Litla-Kollabæ 27 apríl 1957. Helga Pálsdóttir. Ég þakka hjartanlega heimsóknir, heillaósklr og góðar gjafir á 75 ára afmælisdegi mínum 1. maí sL Guðlaugur Skúlason. Hugheilar þakkir færi ég öllum, er með skeytum, gjöfum eða á annan hátt heiðruðu mig á sextugsafmælinu. Pétur Ásmundsson Brekkan. Alúðar þakkir til þeirra, er minntust mín í sambandi við 85 ára afmæli mitt, 15. þ.m. Sérstakar þakkir færi ég stúkunni Verðandi nr. 9. — Guð blessi ykkur öll. Jarþrúður Bjarnadóttir. Silfurtunglið Opið í kvöld til kl. 11,30. Ókeypis aðgangur Hinn bráðsnjalli Roek’n Roll söngvari Óli Ágústsson, sem gjarnan mætti nefna hinn íslenzka Presley syn^ur með hljómsveit Riba. — Húsið opnað kl. 8. Sími 82611, 82965, 81457 SILFURTUNGLIÐ. Getum útvegað alls konar skemmtikrafta. Mulnings- og hörpunartœki eru til sölu. Tækin eru ensk, innflutt 1955, á massivum gúmmíhjólum og auðvelt að flytja þau stað úr stað. Tækjunum fylgir dieselvél, hringsigti og þrjú færibönd með rafmagnsmótor. Ennfremur matari. Þá er til sölu: International jarðýta, PD-9 með ámoksturs tækjum og ýtublaði. Quick-way vélkrani á vörubíl. International-vörubifreið 1942. Upplýsingar gefa Hörður Ólafsson, Smiðjustíg 4, sfmi 80332 og Sigurður Sveinsson c/o Steðji hf., sími 4108. Vasaorðahækur íslenzk-ensk og ensk-íslenzk vasaorðabækur eftir Arnold R. Taylor eru nýútkomnar. Handhægar orðabækur fyrir skólafólk, ferðafólk og aðra, er stunda enskunám. Smoebj5rnIáiifssm&Cah.f ^-^JHE ENGLISH B00KSH0P__ Hafnarstræti 9 — Sími 1936 Faðir og tengdafaðir okkar JÓN JÓNSSON silfursmiður frá Vík í Mýrdal, andaðist á heimili sínu 6. maí. Jarðarförin ákveðin síðar. Hafsteinn Jónsson, Bryndís Jónsdóttir, Jón Björnsson, Sigrún Jónsdóttir, Ragnar Emilsson, Þorgrímur Jónsson, Guðný Árnadóttir. Konan mín GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR Efstasundi 74, lézt 5 þ.m. Jarðarförin fer fram frá Dóm- kirkjunni föstud. 10. maí kl. 11 árd. Athöfninni verður útvarpað. Bjarni Hákonarson, hörn, tengdabörn og barnabörn. Móðir okkar HANSÍNA BJARNASON, (fædd Linnet) sem andaðist 5. þ.m., verður jarðsungin frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 9. þ.m. að lokinni húskveðju heima að Grenimel 38, er hefst kl. 1,15 e.h. Jarðsett verður í Gamla Kirkjugarðinum. Börnin, fósturbömin og tengdabömin. Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu og hjálpsemi við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður og tengdaföður KRISTINS ALBERTS SÆMUNDSSONAR Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunarliði Landspítalans alla hjálp og umhyggju, er hann naut hjá þeim í veikindum sínum. AValheiður Sveinbjörnsdóttir, börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.