Morgunblaðið - 30.05.1957, Blaðsíða 8
8
MOKCTllSRT 4T)1P
Fimmtudagur 30. maí 1957
Framtíð lands og þjóðar er undir því
komin að hver einstaklingur
geri kröfur til sjálfs sín
Þjóðin verðui oð snún nf þeirri blekkingngöngu
sem núvernndi ríkisstjóm hefir leitt hnnn ú
Ræða Ingólfs Jónssonar við
útvarpsumræðurnar
Herra forseti, góðir áheyrendur!
Stjórnarflokkarnir halda því
fram í þessum umræðum, að Sjálf
stæðisflokkurinn hafi reynt að
spilla lánstrausti þjóðarinnar í
því skyni að koma í veg fyrir að
ríkisstjórninni tækist að fá lán
erlendis til Sogsvirkjunarinnar
og annara framkvæmda.
Þeir halda því einnig fram, að
við Sjálfstæðismenn spillum
vinnufriðnum, ölum á kaupkröf-
um og ítum undir verkföll.
Þessi málflutningur stjórnar-
flokkanna er léleg tilraun til þess
að leiða athyglina frá úrræða-
leysi ríkisstjórnarinnar, svikum
hennar og vanefndum í öllu sem
máli skiptir og hún hafði lofað
að framkvæma um leið og hún
settist að völdum.
SNÚIÐ ÚT ÚR UMMÆLUM
Forsætisráðherra vitnaði í um-
mæli mín á Alþingi til stuðnings
þeirri fullyrðingu, að Sjálfstæð-
ismenn vildu koma í veg fyrir,
að ríkisstjórninni tækist að fá
lán erlendis. Til þess að fá allt
aðra meiningu í það sem ég sagði,
er klipið framan af og aftan af
málsgreininni. Vegna þess að
Tíminn hefir hvað eftir annað
staglast á þessu, þykir mér vænt
um, að forsætisráðherra gefur
mér tilefni til að lesa hér upp í
áheyrn alþjóðar það sem ég sagði
í áminnstum umræðum. Með leyfi
hæstvirts forseta sagði ég þetta:
„Háttvirtum 3. þingmaður
Reykvíkinga, Einar Olgeirsson,
var að tala um það hér áðan,
að ég hefði hælst um það að litl-
ar líkur væru til að lán fengj-
ust til þess að kaupa togarana.
Þetta er reginmisskilningur hjá
háttvirtum þinigmanni. Ég vitan-
lega vildi óska þess, að það væri
hægt að halda uppbyggingu at-
vinnuveganna og öllum fram-
kvæmdum hér áfram, þrátt fyrir
það þótt við höfum lélega stjórn
í landinu um sinn. Allir háttvirt-
ir þingmenn hljóta að skilja, að
ef framkvæmdirnar stöðvast og
ef atvinnuleysið heldur innreið
sína hjá okkur þá líða allir við
það. Það verður að finna önnur
ráð til þess að koma hæstvirtri
ríkisstjóri frá völdum, heldur en
þau ein að hún fái hvergi lán.
Hæstvirt ríkisstjórn fellur á sín-
um eigin verkum og sínu eigin
getuleysi".
Þetta eru hin tilvitnuðu um-
mæli. Tíminn og framsókn dreg-
ur úr aðeins eina línu og leggur
svo út af því eins og henta þykir.
Ég veit, að áheyrendur um allt
land skilja, að með þessum um-
mælum mínum lýsi ég því bein-
líinis yfir, að það sé nauðsynlegt
að halda áfram framkvæmdum
og uppbyggingu atvinnulífsins,
meðal annars með erlendum lán-
um. Við Sjálfstæðismenn viljum
ekki hindra erlendar lántökur,
sem gætu bitnað á allri þjóðinni.
RÍKISSTJÓRNIN EINS OG
ÓKNITTASTRÁKUR
Stjórnarflokkarnir sjá, að verk
ríkisstjórnarinnar eru slæm, að
stefnt er út í ófæru og þjóðar-
skútan er að strandi komin. Rík-
issstjórnin hagar sér eins og ó-
knittastrákar, sem unnið hafa
vont verk og reyna að koma sök-
inni á aðra í stað þess að viður-
kenna, að það sem að þeir lofuðu
þjóðinni fyrir kosningar hefur
ekki tekist að efna. Ríkisstjórnin
ætti að hafa manndóm til að við-
urkenna að hún hefur ekki kom-
ið með viðunandi lausn í efna-
hagsmálunum eins og hún lofaði
með miklu yfirlæti. Hún ætti að
viðurkenna, að dýrtíðarskrúfan
hefur aldrei snúist eins hratt og
síðustu mánuðina eftir ráðstafan-
ir við síðustu áramót. Ríkisstjórn
in ætti að viðurkenna, að í stað
þess að skapa jafnvægi og öryggi
í atvinnulífinu hefir hún komið
á jafnvægisleysi, öryggisleysi og
gert lífskjörin verri hjá öllum
almenningi í landinu. Ekkert af
þessu hefur ríkisstjórnin mann-
dóm til þess að viðurkenna, held-
ur er blekkingarstarfseminni enn
haldið áfram og því haldið fram,
að þrátt fyrir hina gífurlegu
skatta og tolla, sem á var lagt um
síðustu áramót hafi verðlag á
innfluttum vörum lítið eða ekkert
hækkað vegna þess að álagningin
hafi verið lækkuð hjá millilið-
unum.
MARGIR TRÚÐ UBLEKKINGU
STJÓRNARLIÐSINS
í útvarpsumræðunum, sem
fram fóru eftir síðustu áramót
tóku margir fullyrðingar stjórn-
arflokkanna um þessi atriði,
gildar og trúðu því, að vöruverð
mundi ekki hækka neitt veru-
lega. En nú lætur fólk ekki leng-
ur blekkjast af fagurgala eða
fullyrðingum, því nú eru stað-
reyndirnar komnar í ljós og fólk-
ið sjálft, með því að fara í búðir
og kaupa varninginn, þreyfar á
því hversu verðhækkanirnar eru
tilfinnanlegar .
Það er ekki tími til að taka
mörg dæmi, sem sýna hinar
miklu verðhækkanir, enda ger-
ist þess naumast þörf. 300 milljón
króna nýir skattar á innfluttar
vörur hljóta að koma fram í vöru-
verðinu. Sköttunum er ætlað að
ná til að minnsta kosti % af
öllum innflutningi til landsins
og svarar það til að skatturinn
verði í framkvæmdinni frá 8 og
allt upp í 100% á þann hluta
innflutningsins.
TÖLURNAR TALA
SÍNU MÁLI
Ef aðeins örfá dæmi eru nefnd
um hinar gífurlegu hækkanir má
geta þess, að ekki ónauðsynlegri
vara en ullarefni er hækkuð um
85%. Sama máli gegnir um vara-
hluti í heimilistæki, þar er einn-
ig hækkunin 85%. Reiðhjól,
hækkun 45%, saumavélar hækk-
un 63%, þakpappi hækkun 13%,
gólfdúkur hækkun 16%, raflagn-
ingarefni frá 20 til 28%, heimilis-
tæki svo sem hraðsuðukatlar o. £1.
53%, varahlutir í dieselvélar 21%,
efni í málningu 18%, efni í
vinnuföt 15—20%. Þannig mætti
lengi telja. En álagningin hefur
verið lækkuð segja stjórnarflokk
arnir og það er þó nokkuð til að
hrósa sér af, því það heldur dýr-
tíðinni í skefjum.
Ég vil sýna fram á, að þótt
verzlunarálagning hafi í vissum
tilfellum verið nokkuð lækkuð,
þá hefur það lítil áhrif til lækk-
unar á vöruverðið eftir að varan
hefur verið skattlögð, eins og
raun ber vitni. Stjórnarflokkarn-
ir hæla sér af því, að hafa lækk-
að heildsölu álagningu frá 10-—
20% og stundum meira. En hvað
gerir sú lækkun í verðlaginu?
Tökum dæmi: Varan kostaði í
innkaupi, fyrir skattahækkunina
100 krónur, heildsöluálagning var
15%, verð frá heildsala 115 krón-
ur. Eftir skattahækkun kostar
varan í innkaupi 140 krónur.
Lækkun á heilsöluálagningu 30%.
Heildsöluálagning eftir hækkun-
ina krónur 14,70. Verð vörunnar
frá heildsala verður *því krónur
154,70. Heildsöluálagning var
fyrir skattahækkun krónur 15,00,
eftir skattahækkunina 14,70.
Heildsöluálagning lækkaði um
Ingólfur Jónssor
30 aura. f þessu dæmi er talað
um 15%heildsöluálagningu og
30% lækkun á álagningunni. Hafi
heildsöluálagningin verið minni,
sem oftast var, og lækkunin á
álagningunni aðeins 10 eða 20%,
sem einnig er algengast, þá verð-
ur dæmið enn óhagstæðara fyrir
þá, sem ætla að réttlæta álögurn-
ar með því einu að álagningin
hafi verið lækkuð.
ÁLÖGURNAR KOMA ÞYNGST
NIÐUR Á BÆNDASTÉTTINNI
Álögurnar við síðustu áramót
koma mjög þungt niður á allan
almenning, en ekki sízt bænda-
stétt landsins en samkvæmt við-
tali, sem lýst er í Morgunbl. í
dag við einn Framsóknarbónda
í Húnavatnssýlu, þá telur þessi
bóndi, að nýju álögurnar auki út-
gjöld búsins um 10—15 þús. kr.
á ári án þess að nokkuð komi
á móti. Það er vitað, að núverandi
stjórnarflokkar hafa alls ekki
staðið við það að láta bændur
fá það verð fyrir afurðirnar, sem
þeim ber samkvæmt verðgrund-
vellinum og því er ekki við að
búast að bændur fái bætur fyrir
hina nýju skatta. Þetta er ekki
vitnisburður Sjálfstæðismanna,
heldur Framsóknarbónda, sem
hefur fram að þessu trúað því,
að Framsóknarflokkurinn vildi
vinna fyrir bændur.
Ég ætla ekki að eiða fleiri orð-
um um verðlagið og dýrtíðina,
sem að nú er öllum augljós. Jón
Árnason, fyrv. bankastjóri, sagði
nýlega í ræðu, að ráðstafanir rik-
isstjórnarinnar við síðustu ára-
mót jafngiltu 60% gengislækkun.
Framsóknarmenn leyna nú því
sem þessi mæti maður segir og
víst er það, að ekki kom þessi
ræða í Tímanum éins og ritsmið-
ar Jóns Árnasonar hafa þó oft
áður gert. Jón Árnason sagði
álit sitt á stjórnarstefnunni.
FLEIRI EN SJÁLFSTÆÐIS-
MENN GAGNRÝNA
Bragi Sigurjónsson varaþingmað-
ur Alþýðuflokksins hefir fullyr;
í ræðu, að almeningur í landinu
hafi orðið fyrir vonbrigðum með
núverandi ríkisstjórn. Og Áki
Jakobsson, þingmaður Siglfirð-
inga fullyrðir, að vegna ráðstaf-
ana sem gerðar voru sl. vetur sé
gengislækkun óhjákvæmileg. Það
eru ekki við Sjálfstæðism. einir,
sem að gagnrýnum núverandi
ríkisstjórn eða segjum berum orð
um hvað hefur gerst undanfarna
mánuði í verðlagsmálunum. Af-
leiðingarnar af því sem gerzt
hefur í verðlagsmálunum er ólg-
an í öllum stéttum þjóðfélagsins
og auknar kröfur um hækkað
kaup vegna hins háa vöruverðs,
sem aðgerðir ríkisstjórnarinnar
leiða af sér. Það þarf mikla
dirfsku til að halda því fram, að
við Sjálfstæðismenn höfum átt
þátt í þeim vinnudeilum, sem
orðið hafa undanfarið og sem nú
eru í uppsiglingu. En verkföll
og vinnudeilur hafa aldrei verið
jafn tíð og nú eins og öllum er
kunnugt.
FRAMSÓKN HLJÓP FRÁ
ÁBYRGÐINNI
Við Sjálfstæðismenn höfum
varað við kaupskrúfunni og
þeirri hættu, sem stafar af kapp-
hlaupinu milli kaupgjalds og
verðlags. Við fluttum tillögur
veturinn 1956 til niðurgreiðslu á
verðlagi, sem kostaði ríkið mjög
lítið miðað við þau hundruð
milljóna, sem kastað hefur verið
á glæ vegna vandræðastefnu nú-
verandi ríkisstjórnar. En Fram-
sóknarmenn hlupu frá ábyrgð-
inni út í það ævintýri, sem hafa
mun örlagaríkar afleiðingar fyr-
ir þjóðfélagið. Framsóknarmenn
munu ekki komast hjá því að
gera þjóðinni, þótt síðar verði,
reikningsskil fyrir það ábyrgðar-
leysi, sem þeir hafa sýnt í þeirri
ævintýrapólitík, sém þeir nú
reka. Víst er um það, að flestir
kjósendur Framsóknarflokksins
hafa treyst því, að Framsóknar-
menn á þingi vildu sýna ábyrgð
og taka vandamálin raunhæfum
tökum. Þannig talaði Eysteinn
Jónsson, fjármálaráðherra oft
meðan hann var í samstarfi við
Sjálfstæðismenn. Þá virtist hann
geta gert sér grein fyrir því hver
væri höfuðorsök meinsemdanna,
verðbólgunnar og erfiðleika at-
vinnuveganna. Nú hefur þessi ráð
herra snúið við blaðinu og hrein-
lega gefist upp við að halda
því fram sem er raunhæft og
rétt.
Eysteinn Jónsson, ráðherra,
heldur að almenningur taki það
sem góða og gilda vöru, að hann
snúi nú alveg við blaðinu og telji
allt rangt, sem hann sagði fyrir
rúmu ári síðan um orsakir og
afleiðingar þeirra meinsemda,
sem í þjóðfélaginu eru.
HERMANN HEFIR BUGAÐ
VIÐNÁMSÞRÓTT EYSTEINS
Hermanni Jónassyni, forsætis-
ráðherra, hefur tekist að buga
viðnámsþrótt fjármálaráðherra
og fengið hann út á götu ævin-
týramennskunnar ásamt öðrum
þingmönnum Framsóknarflokks-
ins. Er leitt til þess að vita, þar
sem sumir af þessum mönnum
eru ágætir menn og ættu skilið
betra hlutverk en það sem þeir
nú taka þátt í að leika.
Framsóknarmenn hafa talað
um það í þessum umræðum, að
við Sjálfstæðismenn vildum finna
ráð, til þess að koma núverandi
ríkisstjórn frá. Við lítum svo á,
að það sé nauðsynlegt fyrir ís-
lenzku þjóðina að fá aðra stjórn-
arstefnu, að fá betri stjórn. Ráð-
in til þess að koma ríkisstjórn-
inni frá eru einföld, aðeins það
að fólkið í landinu fái að fylgjast
með því sem ríkisstjórnin gerir
og það er það, sem við Sjálf-
itæðismenn munum gera, við
.nunum segja frá staðreyndum.
Það er ekki okkar sök, þótt verk
stjórnarinnar séu þannig, að það
magni andúð gegn ríkisstjórninnl
ef sagt er frá þeim, og þegar
stjórnarflokkarnir tala um að
Sjálfstæðismenn beri ábyrgð á
verkföllum og kauphækkunum,
þá gæta þeir ekki þess, að fólkið
í landinu hvort sem það er í
Sjálfstæðisflokknum eða öðrum
flokkum, hefir fengið vaxandi
vantrú á stjórnarstefnunni og
mun með sívaxandi þunga gera
stjórnarherrunum ljóst, að þeir
hafi ekki tiltrú eða fylgi fólks-
ins og verði að hætta að tala
um það með yfirlæti, eins og
þeir oftast gera, að þeir séu full-
trúar vinnandi fólks. Það er svo
ágætt út af fyrir sig, ef fulltrúar
stjórnarflokkanna sjá ekkert
nema Sjálfstæðismenn á vegi
sínum hvar sem þeir fara og er
það vottur þess, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er vaxandi flokkur.
Þróttmikill flokkur, sem tekur
upp baráttu fyrir bættum stjórn-
arháttum, atvinnuöryggi og bætt-
um lífskjörum. Auðvitað er
stjórnarflokkunum nú orðið ljóst,
að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
flokkur braskara og fámennrar
klíku eins og þeir hafa sagt held-
ur flokkur þjóðarinnar, flokkur
þeirrar hugsjónar, að skapa þjóð-
inni öryggi og farsæld.
SPARIFJÁRMYNDUN
UNDIRSTAÐAN
Stjórnarflokkarnir hafa í þess-
um umræðum stært sig af því
að hafa fengið lán erlendis til
Sogsvirkjunarinnar og fleiri
framkvæmda. Forsætisráðherr-
ann lýsti því yfir í útvarpinu 1
gærkvöldi, hvernig ástandið var
þegar að ríkisstjórnin tók við,
eins og hann orðaði það.
Það vantaði fjármagn í fram-
kvæmdir, sagði ráðherrann. Fyrv.
ríkisstjórn hélt uppi meiri fram-
kvæmdum en nokkurn tíman hef-
ur áður verið gert í þjóðarsög-
unni með innlendu fjármagni.
Auðvitað er það heilladrýgra að
nota innlent fjármagn og vinna
að því að fjármagnið myndist
í landinu, eins og fyrrverandi
ríkisstjórn gerði, heldur en að
stöðva alla fjármagnsmyndun í
landinu eins og núverandi ríkis-
stjórn hefur gert og reyna svo
að fleyta þjóðarskútunni áfram
með betli og erlendum lántökum,
sem fást eftir mikla eftirgang-
semi.
* Fyrrverandi ríkisstjórn vann
að fjármagnsmyndun, eins og sjá
má af því, að sparifjáraukningin,
sem er hin eðlilega undirstaða
framkvæmdanna varð mjög mikil
í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar. Á
þeim tæpum 3 árum, sem fyrrver
andi ríkisstjórn skt að völdum
var aukning sparifjársins sam-
tals um 650 milljónir- króna. Það
var vegna þess, að almenningur
treysti ríkisstjórninni og stefnu
hennar. Þá voru bankarnir ekki
tómir, þá var uppbyggingunni
haldið áfram með innledu fjár-
magni án þess að nokkur telj-
andi lán væru tekin erlendis.
Þegar núverandi stjórn tók við
völdum, snerist þetta við, og spari
fjármyndun hvarf. Lánsfjár-
kreppa kom, fjarmagn vantaði til
flestra hluta, eina vonin var að
fá erlend lán. Það tókst við síð-
ustu áramót að fá 65 milljónir
króna lán í dollurum. Síðan hafa
fengist 117 milljónir króna að
láni til virkjunar Sogsins, en ætl-
unin er að láta varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli njóta góðs af
virkjuninni. Það eru slagorð hjá
stjórnarliðum þegar þeir segja,
að fyrrverandi ríkisstjórn hafi
ekki átt kost á erlendum lánum.
Fyrrverandi ríkisstjórn gat feng-
ið lán til Sogsins með því að
tryggja varnarliðinu raforku
fram í tímann. Það þótti ekki
viðeigandi þá, þótt það þyki
ágætt nú.
FYRV. STJÓRN GAT FENGIÖ
LÁN FRÁ VESTUR-ÞÝZKA-
LANDI
Forsætisráðherra og fleirl