Morgunblaðið - 30.05.1957, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.05.1957, Blaðsíða 24
Veðrið ÞykkMr npp með vMUHdi SA-átt. Kaupmannahafnarbréf Sjá bls. 11. 120. tbl. — Fimmtudagur 30. maí 1957. DAS hlýtur nafnið ,,Hrafnista" og verð- ur fekið í notkun á sjómannadaginn Hátíðahöld með svipuðu sniði og áður ASUNNUDAG n. k., sjómannadaginn, verður Dvalarheimili aldr- aðra sjómanna formlega tekið í notkun við hátíðlega athöfn, sem verður liður í hátíðahöldum sjómannadagsins, hins 20. í röðinni. Hornsteinn að Dvalarheimilinu var lagður á sjómannadaginn 1954 og eru nú fullgerðir % hlutar hyggingarinnar. Þegar hefur 11% milljón króna verið varið til framkvæmdanna. HÁTIÐAHÖLDIN Henry Hálfdánarson, form. sjó- mannadagsráðsins, kvaddi ásamt öðrum meðlimum ráðsins, blaða- menn á fund sinn í gær til þess að skýra frá hátíðahöldum dagsins svo og framkvæmdum við dval- arheimilið. Geir Ólafsson, fram- kvæmdastj. hátíðahaldanna, kvað þennan sjámannadag verða svipaðan hinum fyrri. Á sunnu- dagsmorgun verður keppt í í- þróttum, en aðalhátíðahöldin fara fram við Dvalarheimilið eftir hádegið. Guðmundur Jónsson, óperu- söngvari, syngur og sr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup, minnist drukknaðra sjómanna. Þá lýsir Henry Hálfdánarson opnun Dval arheimilisins og afhendir það ný- ráðnum framkvæmdastjóra þess, Sigurjóni Einarssyni skipstjóra úr Hafnarfirði. Þá flytja ávörp Forseti fslands hr. Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, full- trúi ríkisstjórnairinnar, Lúðvík Jósefsson sjávarútvegsmálaráð- herra, fulltrúi útgerðarmanna Ólafur Thors, fyrrv. forsætisráð- herra og fulltrúi sjómanna, Rík- harð Jónsson, stýrimaður. Henrý Hálfdánarson afhendir afreksverðlaun dagsins svo og í- þróttaverðlaun. ENN VERÐUR BYGGT Að lokum verður Dvalarheim- ilið síðan opið almenningi til sýnis. Er Henry Hálfdánarson ræddi við blaðamenn í gær, skýrði hann frá því að fullgerð væru 70 herbergi, eins og tveggja manna fyrir vistmenn á heimil- inu, auk vistarvera starfsfólks. Brátt verður og lögð síðasta hönd á sjúkrastofur, sem rúma eiga 44 sjúkrarúm. Rúmgóðir vinnu- salir fyrir vistmenn eru í heim- ilinu. Allar sameiginlegar vist- arverur, eldhús, vinnusalir og slíkt, eru það stórar, að þær geta rúmað a.m.k. 300 vistmenn, en í framtíðinni er ætlunin að stækka heimilið svo, að það rúmi þann fjölda. Þegar hafa borizt milli 30 og 40 beiðnir um vist, en nokkrir eru þegar fluttir inn. REKSTUR Um rekstur heimilisins er það að segja, að vistargjöld verða sennilega svipuð og á öðrum hlið stæðum dvalarheimilum. Þó mun ágóði af rekstri kvikmyndahúss- ins minnka hann nokkuð. Kvik- myndasýningar eru nú hafðar í aðalbyggingunni, en þegar er full gerður grunnur að kvikmynda- húsi á lóð heimilisins og er þess vænzt, að það verði komið undir þak í haust. „HRAFNISTA" Opnun dvalarheimilisins er vissulega merkur viðburður. Margir hafa hér lagt hönd á plóg- inn. Fyrstu fjárframlögin til byggingarinnar tóku að berast árið 1942, en nú munu frjáls fram lög nema um 2 millj. króna. —■ Happdrætti Dvalarheimilisins hefur verið drýgsti tekjustofn og mun einnig verða það við áfram- haldandi byggingaframkvæmdir. Sennilegt er, að bráðlega fari aldnir sjómenn að flykkjast til dvalarheimilisins. Henrý Hálf- dánarson sagði að lokum, að vist- menn heimilisins mundu nefnast „Hrafnistumenn", því að Dvalar- heimilinu mun verða gefið nafn- ið „Hrafnista". 50 fulltrúar á aðalfundi Solumiðsföðvarinnar Aðalfundur Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna hófst í gær. Er hann haldinn í Tjarn- arkaffi og eru mættir á hon- um um 50 fulltrúar hraðfrysti húsa hvaðanæva að af land- inu. Elías Þorsteinsson, form. S. H. setti fundinn, ræddi um síðasta starfsár, greindi frá því hver framleiðslan hefði verið á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Þá las Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri skýrslu stjórnarinnar og reikninga. Kosið var í nefndir, fjárhags- nefnd og allsherjarnefnd. Að lokum gaf Jón Gunnars- son framkvæmdastj. skýrslu um fisksölur til einstakra landa á sl. ári og markaðsvið- horfin. í dag munu nefndir starfa, en fundur hefst aftur á föstu- dag kl. 10 árdegis. KIRKJA HÁTEIGSSAFNAÐAR. Á aðalsafnaðarfundi Háteigssókn ar, sunnudaginn 19. þ. m. var sýnt líkan ásamt teikningum af fyrirhugaðri kirkju safnaðarins. Teikningu gerði Halldór H. Jóns- son, arkitekt. — Mikil ánægja ríkti á fundinum með teikning- una og áhugi á því að hef ja fram- kvæmdir við kirkjubygginguna sem fyrst. □- AKRANESI, 29. maí. — Níu reknetjabátar komu hingað í dag með samtals 525 tunnur af síld. Aflahæstu bátarnir voru: Svanur 135 tn., Keilir 86 tn., og Sveinn Guðmundsson með 74 tn. Sjö trillubátar reru í gær. Flest ir þeirra fiskuðu um 500 kg. Einn fékk 1000 kg. — Oddur. □------------------------□ ðþekktur koparhlutur fundinn i gömlum husgrunni á Þingvölhim Tveir húsgrunnar fundnir þar sem ekki var vifað um býli áður FYRIR SKÖMMU fundust fornminjar í túni Þingvallabæjar, svokölluðu Miðmundatúni, er verið var að grafa fyrir jarð- streng, sem leggja á yfir í Valhöll frá vélarhúsi við Þingvallabæinn. Það mun hafa verið séra Jóhann Hannesson, þjóðgarðsvörður, er fyrstur manna komst að raun um að hér væri um fornminjafund að ræða, en þarna í túninu nærri bakka öxarár, eru tveir hús- grunnar og fundust nokkrir hlutir í þeim, þar á meðal hlutur úr kopar, sem enn er ekki vitað hvað er, þar sem enginn annar er til sambærilegur á Þjóðminjasafninu. Myndirnar eru af líkani af kirkjunni Sjúklingor sem snún heim og smiðir til nð gern sjúkrnhús ★ Snemma í gærmorgun kom fl'ugvélin Sólfaxi við á Reykjavíkurflugvelii. Var hún á leið frá Kaupmannahöfn til Narsarssuak á Vestur-Græn- landi og hafði 65 farþega inn- Dregið í hnppdrætti Sjúlistæðisílokksins eftir fún dngn Æskiíegt að allir geri skil fyrir helgi INNAN fárra daga fer fram dráttur í hinu glæsilega happdrætti Sjálfstæðisflokksins. Nokkrir hafa þó enn ekki gert skil fyrir þá miða, sem þeim hafa verið sendir og er áríðandi að þeir dragi ekki lengur úr þessu, þar sem svo stutt er þar til dráttur fer fram. Er þess vænzt að þeir sem enn hafa ekki gert skil, geri það nú fyrir helgina, og til þess að greiða fyrir því verður afgreiðsla happ- drættisins í Sjálfstæðishúsinu opin til kl. 10 annað kvöld, föstudag, og til kl. 5 á laugardag. Það skal tekið fram, að aðeins verður dregið úr þeim miðum, sem greiddir hafa verið þegar dráttur fer fram. Þá eru það vinsamleg tilmæli til þeirra, sem styrkja vilja starf- semi flokksins með því að kaupa miða, að þeir snúi sér til af- greiðslu happdrættisins í Sjálfstæðishúsinu eða hringi í síma 7100 og verða þeim, er þess óska, þá sendir miðar. anborðs. Viðstaðan í Reykja- vík var aðeins nokkrar klst. jr Meðal farþeganna voru nokkrir Grænlendingar, sem dvalizt hafa á heilsuhælum og sjúkrahúsum í Danmörku, m. a. vegna berkla, en hafa nú fengið bata. Dudvig Storr, ræðismaður sagði Mbl. að fyr- ir nokkrum árum hefðu far- sóttir gengið í Grænlandi og sjúkrahúsakostur þá verið takmarkaður, svo að flytja varð marga Grænlendinga í sjúkrahús í Danmörku. Nú hafa hins vegar verið reist stór sjúkrahús í landinu, svo sem sjúkrahúsið í Godt- haab, sem tekur. nokkur hundruð sjúklinga. Er nú unn- ið af miklum krafti að smíði sjúkrahúsa, skóla o.fl. bygg- inga. En með Sólfaxa var fjöldi smiða, sem munu dreif- ast út um landið og vinna að þessum byggingaframkvæmd- um. M. a. fer nú að hefjast smíði sjúkrahúsa í Scoresby- sund, en vegna sjúkrahús- skortsins varð fyrir nokkru að flytja veika konu þaðan til Reykjavíkiur, eins og lands- mönnum er kunnugt um. ÞYKK GÓLFSKÁN I öðrum húsgrunninum er þykk gólfskán, sem bendir til þess að þarna hafi fólk hafzt við. Er sá grunnur inni í miðju túninu. í hinum grunninum, sem er rétt við bakka árinnar, er gólfskánin þynnri og óreglulegri. Ennþá hefur ekki verið grafið í grunn- inn og er Mbl. sneri sér í gær tiJ dr. Kristjáns Eldjárns, þjóð- minjavarðar, kvaðst hann ekki geta sagt um hvenær það yrði gert. Kristján Eldjárn er nýlega kominn heim frá útlöndum, og kvaðst ekki hafa kynnt sér málið til hlítar. ÓÞEKKTUR KOPARHLUTUR Munir þeir er í rústunum fundust, voru brýni, leirplata, tundursteinn og hlutur úr kopar, sem ekki er vitað ennþá hvað er. Þjóðminjavörður kvað hann ekki ólíkan því, að hann gæti verið ofan af helgigöngumerki. Einnig kvað hann hlutinn í 11. aldar stíl. Ekki væri hægt að segja ennþá með vissu hvaða hlutur þetta væri, þar sem enginn sambæri- legur væri á Þjóðminjasafninu. Munir þessir fundust í húsgrunni þeim sem nær er ánni. Skjaldbreiðarferð í DAG verður farin ferð á Skjald breið á vegum Ferðafélags Is- lands. Lagt verður af stað frá Austurvelli á venjulegum brott- farartíma kl. 9. Um helgina, 2. júní verður gengið á Botnssúlur á vegum félagsins. EKKI VITAÐ UM BÝLI ÞARNA Munir þeir, sem fundust I grunninum, eru nú þegar komnir til Þjóðminjasafnsins. Sótti Gísli Gestsson, safnvörður, þá austur, strax og tilkynnt var um fund- inn. Þjóðminjavörður kvað fund þennan koma nokkuð á óvart, þar sem ekki hafi verið vitað um híbýli á þessum stað, áður. þýzkur vélaverk* fræðingur í heimsókn HÉR ER staddur vélaverkfræð- ingur, Erick Ude, frá þýzku verk- smiðjunni Klöckner Humboldt Deutz A. G., í Köln, en sú verk- smiðja framleióir báta- og skipa- dieselvélar, ennfremur loftkældar dieseldráttarvélar, dieselrafstöðv- ar og dieselvörubifreiðir. Þessi verksmiðja er ein sú stærsta í sinni grein í Evrópu og smíðaði hún fyrsta mótorinn, sem smíðaður var í heiminum. Hingað til landsins hefur verk- smiðjan selt um 300 loftkældar dieseldráttarvélar, ennfremur báta- og skipavélar, þar á meðal 1000 hestafla dieselvél í dráttar- bátinn Magna, og er það stærsta dieselvél, sem sett hefir verið I skip hér á landi. Umboðsmenn fyrir Klöckner Humboldt Deutz A.G. hér á landl er Hlutafélagið Hamar 1 Reykja- vík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.