Morgunblaðið - 26.06.1957, Side 15
Miðvikudagur 26. júní 1957
mnncriv fíL aðið
18
Tékkar unnu „landsliðið" 1:0
Alberl, Ríkhorður og Helgi
beztu menn íslnnds
TILRAUNALANDSLIÐ KSÍ mætti Tékkunum í síðasta leik þeirra
í gærkvöldi. Barátta var á köflum allhörð, en leiknum lauk
með sigri Tékkanna 1 marg gegn 0. Tékkarnir voru vel að sigri
komnir, en mörg voru tækifæri íslendinganna, t. d. var vítaspyrna
dæmd á Tékka, en markvörður varði (að vísu ólöglega) skot
Ríkharðs, sem ekki var vel miðað.
Íslenzka landsliðið komst allvel frá Jæssum leik, þó heita
mætti að á tveimur stöðum í liðinu væru göt. Voru það
stöður útherjanna, þessar veigamiklu stöður, sem eiga að
draga í sundur vöm mótherjanna. „Miðjutríóið“ og þá eink-
um Albert Guðmundsson og Ríkharður sköpuðu það sem
skapað var af hættulegum tækifærum, og margoft tókst
þeim að brjóta á bak aftur vöm Tékkanna, þó aldrei kæmi
markið.
★ ★ ★
Unglin^adagtir KSI 7. júlí
Þú verða nnglingaleikir og
keppni í ýmsum knattþrauium
IFYRRA var sú venja upp tekin að efna til „unglingadags“ KSÍ,
— dags þar sem hinir yngri menn knattspyrnunnar, menn
framtíðarinnar fengju að sína hvað í þeim hýr. Allir drengir
gengu til kappleiks í knattspyrnu, og í Reykjavík fór fram keppni
milli félagssveita í ýmsum knattþrautum, sem unglingarnir höfðú
áður getað kynnt sér hverjar væru. Nú verður annar slíkur dag-
ur, hinn 7. júlí n. k. og fyrirkomulag hið sama og í fyrra, ungl-
ingaleikir um allt land og efnt til keppni í knattþrautum.
Ein af 6 þrautum er drenglr S. og 4. aldursflokks í knattspynw
keppa í á unglingadaginn, 7. júlL Þrautin er: Knöttur er rekitu*
5 m milli súlna með 1 m bilL Undirbúa skal skot á S m kafla en
skjóta skal áður en knötturinn fer nær marki en 15 m. Stig veitt
samkvæmt myndinni. Ekkert stig fyrir að hitta markstengur —
hrökkvi knöttur af aukastöngum eru stig gefin eins og skotið
hefði hæft „ódýrari“ reitinn.
★HÆGT AF STAÐ
fsl. liðið fór hægt af stað og
leikaðferðin í vörninni — að láta
Halldór elta Kadraba miðherja,
en Guðjón taka að nokkru stöðu
hans, tókst ekki vel í byrjun. Á
S. mín var send knattsending á
milli þeirra og Pospichal inn-
herji notaði tækifærið, lék upp
fig skoraði.
Þennan galla i vörninni tók um
S0 mín. að þétta, en eftir það
varð hún allsterk einkum átti
Helgi í markinu Halldór Hall-
ðórsson miðvörður og Jón Leós-
*on góðan leik.
Er á leið hálfleikinn, breytti
liðið vörn í sókn og átti ágæt-
nr sóknarlotur að Tékkunum. —
Voru það Albert og Ríkharður
sem bezt byggðu upp, og mátti
þar margt fallegt sjá, sem þó
bar ekki fullan árangur, enda
voru sumir hinna illa með, eink-
mn útherjarnir og það gerði
gæfumuninn.
í síðari hálfleik varð leikurinn
harðari. Tékkarnir náðu nú á
rtórum köflum engum þeim helj-
artökum á leiknum sem þeir áð-
l»r hafa náð. Og aðsteðjandi
hætta á marki var meiri við
þeirra mark. Á 25. mín. fær ísl.
Kðið dæmda vítaspyrnu á Tékka
fii varnarleikmaður þeirra hafði
slegið frá með hendi. Ríkharður
fyrirliði iramkvæmdi spyrnuna,
en markv. varði vel. (En það
er almenn skoðun að hann hafi
farið ólöglega að).
Landsliðsnefndin var ánægð
með tilraunina með Albert, og
lýstu margir nefndarmanna á-
nægju sinni yfir styrkari liði með
hans ti'.komu í það.
Albert sagði aðspurður unl
leikinn, að sér hefði fundizt
hann helzt til rólegur. „Það
vantaði og meiri samleik,
knötturinn fór frá vöm eitt-
hvað fram tU framherjanna,
en þessa leið þarf að leika með
hann, byggja upp og skapa
tækifærin. Annars tókst
margt furðu vel“ sagði hann,
„nema helzt dómurinn“. Hann
kvaðst hafa mætt meiddur á
fæti til leiksins, og það hefði
háð sér nokkuð.
Við gengum tii Rikharðs,
fyrirliða og spurðum hann,
hvernig honum hafi líkað að
leika með Albert. Ríkharður
var að klæðast og virtist ekki
taka eftir að á hann var yrt.
Ég endurtók spurninguna. En
það var eins og hann væri
einn í búningsherberginu og
að þessari sneypuför lokinni
Tveim mín. síðar fær ísl.
liðið aukaspyrnu frá hægri.
Alhert framkvæmir, gefur
fyrir, en skallað er frá. Guð-
jón skallar að og það verður
-jkkur þvaga við mark
Tékka. Albert kemur aðvíf-
andi og spyrnir að marki. —
Knötturinn er á leið í netið,
er varnarleikmaður slær frá
með hendi. En það yfirsást
dómara. Voru honum nokkuð
mislagðar hcndur við dóm-
störfin.
En þó þessar svipmyndir frá
möguleikum ísl. liðsins séu fram
dregnar, til þess að sýna að liðið
barðist vel, þá áttu Tékkar sigur
skilinn sem raun varð á. Þeir
komust oft í allopin tækifæri, en
Helgi varði meistaralega vel í
þetta sinn og önnur skot Tékk-
anna fóru lengra eða skemmra
utan við markstengur.
En tékkneska liðið fékk ekki
í þessum leik að leika þær sam-
leikslistir er það áður hefur sýnt,
og í fyrsta sinn fékk vörnin nóg
að gera. Þeim var ekki gefið tæki
færi til uppbyggingar, og eins
urðu þeir að vera vakandi í
vörn. T. d. settu þeir mann til
að elta Albert hvert sem hann
fór hverju sinni.
lsl. liðið sýndi kraft og
nokkur tilþrif, en meiri mýkt
í leikinn skorti. Það var ekki
næg samvinna varnar og sókn
ar, og ekkl uppbyggt af veru-
gengum við af fundi hins
„kurteisa“ fyrirliða fedeozka
landsliðsins. — A.St.
Samhomur
Kristniboðshúsið Betanía, Laufás-
vegi 13. — Almenn samkoma £
kvöld kl. 8,30. Séra Jónas Gísla-
son talar. — Allir velkomnir.
legum þunga í framlinunnl
nema helzt hjá Albert og
RíkharðL
Vömin átti góðan leik sem
fyrr segir. Framverðirnir
Guðjén og Sveinn voru nriður
sín og langt frá sinni fyrri
getu. Útherjarnir voru mjög
Ula með, en miðjutríóið átti
góðan leik.
Tilraunin með Albert meðal
Akurnesinganna tókst vel að okk
ar dómi. Og það hljóta allir að
fagna Albert í liðinu, svo mikl-
ir eru yfirburðir hans yfir aðra
ísl. leikmenn hvað snertir knatt-
hæfni, uppbyggingu og yfirsýn.
Hann gaf liðinu nú sterkan lit,
og samvinna hans og Ríkharðar
var góð.
Það þarf ekki að skýra fyrir
unglingaleiðtogum félaganna eða
Félagslíf
Framstúlkur!
Æfingar verða framvegis á
Framvellinum á mánud. og mið-
vikud. kl. 9 e.h. — Mætið allar.
Reykjavíkurmót 3. flokks AogB:
I kvöld leika K.R. og Þróttur á
Háskólavellinum kl. 20.00 í Rvík-
móti 3. flokks A og strax á eftir
K.R. og Víkingur í Rvíkurmóti 3.
flokks B. — Mótanefndin.
Miðsumarsmót 1. fiokks.
1 kvöld leika K.R. og Þróttur í
Miðsumarsmóti 1. flokks á Mela-
vellinum kl. 21.00. — Mótanefndin.
Farfuglar, ferðamenn!
Um næstu helgi verður farin
gönguferð á Heklu. Á laugardag
verður ekið að Næfurholti og gist
þar í tjöldum. Á sunnudag verður
gengið á Heklutind.
Skrifstofan er opin í kvöld að
Lindargötu 50 milli kl. 8,30 og 10.
Áskriftarlisti fyrir sumarleyfis
ferðina í Þórsmörk 13—21 júlí
liggur frammi.
Vinna
Hreingcmingar.
Sími 2173. Vanir og liðlegir
menn.
drengjunum sjálfum fyrirkomu-
lag leikjanna. Það er ætlunin að
allir drengir (eða sem allra flest-
ir) á hverjum stað, taki þátt í
einum kappleik unglingadagsins.
Er ætlazt til að leikirnir fari fram
árdegis. Takmarkið er að sem
allra flestir drengir verði með í
leikjum unglingadagsins. Að
launum fá drengirnir SJleg við-
urkenningarspjöld, sem ungl-
inganefnd KSI hefur sent út.
Auk leikjanna verða knatt-
þrautirnar. Drengir 3. fl. keppa
í 5 manna sveitum um bikar er
Lúllabúð gaf. f 4. fl. keppa dreng
ir í 5 manna sveitum um bikar
er Jón Magnússon gjaldkeri KSÍ
gaf. Settar hafa verið upp á stórt
spjald 6 þrautir og í þeim verður
keppt. Þetta spjald verður sent
út, og er einnig hægt að fá það
í skrifstofu ÍBR, Hólatorgi 2. Við
munum á næstu dögum skýra
þrautirnar smám saman. Sú
fyrsta er hér að ofan. En dreng-
ir! Takið nú til við að æfa þraut-
irnar. Tíminn tU stefnu er skamm
Hjartanlega þakka ég ykkur öllum heima á ættjörðinni,
sem heiðruðuð mig sextugan með hlýjum og virðulegum
kveðjum og góðum gjöfum. Vinarhugur ykkar hitar mér
um hjartarætur um ókomin ár. Verið þið öll blessuð.
Grand Forks, N.-Dakota, U.S.A.
19. júní 1957.
Richard Beck.
Beztu þakkir færi ég öllum þeim, sem minntust mín á
áttræðisafmæli minu
Þuríður Sigmundsdóttir,
Njálsgötu 55.
ur.
Konan míq
INGIBJÖRG GUNNARSOÓTTIR
Eyrarbakka, andaðist á Landspítalanum þaim 25. þ. m.
Fynr hönd aðstandenda
Pétur Oisen.
Útför móður okkar
MARGRÉTAR SIGURÐAROÓTTUR
frá Brekkum,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. júni kL 1,30.
Blóm afþökkuð. ^ i
Ólafur Á. Guðmundsson,
Sigurður Guðmundsson. k t
Þökkum samúð við andlát og jarðarför móður okkax
ÓLÍNU BJARGAR BENEDIKTSDÓTTUR
frá Sauðárkróki
Böm og tengdabörn.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug viS
andlát og jarðarför
HALLDÓRS HALLDÓRSSONAR
fulltrúa.
Aðstandendur.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu
okkur samúð við andlát og jarðarför eiginmanns mins og
föður okkar
FRIÐRIKS FILIPPUSSONAR
Kirkjuveg 18, SelfossL
Sérstaklega þökkum við læknum, hjúkrunar- og starfs-
liði Vífilstaðahælis fyrir frábæra umönnun í veikindum hins
látna.
Guðrún Guðmundsdóttir,
og synir.
Anægðir með tilraunina
— en Ríkhaiðor þöguU