Morgunblaðið - 26.06.1957, Page 16
VEÐRIÐ
Haegviðri, léttskýjaS.
139. tbl. — MWvikud&gur 3«. júaí 1957.
Ræða borgarsfjóra
lf. júní. — Sjá bfe. 9.
Um 30 þús. mál til Siglu
fjarðar s.l. sólarhring
Engin veiði síðdegis I gær
Mynd þessi er tekin í gær við nafngift Einarsgarðs. Á myndinni ent
frá hægri: Gunnar Thoroddsen, horgarstjóri, frú Helga Hdga-
dóttir, Eiríkur Einarsson Helgasonar, frú Ása Norberg og Aðal>
steinn Norberg, kjörsonur Einars.
CróðrarstöBvargarðurinn
nefndur „Einarsgarður"
í minningu Einars Helgasonar
IGÆR var garðinum við Gróðrarstöðina, á gatnamótum Hring-
brautar og Laufásvegs, gefiö nýtt nafn við stutta athwfn,
sem þar fór fram. Gaf Gunnar Thoroddsen borgarstjóri garðinum
nafnið Einarsgarður, í því tilefni að í gær voru liðin 98 ár frá
fæðingu Einars Helgasonar, frumkvöðuls í garðyrkju, en hann
stofnaði garðyrkjustöð á þessum stað fyrir tugum ára.
Hópferð
í Þórsmörk
HEIMDALIjUR FUS mun um
frá Valhöll við Suðurgötu kl. 3
næstu helgi efna til hópferðar í
Þórsmörk. Lagt verður af stað
• h. á laugardag og komið til
baka á sunnudagskvöld.
Allar upplýsingar varðandi
ferðina verða gefnar á skrifstofu
félagsins, sem er opin alla virka
daga frá kl. 10—6. Sími 7103.
Fádæma þurrkar
í S-Þingeyjarsýslu
ÁRNESI, S-Þing. — Sláttur er
aðeins að hefjast á stöku bæ, en
hann mun ekki almennt hefjast
á næstunni. Spretta er með ein-
dtemum léleg vegna hinna lát-
lausu þurrka, sem verið hafa í
aiit vor. Má heita að tæplega hafi
komið dropi úr lofti í margar
vikur. Einn daginn blotnaði að-
úiu á steinum. —H.
Þrír „Fossaru
stöðvaðir
ÞRÍR Fossar Eimskipafélagsins
eru nú komnir hingað til Reykja-
víkur og hafa stöðvazt vegna
verkfallsins. Verið er að losa
Goðafoss, sem kom fyrir nokkr-
um dögum, en ekki hefur verið
hægt að byrja á losun Lagarfoss,
sem kom um helgina, fullhlaðinn
og í gær kom svo Tröllafoss vest-
&n irá Bandaríkjunum.
Tvö skemmtiferða-
skip væntanleo;
HINGAÐ munu koma í sumar
tvö skemmtiferðaskip og nálgast
uú óðum komudagur þeirra. Er
annað skipanna hið norska haf-
skip, Bergensfjord, en hitt er
luxusskipið Caronía. Er hið fyrr
nefnda væntanlegt 8. júlí en hið
síðarnefnda daginn eftir. Skipin
flytja hundruð ferðamanna, sem
hér munu hafa eins dags dvöl.
T VIKUNNI sem leið, fundust
1. beinagrindur á kirkjustaðn-
um Lundarbrekku í Bárðardal.
ÁÁ Verið var að grafa fyrir hey-
hlöðu og var jarðýta notuð.
Er þetta kippkorn frá þar sem
kirkjan nú stendur. Jarðýtan
kom þarna niður á margar graf-
ír og taldist mönnum beina-
grindurnar vera 40 talsins. Lágu
þær í þeim lögum og var hið
efra ofarlega í moldinni, en neðra
nokkru dýpra. Sum beinin virt-
ust vera af mjög stórum mönn-
um.
ýtÁ Það var haldið áfram að
grafa grunninn fyrir hey-
hlöðunni, þrátt fyrir beinafund-
JouL. Var beinunum safnað sam-
IGÆR var komið norðvestan
kul á síidarmiðin og lítil sem
engin veiði verið síðan um há-
degi. Nær þetta yfir stórt svæði
út af Stranda&runnshorni. Taldi
síldarleitin á Siglufirði að ef
lygndi væru veiðihorfur góðar.
Landanir voru stöðugar allan
s.l. sólarhring og stóðu yfir í gær-
kvöldi er blaðið átti tal við Siglu-
fjörð. — Alls bárust á land um
30 þúsund mál s.l. sólarhring.
Fer hér á eftir skýrsla yfir skip
sem lönduðu fram til kl. 6 í gær-
kvöldi:
Hringur 600, Sigurfari SH 450,
Mímir 450, Þórunn 500, Nonni
400, Reynir 600, Sæborg KE 600,
Jón Finnsson 700, Björg SU 800,
Sæborg GK 400, Flóaklettur 700,
Gengið á Heklu
nu næstu helgi
FARFUGLADEILD Reykjavikur
ráðgerir gönguferð á Heklu um
næstu helgi. Lagt verður af stað
kl. 3 á laugardaginn og ekið um
Rangárvelli að Næfurholti og
tjaldað þar.
Um kvöldið verður gengið nið-
ur í Hraunteig. Á sunnudag verð- |
ur ekið upp á Bjalla og það ná-
iægt Heklu, sem komist verður.
Síðan verður gengið að axlargígn-
um og þaðan á Heklutind. Á heim-
leiðinni verður ekið vestur yfir
Ytri-Rangá og haldið heim um
Landsveit og Holt.
Ræjartogari fer
á síldveiðar
TOGARINN Jón Þorláksson, sem
er eign Bæjarútgerðar Reykja-
víkur, var tekinn upp í slipp í
gærdag. Það mun vera fastákveð-
ið að togarinn fari norður á síld
og var í gær verið að búa skipið
á veiðarnar og vonast til að hægt
verði að leggja af stað í nótt er
leið eða þá árdegis í dag. Ekki
er kunnugt um aðra Reykjavík-
urtogara, sem fara munu á síld-
veiðar, nema þá ef vera kynni
að Egill Skallagrímsson færi, en
hann er nú á veiðum.
an og eru þau nú geymd að
Lundarbrekku, en þau verða
greftruð í kirkjugarðinum þar á
staðnum. —H.
86 Dalabændur og
húsfrey jur á ferð
ÁRNESI, S-Þing., 25. júní — Hús
freyjur og bændur úr Dalasýslu
eru hér á ferð, alls 86 manns.
Fór ferðafólkið um Mývatnssveit
í gær á leið sinni til Austur-
lands. Er fólkið væntanlegt að
austan á morgun og mun það
hafa viðdvöl í N-Þing., en gista
hér í suður sýslunni á sveita-
I bæjum aðra nótt. —H.
Sæhrímnir 400, Þorbjörn 500,
Gulltoppur 500, Langanes 550,
Sæfaxi AK 450, Öðlingur 600,
Hafþór RE 800, Akurey 300, Ár-
sæll Sigurðsson 900, Víðir II. 750,
Björg VE 100, Dux 450 og Gull-
borg 900.
Bær brennur
íHúnnvatnssýsln
BLÖNDUÓSI, 25. júní: - Um
fjögur leytið í gær kom upp eldur
í bænum að Stóra-Búrfelli í Svína-
vatnshreppi í Austur-Húnavatns-
sýslu og brann bann til grunna.
Þetta var torfbær, en við hann
hafði verið reist einlyft steinhús.
Kviknaði í torfbænum, sennilega
út frá ofnröri. Brann hann til ösku
og sömuleiðis steinhúsið nema
hvað veggirnir standa.
Nokkuð af innanstokksmunum
og fatnaði náðist út, en þó hvergi
allt. Bændur á Stóra-Búrfelli eru
Daníel Þorleifsson, sem búið hef-
ir þar lengi og tengdasonur hans,
Gísli Jónsson. — Fréttaritari.
Eldur í Steinull
HAFNARFIRÐI—Klukkan rúm-
lega 8 í gærmorgun var slökkvi-
liðið kvatt að Steinull h.f. hér
upp með læknum, en þar hafði
komizt eldur í nokkuð af birgð-
um verksmiðjunnar. Að vísu
brennur steinullin ekki, en um-
búðir, sem þar voru, brunnu nokk
uð og skemmdust af reyk. Er
baldið að kviknað hafi í út frá
neistaflugi, sem barst inn í birgða
geymsluna. Lagði mikinn reyk
upp úr húsinu, en að öðru leyti
munu skemmdir ekki hafa orðið
sérlega miklar. Tókst slökkvilið-
inu fljótlega og greiðlega að
slökkva eldinn, en eins og svo
oft áður, kom hinn nýi slökkvi-
bíll, sem búinn er háþrýstitækj-
um, að góðum notum við slökkvi-
starfið. —G. E.
Mórannsánir á
Akranesi
AKRANESI, 25. júní. — Fyrir
rúmum hálfum mánuði var byrj-
að að mæla hve mikið hagn af
mó er fólgið hér í jörðu í flóan-
um milli kaupstaðarins og Akra-
fjalls og sömuleiðis í mýrunum
beggja megin inn með fjallinu.
Mælingar eru gerðar með 100
m millibili og tekin jarðvegs-
sýnishorn. Tilgangur mælinganna
er að rannsaka mómagnið og mó-
gæðin ef vera kynni að takast
mætti að hagnýta móinn til elds-
reytis fyrir Sementsverksmiðj-
una. Mælingunum stjórnar á veg
um Atvinnudeildar háskólans
Óskár Bjarnason efnafræðingur
og Tómas Tryggvason jarðfræð-
ingur. — Oddur.
FRUMKV ÖDULL I
GARDYRKJU
Um kl. 4.30 í gær voru saman
komnir í þessum fagra garði,
borgarstjóri, bæjarráð Reykja-
víkur, ættingjar Einars Helga-
sonar, garðyrkjuráðunautar bæj-
arins og blaðamenn, auk fleiri
gesta.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri mælti nokkur orð og minnt
ist Einars Helgasonar, en hann
átti um skeið sæti í bæjarstjóm
Reykjavíkur.
Einar Helgason var einn helzti
frumkvöðull í garðyrkju hér á
landi á sínum tíma, sagði borg-
arst’jóri, hlaut góða menntun á
unga aldri í þeim fræðum og
kenndi mörgum ungum mönnum
garðyrkju síðar á ævinni. Kunn-
ur er hann af hinum ágætu bók-
um sínum Hvannir og Bjarkir, og
óhætt er að segja, að þáttur hans
í íslenzkri garðyrkju var drjúg-
ur og verka hans hefir lengi
gætt.
Einar Helgason stofnaði til
gróðrarstöðvar á þessum stað, og
í dag ákvað bæjarráð, sagði borg-
arstjóri að nefna þennan garð
„Einarsgarð" í minningu um
þennan ágæta garðyrkjumann.
GRÓÐURSÆLL GARÐUR
Þá tók til máls Hafliði Jóns-
son garðyrkjuráðunautur bæjar-
ins. Lýsti hann garðinum en und-
anfarið hafa nokkrar umbætur
verið gerðar í honum, en bærinn
eignaðist garðinn árið 1943. Trén
í garðinum eru há og reisuleg,
40—50 ára gömul. A gagnstíga
hafa verið lagðar hraunhellur,
kantar hlaðnir upp úr höggnum
steini og tröppur gerðar upp á
Laufásveginn.
Þá var og grasfræi sáð fyrir
þrem vikum í garðinn og fögur
blóm þar gróðursett. Fylgdi Haf-
liði gestum um garðinn en hann
er hinn gróðursælasti og mikii
bæjarprýði. I honum stendur sem
kunnugt er stytta Pomonu, garS-
yrkjugyðjunnar rómversku. —
Verkstjóri við framkvæmdirnar 1
garðinum hefir Björn Kristófers-
son verið og Baldur Maríasson
séð um garðyrkjuna.
I brekkunni upp að Laufás-
veginum hefir blómabreiða verið
gróðursett sem myndar nafn Ein-
ars Helgasonar í fögrum litum
og ártölin 1867—1957.
Farmannadeilan
óleyst
FUNDUR sáttanefndarinnar í
í Farmannadeilunni stóð frá
kl. 2—8 i gærkveldi. Ekki náð
ist samkomulag á þessum
fundi.
VatnsieiðsEuæðar Akra-
ness endurnyjaðar
AKRANESI, 25. júní. — Hálft
annað ár er nú liðið síðan skipt
var um pípur í vatnsleiðslu Akra
ness frá vatnsgeyminum í Berja-
dalsgljúfrunum og niður að dælu
stöð, sem er efst í kaupstaðnum,
þar sem þjóðvegurinn byrjar. —■
Voru þá lagðar 12 þumlunga
asbestpípur í stað tréstokkanna
gömlu sem voru aðeins 8 þuml-
ungar í þvermál og hriplekir.
Vertíðin var þá að hefjast og
tíminn leyfði ekki að lengra væri
farið. Þess vegna eru tréstokk-
arnir enn í aðalleiðslunni frá
dælustöðinni ofan á Silfurtorg.
Nú er búið að grafa skurð nið-
ur að sjúkrahúsinu og þangað á
aS leggja 12 þumlunga pípur en
þaðan niður á torgið 8 þumlunga
pípur. Þegar því er lokið verða
allar vatnsleiðsluæðar Akranesa
úi asbesti og tréstokkarnir úr
sögunni. — Oddur.
Sumariör
Varðar
AKVEDIÐ hefur verið að hin árlega sumarför Varðarfé-
lagsins verði farin sunnudaginn 7. júlí n.k. Að þessu
sinni verður farið um Árnessýslu. Farið verður í Þjórsárdal
og skoðaðir ýmsir merkisstaðir þar og viðar í sýslunni. Síðan
verður nánar skýrt frá för þessari.
Komið niður á 40 beina-
grindur í Bárðardalnum