Morgunblaðið - 14.07.1957, Blaðsíða 2
MORGV.NBL'ABIÐ
Sunnudagur 14. júlí 19B7
Seyðfirðingar fagna nýjum
áfanga í aívinnumálum
rÖSTUDAGURINN
var mikill gleðidagur
meðal Seyðfirðinga; merkum
og mikilvægum áfanga var
náð í þeirri viðleitni þeirra
að skapa þessum vinalega bæ
með um 700 íbúum sinn fyrri
sess sem helzta síldarbæjar á
Austfjörðum. Þennan dag
var síldarverksmiðja þeirra,
sem að mestu hefur verið
endurhyggð, tilbúin til þess
að taka á móti síld í bræðslu.
Þessa áfanga var minnzt í ræð-
um, sem haldnar voru í sam-
komuhúsinu þar af heimamönn-
um sjálfum og aðkomumönnum,
gestum Seyðfirðinga þennan dtg,
sem komu frá Reykjavik, til
þess að skoða mannvirkið, sem
þar hefur risið frá grunni að
heita má á aðeins sex vikum.
Þangað austur kom Eeysteinn
Jónsson ráðherra. Hann var að
fara þegar aðrir gestir frá
Reykjavík, komu þangað í bílum
frá Egilsstaðaflugvelli, um hina
fögru Fjarðarheiði.
í þessum hópi aðkomumanna
úr Reykjavík voru bankastjórar
Útvegsbankans, bankastjóri Fram
kvæmdabankans, forstjóri Fisk-
veiðisjóðs og þá var þar fulltrúi
úr fjármálaráðuneytinu, sérstak-
ur fulltrúi iðnaðarmálaráðherra
og blaðamenn frá dagblöðum
Reykjavíkur. Seyðfirðingar fögn
uðu komumönnum vel á tröpp-
um samkomuhússins. Fánar voru
víða á hún í tilefni af þessum
merka degi.
Strax hélt hópurinn inn að síld-
arverksmiðjunni og var þar stað-
ið alllengi við, til þess að skoða
mann virkið og vélarnar. Sumar
þeirra voru nýjar af nálinni,
sumar smíðaðar hjá Vélsm.Héðni
sem árið 1936 reisti á þessum
sama stað litla síldarverksmiðju,
Nokkrar vélar voru fegnar að
utan en aðaluppistaðan í vélakost
síldarbræðslunnar er hluti af
vélum Síldarverksmiðjunnar í
Ingólfsfirði.
Þó ber þess að geta, að Síldar-
verksmiðjan í Ingólfsfirði hefir
jafnframt verið yfirfarinog er þar
enn í ágætu standi 2500 mála
verksmiðja, en frá upph. var þar
að öllu sérl. vel búið af hinum
trausta og vel kunna útvegsm.,
Geir Thorsteinssyni, sem er eig-
andi og upphafsmaður þeirrar
verksmiðju.
BJARTSÝNt
Eftir að síldarverksmiðjan
hafði verið skoðuð var farið í hið
nýja fiskiðjuver, sem verið er að
byggja.
Að lokum var öllum boðið til
kvðldverðar í samkomuhúsinu.
Meðan setið var að úrvals hangi-
kjðtl, fengu menn að hlýða á
ræðu er Eyst. Jónss., hafði flutt
þar um daginn. Var ræða ráðh.
um margt hin ágætasta og merki-
leg þótti hún fyrir þær sakir hve
ráðherrann virtist hafa verið i
góðu skapi þvi hann sló á strengi
bjarsýninnar, sem er þó að því
er flestum virðist af ræðum hans
öðrum, ekki vera hans sterka
hlið. Þessu var eðlilega vel tekið
af Seyðfirðingum, en einkum
snérist ræða ráðherrans um síld-
veiðar og síldariðnað og uppbygg
ingu fiskiðnaðarins á fjörðunum
þar eystra.
ALÞINGISMAÐURINN
ÞAKKAR
í þessu kvöldverðarþoði voru
ræður fluttar. — Björgvin Jóns-
son alþingismaður kjördæmisins
talaði fyrstur og færði fram
þakkir til þeirra aðila, sem á
einn eða annan hátt hefðu stutt
framgang málsins og mínntist í
því sambandi frumkvæðis fyrrum
alþingismanns Seyðfirðinga
Lárusar Jóliannessonar og fyrrum
ríkisstjórnar. Þá vék hann sér-
staklega máli sínu að þæíti Út-
vegsbanka íslands, og þá sérstak-
lega fyrrverandi bankastjórnar,
sem veitti Seyðfirðingum mjög
mikla fyrirgreiðslu og úrlausn
mála sinna. Síðan færði hann nú-
verandi ríkisstjórn og banka-
stjórn Útvegsbankans þakkir, því
ekki skyldi á neinn halla. Al-
þingismaðurinn sagði að Útvegs-
bankinn hefði lánað til verk-
smiðjubyggingarinnar nærri 5
miljónir kr., en benti á að enn
vantaði mikið fé til þess að gera
síldarverksmiðjuna fullkomna,
því reisa þyrfti lýsisgeyma og
mjölskemmur, en það kostaði
eðlilega mikið fé. Alþingism.,
kvaðst hafa heyrt að sumir teldu
ofspennu vera í fjárfestingarmál-
um Seyðfirðinga, en þess yrðu
menn þá að gæta um leið, til
hvers fénu væri varið.
SÍÐSTA VERK FRÁFARANDI
BANKASTJÓRNAR
Jóhann Hafstein bankasfjóri,
þakkaði fyrir hönd aðkomu-
manna hinar rausnarlegu mót-
tökur Seyðfirðinga og óskaði
þeim til hamingju með þennan
áfanga. í ræðu sinni vék Jóhann
nokkuð að þeim sess er Seyðis-
fjörður hefði skipað hér á landi
á síldarárunum miklu og þeirri
miklu uppbyggingu sem þar átti
sér stað. Hann vék einnig að því
hve alls staðar hafi verið reynt
að bregða skjótt og vel við til
þess að hagnýta síldina cg hefðu
íslendingar víða byggt síldar-
verksmiðjur í þessu skyni, en
svo hefðu óviðráðanlegar orsakir
Ungir Framsóknar
menn heíja útgáfu
tímarits
NÝL.EGA er komið á markaðinn
nýtt rit um bókmenntir og menn-
ingarmál, sem Dagskrá nefnist.
Er það Samband ungra Fram-
sóknarmanna sem rit þetta gefur
út og er það endurreist, en sam-
bandið gaf áður út samnefnt rit.
Ritstjórar Dagskrár eru þeir
Sveinn Skorri Höskuldsson stud.
mag. og Ólafur Jónsson blaða-
maður.
Dagskrá er vandað rit og fal-
lega úr garði gert. í fyrsta heftinu
er m. a. viðtal við Halldór Kilj-
an Laxness; þá er þar kafli úr
nýju leikriti eftir Agnar Þórðar-
son; þá eru í heftinu ljóð eftir
Ekki draga
fyrir sóiina
ÞEGAR fólk fer burt úr bænum
dregur það oft „rúllugardmur"
sínar fyrir gluggana til þess að
skýla húsbúnaðinum fyrir sólinni.
Það er hvimleitt að sjá þessar leið
inda „rúllugardínur" fyrir þá
sem fram hjá ganga, og hví þá
ekki að breiða t.d. gömul lök
og stykki yfir húsgögnin og t.d.
dagblöð yfir gólfteppið?
AKRANESI, 13. júlí. — Hingað
er von á togaranum Akurey í
kvöld með fullfermi af karfa frá
Vestur-Grænlandi. Togarinn er
með fulla lest og 10—15 lestir á
þilfari. — Oddur.
EGILSSTAÐIR, 13. júlí. — Veð-
ur hefur verið mjög gott undan-
farið. Heyskapur hefur gengið
ágætlega. Þurrkur hefur verið
og glaðasólskin á hverjum degi.
Bændur eru ánægðir með gras-
sprettu og útlit yfirleitt gott.
— Ari.
„BAKS“ EYSTEINS
Frá vígslu síldarverksmiðjunnar
NESKAUPSTAÐ, 13. júlí
orðið til þess að margar þessar
verksmiðjur hafa staðið aðgerð-
arlausar í fjöldamörg ár. Það
mætti segja, að það væri tímanna
tákn, að flytja að nokkru verk-
smiðjuna vestan frá Ingólfsfirði
til Seyðisfjarðar og vonandi
myndi verksmiðja þeirra Seyð-
firðinga nú brátt fá fyrstu síld-
ina til bræðslu.
Bankastjórinn vék nokkuð að
þætti Útvegsbankans í máli þessu,
Það var meðal þess sem yfirstjórn
Útvegsbankans h.f. lagði síðast
hönd að, veita lán til þessa fyrir-
tækis Seyðfirðinga og höfðu þar
allir verið á einu máli um þær
leiðir, sem nú hafa verið farnar
og færði Jóhann Hafstein að lok-
um árnaðaróskir í nafni Útvegs-
bankans.
Þessu næst flutti Eggert Þor-
steinsson alþm. ræðu og færði
kveðjur iðnaðarmálaráðherra. —
Síðan tóku þeir til máls Áxni Vil-
hjálmsson erindreki Fiskifélags-
ins, Gunnþór Björnsson forseti
bæjarstjórnar og Jóhannes Sig-
fússon bæjarstjórL
FRÁBÆRT VERK UNNID
Á SKÖMMUM TÍMA
Allir ræðumenn í þessu kvöld-
verðarboði luku hinu mesta
lofsorði á það verk sem Vél-
smiðjan Héðinn og starfsmenn
hennar, og aðrir iðnaðar- og verka
menn þar í bænum hefðu unnið.
Þessi vinsamlegu ummæli þakk-
aði Sveinn Guðmundss., forstj. að
lokum bað aðkomumenn að rísa
úr sætum sínum og hylla Seyðis-
fjörð og Seyðfirðinga með kröft-
ugu ferföldu húrra. Var nú komið
framundir miðnætti og tóku
Reykvíkingarnir að búast til heim
ferðar. Var Seyðisfjörður kvadd-
ur nokkru fyrir miðnætti og var
þá fagurt yfir þennan vinalega
bæ að horfa og spegilsléttan fjörð
inn, en í fjallseggjum hékk hin
víðkunna Austfjarðaþoka.
allmörg ung ljóðskáld, og þættir
um menningarmál. Sveinn Skorri
ritar stjórnmálagrein sem hann
nefnir Vegprestínn, allmargir
ritdómar eru þar og þættir um
tónlist og leikhúsmál.
Jóhannes Jörundsson hefir
teiknað kápusíðu og myndir í
heftið.
REYÐARFIRÐI, 13. júlí. —
Smárakvartettinn frá Akureyri
söng hér í gær, við mikla að-
sókn og ágætar undirtektir. Er
þetta í fyrsta skipti sem kvart-
ettinn heldur söngskemmtun hér.
Héðan fóru þeir til Eskifjarðar
og munu halda söngskemmtun
þar. Munu þeir síðan ferðast um
hér víðar og syngja. — Arnþór.
HELLU, Rangárvöllum, 13. júlí.
Sláítur gengur vel, enda hafa
verið stöðugir þurrkar undan-
farnar tvær vikur. Búið er að
hirða mikið í hlöður. Spretta
hefur verið góð.
fóníuhljómsveit íslands kom til
Neskaupstaðar í gær á hljóm-
leikaför sinni um Austfirði.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað
tók á móti hljómsveitinni og
bauð henni til kvöldverðar að
Hótel Grænuborg fyrir hljóm-
leikana, er hófust kl. 21.00 í
barnaskólahúsinu.
Jón Þórarinsson framkvæmd-
arstjóri hljómsveitarinnar bauð
gesti velkomna, en Páll ísólfsson
stjórnaði hljómsveitinni.
Leikin voru verk eftir Mozart,
Schubert, Brahms og Kéler-Béla.
Kristinn Hallsson söng tvær arí-
ur úr Brúðkaupi Fígárós og tvö
íslenzk lög, Norður við neim-
skaut eftir Þórarin Jónsson. og
Eysteinn Jónssðn ráðherra og
Vilhjálmur HjálmarsSon fyrrv
alþingismaður héldu fund hér sL
fimmtudag. Var fundurinn frém
ur fámennur, nálægt 60 manns
þegar flest var.
Engar framsöguræður voru flutt
ar en einungis svarað fyrirspurn-
um fundarmanna. Mesta athygH
vöktu svör ráðherrans varðandi
varnarmálin og landhelgismálið.
Kvað hann það hafa verið ætlun-
ina að láta varnarliðið víkja úr
landinu en ástand í alþjóðamál-
um hefði orðið svo ískyggilegt
í fyrrahaust að með samþykki
allrar stjórnarinnar hefði þeina
fyrjrætlunum verið frestað og
þannig stæði málið í dag og hann
gæti ekki meira um það sagt nú.
í landhelgismálinu hefði ekk
ert gerzt annað en athuganir og
svo hefði Hans G. Andersen unn-
ið að því eingöngu síðustu 5 ár
in að kynna erlendum þjóðum
afstöðu íslendinga og gerðir
þeirra í málinu. Ekkert væri bú-
ið að ákveða hvenær ætlunin
væri að færa friðunarlínuna.
VANTAR LÖMB
Hér í sveit er geysimikið af
tófu sem gerir talsverðan usla í
kindum. — Oft má sjá tófur ganga
eftir þjóðveginum. Hefur tekizt
að vinna nokkur greni og ef yrð-
lingar nást ekki úr þeim eru látn-
ir eitraðir fuglar inn í þau. —
Leggst tófan aðallega á lömbin.
SETTIR HJÁ MEÐ VEIÐILEYU
Talsvert var af hreindýrum hér
í vetur og allt fram á sumar. —
Við hér í sveitinni höfum alltaf
verið settir hjá með veiðileyfi, en
við höfum nú sótt um leyfi til
menntamálaráðuneytisins og von-
umst til að fá það nú.
Tiltölulega stutt er nú siðan
Breiðdalsheiðarvegurinn var
opnaður. Og í gær var lokið við
viðgerð á aðalþjóðleiðinni suður
að Berufirði. — Okkur finnst
seint ganga á vorin að koma
þjóðvegunum í akfært stand, en
Breiðdalsheiðarvegurinn er bæði
vondur og hættulegur og dregur
það eðlilega mikið úr ferðamanna
straumi hingað.
Nú stendur til að byrjað verði
á nýjum vegi á Breiðdalsheiði
fyrir 100 þús. kr. og einnig hefur
fengist iítil fjárveiting til þriggja
vega hér í dalnum, 150 þús. kr.
Ekki er enn byrjað á þeim fram-
Lindin eftir Eyþór Stefánsson.
Auk þess sungu þeir tvísöng
Kristinn Hallsson og Þorsteinn
Hannesson í Sólsetursljóði eftir
Bjarna Þorsteinsson.
Af hálfu áheyrenda flutti Magn
ús Guðmundsson kennari, Sin-
fóníuhljómsveitinni þakkjir, en
Jón Þórarinsson svaraði og hljóm
sveitin lék sem aukalag i lokin
lagið Austurland eftir Inga T.
Lárusson.
Hljómleikarnir voru mjög vel
sóttir og fögnuður áheyrenda
mjög mikill.
Bæjarstjórinn bauð tónleika-
fólkinu til kaffidrykkju eftir tón
leikana, en það fór til Eiða um
kvöldið til gistingar.
FréttaritarL
Þótti mönnum einbeittni stjórn-
arherrans heldur lítil í þessu
máli.
Um efnahagsmálin upplýsti
ráðherrann að uppbótaleiðin væri
vandrötuð og gaf hann fyllilega
í skyn að alls væri óvíst um að
tekjur útflutningssjóðs hrykkju
fyrir gjöldum á þessu árL
Loks vakti það athygli að ráð-
herrann gat þess að sér fyndist
sem ráðherrar kommúnista hefðu
ekkert málgagn.
Aðaleinkenni allra upplýslnga
ráðherrans var það að verið væri
að baksa við að leysa hitt og
þetta, baksa við að útvega fé til
rafvæðingar, baksa við að útvega
fé til sementsverksmiðjunnar og
þegar loks aðalkommúnisti Aust-
fjarða, Bjarni Þórðarson bæjar-
sjjóri, stóð upp i fundarlok og
lýsti blessun sinni yfir stjórnar-
samstarfi Eysteins og félaga hans,
þá fannst sumum sem Eysteinn
hefði ekki átt að vera að reyna
að bagsa við að boða til fundar,
enda hefðu kunnugir ekki fyrr
séð Eystein svo auman sem í þetta
skipti. —Fréttaritari.
kvæmdum en verður senn 4arW
til þess.
VITABYGGIN®
Verið er að byggja vlta hér &
skeri sem heitir hlaða. Áöur
hefur verið viti á Straytisholtl,
milli Berufjarðar og Breiðdals.
Verður hann lagður niður þegar
nýi vitinn verður tekinn i notkun.
Héðan er nú gerður út einn 8
tonna bátur og nokkrar trillur.
Hefur afli oft verið all sæmi’egur.
Við hér I sveitinni höfum mik-
inn áhuga á að fá leikflokk hing-
að til okkar frá Þjóðleikhúslnu.
Við fáum ekkert að sjá af slíku
ekki nema flugvélina sem fiýgur
hér yfir okkur með leikflokkinn
frá norska Riksteatret sem senn
fer til Hornafjarðar.
Við höfum mikinn áhugn á
leiklist og yrði það vel þégið e?
leikflokkur legði leið sína ixingað
austur til okkar. — Páll.
Kappreiðar Smára
hjá Sandlæk i dag
HÆLI, 13. júlí. — Hér eru allir
við heyskaparvinnu. Prýðilegur
þui’rkur hefur verið undanfarið.
Sprettan er ágæt og tíðin hefur
verið mjög góð.
Búið er að reka allt fé til fjalls,
inn með Þjórsá á afréttir.
Á morgun efnir hest.amanna-
félagið Smári til kappreiða hjá
Sandlæk og eru margir hestar
skráðir til keppni, sem væntan-
lega verður mjög skemmtileg.
— Fréttaritart.
Sinfésíuhljómsveii-
in á Egibsföðum
EGILSSTÖÐUM, 13. júlí — f
kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit
in hljómleika í samkomuskálan-
um í Egilsstaðaskógi. Mun hljórn-
sveitarfólkið gista á Egilsstöðum
í nótt.
Fólk hér í byggðarlaginu fagn-
ar mjög komu Sinfóníuhljómsveit
arinnar hingað. Teljum við mik-
inn ávinning að njóta svo ágætr-
ar skemmtunar, sem hún hefur
upp á að bjóða. —Ari.
Sinfóníuhljómsveitin:
Var mjö'g fagnað í leskaupstal
NESKAUPSTAÐ, 13. júlí —- Sin-
Táfan leggst á lombin
Gilsárstekk, 19- júlt
VORID var fremur kalt og þurrt hér allt fram undir iwéna®#-
mótin. Þá komu nokkrir vætudagar og w spretta saú orðiw
svo góð að túnasláttur er nú almennt hafinn. — Útlit me8 gar@-
ávexti er mjög slæmt, þar sem næturfrost í vor skemmdl tvisva*
allt sem komið var upp. — Ekki er gott að segja mn unn hvernig!
berjaspretta verður en nokkuð mikið er komiS af viaum.