Morgunblaðið - 14.07.1957, Blaðsíða 15
Sunnudagirr 14. júlí 1957
MORGUNBLAÐIÐ
19
Sigurjóm Arnlaugssoaa
áttræður
Á MORGUN, 15. júlí, á Sigurjón
Arnlaugsson, Langeyrarvegi 9 í
Hafnarfirði merkisafmæli, en þá
verður hann 80 ára.
Það þykja nú ef til vill ekki
stórbrotin tíðindi, þó að einhver
alþýðumaður verði 80 ára. En
það ear nú svo að saga einstak-
lingsins, er saga þjóðarinnar og
sá sem lifað hefir síðustu átta
áratugina, hefir lifað alla hina
stórkostlegu byltingasögu í at-
hafnalífi hinnar íslenzku þjóðar.
Á svona langri ævi ber margt
við, í lífi einstaklingsins og svo
er um ævi þessa vinar míns, sem
þessar fáu línur eru ritaðar um,
í tilefni þessara tímamóta í ævi
bans.
Sigurjón Arnlaugsson er fædd-
«r að Miðkrika í Hvolhreppi og
voru foreldrar hans Kristín Guð-
mundsdóttir og Arnlaugur Jóns-
son er voru þar í vinnumennsku.
Ólst Sigurjón upp hjá vandalaus-
um austur undtr Eyjafjöllum,
þar tii a8 hann var 17 ára gam-
all, en þá fór hann suður i Garð
í Gullbringusýslu tii dvalar. Þar
fór hánn að stunda sjóróðra sem
þá var aðalatvinnuvegur ungra
manna. Kom brátt í ljós dugnað-
ur hans og varð hann mjög eftir-
aóttur I skiprúm.
Hana kvæntist 25 ára gamall,
35. júní 1603, heitkonu sinni Stein
þóru Þbrsteinadóttur frá Holti í
Garði en á þeim bæ hafði hann
átt heima í nokkur ár. Telur Sig-
urjón það eitt mesta gæfuspor
f Ufi sinu, að hafa eignazt þessa
yndislegu og góðu konu, sem var
honum svo aamhent og samhuga
f öiiu þeirra lífi. Þau eignuðust
12 börn og eru nú 7 þeirra á lífi,
mannvænleg og myndarleg sem
allt vilja fyrir föður sinn gera,
til að létta honum byrðar sjúk-
dóms og elii. Konu sína missti
hann árið 1945.
Þegar eftir giftinguna fluttu
ungu hjónin til Reykjavíkur og
dvöldu þar í 5 ár, en fluttu þá
aftur í Garðinn og dvöldu þar til
ársing 1921 að þau fluttu til Hafn
♦rfjarðar.
Sigurjón var karlmenni að
lmrðum og vikingur til allra
verka bæði á sjó og landi að dómi
þeirra er þekktu. Sjómennskan
var hans aðalstarf frameftir ár-
lun, bæði á opnum bátum og þil-
Skipum og var hann um alllangt
skeið stýrimaður á þilskipum og
formaður á opnum bátum. Til
Austfjarða fór hann í mörg sum-
ur, til fiskróðra eins og mjög var
títt á fyrstu árum þessarar ald-
ar.
En áriS 1918 gyrtir heldur að
hjá þeim hjónum með stóra
barnahópinn. Allt heimilisfólkið
veikist af „Spönsku pestinni" er
svo var nefnd, og húsbóndinn
svo, að honum er ekki hugað líf
um lengri tíma, og síðan hefir
Sigurjón aldrei fengið fulla
heilsu — aldrei verið annað en
skuggi af sjálfum sér. Og upp úr
því flytur hann til Hafnarfjarð-
ar. í Hafnarfirði gerðist hann
verkstjóri, fyrst hjá Ágústi Flyg-
•nring, en lengst hjá útgerðarfél.
Venus h.f. Verkstjórastarfið á
þeim árum var bæði erfitt og er-
ilsamt, og þá var saltfiskverk-
unin í sem mestum blóma, en
þau tæki sem nú auðvelda alla
vinnu í sambandi við þá atvinnu-
grein ekki komin til sögunnar.
En Sigurjón leysti öll þessi störf
af höndum með prýði.
Síðustu árin eftir að aldurinn
færðist yfir hann lét hann af
verkstjórn en starfaði sem lög-
gkipaður vigtarmaður unz hann
varð að hætta þeim störfum sök-
um veikinda í ársbyrjun 1955.
Sigurjón hefir starfað mikið
að félagsmálum um ævina. Er
þar fyrst að minnast Góðtempl-
arareglunnar, en fyrir hana hef-
ir hann starfað í rúml. 60 ár. Þar
hefir hann starfað af lífi og sál
©g þar hefir munað um hann. Og
í þakklætisskyni fyrir þau störf
hefir Stórstúka fslands kjörið
hann heiðursfélaga sinn. Þá hef-
ir hann starfað mikið fyrir skip-
stjórafélagið Kára um áratugi.
Fyrir kirkjuna hefir hann mikið
unnið um ævina með störfum
sínum í söngkórum hennar.
Hann er framúrskarandi söng-
elskur og hafði á sínum yngri ár-
um ágæta söngrödd og næmt
söngeyra. Var hann um áratugi
organisti í stúkum sínum, bæði
í Framtið í Garði og Morgun-
stjörnunni í Hafnarfirði og fórst
það prýðilega úr hendi.
Hefir hann samið nokkur lög
og hafa sum þeirra verið sungin
í kórum í Hafnarfirði og Reykja-
vík.
Ég þakka þér alla samvinnu
að hugðarmálum okkar og ég blð
Guð að gefa að ævikvöldið verði
kyrrlátt og sólarlagið fagurt.
Mig langar til að enda þessar
línur mínar með þessu fagra
sálmversi skáldkonunnar Her-
dísar Andrésdóttur, sem ég veit
að þú hefir samið lag við, og gera
það að okkar beggja orðum.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
feginn hvíldinni verð.
Guð minn gefðu þinn frið,
glæddu og blessaðu þá
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
Gísli Sigurgeirsson.
VETRARGARÐURINN
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 27., 28. og 30. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1957, á húseigninni nr. 50 við Akurgerði,
hér í bænum, þingl. eign Álfgeirs Gíslasonar,
fer fram, eftir kröfu Guðjóns Hólm hdl. o. fl., á
eigninni sjálfri, fimmtudaginn 18. júlí 1957, kl.
2 Vz e. h.
líorgarfógetinn í Reykjavík.
Stúlka vön vélritun óskast til starfa
á skrifstofu vorri sem allra fyrst.
Umsækjendur snúi sér til skrifstofu
vorrar Lækjargötu 6B.
íslenzkir Aðalverktakar s.f.
Simi 1-!
Bílvirkinn Síðumúla 19
Önnumst bílamálun, réttingar,
riðbætingar og viðgerðir.
Fjöibreytt rirva! af hrisppsisa
inisíögðum i frönskum stí!
VITRINER (hornskápar með gleri)
SÓFABORÐ, margar tegundir
KOMMÓÐUR
SKATHOL
SÓFA- og stólagrindur, píanóbckkir og kollar
undir ísaumuð áklæði.
Margar gerðir af settborðum (indskudsb.)
Verð frá D.kr. 114.00. —
Tekk-húsgögn í absrakt stíl.
Húsgögn úr hnotu, mahogni og birki.
Royal bókahillur á veggi (einkaumb. f. Isl.).
Hinar heimsfrægu Laffia mardessur
(einkaumb).
Svefnstólarnir (einkaumb).
Fljót afgreiðsla — Góðar vörur — sanngjarnt verð.
Húsgagnaverzlun
Inga L. Björnsson
Turesensgade 33, Köbenhavn K —
Símar Palæ 452 og Palæ 7883
DANSLEIKUR
í Vetrargarðinum í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Vetrargarðsins Ieikur.
Miðaþantanir í síma 16710, eftir kl. 8.
V. G.
Silfurtunglið
Cömlu dœgurlogin
leikin í kvöld.
Stjórnandi Baldur Karlsson
Hljómsveit Karls Jónatanssonar
leikur.
Þar, sem fjörið er mest, skemmtir fólkið sér bezt
Op/ð í siðdegiskaffitimanum
Drekkið síðdegiskaffið í Silfurtunglinu.
Silfurtunglið.
Útvegum skemmtikrafta. Sími 19611 og 18457.
Iðnaðarhúsnæði
100—200 ferm. í nýju húsi til leigu, lofthæð
4.80 m, góð innkeyrsla. — Tilboð sendist blað-
inu fyrir fimmtudagskvöld, merkt: „Rúm-
gott — 5821“.
Vélstjórafélag ísiands heldur fund í Grófin 1
mánudag 15. júlí kl. 16. Fundarefni:
1. Uppstilling fyrir stjórnarkjör.
2. Samningar farskipavélstjóra.
STJÓRNIN.
Lokað
vegna sumarleyfa til 6. ágúst
Vigfús Guðbrandsson & Co.
Vesturgötu 4
Maðurinn minn og faðir okkar
DAGBJARTUR LÝÐSSON,
sem andaðist 9. þ. m., verður jarðsettur frá Foss-
vogskapellunni þriðjudaginn 16. júlí n.k. ki. 1.30 e.h.
Ef einhverjir vildu minnast hins látna, eru þeir
beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess.
Jórunn Ingimundardóttir og börn.
Okkar innilegasta þakklæti færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur hluttekningu við andlát og útför
ODDGEIRS GUÐMUNDSSONAR
frá Múlastöðum.
_____________________________ Vandamenn.
Innilegt þakklæti til allra, er vottuðu samúð og vinarhug
við andlát og útför ekkjunnar
RAGNHILDAR GUÐMUNDSDÓTTUR
‘ frá Sandaseli
* Vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og
útför
RANNVEIGAR JÓNATANSDÓTTUR.
Hilaríus Guðmundsson. Kristjana Hilaríusdóttir.
Vigdís og Georg Hansen.