Morgunblaðið - 14.07.1957, Síða 11
Sunnudagur 14. júlí 1957
MORGVNBLAÐIÐ
— Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 9
yrði mikill ágreiningur, áður en
slík ákvörðun vseri gerð. Þá feng-
ist færi á að ræða málið og skýra
það frá öllum hliðum. Jafnvel
þó að ákvörðunin væri röng að
lokum, mundi hún studd þeim
rökum, sem fyrir hendi væru.
Enda væri þá Ijóst, að engan
væri verið að blekkja. En svo
hefur verið gert nú, að frásögn
Tímans. Friðunina var verið að
gera að engu með sakleysislegum
stjórnvaldaákvörðunum. Margt
ljótt hefur núverandi ríkisstjórn
aðhafzt. En með margra vikna
aðgerðaleysi sínu um að tryggja
að settum reglum væri fylgt í
þessu hefur hún sett álit íslend-
inga í meiri hættu en með flestu
öðru.
Hættulegir
heimsfriðnum
SÍÐUSTU atburðir í Rússlandi
vekja að vonum heimsathygli.
Af þeim má læra margt um
haldleysi kenninga kommúnista.
Leynir sér og ekki, að Þjóðvilj-
inn er enn einu sinni í standandi
vandræðum um skýringu þess,
sem skeð hefur. Sjálfur hliðraði
hann sér um skeið sem mest hjá
að tala um þessa atburði. Hann
greip þó tækifærið, þegar Tím-
inn gerðist svo djarfur að virða
ekki þá þögn, til að ausa yfir
ritstjórann óvenjulegum ókvæð-
isorðum.Vera má, að orsökin hafi
verið önnur, en þetta tilefni var
notað til að gefa honum þann
vitnisburð, að hann væri ,,pöru-
piltur og skemmdarverkamaður
gegn stjórnarsamstarfinu" er
„tyggði upp auðvirðilegasta lyga-
áróður íhaldsins" og hefði í
frammi „ábyrgðarlaust áróðurs-
fleipur", enda væri hann sjálfur
„ábyrgðarlaus". Má af þessari
, upptalningu sjá, hvernig þeir
hugsa hver til annars skriffinn-
ar stjórnarliðsins.
Ekki kemst sú beiskja og lítils-
virðing þó í hálfkvisti við hatrið,
sem lýsir sér í ásökimum vald-
hafanna í Kreml innbyrðis. Krú-
sjeff segir nú berum orðum, að
ástæðan til þess hvað orðið hafi
um Molotov og félaga, sé sú, að
þeir hafi verið hættulegir heims-
friðnum og staðið á móti því að
draga úr viðsjám á alþjóðavett-
vangi.
Með þessum orðum staðfestir
Krúsjeff ummæli hinna skarp-
skyggnari kommúnistaandstæð-
inga á umliðnum árum. Því hef-
ur einmitt ætíð verið haldið
fram af þeim, að ráðandi menn
hjá Rússum vildu ekki eyða deil-
unum og þess vegna væru þeir
hættulegir heimsfriðnum. Nú ber
Krúsjeff þessar ásakanir fram
gegn mönnum, sem um langt ára-
bil og allt þangað til í febrúar
s.l. fóru með æðstu stjórn utan-
ríkismála rússneska ríkisins. —
Sjálfur á Krúsjeff eftir að sýna,
að honum sé betur trúandi en
hinum. En hann skilur auðsjáan-
lega, að það muni helzt verða
til áfellis þessum mönnum heima
fyrir, að bera þá sönnum sökum
um andúð gegn þvi, að settar séu
niður þær deilur, sem ógna
heimsfriðnum.
Rafveitustjórinn nýi
FYRST eftir að Malenkov hafði
verið settur frá, gengu ýmsar
sögur um, hvað af honum hefði
orðið. Ýmsir sögðu, að hann
væri kominn í fangelsi, en aðrir,
að hann gengi enn laus. Nú er
komin frétt um, að hann hafi
verið gerður rafveitustjóri í einu
afskekktasta héraði Rússlands
við landamæri Kína. Sú fregn
þarf ekki að vera sönn, og enn
hafa Rússar ekki fengið að heyra
hana. En ef hún er rétt, fer ekki
á milli mála, að þar er um al-
gera útlegð að ræða. Þó slæm
sé, er hún þó betri en fangelsi
eða líflát. Ómögulegt er að segja
enn, hvort Malenkov sleppur svo
vel. Krúsjeff hefur borið á hann,
að hann hafi verið aðalmaður-
inn í Leningradsamsærinu svo-
kallaða 1949. Kjarni þess var sá,
að bomar voru fram tilbúnar
sakir gegn nokkrum valdamönn-
um I Leningrad og þeim síðan
lógað á þann veg, sem tíðkaðist
meðal Stalin réði.
Eftir dauða Stalins er þegar
búið að taka nokkra menn af lífi
fyrir að bera ábyrgð á þessum
falsréttarhöldum. Nú bætist Mal-
enkov við í hóp hinna seku að
sögn Krúsjeffs. Ef ásökunin er
rétt, hlýtur sú spuming að vakna
hvernig standi á því, að söku-
dólgurinn Malenkov skuli ekki
vera dreginn fyrir lög og dóm.
Af hverju er hann ekki látinn
taka út réttmæta refsingu glæpa
sinna, heldur gerður að rafveitu-
stjóra austur í Síberíu?
Meira en lítið er bogið við rétt-
arfarið austur þar, ef svona er
farið að. Ef Krúsjeff segir þá satt
frá. Hver veit, nema Krúsjeff sé
sjálfur að búa til lygasögur um|
Malenkov á sama veg og hann
sakar Malenkov um að hafa gert
falsákærur gegn Leningradmönn
unum fyrir tæpum 10 árum?
Sú aðferð er sem sé engin
einkaeign Malenkovs, heldur við-
tekin starfsaðferð kommúnista
hvarvetna um heim. Kommún-
istar beita henni og ekki einir,
heldur hafa aðrir, eins og Her-
mann Jónasson forsætisráðherra
tekið upp aðferðina eftir þeim,
enda eiga slík sameiginleg vinnu-
brögð og starfshættir mikinn
þátt í að sameina Hermann og
hans nóta kommúnistum hér á
landi.
Byggingarlóð
Maður, sem hefur byggingalóð á mjög góðuni
og eítirsóttum stað í bænum, óskar eftir manni,
sem á fjármagn, í félagsbyggingu. Tilboð sendist
Morgunbl. fyrir miðvikudagskvöld merkt:
„Bygging 300 — 5819“,_________
Höffum fyrirliggjandi:
PAKKAVOGIR
DECIMALVOGIR
DR AGLÓÐS V OGIR
BÚÐARVOGIR
og útvegum flestar tegundir voga.
Sýnishorn í glugga Málarans, Bankastrætf.
Ólafur Glslason & Co. hf.
Hafnarstræti 10—12 — Sími 18370
Nauðungarupphoð
sem auglýst var í 15., 18. og 21. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1957, á húseigninni nr. 23 við Karfavog,
hér í bænum, þingl. eign Haralds St. Björnsson,
fer fram, eftir kröfu Bunaðarbanka íslands o.fl.,
á eigninni sjálfri fimmtudaginn 18. júlí 1957.
kl. 3% síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 29., 30. og 31. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1957, á hluta í eigninni Lönguhlíð 19,
hér í bænum, talin eign Ólafs Ólafssonar fer
fram, eftir kröfu bæjargjaldkerans í Reykjavík
og Gústafs Ólafssonar hrl. á eigninni sjálfri,
föstudaginn 19. júlí 1957, kl. 3% síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Fallegii
sundbolir
sólföt og barnasundbolir
— Póstsendum —
Hafta & Skermabúðm
Bankastræti 14
i
i Til sölu
i
Tvær ódýrar íbúðir í steinhúsi við Grettisgötu.
í 3ja herbergja íbúð á hæð, söluverð 230 þús, út-
borgun krónur 100 þúsund. Eftirstöðvar á hag-
kvæmum lánum. — 2ja herbergja íbúð í kjall-
ara, söluverð 160 þús, útborgun helzt 80 þúsund
krónur.
Málflutningsskrifstofa Yagns E. Jónssonar
Austurstræti 9 — Sími 14400
Matráðskonustaða
Staða yfirmatráðskonu í Kristneshæli er laus
til umsóknar frá 1. október næstkomandi. Laun
samkvæmt IX. flokki launalaga.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám, fyrri
störf óg aldur sendist ráðsmanni Kristneshælis,
hr. Eiríki Brynjólfssyni, Kristnesi, fyrir 12.
ágúst 1957.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Höfum til leigu
Hópferðobifreiðir
af öllum stærðum
Biireiðastöð íslonds sL
- Sími 18-9-11 -
Húseignin
nr. 41 við Nökkvavog er til sölu. Húseignin, sem
er 115 fermetrar að stærð, er mjög vandað
sænskt timburhús ásamt bílskúr, sem stendur
á 836 fermetra vel ræktaðri dóð.
í húsinu eru 2 íbúðir. Á hæðinni eru 4 her-
bergi, eldhús með borðkrók, bað og forstofur,
auk 2 herbergi í kjallara og geymslu á háa-
lofti. í kjallara eru 2 herbergi, bað, eldhús,
geymsla og forstofur.
Verð hússins er kr. 685.000.00. Á því hvíla á
1. veðrétti kr. 185.000.00 lán sem ber 4%% árs-
vexti til meira en 20 ára. Útborgun kr. 300.000.00,
en kr. 200.000.00 mega greiðast á 10 árum gegn
2. veðrétti í eigninni.
Til mála getur komið að selja hvora íbúðina
fyrir sig.
Allar frekari upplýsingar gefur
Fasteigna- & Verðbréfasalan
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4 — Símar 14314, 13294.
FORD-varohlutir
Höfum fengið mikið úrval af vara-
hlutum í amerískar Fordfólksbifreiðar.
Árganga 1949—1956.
Sveinn Egilsson M.
Laugaveg 105 — Sími 22466
Höfum fengið mikið úrval af þurrku-
teinum og þurrku blöðkum.
Sveinn Egilsson M.
Laugaveg 105 — Sími 22466