Morgunblaðið - 21.07.1957, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.07.1957, Qupperneq 2
2 MOKCTJNnr jnin Sunnudagar 21. }Glí 1937 * .\ Hin nýja tékkneska vörubixxeið. Ný tékknesk vörubifreið sem ekur vegleysur sýnd á Þingvöllum A FÖSTUDAGINN mátti sjá hóp«--------- at mönnum inni í Bolabás á Þing- völlum, sem fylgdust með því hvar ein stór og mikil vörubifreiö ók þar um vegleysur, kargaþýfi, og snarbrattar hæðir, lækjarfar- vegi og aðra farartálma. Bifreið þessi var tékknesk, af Pragavss-gerð, og er hingað kom- in í sambandi við tékknesku vöru sýninguna sem nú stendur yfir. Fulltrúar Kaupstefnunnar og Tékkneska bílaumboðsins sýndu blaðamönnum og gestum bifreið þessa en hún er sérstaklega gerð fyrir vegleysur og slæma vegi. Bíll þessi er allmiklu léttari en Tatra 111, sem sýndur var hér fyrir tveimur árum. Hann er mjög hár og á því greitt um akst ur yfir hraun og mishæðótt lands lag og einnig getur hann ekið yfir alldjúpar ár. Fram Hafnarf jörð- ur annað kvöld f KVÖLD fer fram 10. leikur 1. deildar og leika þá Fram og f.B.H. Leikurinn fer fram á Melavellin- um og hefst kl. 20.30. Fram er nú eina liðið, sem veitt getur Akurnesingum keppni um fyrsta sætið í mótinu og verður að sigra til þess að hafa einhverja möguleika þegar til leiksins gegn Akurnesingum kemur hinn 29. júlí. Þá verður Hafnarfjarðarliðið að ná að minnsta kosti jafntefli til þess að halda möguleikum á að halda sér uppi í deildinni, en Hann er á 10 hjólum og eru drif á öllum hjólum. Vélin er loft kæld dieselvél, fjórgeng. Hraða- drif eru tvískipt og er hvort um sig tvískipt fram. Hlassþungi á lélegum vegi er 3.300 kg., en á greiðum vegi 5.500 kg. og sama þyngd á viðhengisvagni í bæði skipti. Bíllinn er mjög lipur og létt- ur að sjá þrátt fyrir byggingar- lag. Umboðsmenn tékkneska bif- reiðaumboðsins munu á næstunni senda íslenzka bifvélavirkja til Tékkóslóvakíu, til þess að læra að gera við þessa bíla, svo að eig- endur þeirra muni ávallt eiga kost á góðri þjónustu. Þá segjast þeir og munu kappkosta að hafa ávallt næga varahluti á boðstól- um. Fyrir skömmu var bíl af þess ari gerð ekið frá Peking til Lasha 1 Tíbet yfir Góbíueyðimörkina, alls um 35600 km. vegalengd, og á leiðinni bilaði hann aldrei. Hringur frá Siglufirði mannaður Grafar- nesingum GRAFARNESI, 20. júlí — Allir Grundarfjarðarbátarnir, 6 að tölu eru nú á síld fyrir Norður- landi. Afli þeirra hefur verið mjög sæmilegur og auk þess er bátshöfnin á Hring frá Siglufirði öll frá Grafarnesi. Héðan róa tveir bátar á reknet og hafa þeir aflað sæmilega. — Annmörkum háð að nýta aflann sökum þess hve síldin er léleg. —Emil. það á eftir 2 leiki, gegn Fram í kvöld og gegn K.R. á fimmtu- daginn. Akranes .... Fram ....... Valur ...... Akureyri K.R......... Hafnarfjörður L U J T M S 3 3 0 0 8—1 6 3 2 10 4h-1 5 3 111 5—5 3 4 0 2 2 4—9 2 2 0 11 2—3 1 3 0 1 2 2—6 1 Næsti leikur fer síðan fram á mánudag og leika þá K.R. og Val- ur kl. 20.30. Þeir voru Títóistar BONN, 20. júlí — Eins og getið hefur verið um í fréttum, voru nokkrir leiðtogar búlgarska kommúnistaflokksins reknir úr stöðum sínum fyrir skömmu. Menn héldu, að hreinsanir þess- ar ættu rætur að rekja til hreins- ananna í Moskvu, en fréttamenn í Bonn benda á, að svo geti varla verið, þar eð allir hinir brott- reknu kommúnistar hafi verið ákærðir fyrir „Títóisma", en ekki „Stalinisma". Kommúnistaforingj ar þessir eru: Georgi Tshankoff fyrsti varaforsætisráðherra og Stanko Todorv landbúnaðarmála- ráðherra. — Álitið er, að Vulko Tsrervenkoff, fyrrum flokksfor- ingi og gallharður stalinisti, hafi staðið á bak við brottrekstur þeirra. Hvoð gerist í iormonnadeilunni ? UM það hefir verið spurt nú, bæði í blöðum og af almenningi, hvað gerist í farmannadeiiunni, og er þessari spurningu í raun og veru beint til deiluaðila. Samkvæmt vinnulöggjöfinni er ekki heimilt að gefa upplýsingar um það, sem á sáttafundum ger- ist, nema báðir deiluaðilar séu því samþykkir. Á föstudagskvöldið óskuðu skipaútgerðarfélögin formlega eftir því við sáttanefndina. að fá að birta kröfur yfirmanna eins og þær voru 16. þ.m. Sáttanefnd- in skýrði útgerðarfélögunum frá því, að samninganefnd yfir- manna vildi ekki fallast á þessi tilmæli útgerðafélaganna. Af framangreindum ástæðum geta þau ekki orðið við fram- komnum óskum um að gefa al- menningi upplýsingar um, hvað gerzt hefir í vikunni í deilunni eða hvernig hún stendur nú. Frá Vinnuveitendasambandi íslands og Vinnumálasam- bandi Samvinnufélaganna. Ahritameiri en landsleikir eru heimsóknir unglinga Samtal við Edvard Yde, danskan Islandsvin EINN af fararstjórum danska landsliðsins, sem hér var á dögunum ber isl. fálkaorðuna. Var hann sæmdur henni fyrir að stuðla á marg- víslegan hátt að auknum og bættum tengslum milli frændþjóðanna, Dana og Islendinga. Maður þessi er Edvard Yde og hefur hann komið á mörgum skiptiheimsóknum íslenzkra knattspyrnumanna og m.a. þeim hinum athyglisverðustu er ungir drengir íslenzkir, hafa heimsótt jafnaldra sína í Danmörku og öfugt. Mbl. hitti Yde að máli dag- ] vert er að sinna og ánægjulcgt að fá tækifæri tU að gera. stund nokkra og rifjaði hann upp svipmyndir frá íslandsferðum sín um og samskiptum við ísl. knatt- spyrnumenn. Yde kom fyrst til íslands 1931. Var hann þá skrifstofustjóri hjá bílatryggingarfirma og kom hing- að í sambandi við það. Hann kynntist Ben G. Waage og kynnt- ist vel ísl. íþróttum, sundi og glímu. Tengdist hann sterkum vináttuböndum við ýmsa foryscu- menn hér og þau styrktust árin 1934 og 1937 er hann var hér í sams konar heimsóknum. Yde byrjaði 15 ára gamall að iðka knattspymu. Það var árið 1910. Þremur árum síðar var hann með í félagsstofnun og upp frá því hefur hann ætið verið tengdur skipulagsmálum knatt- spyrnurnar í Danmörku. 1931 var hann kjörinn í stjórn Sjællands Boldspil Union (knattspyrnu- samb. Sjálands) og er nú form. þess. 1939 var hann kjörinn í stjórn danska knattspyrnusam- bandsins og hefur æ síðan setið í henni. ★ ÍSLAND MEÐ Þannig var það miklsvert fyrir ísl. knattspyrnuíþrótt að eiga Yde sem stuðningsmann. Og kynni ísl. íþróttaleiðtoga af honum leidddu til þess fyrst, að á af- mælismóti danska knattspyrnu- sambandsins sem haldið var 1939 og til þess boðið landsliðum hinna Norðurlandaþjóðanna, var ísl. flokkur með. — „Það var gaman að ísiand vantaði ekki í hópinn þá“, sagði Yde. En þar sem ekki var til landslið á íslandi fór flokkur Fram utan. Ferðuðust Fram-menn um Jót- land, Fjón, Bornholm og Sjáland og 1940 átti danskur flokkur að koma til fslands í staðinn. En stríðið kom í veg fyrir það. En þetta varð til þess að Danir komu hingað fyrstir erl. knattspyrnu- manna eftir stríð. Að vísu ekki sá flokkur sem fara átti 1940, heldur varð úr að landsliðið kom og það var fyrsti landsleikur fs- lands. ★ DRENGJAHEIMSÓKNIRNAR — 'Síðan hafa margir Danir komið hingað og íslendingar far- ið út. Þessi skipti hafa verið mjög ánægjuleg og íslandsferðr eru alltaf óslitið ævintýri fyrir Dani. — Og verður framhald á þess- um skiptum? — Það vona ég. Það er að vísu ekki hægt að ákveða neitt með landsliðið, því landsleikir eru komnir í svo fastar skorður. Landsleikir hafa aff sjálfsögffu sína þýffingu og þaff er gaman að sjá þá. En persónulega legg ég meira upp úr heimsóknum yngri drengjanna. Þaff er mjög ánægju- legt að hafa átt þátt í heimsókn Bagswærd-drengjanna til KR og KR-dréngjanna út. Sama gildir um heimsókn Fram-drengjanna til Roskilde í fyrra og Roskilde- drengir koma hingaff til Fram. Drengirnir búa á heimilum hvers annars talast viff, læra aff þekkja hver annan, kynnast frænd- þjóffinni og tengjast óslítandi böndum. Það er verkefni sem ★ BREYTINGAR — Miklar eru breytingar á fs- landi síðan þér fyrst komuð til landsins? — Já, þær eru miklar á öllum sviðum og kannski ekki sízt á íþróttasviðinu. Knattspyrnumenn ykkar eru í framför. Leikur þeirra gegn Dönum nú var beztur leika þeirra við danskt landslið nokkru sinni. Það er að mótast liðið ykkar og hefur náð þeim áfanga að leika skipulagða knatt- spyrnu „positionspil". Beztu leikmenn ykkar eru innherjarnir Albert og Ríkarður, en galli er það hjá Ríkarði að það er eins og hann segi er hann fær knöttin — „Nú skal ég“ og síðan á að brjótast í gegn af krafti. Unglingaliðin ykkar lofa góðu. Framdrengirnir sem komu til Danmerkur í fyrra voru mjög leiknir. Þeir mættu okkar beztu ungu leikmönnum en Fram vann alltaf — stundum stórsigra. Fram tíð ísl. knattspyrnu ætti að vera örugg ef þessir menn halda áfram að krafti. A. St. 190 þúsund KAUPMANNAHÖFN, 20. júlí — Kínverska kommúnistastjórnin hóf fyrir tveimur árum mikla herför gegn „gagnbyltingarmönn- um“, og samkvæmt skýrslu, sem nýlega hefir birzt í „Dagblaði fólksins" í Peking voru 81 þús. „gagnbyltingarmenn" handtekn- ir. Þá hefir blaðið einnig skýrt frá því, að 190 þús. menn hafi játað, að þeir hafi leynt „gagn- byltingarmönnum" á heimilum sínum. Timasprengjur NEW YORK, 20. júlí — f morg- un hringdi óþekktur maffur til affalskrifstofu Air France í New York og skýrffi frá því, aff tíma- sprengja væri í farangurs- geymslu einnar af áætlunarvélum félagsins. Starfsmenn og lögregla fóru á vettvang og leituffu í vél- inni, en án árangurs. Flugvélin lagffi síðan af staff meff 22 far- þega — tveimur klukkustundum á eftir áætlun. í gær fékk flugfélagið svipaða upphringingu og skipaði þá tveim ur flugvélum sínum að lenda eins fljótt og unnt væri. Voru þær síð- an athugaðar gaumgæfilega, en allt kom fyrir ekki. Engar tíma- sprengjur fundust í þeim og héldu þær svo áfram leiðar sinnar. LUNDÚNUM, 20. júlí. — Átján ára gömul senorita frá Perú var kjörin Miss Universe á Long Beech. Ungfrú Brasilía varð önn- ur og ungfrú Bretland þriðja í röðinni. — Perústúlkan hefir gert Sendiherra Frakka afhendir eflirpreni- anir af málverkum SENDIHERRA Frakka, herra Henri Voillery, hefur fyrir hönd frakkneskra stjórnarvalda a t- hent menntamálaráðuneytinu að gjöf eftirmyndir af frægum mál- verkum, sem sýndar voru í boga- sal Þjóðminjasafnsins á vegum Alliance Francaise í maímánuði síðastliðnum. Eru þetta m. a. eftirmyndir af verkum Van Gogh, Gauguin, Toulouse-Lautrec, Matisse og Picasso. Ráðimeytið mun gera ráðstaf- anir til að myndirnar verði sýad- ar í skólum. Meistaramót miglinga UNGLINGAMEISTARAMÓT í»- lands 1957 hófst á Melavellinum í Reykjavík á föstudagskvöldið 19 þ.m. Úrslit í einstökum greinum urðu þessi, fýrsta dag keppn- innar: 110 M GRINDAHLAUP: Brynjar Jensson, ÍR 18,0 sek. Helgi R. Traustason KR 18,2 sek. 100 M HLAUP: Brynjar Jensson ÍR 11,7 sek. Ólafur Unnsteins. UMFÖ 11,7 sek. Björn Sveinsson ÍBA 11,9 sek. 400 M HLAUP: Kristl. Guðbjörnsson KR 54,2 sek. Ólafur Unnsteins. UMFÖ 54,5 sek. Jón Gíslason UMSE 56,1 sek. Örn Steinsen KR 57,1 sek. 1500 M HLAUP: Kristl. Guðbjörns. KR 4:04,8 mín. Jón Gíslason UMSE 4:19,6 mín. Marg. Sigurbjörns ÍBK 4:29,1 mín Ragnar Þórsteins. KR 4:40,2 min. HÁSTÖKK: Eyvindur Erlends. UMF Self 1,7« Helgi R. Traustason KR 1,65 m Brynjar Jensson ÍR 1,60 m Ómar Ragnarsson ÍR 1,55 m LANGSTÖKK: Björn Hjartars. ÍB Ak. 5,90 m Óllafur Unnsteins. UMFÖ 5,83 m Ingvar Þorvaldsson KR 5,66 m Guðjón Guðmundsson KR 5,53 m KÚLUVARP: Úlfar Björns. UMF Fram 13,61 m Brynjar Jensson ÍR 12,68 m Guðmundur Sigurðs. ÍBK 12,37 m SPJÓTKAST: Björn Sveinsson ÍB Ak. 47,26 m Guðm. Sigurðsson ÍBK 44,20 m Sig. Steingrímsí UMF Fram 41,59 Ingvar Þorvaldsson KR 37,30 ra — Moskvumófið Frh. af bls. 1. fræga nafn til fulltingis svoköll- uðu 6. heimsmóti æskunnar, sem rússneskir kommúnistar efna til í Moskvu. Þetta „heimsmót" ef (og þaff hélt ég raunar, aff flest- um værf fullljóst) einn liffurinn í því mikla lyga- og blekkingar- spilverki rússneskra kommún- isfa, sem allur heimiurinn hefur mátt horfa upp á nú um árabil". — Steinn Steinarr scgir ennfrem- ur, aff sorglegt sé til þess aff vita. aff islenzkur æskulýffur ,rskuli láta ginna sig í þennan skrípa- Ieik“, eins og skáldiff kemst aff orði. Og svari Steins Steinarr* lýkur meff því, að hann furffar sig á „árnaffarósk" Laxness og aff hann skuli „finna sig knúff- an til þess aff leggja blesswn sína yfir þetta vægast sagt ógeffslega I ferffalag". samning um að ferðast um Banda ríkin og sýna sig. Fær hún 10 þús. dali fyrir tiltækið. Einnig hefir hún fengið bifreið og sitthvaff fleira. Ungfrú Perú - Miss Universe

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.