Morgunblaðið - 21.07.1957, Síða 16
2-24-8«
161. tbl. — Sunnudagur 21- júlí 1957.
2-24-80
Lífil síIdveioi
Ægir fann mikla síld við Kolbeinsey
UM MIÐJAN DAG í gær átti Mbl. 'tiðtal við fréttaritara
**na á Siglufirði og Raufarhöfn. Frá hvorugum staðnum var
neinar síldarfréttir að hafa að ráði, en ekki voru þeir þó
svartsýnir, töldu að smástreymið, sem nú er, hefði þau
áhrif að síldin lægi niðri í hili. í gærmorgun fann Ægir
mjög mikið síldarmagn á leitartækin norður af Kolbeinsey.
SÍLD VIÐ KOLBEINSEY
Einn bátur hafði fengið 800 mál
síldar um 10 mílur austur af
Kolbeinsey í gærmorgun. Var það
Sæborg frá Keflavík og fór hún
með aflann til Dalvíkur. Flestir
bátar voru á leið til Kolbeins-
eyjar um miðjan dag í gær eftir
•ð fregnirnar frá Ægi bárust.
í fyrrinótt köstuðu nokkrir bát
ar út af Siglufirði en fengu ekki
nema nokkrar tunnur og síldar-
laust hefur verið þar á miðunum
nú í nokkra daga. Lokið var við
að bræða þar í öllum verksmiðj-
um á þriðjudagsmorgun og hefir
allt verið þar með kyrrum kjör-
um síðan: allir bíða eftir síld-
inni. í gærkvöldi fór síldarleit-
arflugvélin enn af stað ef vera
kynni að hún kæmi auga á torf-
ur.
SLATTI FYRIR AUSTAN
í fyrrakvöld veiddist nokkur
síld austur við Glettinganes, en
ekki var það mikið magn. Víðir
fékk góðan afla og hélt til Seyðis-
fjarðar með sldina. Annars er
ekkert að frétta af austurmið-
unum.
Einstaklega gott veður var fyr-
ir öllu Norður og Austurlandi í
gær, rjómalogn og sólskin.
Takmarkanir settar á
flutning húsa
Samþykki byggingarfulltrúa þarf
að koma til
UNDANFARIÐ hafa verið nokkur brögð að því að hús hafa verið
ílutt til innan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur og út fyrir það, án
þess að tryggð væru lóðaréttindi og hafa ýmis önnur vandkvæði
af þessum flutningi stafað.
Litið suður yfir Hafnarfjarðarhraun til Keilis, eitt fagurt kvöld i vlkunnL
Úthlutun 34 rabhúsa
Til fólks í her- * ~
skálum og heilsu-
spillandi húsnœði
Á FUNDI bæjarráðs 19. júlí
var samþykkt með samhljóða
atkvæðum tillaga um fyrir-
heit um úthlutun raðhúsa í
Réttarholtshverfi. Er þarna
um að ræða úthlutun 34 húsa.
íbúðirnar í raðhúsum þessum
eru nú fokheldar og eru afhentar
í því ástandi. íbúðabyggingar
þessar eru þáttur í því að útrýma
Einmnnn gcð tíð
GRAFARNESI, 20. júlí — Hér
hefur verið einmuna góð tíð og
gengur því heyskapurinn vel. —
Grasspretta er í góðu meðallagi.
Um s. 1. helgi kom forseti ís-
lands og frú hans í heimsókn til
Grafarness. Var þeim haldið
kaffisamsæti í barnaskólanum
þar sem einn af hreppsnefndar-
fulltrúunum flutti ræðu fyrir
minni hjónanna. —Emil.
Rannsókn á afrétt-
uin Reykjavíkur
Á FUNDI sínum 12. júlí sl. fól
bæjarráð borgarlögmanni að láta
kanna hverjir séu afréttir Reykja
víkurbæjar og að hverju leyti
þeir séu sameiginlegir með öðr-
um sveitarfélögum og ennfremur
hverjir afréttir kunni aS fylgja
þeim jörðum, er bærinn á i ná-
grannahreppum. Þá fól bæjarráð
borgarlögmanni að rannsaka 1
hverju réttur bæjarins yfir af-
réttum þessum sé fólginn.
Á fundi bæjarráðs á föstudag-
inn var samþykkt að framvegis
íkuli bæjarstofnunum óheimilt
að veita nokkra fyrirgreiðslu við
flutning húsa nema skriflegt sam
þykki byggingarfulltrúa sé fyrir
hendi.
Jafnframt beinir bæjarráð
þeim tilmælum til lögreglustjóra,
að hann leyfi ekki slíka flutninga,
nema nefnt samþykki liggi fyrir.
Jafnframt samþykki bæjarráð, að
basjarstofnunum skuli framvegis
óheimilt að veita nokkra fyrir-
greiðslu í sambandi við hús, er
eigi hafa lóðarréttindi viður-
kennd af bæjarráði.
Farmannadeilan
BNGIR fundir voru í far-
mannadeilunni í gær og engir
verið boðaðir.
Félagsheimili til
barnakeimslu
Á FUNDI bæjarráðs á föstudag-
inn, var fræðslustjóra heimilað
að leita samninga við Ungmenna-
félag Reykjavíkur um leigu á fé-
lagsheimili þess við Holtaveg til
skólahalds. Félagsheimili þetta er
örskammt frá Langholtsskólan-
um, hinum megin við götuna, og
er vel til þess fallið að reka þar
kennslu. Vegna mikillar íbúa-
aukningar í Langholtshverfi er
brýn nauðsyn á að auka skóla-
rýmið og það mun vera þess
vegna sem í ráði er að fá félags-
heimilið undir barnaskóla í vet-
ur.
herskálaíbúðunum og öðru heilsu
spillandi húsnæði úr bænum. Eru
alls þarn.a um 45 raðhús að ræða
og hefir þeim öllum nú verið út-
hlutað. Raðhúsunum hefir ein-
göngu verið úthlutað til þeirra
sem við óviðunandi húsnæði eiga
að búa, að tveimur þriðju til her-
skálabúa og einum þriðja til
þeirra sem í öðru heilsuspillandi
húsnæði búa. Reykjavíkurbær
veitir 70 þús. kr. lán með hverju
raðhúsi og Húsnæðismálastjórn
skal veita aðrar 70 þús. en þær
hafa ekki enn fengist afgreiddar.
Þá er nú langt komið með bygg-
ingu fjölbýlishúsanna við Gnoðar
vog á vegum bæjarins. Þar verða
120 íbúðir í 5 húsum, og bíður
úthlutun íbúðanna þar þangað til
úr fæst skorið um lánsfjármálin.
Mynd þessi var tekin af íjölmennu hófi, sem Islendingafélagið í Los Angele hélt 15. júní sl. til að
minnast Þjóðhátíðardags íslendinga.
Islendingafélagið i
ÍSLENDINGAR í Los Angeles
efndu þann 15. júní til fagnaðar
á skemmtistaðnum Schullys í Los
Angeles í tilefni af þjóðhátíðar-
deginum 17. júní. Skemmtunin
var mjög vel sótt og komu hátt
á annað hundrað manns þar sam-
an.
Sverrir Runólfsson ávarpaði
gesti og bauð þá velkomna, en
Los Angeles
Jónas Kristinsson, formaður
skemmtinefndar kynnti skemmti
atriði. Ólafur Bachmann flutti
ræðu fyrir minni íslands. Frú
Halla Linker las upp kvæði. —
Sumi Swanson flutti þakkar-
ávarp til Guðnýjar Þorvaldsson,
sem verið hefur formaður félags
ins undanfarin fimm ár. Stanley
Ólafsson flutti stutt ávarp, Hal
Linker sýndi kvikmynd frá Is-
landi og Eileen Christy söng
nokkur lög.
Fyrir skömmu var kosin stjórn
í íslendingafélaginu í Los Ang-
eles. Hana skipa: Sverrir Run-
ólfsson formaður, Hulda Dun-
bart varaformaður, Jóhann Páls-
son ritari, Hreiðar Haraldsson
gjaldkeri, Guðný Þorvaldsdóttir
ritstjóri, Jónas Kristinsson for-
maður skemmtinefndar og Örn
Harðarson form. auglýsingar-
nefndar.
Bláa bandið vill koma
upp drykkjumannahœli
í sveit og hœli fyrir konur
AÐALFUNDUR áfengisvarnar-
félagsins Bláa-Bandið, var hald-
inn þriðýadaginn 16. þ.m. Form.
félagsins Jónas Guðmundsson,
skýrði frá rekstri og starfsemi
hjúkrunarheimilis Bláa-Bandsins
á Flókagötu 29, en þar höfðu, á
tímabilinu frá 22. okt. 1955, er
heimilið tók til starfa, og til 31.
des. 1956, dvaldist samtals 590
manns.
Lagðir voru fram endurskoðað-
ir reikningar félagsins og voru
þeir samþykktir. Auk venjulegra
aðalfundastarfa, samþykkti fund-
urinn eftirfarandi tillögur:
HÆLI í SVEIT
Aðalfundur Bláa-Bandsins 1957
samþykkir að heimila stjórn fé-
lagsins eftirfarandi:
Að kaupa eða taka á leigu til
langs tíma hentuga jörð í sveit
fyrir framhaldsdvalarheimili
handa þeim vistmönnum, sem
langa dvöl þurfa á vistheimili fyr
ir drykkjumenn ,en eiga hennar
ekki kost annars staðar.
Að leita aðstoðar ríkisins og
Reykjavíkurbæjar til að kaupa
hentugt hús í Reykjavík í þeim
tilgangi að koma þar upp hjúkr-
unarstöð og dvalarheimili fyrir
drykkfelldar konur á sama grund
velli og Flókagötuheimilið er rek
ið.
Að stækka hjúkrunarstöðina. á
Flókagötu 29, samkvæmt fyrir-
liggjandi teikningu, ef leyfi fæst
til þess og lán eða styrkur frá
Gæsluvistarsj óði.
LÆKNING DRYKKJU-
HNEIGÐAR
Aðalfundur Bláa-Bandsins 1957
beinir þeirri áskorun til ríkis-
stjórnar og Alþingis, að framveg-
is verði tíundi hluti hreinna
tekna Áfengisverzlunar ríkisins
látinn renna í Gæsluvistarsjóð og
því fé varið til að vinna gegn á-
fengisbölinu í landinu.
Verði Gæsluvistarsjóði ætlað
það hlutverk sérstaklega að
styrkja byggingu og starfrækslu
stofnana fyrir drykkjusjúklinga,
sem reist eru og rekin af því op-
inbera og af frjálsum félagssam-
tökum, sem vilja starfa að þeim
málum.
Fundurinn telur að endurgkoða
þurfi nú þegar gildandi löggjöf
um lækningar drykkjusjúkra
manna, setja Gæsluvistarsjóði sér
staka stjórn, og breyta verulega
starfrækslu Gunnarsholtshælis-
ins, jafnframt því sem unnið
verði að því að auka þekkingu
manna á möguleikunum til að
lækna drykkjuhneigð og útrýma
drykkjuskap.
SAMSTARF VIÐ NORÐMENN
Aðalfundur Bláa-Bandsins 1957
fagnar því að tekist hefir náin
samvinna við Bláakross-hælið á
Eina í Noregi, og í þakkarskyni
fyrir þá hjálp og fyrirgreiðslu,
sem íslendingum, er þangað hafa
farið sér til lækninga hefir verið
veitt, vill fundurinn heimila
stjórn félagsins að verja nokkurri
fjárhæð af söfnunar- og gjafafé,
sem Bláa-Bandinu áskotnast á ár-
inu 1957, til að bjóða hingað for.
stöðumanni Eina-hælisins, ef
hann getur þegið það boð á næst
unni, því líklegt er einnig að
margt mætti af þeirri stofnun
læra um rekstur og skipulag
hjúkrunar- og dvalarheimilis fyr
ir drykkjusjúklinga.
Stjórn félagsins skipa nú: Jón-
as Guðmundsson, formaður, Guð-
mundur Jóh. varaformaður, Jón-
as Thoroddsen, ritari, Vilhjálmur
Heiðdal og Sigurður Egilsson.