Morgunblaðið - 22.09.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.1957, Blaðsíða 1
16 siður og Lesbok Hákon VII Noregskonungur látinn Ólafur V tekinn við ríkjum í Noregi OLAFUR KONUNGUR \ HÁKON VII. Noregskonungur fæddist hinn 3. ágúst árið 1872 í Cliarlottenlundhöll, að heimili foreldra sinna, Friðriks krón- prins, síðar Friðriks VIII. Dana- konungs, og Louise konungsdótt- ur frá Svíþjóð, Karlsdóttur 15. Hlaut hann nöfnin Christian Frederik Carl Georg Valdemar Axel. Var hann jafnan nefndur Carl Danaprins þar til hann gerð Ist konungur Noregs árið 1905, er gerður var skilnaður Svía og Norðmanna. Hafði áður farið fram þjóðaratkvæðagreiðsla í Noregi um það hvort konung- dæmi skyldi þar sett á stofn. — Hinn 25. nóvember árið 1905 sigldi skip Carls prins inn Óslóar fjörð og hafði uppi hið forna skjaldarmerki Magnúsar ber- fætts, „rauðan skjöld og lagt á með gulli Ieó“. Daginn eftir vann Hákon VII. eið sinn að stjórnar- skrá Noregs og um vorið var hann krýndur með hátíðlegri við- höfn í Ólafskirkju í Niðarósi. Konungur valdi sér að kjör- orði: „Alt for Norge“. Er það mál allra Norðmanna og annarra er til þekkja, að hann hafi trúlega framfylgt því í öllu sínu starfi. Hefur hann setið að ríkjum í Noregi nær 52 ár. Undir stjórn hans hefur Noregur blómgast og norska þjóðin eflzt að efnum og sæmd. Mestu eldraun sína gekk hún í gegn um er konungur hennar varð að flýja land hinn 7. júní 1940, er Noregur var hernuminn af herskörum Hitlers. Hákon VII. skipaði sér þá í fylkingarbrjóst í frelsisbaráttu norsku þjóðarinn- ar og mun nafn hans órjúfanlega tengt hinni hetjulegu baráttu, sem Norðmenn háðu fyrir sjálf- stæði sínu í siðari heimsstyrjöld- inni. Þegar konungur kom heim aftur, 7. júní 1945, var honum fagnað sem þjóðhetju. Hákon konungur var afkom- andi hinna fornu Noregskonunga. 22. maður frá Magnúsi lagabæti Hákonarsyni, en sjötti maður frá Friðriki V., er var konungur Noregs og Danmerkur. í móður- ætt var hann fjórði maður frá Karli 14. Jóhanni konungi Nor- egs og Svíþjóðar. Drottning hans var Maud prins essa, dóttir Jávarðs VII. Breta- konungs og Alexöndru drottning- ar, dóttur Kristjáns 9. Danakon- ungs. Áttu þau einn son barna. Á æskuárum sínum var hann sem prins á danska flotanum hér við ísland og kynntist þá tölu- vert landi og þjóð. Hákon konungur VII. var hár maður vexti, höfðinglegur og alþýðlegur í framkomu. Mótaðist starf hans allt af einlægri skyldu rækni og umhyggju fyrir velferð þjóðar sinnar. Sagan mun geyma nafn hans sem eins hins mesta konungs Noregs. ÞEGAR Einari Gerhardsen, for- sætisráðherra Norðmanna, barst fregnin um lát Hákonar konungs, sagði hann m. a., að hann væri þess fullviss, að fregnin um iát Hákonar konungs hefði verið hverjum Norðmanni sorgarfregn. Sambandið milli konungs og þjóð ar hefði fengið sérstætt eðli. Þar hafi aðallega ráðið hinir persónu- legu eiginleikar hans — stað- festa og réttsýni. Halvard Lange, utanríkisráð- herra Norðmanna, sagði er hann fregnaði lát konungs, að eitt sterkasta persónueinkenni Hákon ar konungs hefði verið skyldu- rækni hans. Oscar Torp lét svo ummælt, er honum barst fregnin, að Hákon konungur hefði verið meira en maður, sem fólk heilsaði með virðingu og fögnuði, meira en tákn norska ríkisins, sjálfstæðs og fullvalda Noregs. Hann hafði í hávegum hugsjónir hins þing- bundna konungdæmis, sagði Torp. ÓLAFUR, hinn nýi konungur Noregs, er 54 ára að aldri. Hann hefur gegnt störfum ríkisstjóra allt frá því að faðir hans, Hákon VII., fótbrotnaði í lok janúarmán aðar 1955. Ásamt dóttur sinni, Astrid prinsessu, hefur hann gegnt Öllum störfum og skyldum þjóðhöfðingja þennan tíma. Olav Alexander Frederik Ed- ward Christian, svo sem Ólafur konungur heitir fullu nafni, fædd ist í Appelton House í Englandi 1903 og var hann einkabarn for- eldra sinna, Carls, þáverandi prins af Danmörku, og Maud prinsessu, dóttur Játvarðar Eng- landskonungs. — Foreldrar hans urðu síðan konungur og drottn- ing Noregs árið 1905. Eftir að hann hafði lokið gagn- fræðaprófi við Hauling-skólann árið 1921, innritaðist hann í Her- skólann, þar sem hann var við nám árin 1921—1924. Að námi loknu hélt hann til Oxford og var þar við nám í Balliol College. Islendingar minnast Hákonar konungs LntniæSi forseta íslands, Ólafs Thors fyrrv. forsætis- ráðh. og Bjarna Benediktssonar fyrrv. utanríkisráðh. HÉR fara á eftir ummæli forseta íslands, Ásgeirs Ásgeirssonar, Ólafs Thors, fyrrverandi forsæt- isráðherra og Bjarna Benedikts- sonar, fyrrv. utanríkisráðherra í tilefni af fráfalli Hákonar VH Noregskonungs: Vér varðveitum mynd hins vitra og góða konungs Forseta íslands fórust orð á þessa leið: Mér hefir í dag borizt sú fregn, að Hákon sjöundi, Konungur Noregs, sé látinn. í því tilefni sendi ég hjartanlegar samúðar- kveðjur frá oss íslendingum til Norðmanna. Við hittum Hákon konung síð- ast fyrir tveim árum. Hann var aldurhniginn, hljóp þó upp stiga, Framh. á bls. 2 Liðsforingi í hernum varð hann 1931, ofursti 1938 og hershöfð- ingi 1939. Arið 1940, eftir innrás Þjóð- verja í Noreg, flúði hann land ásamt föður sínum og norsku stjórninni. í júnímánuði kom hann til Englands og þann 30. júní 1944, er styrjöldin stóð sem hæst, var hann skipaður yfir- 1 maður alls herafla Noregs. Hann hvarf aftur heim til Nor- egs 13. maí 1945, er norska stjórnin kom aftur saman í Ósló úr útlegðinni. Hann gegndi em- bætti ríkisstjóra frá 31. maí til 7. júní, er konungur sneri heim úr útlegðinni. Þann 15. júlí sama ár lét hann af störfum sem yfirmað- ur norska hersins. Ólafur konungur er mikill íþróttamaður og hefur m. a. tek- ið þátt í kappsiglingamótum víða um heim og á unga aldri tók hann þátt í Holmenkollenskíða- mótum. Ólafur konungur kvæntist þ. 21. marz 1929 frænku sinní, Mörtu, fædd 1901, dóttur Karls prins af Vestur-Gotlandi og Inge- borg prinsessu af Danmörku. Hún lézt árið 1954. — Heimili þeirra var að óðalinu Skaugum í Asker, sem þau fengu að gjöf við brúðkaup sitt. Þau hjónum varð þriggja barna auðið. Elzt er Ragnhildur prinsessa, fædd 1930. Hún giftist 1053 norska útgerðar- manninum Erling Lorentz og eru þau búsett í Rio de Janeiro. Ast- rid prinsessa fæddist 1932 og Har aldur erfðaprins er fæddur 1937. Ólafur Noregskonungur hefur einu sinni komið í heimsókn hing að til lands. Var það árið 1947, er hann afhjúpaði styttu Snorra Sturlusonar í Reykholti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.