Morgunblaðið - 22.09.1957, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.09.1957, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. sept. 1957 ustan Edens eítir John Steinbeck „O, allir menn. Og nú eru pabbi þinn og mamma kannske mótfall- in því að þú giftist mér ?“ „Þá tala ég bara ekkert um það við þau“, sagði Abra. „Þú ert alveg örugg með sjálfa þig“. „Já“, sagði hún. — „Ég er ör- ugg með sjálfa mig. Viltu kyssa mig?“ „Hérna? Úti á miðri götunni?" dagana. 1 þessu sambandi var á það bent af mörgum, að Samúel Hamilton hefði líka verið mesti aulabárður og hvað Tom Hamilton snerti — þá hafði hann nú verið hreint og beint brjálaður. Þegar Lee fann, að nægur tími var liðinn, gekk hann beitt til verks. Hann settist beint andspæn is Adam, til þess að halda eftir- tekt hans vakandi. „Hvernig líður yður?“ spurði hann. „Ágætlega". „Þér eruð þá ekki að hugsa um að draga yður inn í gömlu skelina aftur?“ „Hvers vegna datt yður í hug, að ég myndi gera það?“ spurði Adam. „Það var sami svipurinn á and- liti yðar og í þá daga og augun í yður eru eins og augu manns, sem gengur í svefni. Særir þetta mjög tilfinningar yðar?“ „Nei", sagði Adam. — „Ég var bara að hugsa um það, hvort ég stæði nú uppi, algerlega eignalaus, með tvær hendur tómar“. „Ekki alveg“, sagði Lee. — „Þér eigið enn þá eitthvað nálægt tíu þúsund dollurum og svo jörðina". „Hérna er tvö þúsund dollara reikningur fyrir vinnu við að fjar lægja salatdrulluna, í New York“, sagði Adam. „Ég gerði ráð fyrir því“. □—--------------------□ Þýðing Sverrn Haraldsson □----------------------n „Svo skulda ég talsvert fyrir nýju frystivélarnar". „Hún er greidd“. „Og ég á þá samt eftir tíu þús- und dollara?" „Og jörðina", sagði Lee. — „Kannske getið þér svo selt ísgerð ina með vélum og öllu saman“. Það kom harka í svip Adams og brosið hvarf af vörum hans: „Ég er enn sannfærður um að þetta er framkvæmanlegt“, sagði hann. — „Ólánið elti mig bara alveg sér- staklega í þetta skiptið. Ég ætla mér að eiga íshúsið framvegis. — Kuldinn er og verður gott varnar meðal við skemmdum á matvælum, hvað sem hver segir um það. — Auk þess gefur íshúsið af sér nokkra peninga. Kannske dettur mér svo eitthvað nýtt í hug“. „Reynið samt ekki að láta yður detta í hug eitthvað sem kostar peninga", sagði Lee. — „Mér þætti slæmt að missa gasvélina mína“. S. Tvfburarnir tóku sér mistök Adams mjög nærri. Þeir voru orðn Byrja aftur að kenna Frönsku-þýsku-ensku Sérstök áherzla lögð á talæfingar. — Undirbúning- ur undir sérhvert próf. DR. MELITTA URBANCIC Til viðtals 12—2 Sími 34404 Úrvals húsgögn Útskorin sófasett Hringsófasett Armstólasett Nýtízku sett: Svefnsófar Sófaborð Skrifborð • g Smáborð, 3 gerðir Jólaannríkið er byrjað. Pantið húsgögnin tíman- lega. — Munið að afborgunarfyrirkomulag á hús- gögnum hjá okkur er þannig, að allir geta ráðið vtð að eignast þau. Bólsturgerðin h.f. Brautarholti 22 — sími 10388 ir fimmtán vetra gamlir og þeir höfðu svo lengi vitað, að þeir væru synir auðugs manns, að þeim veitt ist erfitt að venjast öðru. Verst fannst þeim þó það, að viðburður- inn var yfirleitt hafður að háði og spotti meðal almennings. Þeir minntust með hryllingi stóru aug- lýsingaspjaldanna á flutningavögn unum. Þótt kaupsýslumennirnir gerðu grín að Adam, þá var það þó ekkert í samanburði við allar þær skapraunir sem drengirnir urðu að þola í skólanum. Lengi á eftir voru þeir oftast kallaðir: „Aron og Cal Salat“, eða blátt áf.am: „Kálhöfuðið“. Aron ræddi málið við Öbru: — „Nú verður allt öðru vísi, hér eft- ir“, sagði hann. Abra var orðin stór og falleg stúlka. Brjóstin voru hvelfd og stin: . líkaminn farinn að fá á sig mjúkar vaxtarlínur þroskaðrar konu og svipurinn rólegur og hlýr. Hún var meira en falleg og hríf- andi. Hún var sterk, örugg og kvenleg. Hún virti fyrir sér áhyggjufullt andlit hans og spurði: — „Hvað er það, sem verður öðru vísi?“ „Ja, í fyrsta lagi, þá erum við víst orðnir fátækir". „Þú hefðir a. m. k. unnið, hvort sem var“. „Þú veizt að ég hafði hugsað mér að fara í skóla“. „Þú getur gert það. Ég skal hjálpa þér. Tapaði pabbi þinn öll- um þeim peningum sem hann átti?“ „Ég veit það ekki, en menn segja það“. „Hvaða menn?“ „Já, því ekki það?“ „Menn gætu séð til okkar". „Ég vil að menn sjái það“, sagði Abra. „Nei“, sagði Aron. — „Ég kæri mig ekkert 'um að gera slíkt á al- mannafæri". Hún gekk fram fyrir hann og stanzaði hann: — „Mér er full- komin alvara", sagði hún. — „Kysstu mig“. „Hvers vegna?" „Svo að allir viti að ég sé til- vonandi frú Kálhöfuð', sagði hún hægt og með áherslu. Hann kyssti hana stuttum, feimnislegum kossi. — „Kannske ætti ég að slíta trúlofun okkar sjálfur", sagði hann. „Hvað áttu við, Aron?“ „Ég er ekki lengur nógu góður fyrir þig. Ég er bara fátækur strákur, sem ekki hef upp á neitt að bjóða. Heldurðu kannske að ég hafi ekki tekið eftir breytingunni á pabba þínum í viðmóti við mig?“ „Þetta er bara tóm vitleysa", sagði Abra. En hún varð samt ör- lítið óróleg á svipinn, því að einn- ig hún hafði tekið eftir breyting- unum, sem Aron minntist á. Þau fóru inn í Bells-barinn, settust við eitt borðið og pöntuðu rjómaís. Aftur fór Abra að hugsa um þá breytingu, sem orðið hafði á föður hennar, síðan mistökin með frysta grænmetið höfðu átt sér stað. Hann hafði sagt við hana — „Heldurðu að þú ættir ekki að reyna að eignast einhverja aðra kunningja, svona til tilbreyt- ingar?" „En við Aron erum trúlofuð". „Trúlofuð", hreytti hann út úr sér hæðnislega. — „Hvenær varð það venja að hörn trúlofuðust? Þú i Skrifsfofustúíka Stúlka vön algengum skrifstofustörfum og síma- vörzlu óskast sem fyrst. — Upplýsingar á skrif- stofunni (ekki í síma) Laugaveg 15. & Co. 4ra herb. íbúðarhœð með sér hilaveitu og sér þvottahúsi við Þórsgötu til sölu. Nýja Fasteignasalan Bankastræti 7, sími 24300 MARKÚS EftirEdDodd 1) Eldurinn fer vaxandi vegna | 2) — Nú verða allir að fara | 3)—Við getum snúið aftur til. 4) — Jæja, þá er tækifærið pess að nokkur vindur er á. Hann og berjast við skógareldinn. — hans, ef eldurinn nálgast hest- komið. ^ , y stefnir að Týndu skógum, En á ekki að gæta blinda folans. húsið. 1 ý verður nú víst að horfa betur í kringum þig fyrst, telpa mín. Það eru fleiri fiskar í sjónum en hann“. Og hún minntist þess, að hann hafði nýlega talað eitthvað um það, að eplið félli víst oftast ná- lægt ti'énu og einu sinni sagði hann eitthvað um fjölskyldu- h:ieyksli, sem ómögulegt væri að halda leyndu endalaust. Svona hafði hann aldrei talað, fyrr en orðrómurinn komst á gang um það að Adam hefði misst allar eigur sínar. Hún hallaði sér fram yfir borð ið: — „Veiztu hvað við skulum gera?“ sagði hún. — „Það er í rauninni jafnauðvelt og að súpa kalt vatn“. „Hvað er það?“ „Við getum rekið búskap á jörð- inni hans pabba þíns. Pabbi minn segir að það sé mjög góð bújörð“. „Ég ætla ekki að verða bóndi og þú átt ekki að verða bónda- kona“, sagði Aron ákveðið. „Ég ætla mér að verða eigln- kona Arons, hvaða atvinnu sem hann kann að stunda“. „Ég ætla mér ekki að hætta við námið“, sagði hann. „Nei, þú þarft þess heldur ekki“, sagði Abra. — „Ég skal hjálpa þér“. „Og hvar ætlarðu að fá pen- inga til þess?“ „Ég stel þeim“, sagði hún. „Ég vil fara burt úr þessarri borg“, sagði hann. — „Hérna hlæja allir að manni. Ég þoli það ekki lengur“. „Innan skamms verða allir bún- ir að gleyma þessu“. „O, nei, nei. Það gleymist aldrei, sannaðu bara til. Ég get alls ekki verið hérna á skólanum í tvö ár til“. SHUtvarpiö Sunnudagur 22. septembert Fastir liðir eins og venjulega, 11,00 Messa i barnaskóla Kópav, (Prestur: Séra Tómas Guðmunds son á Patreksfirði. Organleikari: Guðmundur Matthíasson). 15,00 Miðdegistónleikar (plötur). 16,30 Veðurfregnir. Færeysk guðsþjón- usta (Hljóðrituð í Þórshöfn). — 17,00 „Sunnudagslögin". — 18,30 Barnatími (Baldur Pálmason), 19,30 Tónleikar: Laurindo Al- meida leikur á gítar (plötur). — 20,20 Myndlistarþáttur: Júlíana Sveinsdóttir og yfirlitssýningin á verkum hennar (Björn Th. Björna son listfræðingur). 20,35 Tónleik- ar (plötur). 21,00 Upplestur: — Kvæði eftir Sigurjón Friðjónsson (Andrés Björnsson). 21,16 Kór- söngur (plötur). 21,35 Upplestur: „Palmira gamla", smásaga eftir Tom Kristensen (Hannes Sigfúa- son þýðir og les). 22,05 Danalög (plötur). 23,30 Dagekrárlok. Mánudagur S9. septemberi Fastir liðir eins og venjulega, 19.30 Lög úr kvikmyndum (pl.>< 20.30 Útvarpshljómsveitin; Þór- arinn Guðmundsson stjórnar. — 20,50 Um daginn og veginn (Séra Sveinn Víkingur). 21,10 Einsöng. ur: Nan Merriman syngur spænsk lög; Gerald Moore leikur undir á píanó (plötur). 21,30 Útvarpssag an: „Barbara" eftir Jörgen- Frantz Jacobsen; VI. (Jóhannes úr Kötlum). 22,10 Fiskimál: Með rannsóknaskipi kringum land (Að alsteinn Sigurðsson fiskifræðing- ur). 22,35 Nútímatónli«t: Verk eft ir Béla T,artók (plötur). 23,00 Dagskrárlok. Þriðjudagur 24. septemberi Fastir liðir eins og venjulega. 19.30 Þjóðlög frá ýmsum löndunt (plötur). 20,30 Erindi: Blaðamenn á landshöfðingjatímabilinu (Magn ús Jónsson fyrrum prófessor). 20,55 Tónleikar (plötur). — 21,20 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson). 21,40 Tónleikar (plötur). — 22,10 Kvöldsagan: „Græska og getsak- ir“ eftir Agöthu Christie; XI, (Elías Mar les). 22,30 „Þriðju- dagsþátturinn". — Jónas Jónas- son og HaukUr Morthens hafa um- sjón með höndum. 23,20 Dagskrár lok. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.