Morgunblaðið - 22.09.1957, Side 15
Sunnuéfpgur 9.9.. copt 10R7
íuonarnvnr 4Ð1B
15
Það var fallegt við brúna á Andakílsá, að horfa upp Skarðs-
heiðina og Skessuhorn, — nýfaliinn snjór var í fjallseggjum.
(Ljósm. Gunnar Rúnar).
«>-----------------------------
— Á Arnbjargarlœk
Framh. af bls. 11.
ég forkunnarfallega konijaks-
flösku, sem hefði getað verið frá
dögum Lúðvíks XIV. Skrautleg,
frönsk og með dýrasta og bezta
innihaldi.
— Þú tekur þessa upp á af-
mælinu?
— Ætli ég láti það ekki bíða,
þar til ég verð níræður, sagði
Davíð. .
— Áður en við förum langar
mig til að spyrja þig, hvers þú
óskar þér á þeim merkisdegi, sem
nú er óðum að nálgast?
— Að sem flestir komi, sagði
Davíð án þess að hugsa sig um
eitt andartak.
Við kvöddum frú Guðrúnu á
tröppunum, en hún hafði borið
ljósið niður og út í kvöldkyrrð-
ina. Davíð fylgdi okkur að bíln-
um. Norðurljósin leiftruðu yfir
Borgarfirðinum, í fjarska heyrð-
um við gargið í heiðargæsinni,
sem er að búast til brottflugs.
— Þið skuluð hafa þetta með
ykkur til að taka úr ykkur hroll-
inn ef á þarf að halda, sagði
Davíð á Arnbjargarlæk, og rétti
okkur ferðapela. — Þið hefðuð
átt að koma hér fyrr í dag, þá
hefði ég gengið með ykkur rétt
upp fyrir hlöðuna, en þaðan get-
um við talið 40 býli, sagði hinn
aldni borgfirzki bændahöfðingi,
sem nú hefur látið af búskapn-
um sjálfur og látið óðal sitt í
hendur syni sínum Aðalsteini og
konu hans Brynhildi Eyjólfsdótt-
ur.
Við kvöddum og þókkuðum.
A heimleiðinni ræddum við um
þessa heimsókn til Davíðs á Arn-
bjargarlæk. Þar með hafði í raun
inni rætzt rúmlega 20 ára draum-
ur um að gaman gæti verið að
koma að Arnbjargarlæk.
— Sv. Þ.
Almennar samkomur
Boðnn fagnaðarerindisins
Austurgötu 6, Hafnarfirði, á
sunnudögu.n kl. 2 ög 8.
EGGERT CLAESSEN og
GCSTAV A. SVEINSSON
hœbtaréttarlögmcnn.
Þárshamri við Templarasund.
Knatlspyrnumót
Suðurnesja
KNATTSPYRNUMÓT Suður-
nesja i 1. flokki hefst í dag kl. 6
á grasvellinum í Njarðvíkum, að
afloknum leik Keflvíkinga og Ak-
urnesinga.
Aðeins tvö lið hafa tilkynnt þátt
töku og er því einasti leikur móts-
ins milli Reynis í Sandgerði og
Iþróttafélags Keflavíkurflugvall-
ar
7. umferð á laflmól-
inu í kvöld
1 KVÖLD kl. 7.30 verður 7. um-
ferð á Stórmóti Taflfélagsins
tefld í Listamannaskálanum. Þá
tefla þessir saman og hafa hvítt
þeir sem fyrr eru taldir:
Stahlberg : Ingi R. — Friðrik :
Ingvar — Pilnik : Arinbjörn —
Benkö : Guðm. Pálmason — Gunn
ar : Björn — Guðm. Ágústsson :
Guðmundur S.
Cunnar Jónsson
Lögmuður
við undirrétti og hæstarétt.
Þingholtsstræti 8. — Simi 18259.
I. O. G. T.
Morg unsíjarnan nr. 11,
Fundur annað kvöld kl. 8.30.
Fjölmennið. Æt.
St. VÍKINGUR
Fyrsti fundur eftir sumarfríið
verður annað kvöld mánud. 23.
sept. Rætt um starfið. Erindi
flytur Pétur Sigurðsson ritstjóri.
För 50 íslendinga til Bandaríkj-
anna í sumar. Félagar, fjölsækið
stundvíslega. — Æ.t.
Vefrarstarfið
að hefjast
H AFN ARFIRÐI — Aðalfundur
Bridgefélags Hafnarfjarðar var
haldinn í Alþýðuhúsinu sl. mið-
vikudag. Var Kári Þórðarson end
urkjörinn formaður og með hon-
um í stjórn eru þeir Einar Guðna
son, Kristján Andrésson, Jón
Pálmason og Ámi Þorvaldsson.
Vetrarstarfið er nú að hefjast
og verður með svipuðu sniði og
undanfarna vetur. Verður spilað
í Alþýðuhúsinu, en ekki hefir ver-
ið ákveðið á hvaða dögum. — G.E.
Samkomui
Hjálpræðisherinn.
Kl. 11 Helgunarsamkoma.
— 2 Sunnudagaskóli
— 4 Útisamkoma
— 8,30 Almenn samkoma.
— Allir velkomnir.
Z 1 O N
Alm. samkoma í kvöld kl. 8,30.
— Hafnarjörður: Samkoma í dag
kl. 4 e. h. — Allir velkomnir. —
— Heimatrúboð leikmanna.
Bræðraborgarstíg 34.
Almenn samkoma í kvöld kl.
8,30. — Allir velkomnir.
FtLADELFÍA
Brotning brauðsins kl. 4. —
Almenn samkoma kl. 8,30. —
Ræðumenn Þórarinn Magnússon
og Garðar Ragnarsson. — Allir
velkomnir.
Félagslíf
Haustmót 3. fl. B
sunnud. 22. sept. á Valsvellinum
kl. 9.30. — Fram—Valur.
Mótaefndin.
Haustmót 2. fl. A
sunnud. 22. sept. á Háskólavell-
inum. Kl. 16.00 Valur-Víkingur.
Mótaefndin.
Ilaustmót 3. fl. A
sunnud. 22. sept. á Háskólavell-
inum. Kl. 9.30 Valur—KR —
Kl. 10.30 Fram—Víkingur.
Mótaefndin.
Haustmót I. fl. í dag kl. 4. —
Valur—Þróttur.
Mótanefndin.
SWEDEN?
LOFT UR h.f.
Ljósinyndastofan
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma i sima 1-47-72.
Símim er:
— Reykjavíkurbréf
Frh. af bls. 2
landanna, Frakklands, Ítalíu og
Þýzkalands. Schuman fæddist
sem þýzkur ríkisborgari í Elsass
og Lothringen, lærði í Strass-
burg, meðan hún laut yfirráðum
Þjóðverja og varð að þola af
þeim harðræði á styrjaldarárun-
um. En hann er eindreginn
franskur föðurlandsvinur, sem
hefur glöggan skilning á nauðsyn
þess að eyða hinni fornu misklíð
Frakka og Þjóðverja. Ef mönn-
um eins og honum og Adenauer
tekst ekki að vinna þar á, mun
öðrum seint takast.
Schuman er einn þeirra er með
hægð og rólyndi skapa sér hvar-
vetna traust, enda ber hann góð-
leik og göfugmennsku með sér.
í ræðu sinni lagði Schuman á-
herzlu á, að samfélag hinna
frjálsu Evrópuþjóða og Atlants-
hafssamfélagið væru ekki and-
stæð heldur efldu og styrktu
hvort annað. Sama skoðun kom
fram hjá einum helzta leiðtoga
danskra jafnaðarmanna, Frode
Jakobsen, sem hélt ágæta ræðu,
er á var hlýtt af mikilli athygli.
22-4-40
BORGAKBILSTÖÐIN
Hvítor veggflísor nýkomnor
Everesf Trading Company
Garðastræti 4, sími 10969
B œ n d u r
Athugið og smyrjið Dening múga- og sláttuvélar yðar
fyrir veturinn og sendið strax panntanir til næsta kaup-
manns, kaupfélags eða beint til okkar.
IkMJöím
T
Oo
u
Gólfteppi nýkomin
Teg. Symbol
Triumph
165x235 kr. 983,00
200x300 — 1.520,00
250x350 — 2.216,00
200x300 — 1.265,00
250x350 — 1.845,00
165x235 — 819,00
KRISTJÁN SIGGEIRSSON hf.
Laugavegi 13, súni 1-38-79
Alúðarþakkir flyt ég öllum þeim, er glöddu mig meS
heimsóknum, gjöfum og skeytum á sextugsafmæli mínu
13. þ.m.
Baldvin Oddsson,
Grænuborg.
Jarðarför eiginkonu minnar
KRISTÍNAR MEINHOLT
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 25. þ.m.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Axel Meinhott.
Hjartkær maðurinn minn faðir okkar, tengdafaðir og afi
GUÐLAUGUR GUÐLAUGSSON
bílstjóri verður jarðsunginn frá Dómkirkjunnr, þriðju-
daginn 24. sept. kl. 1,30 e.h.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Guðrún Eyleifsdóttir frá Árbæ,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Systir okkar
GEIRÞRÚÐUR FANNEY NIKULÁSDÓTTIR
frá Kirkjulæk verður jarðsungin frá Fossvogskapellu,
þriðjud. 24 þ.m. kl. e.h.
Sigriður Nikulásdóttir, Halldóra Nikulásdóttir,
Bryndís Nikulásdóttir, Halldóra Nikulásdóttir,
Páll Nikulásson, Bogi Nikulásson.
JÓHANN STEINÞÓRSSON
húsgagnasmíðameistari Kársnesbraut 2A, Kópavogi, verð
ur jarðsettur á mánudaginn 23 þ.m. frá Fossvogskirkju
kl. 2 e.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Helga Ámundadóttir, Ragnheiður Árnadóttir,
og börnin. og systkini.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og jarðarför
HARALDS HANSEN
Anna Brynjólfsdóttir, Gunnar Gíslason.