Morgunblaðið - 24.09.1957, Page 3
Þriðjudagur 24. sept. 1957
MORCV1SB1 4ÐIÐ
3
Arbæjarsafnið ó þegar morgt
merkilegra safnmunaj
Það var opnað á laugardaginn
KLUKKAN rúmlega 2 á sunnu-
daginn opnaði Gunnar Thorodd-
sen borgarstjóri, Árbæjarsafnið.
Er það safn merkilegur vísir að
byggðasafni Reykjavíkur. Hefur
hundruðum muna verið komið
fyrir í hinum gamla sveitabæ og
gististað, Árbæ. Þegar á sunnud.
munu hafa komið um 1200 manns
að Árbæ. Safnið er miðað við Ár-
bæ sem hvorttveggjaísenn sveita
bæ og gististað fyrir ferðamenn.
Menn létu almennt ánægju sína
í ljós með þann árangur, sem
þegar er náð. Ennþá er mikið
verk óunnið, en það er lagfæring
og enn frekari umbætur á bæj-
arhúsunum.
Klukkan laust fyrir 2, tóku menn
að safnast saman við Árbæ. Þar
voru auk borgarstjóra Lárus Sig-
urbjörnsson skjalavörður, nokkr
ir bæjarfulltrúar svo og fulltrúar
frá Reykvíkingafélaginu og
nokkrir aðrir, alls um 25—30
manns.
Kl. 2 kvaddi borgarstjóri sér
hljóðs á bæjarhellunni og flutti
ræðu, þar sem hann gerði stutt-
lega grein fyrir Árbæjarsafni og
aðdragandanum að stofnun þess.
^lugmyndina um minjasafn
fyrir Reýkjavíkurbæ setti fyrst-
ur fram Árni J. I. Árnason bók-
ari hjá Gasstöðinni í bréfi til bæj
arráðs dags.22.okt.1942, og fylgdi
bréfi hans vaktaraklukka gömul,
er síðast var notuð um aldamót og
nú er í Árbæjarsafni. Á fundi
sínum 23. okt. s.á. fól bæjarráð
þáverandi borgarstjóra Bjarna
Benediktssyni, að athuga tillögu
Árna og 15. des. s. á. ritaði hann
stjórn Reykvíkingafélagsins um
málið og óskaði eftir samvinnu
við félagið og bað um till. þess.
Eftir þetta tók Reykvíkingafélag-
ið við Árbæ og hugðist koma þar
upp minjasafni, á hina höndina
keypti bæjarstjórn Reykjavíkur
af dánarbúi dr. Jóns Helgasonar
biskups Reykjavíkurmyndasafn
hans, málverk og teikningar,
haustið 1945 og fól það skjala-
safni bæjarins til vörzlu.
í marzmánuði 1947 samþykkti
bæjarstjórnin að tillögu Jóhanns
Hafsteins að koma upp bæjar-
safni Reykjavíkur, þar sem varð-
veittar yrðu fornar minjar úr
byggð og sögu bæjarins.
Fyrir nokkrum árum bar Árbæ
og endurreisn hans á góma í b.-Rj
arráði og samþ. það ályktun þess
efnis „að hefjast handa um endur
reisn Árbæjar og samþykkir að
láta skipuleggja Árbæjartún og
næsta nágrenni með það fyrir
augum að friðlýsa svæðið
Ákveðið var „að stefna að því
að svæðið yrði almenningsgarður
og verði fluttar þangað eða end-
urreistar menningarsölulega
merkar byggingar í bænum eftir
því sem við verður komið. Bæjar
ráð felur Lárusi Sigurbjörnssyni
skjala- og minjaverði bæjarins,
Gunnari Ólafssyni skipulags-
stjóra og Hafliða Jónssyni garð-
yrkjuráðunaut að gera tillögur
um fyrstu framkvæmdir"
Strax og framkvæmdir hófust
við lagfæringar á bæjarhúsunum
í Árbæ tóku að berast gjafir til
safnsins. Varð brátt þröngt um
safngripina í Skjala- og minja-
safni bæjarins í Skúlatúni 2 og
voru þeir því fluttir í Árbæ og
ákveðið að opna safnið í haust
og hafa opið fram eftir hausti
meðan veður leyfir. Gefendur til
safnsins skipta tugum, en lang
stærstar gjafir hafa borizt frá
Reykvíkingafélaginu og Magnúsi
Guðbjörnssyni póstmanni. Þau
hjónin Hulda og Einar Sveinsson
húsasmíðameistri gáfu Reykvík-
DAVÍÐ óðalsbónda Þorsteins-
syni á Arnbjargarlæk, varð að
ósk sinni á afmælisdaginn. Hann
hafði óskað að sem flestir gætu
komið til sín af vinum og kunn-
ingjum. Það var látlaus straum-
ingafélaginu á sínum tíma safn
gamalla muna, sem móðir frú
Huldu, frú Þorbjörg Bergmann
frá Hafnarfirði, hafði safnáð og
var tilætlunin, að þetta safn yrði
sett upp í Árbæ. Nú er bærinn
tók Árbæ aftur í sína vörzlu, af-
henti framkvæmdastjóri félags-
ins, Sveinn Þórðarson, bankafé-
hirðir, safnið með samþykki fyrri
gefenda. Telur það 378 skráða
muni. í safni Magnúsar Guð-
björnssonar eru skráðir munir
um 150 talsins, en fátt þeirra hef-
ur enn verið afhent til safnsins,
því að gefandi hefur ákveðið, að
verðlaunagripir og aðrir persónu
legir munir verði ekki afhentir
fyrr en eftir hans dag.“
í þessari ræðu sinni færði
borgarstjóri gefendum öllum
þakkir bæjarstjórnar fyrir mikils
verðan stuðning við Árbæjarsafn
ið, einnig Lárusi Sigurbjörns-
syni ötult starf vegna safnsins,
og lauk borgarstjóri orðum sín-
um með því að lýsa Árbæjarsafn
opið almenningi og ósk um að
gestir mættu þangað sækja nokk
urn fróðleik. Kvaðst hann loks
vilja biðja gesti safnsins að ganga
par vel um.
Borgarstjóri gekk fyrstur inn I
bæinn, en síðan séra Bjarni Jóns-
son vígslubiskup og kona hans,
og þá gestirnir hver af öðrum og
var þéttskipað í gamla bænum.
ur gesta allan daginn að Arn-
bjargarlæk og munu um 200
manns hafa heilsað upp á hinn
aldraða bændahöfðingja, en auk
þess barst mikið af skeytum og
kveðjum. Hreppsnefndin færði
honum að gjöf vandaða vegg-
í stofum niðri er mikill fjöldi
af gömlum póstkortum frá
Reykjavík, svo og gamlar Reykja
víkurmyndir og stöldruðu gest-
irnir lengi við þær og skoðuðu.
Þar er skrifborð Björns Jónsson-
ar ísafoldarritstj. og við þáð skrif
borðsstóll Knud Zimsen borgar-
stjóra. Á skrifborðinu er stór
mappa utan um teikningar, er
Jón Helgason biskup gerði, en
biskupsfrúin hefur 'saumað utan I
um hana, en ekki lokið alveg við
annan stafinn í fangamarki bisk-
ups. Þar eru mælitækin, sem Sig-
urður Thoroddsen bar á ferðum
sínum, gamla gjaldkeraborðið úr
borgarstjóraskrifstofunum. Marg
ir askar eru á borði í matstofu
inn af eldhúsi. I eldhúsinu eru
undir gléri pósthorn Hannesar
Reykjavíkurpósts. Merkispjald
Margrétar heit. á Árbæ og nokkr
ir lyklar við það. Þar er og vakt
araklukkan fræga.
Skemmtilegt þótti gestum að
koma á baðstofuloftið. Einhver
hafði orð á því, að engu væri
líkara en „heimilsfólkið" væri á
engjum, því svo er þar margt af
þeim húsbúnaði, sem tíðkaðist á
hinum gömlu baðstofuloftum.
Þar er Steinsbiblía, rokkar, stól-
kambar, lár, snældurokkar, tó-
baksjárn, kistlar og rúmfjalir, en
við rúmin hanga skarttreyjur. Á
gistiloftinu í Árbæ þar sem rúm
ferðalanga standa uppbúin, er
stóll og þvottaskál á borði. Hér
bjó Margrét á Árbæ síðast. í
eldhúsinu er vel fægð „nýtízku
kolaeldavél", en einnig eru þar
Framh á bls. 19
klukku. Var Davíð hinn hress-
asti og lék á als oddi svo sem
hans er vani þá er vinir hans
koma að Arnbjargarlæk, sumir
voru komnir um langan veg til
þess að óska honum til hamingju
á þessum merkisdegi.
STAK8TEIMAR
Ásakanir á Steingrím?
Tíminn ræðir á sunnudaginn
um „útsvarsmálið í Reykjavík".
Blaðið segir m. a.:
„Málið er að vísu engan veginn
nýtt. — — — Þessi ránsferð í
vasa borgaranna hófst fyrir 4
árum, en var þá með þeirri hóf-
semd, að ekki var tekin nema
rösk milljón í það sinn. Almenn-
ingur lét kyrrt liggja, og þá færðu
bæjaryfirvöldin sig upp á skaft-
ið og tók 2,2 millj. á næsta ári.
Þriðja árið komst hin ólöglega
skattheimta upp í 3,3 milljónir,
og er þá svo að sjá, sem borgar-
stjórnin hafi talið sér alla vegi
færa, því að á þessu ári komst
upphæðin í 7 milljónir. En þá
sprakk blaðran“.
Hér viðurkennir Tíminn, að
sömu aðferð og nú er deilt um,
hafi verið beitt við útsvarsálagn-
inguna s. 1. 4 ár. Ef þar hefði
verið um „ránsferð í vasa borg-
aranna“ að ræða, hefði þáverandi
félagsmálaráðherra, Steingrímur
Steinþórsson, vitanlega látið mál
ið til sín taka. Afskiptaleysi hans
setur Tímann í mikinn vanda, því
að annaðhvort verður blaðið að
viðurkenna, að ásakanir þess nú
eru gegn betri vitund, eða Stein-
grímur Steinþórsson hefur gerzt
sekur um frekieg embættásaf-
glöp. Því að það var ekki fyrr
en Hannibal var tekinn við, sem
„blaðran sprakk“ að sögn Tím-
ans.
„Fíflslegur uppspuna-
þvættingur“
Á málflutningi Tímans mátti
lesa skorinorða lýsingu í Þjóð-
viljanum á laugardaginn var.
Þar sagði m. a.:
„Þetta er kannski ekki eins
mikill þvættingur og sumt annað,
sem maður hefur lesið í Tíman-
um, en helber ósannindi eru það
samt.--------Hins vegar finnst
mér illa sitja á Tímamönnum að
brigsia öðrum um að skrifa
„furðulegasta röfl“ í blöðin, þar
eð ekkert blað á íslandi hefur
orðið uppvíst að því að bera fífls-
iegri uppspunaþvætting á borð
fyrir lesendur sína en einmitt
Tíminn“.
Við þessa lýsingu þarf engu að
bæta, enda má Þjóðviljinn gerst
um vita, því að hann er sá, sem
harðastri keppni heldur uppi við
Tímann i þessum efnum.
Furðuleg afstaða
Svo er að sjá sem Þjóðviljinn
hafi haft „ljóst augnablik“ á
laugardaginn, því að þá segir þar
einnig:
„Þá finnst mér afstaða fuli-
trúa Alþýðuflokksins í niður-
jöfnunarnefnd furðuleg og í mót-
sögn við afstöðu fulltrúa sama
flokks í bæjarstjórn, en það er
raunar ekki í fyrsta sinn sem
tvískinnungs gætir í afstöðu AI-
þýðuflokksins, þegar um það er
að ræða að standa annað hvort
með íhaldinu eða gegn því“.
Hér er að vísu höfð endaskipti
á, þvi að það er afstaða bæjar-
fulltrúa Alþýðuflokksins, sem er
„furðuleg“. Fulltrúi flokksins i
niðurjöfnunarnefnd hefur hins
vegar farið alveg rétt að, þótt
flokksbræður hans í bæjarstjórn
hafi ekki borið gæfu til að fylgja
honum vegna hins venjulega „tví
skinnungs".
Alþýðuflokksmaðurinn í nið-
urjöfnunarnefnd lét málefnin
ráða og varð Sjálfstæðismönnum
sammála. Bæjarfulltrúarnir hafa
aftur á móti flækzt í áróðursnetl
kommúnista ennþá rétt einu sinni
með þeim árangri, að auglýsa
tvískinnung sinn fyrir alþjóð.
í gamla hlóðaeldhúsinu.
Eins og í góðri baðstofu fyrir 50—70 árum.
Mikið fjolmenni heimsótti Davíð á Arnbjargarlœk
Sumardagur á heimatúninu að Arnbjargarlæk. (Ljósm. Páll Jónsson).