Morgunblaðið - 24.09.1957, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.09.1957, Blaðsíða 8
8 MORGUWBl AÐIÐ Þriðjudagur 24. sept. 1957 Annan vélstjóra vantar strax á góðan reknetjabát frá Hafnarfirði. — Upplýsingar í síma 50165. Vönduð 3jn herb. íbúðarhæð við Blönduhlíð til sölu. Nýja fasteignasalari Bankastræti 7, sími 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. 18546 HÚSEIGNIN 1 Laufásvegur 48 er til sölu. Tilboð í eignina ber að senda fyrir 27. þ.m. til Bjarna Bjarnasonar, lögfræðings, Túngötu 16, Reykjavík, sími 12448 eða Eiríks Pálssonar, lög- fræðings, Suðurgötu 51, Hafnarfirði, sími 50036. Kaupmenn - Kaupfélög Herkúles barnaúlpur Stærðir 4—10 þrír litir. — Söluumboð: BRÆDRABORGARSTIG 7 - REYKJAVÍK Sími 22160 (5 línur) Tillögur frá stjórn V. H. Samningar við Vinnuveitendasamband Islands. Aðalfundur V.R., haldinn 20. febrúar 1956, harmar að Vinnuveitendasamband íslands skuli eigi hafa sinnt til- mælum V. R. um að gerast samningsaðili við félagið, vegna þeirra fyrirtækja í V. L, serti hafa verzlunar- og skrifstofufólk í þjónustu sinni. Vill fundurinn vekja at- hygli alls verzlunarfólks á því, að stjórn V. í. virðist með þessu vilja setja launþega í verzlunarstétt skör lægra en launþega í öllum öðrum atvinnugreinum, sem hún hefur gert samninga við. Heimilar fundurinn stjórn félagsins að leita samstarfs við önnur samtök um að mál þetta fái jákvæða lausn sem fyrst. Brot á kjarasamningi V. R. Þar sem talið er að nokkuð kveði að því að verzlunar- fólk njóti ekki þeirra lágmarkskjara, sem því eiga að vera tryggð með samningum V. R. skorar aðalfundur V.R. á alla launþega, sem telja að samningarnir séu ekki háldn- ir að snúa sér til skrifstofu V. R. sem mun aðstoða þá Ieftir föngum. Sérstaklega vill fundurinn vekja athygli á ákvæðum 8. gr. samningsins, sem kveður á um greiðslu I fyrir eftirvinnu. Jafnframt felur fundurinn stjórn félagsins að beita við- eigandi ráðstöfunum gegn þeim atvinnurekendum, sem verða uppvísir að því, að sniðganga ákvæði kjarasamn- ingsins. Úr verinu Togararnir * ÞESSA VIKU hefur verið ein- muna tíð um allt land, austan og noðaustan hægviðri. Togararnir, sem veiða karfa við Grænland, skiptast hér um bil í tvennt, helmingurinn fyrir vestan landið og hinn fyrir aust- an. Á hemiamiðum eru sárafá skip að karfaveiðum, en nokkur skip veiða þar fyrir erlendan markað. Hjá karfaskipunum hefur afli verið með tregara móti, þótt eitt og eitt skip hafi gert góðan túr. Skip þau, er veiða fyrir erlend- an markað, hafa aflað vel út af Vestfjörðum og á Halanum. — Karlsefni fékk t.d. fullfermi á viku, sem má teljast ágætt um þetta leyti, og er hann á leiðinni út til Þýzkalands með aflann og selur á mánudaginn. Egill Skallagrímsson kom inn í vikunni úr fiskileitarleiðangri til austur Grænlands. Leitaði hann allt frá Hvarfi og norður til Angmasalik á að gizka þrjú til fjögur hundruð mílur. Kom hann með 108 lestir af fiski. Fann hann ekki nein ný mið. Var mikið um festu hjá þeim og þeir rifu vörp- una. Þó hittu þeir sums staðar á sæmilegan togbotn, en fengú hvergi viðunandi afla. Það er oft erfitt vegna íss að komast að því svæði, sem þeir reyndu á. Það má vera, að einhver vis- indalegur árangur hafi verið af þessari ferð, þótt sýnilegur ár- angur sé ekki meiri en þetta. Eftirtalin skip lönduðu í vik- unni: Pétur Halldórss 292 tn 16 dagar inu, og hefur Benóný ásamt sam- eignarmanni sínum í Gullborgu fest kaup á veiðarfærunum. Hinn báturinn verður Sigurður Pét- ur. Nælonvarpa verður nú not- uð, en hún var lítills háttar reynd í fyrra, en var of veik, og hefur verið pöntuð önnur sterk- ari. Benóný hefur óbifandi trú á þessari veiðiaðferð. Seint í fyrrahaust gerði hinn landskunni togaraskipstjóri Bjarni Ingimarsson tilraunir til að veiða þessa suðvesturlands- síld í botnvörpu á togaranum Neptúnusi. Ekki báru þessar til- raunir mikinn árangur, hvað afla magn snerti, frekar en bátanna, enda seint byrjað á þeim og stóðu stutt. Þó verður að segja, að þær voru jákvæðar og það, sem brast í þeim, var, að varpan var ekki nógu sterk. En Bjarni skipstjóri telur engan vafa á, að ná megi síld í vörpu, sé rétt að því staðið. Hann lét Fiskifélaginu í té teikningu að vörpu eins og hann áleit að hún þyrfti að vera, en þeim ,er þetta ritar, hefur ekki tekizt að fá upplýst, hvað gert hefur verið í málinu. Báðar þessar tilraunir voru styrktar af því opinbera. Hér er svo mikið stórmál á ferðinni, að ekki má láta neins ófreistað til þess að leysa það. Afli togaranna þverr með hverju ári, a.m.k. á heimamiðum, og Sjómenn eru enn vongóðir með síldveiðina minnugir þess hversu síldin hagaði sér í fyrra, þegar ekkert veiddist um þetta leyti og fór ekki að veiðast, fyrr en komið var fram undir miðjan október, en þá kom bullandi síld. Togarinn Akurey kom inn í vik unni með 204 lestir af karfa. Vestmannaeyjar Sjóveður var gott alla vikuna, og reru bátar daglega. Týr, sem rær með línu, hefur aflað vel, fengið við 8 lestir í róðri miðað við óslægðan fisk. Er langsótt, um 18 tíma verið í róðrinum. Handfærabátar hafa aflað all- vel suma dagana, allt upp í 10 lestir af .ufsa. Einnig hafa sumir þeirra lagt lúðulínu og fengið dá góðan afla, mést um 1000 kg. í lögn. Nokkrar trillur róa með línu á heimamið, en afla lítið, 300—500 kg. í róðri. Til þess að ýta undir róðra í haust hefur Dæjarstjórnin áitveð- ið að greiða helminginn af lágmarkstryggingu sjómanna á 1 ÞaS er mjög hætt við, að afkoma Hvalfell 277 Egill Skallagr. 108 Uranus 280 Askur um 260 Geir um 260 Austfirðing um 220 12 12 14 14 13 16 Samtals 1697 tn Sölur í vikunni: Röðull 270 tn DM 168.500 Jón forseti 193 — DM 129.000 Salan hjá Röðli er metsala. Bezta sala á undan var hjá Sur- prise í nóvember 1955, DM 148. 00. Reykjavík Netjabátarnir hafa aflað mis- jafnt, skástu bátarnir hafa kom- izt upp í 3 lestir eftir nóttina, þó féKk Aðalbjörg einn daginn 5 lestir og Hermóður 9 lestir. Var það tveggja nátta hjá honum. Nokkrir trillubátar róa með handfæri og afla illa. Einn daginn í vikunni kom trillubátur frá Akranesi með 1000 kg. af ýsu, sem hann hafði fengið á línu í einni lögn. 5—6 bátar stunda reknetjaveið ar, en leggja upp afla sinn suður með sjó. Vélbáturinn Tálknfirðingur fór út á þriðjudaginn, og var ætlun- in að leita að síld. Er báturinn með mjög fullkomin asdiktæki. Veiðistjóri er Ingvar Pálmason, skipstjóri. Akranes 24 bátar stunda nú síldveiðar og eru tveir af þeim leigubátar, annar frá Dalvík, hinn frá Húsa- vík. Venjulega komu ekki inn nema 10—11 bátar, og var aflinn sam-, tals 150 tn. til 270 tn. yfir daginn. Um helmingur af flotanum kem- ur ekki inn, liggur ýmist úti eða fer til Sandgerðis eða annarra hafna, sem styttra er til en Akra- ness, en þangað er 8—9 tíma sigl- ing, þar sem bátarnir eru langt úti. móti útgerðarmanninum, ef til þess skyldi koma, að ekki aflað- ist fyrir tryggingu. Þá hefur beitusíldin verið lækkuð í haust um kr. 1,00 pr. kg., og greiðir bæjarsjóður helminginn af lækk uninni, en frystihúsir. taka á sig hinn helminginn. Þegar þetta var ákveðið í fyrra dag, fóru þrír bátar þegar að láta beita, og búizt er við, að fleiri bætist við. Keflavík Mjög dauft er yfir síldveiðun- um sem stendur. Veiðin fór versn andi, eftir því sem a vikuna leið. Um 50 bátar róa nú með reknet úr verstöðinni. Framan af vik- unni komu daglega inn um % hlutar af þessum flota og voru með að meðaltali um 30 tunnur, er, þeim smáfækkaði, sem inn komu daglega, eftir því sem á v;kuna leið, og í fyrradag komu ekki nema um hlutinn og var þá meðaiafhnn kominn niður í 20 tunnur a skip. Það, sem veiðist, er stór og fal- leg síid, er hún ýmist fryst eða söltuð. Sildveiðar með vörp«u Það er súrt í broti að vita af því ógrynni síldar, sem hér er við Suðvesturlandið, og geta ekki náð meiru af henni vegna frum- stæðra veiðitækni. Ef tækist að veiða síld þessa með einhvers konar vörpu í stað netja, myndi það valda byltingu í fiskveiðum íslendinga á borð við notkun línunnar, botnvörp- unnar, snurpunótarinnar og þorskanétjanna. Ein tvö, þrjú undanfarin ár hafa tveir menn úr Vestmanna- eyjum, Jóhann Sigfússon og Kjartan Friðbjarnarson, gert til raunir með flotvörpu af svo- nefndri Larsensvörpu. Hafa þess ar tilraunir borið lítinn árangur, hvað veiði snertir, en hins veg- ár veitt dýrmæta reynslu um styrkleika og gerð veiðarfær- anna og orðið til þess að vekja á- huga á þessari veiðiaðferð hjá þeim, er að þeim hafa starfað. Annar skipstjóranna, en bátarn ir eru tveir, sem draga vörpuna, var hinn mikli aflamaður Benó- ný Friðriksson, sem hefur verið aflakóngur Vestmannaeyja marg ar vetrarvertíðir og raunar alls íslands, að því er vélbátana varð- ar. Hinn var Þorsteinn Gíslason frá Görðum, einnig kunnur sjó- sóknari og fengsæll skipstjóri úr Eyjum. Nú er ætlunin að halda þessum tilraunum áfram í haust, en eig- endaskipti hafa orðið að úthald- þeirra verði tvísýn í náinni fram tíð, nema þeim takizt að veiða síld í einhvers konar vörpu. Rík- ið hefur riðið á vaðið með þessar merku tilraunir og má ekki gef- ast upp á miðri leið. Það þarf að tryggja það, að 'þessar veiðar verði stundaðar bæði af bátun- um og togara, alveg til n.k. ára- móta. Hér er til svo mikils að vinna. Rússar og brezkur freðfiskur Rússar hafa hafnað boði brezka fiskiiðnaðarins um kaup á freð- fiski, en hafa hins vegar tjáð sig vilja atnuga kaup á síld, ef verð- ið væi’i aðgengilegt. Fiskveiðasýningin danska Danir héldu í fyrra mikla fisk- veiðasýningu. 27. þ.m. hefst önn- ur sams konar ’sýning og stend- ur til 6. október. Á sýningu þess- ari verður m.a. fullkomin flök- unarstöð með nýjustu fiskvinnslu vélum, pökkunarborðum og hrað frystitækjum, þar sem sýnd verð ur nýjasta aðferð á vinnslu fisks íns frá fyrstu hendi yfir í frosin flök. Einnig verða sýndar vélar til vinnslu á síld. í fyrra sóttu margir íslendingar þessa sýn- ingu. ís úr söltu vatni Nýjustu tilraunir hafa leitt I ljós.að ís framleiddur úr vatni með vissu magni af salti í, geym ir betur fisk en ís framleiddur úr fersku vatni. Á 9. degi var fiskurinn ágæt- ur, hvor tegundin af ísnum sem notuð var. Fiskurinn var einnig nothæfur, þótt hann hefði legið allt að 13 daga í ís. En úr því var tvísýnt um gæði hans. Fiskurinn úr ísnum, sem framleiddur var úr vatni blönduðu salti, var kald- ari en hinn. Hins vegar kom í ljós að sá ís bráðnaði fyrr, og þurfti því meira af honum. Hver vill gera þessar tilraunir hér? Svíar neyta mikils frosins fisks í Svíþjóð selja 10.000 smásölu- búðir frosinn fisk, og er frosinn fiskur 50% af sölu frosinna mat- væla. í Bretlandi eru þetta hins vegar ekki nema 15% og í Banda ríkjunum 8%. Þarna er vaxandi markaður fyrir íslenzkan freðfisk. Saxtikomur K. F. U. K. Saumafundur í kvöld kl. 8,30. Upplestur, kaffi o. fl. Fjölmenn- um á fundinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.