Morgunblaðið - 25.09.1957, Qupperneq 20
VEÐRIÐ
Vaxandi SV- og sunnanátt.
Rigning öðruhvoru.
216. tbl. — Miðvikudagur 25. september 1957.
Þjóðleikhúsið
Sjá bls. 11.
3 nýir leikvellir opnoðir i gær
„Gœzluvellir" bœjarins orðnir 16 talsins?
og bœrinn sér um að húseigendur geti
fengið ódýr og góð leiktœki á lóðir sínar
I GÆR voru teknir í notkun í Reykjavík þrír nýir barnaleikvellir.
Eru þetta svonefndir „gæzluvellir“ og ætlaðir börnum 2—5 ára.
í>ar eru gæzlukonur, sem gæta barnanna, öryggis þeirra og vel-
íerðar. Vellirnir eru búnir góðum leiktækjum við hæfi barna á
þessum aldri. Þessir nýju vellir eru við Dunhaga, Rauðalæk og
við Hlíðargerði.
1 tilefni af opnun leikvall-
anna í gær buðu bæjaryfirvöldin
nokkrum gestum að skoða þá
— Áður en skoðanaferðin
hófst, sagði Gunnar Thoroddsen
borgarstjóri nokkur orð og Jónas
B. Jónsson fræðslustjóri og form.
leikvallanefndar gerði grein fyr-
ir hinni öru þróun í leikvalla-
byggingum í Reykjavík síðustu
árin.
Gunnar Thoroddsen borgar
stjóri ræddi í stórum dráttum
hvað bærinn hefði gert á sviði
leikvallastarfseminnar. í skipu-
lagningu hverfa væri ávallt gert
ráð fyrir leikvöllum. Nú væru
16 leikvellir í Reykjavík, 10 þar
sem smábarnagæzla er og 6 svo-
nefndir „gæzluvellir" fyrir börn
á öllum aldri, auk fjölmargra
opinna svæða.
Á" Fleiri hafa skyldur
Borgarstjóri kvað þó bæjar-
yfirvöldin ekki ein hafa skyldum
að gegna gagnvart yngstu borg-
urunum. Vegfarendur og eink-
um bifreiðastjórar þurfa að sýna
íulla aðgæzlu er börn eiga í hlut.
Foreldrum barna og húsa- og lóð-
areigendum ber og skylda til
að gera lóðir sínar þannig úr
garði, að börn geti unað þar við
leiki. Allt of mikið ber á því að
lóðir umhverfis íbúðarhús séu
gerð að skrúðgörðum, sem lok-
aðir eru yngstu íbúum húsanna.
Það er góðra gjalda vert, að hafa
skrúðgarða, en húsagarðana má
ekki miða eingöngu við það. Bæj-
arfélagið hefur tekið upp þan»
hátt, að setja að skilyrði fyrir
úthlutun lóða, að viss hluti þeirra
sé ætlaður börnum. Þetta er á
byrjunarstigi og nokkuð skortir á
skilning fólks á þessari nauðsyn.
Borgarstjóri kvað það hafa upp-
eldisgildi að börnin gætu verið
heima við að leik, auk þess sem
það drægi úr slysahættu og þau
væru í öruggri umsjón.
ic Leikvellir í hvert hverfi
Borgarstjóri kvað bæinn ekki
skjóta sér undan ábyrgð sinni í
þessum efnum, og haldið yrði
sleitulaust áfram á þeirri braut
sem farin hefði verið, að hafa
leikvelli sem víðast, og stór á-
fangi á þeirri leið hefði náðst
í dag með opnun þessara þriggja
leikvalla.
Að lokum sagði borgarstjóri
að bærinn beitti sér nú fyrir því
að ódýr og hentug ieiktæki yrðu
fáanleg fyrir þá húseigendur,
sem vildu setja slík tæki upp við
hús sín.
ýc ör þróun
Jónas B. Jónsson form.
leikvallanefndar, gerði stutt-
lega grein fyrir sjónarmiðum
og framkvæmdum leikvalla-
nefndar. Hann skýrði hina öru
þróun m. a. með því að geta
þess að 1951 voru gæzluvellir
5 talsins en eru nú 16. Og á
s. 1. ári fengu leikvellir bæj-
arins 266.700 heimsóknir. Á
f járhagsáætlun þessa árs voru
kr. 1,200,000 ætlaðar til rekstr
ar leikvalla og 700 þúsund
kr. til nýbygginga.
ir Nýju vellirnir
Vellirnir við Dunhaga,
Rauðalæk og Hlíðargerði sem
teknir voru 1 notkun í gær eru
hinir glæsilegustu. Tvær gæzlu-
konur eru á hverjum velli sem
gæta barnanna og örva þau til
leika. Þær gæta barnanna 2—3
tíma á dag. Lengur eiga þau ekki
að vera á völlunum samkvæmt
tillögum próf. Símons Agústsson-
ar, sem kynnt hefur sér þessa
starfsemi fyrir bæinn. Á hverj-
um hinna nýju valla er skýli —
öll eins, og gerði Skúli Norðdahl
arkitekt teikningu að þeim í sam-
ráði við skipulagsstjóra bæjarins
og leikvallanefnd. 1 þeim er her-
bergi fyrir gæzlukonur, hrein-
lætisherbergi og geymsla. Auk
þess er útiskýli, sem ætlað er
börnunum, þegar eitthvað er að
veðri .Er það von leikvallanefnd-
ar, sagði Jónas B. Jónsson, að
þessir vellir megi verða mörg-
um börnum griðastaður. — Á
hverjum velli eru sandkassar,
rólur, sölt, rennibrautir o. fl. —
Mörg börn voru á völlunum nýju
í gær. T. d. fékk völlurinn í Hlíð-
argerði 150 heimsóknir.
Al þingi
FORSETI fslands hefur í dag
kvatt Alþingi til fundar fimmtu-
daginn 10. október n.k.
Fer þingsetning fram að lok-
inni guðsþjónustu í dómkirkj-
unni, er hefst kl. 13.30.
(Frá forsætisráðuneytinu)
Frtunkvæmdii ó
Keflovíkurvelli
BLAÐINU barst I gær eftirfar-
andi fréttatilkynning:
„Yfirmaður varnarliðsins á ís-
landi vill lýsa yfir því, er hér
greinir:
Ég hef komizt að raun um, að
í blaðaviðtali, er ég átti nýlega,
gaf ég óviljandi upp rangar tölur
varðandi fjölda þeirra, sem ráða
á til starfa við framkvæmdir á
Keflavíkurflugvelli. Er viðtalið
fór fram, voru um 400 íslending-
ar launaðir við störf þessi, ekki
200, eins og ég sagði. Þess vegna
verða um 200 menn ráðnir til við-
bótar á næstunni, svo að heildar-
talan verður 600“.
Flugbjörgunursveilin bjnrgnði i
gærdog 22 kindum úr sjúlfheldu
BJARSIGSMANNASVEIT úr
Flugbjörgunarsveitinni björguðu
í gærdag lífi rúmlega 20 kinda,
sem komnar voru í sjálfheldu í
hamrabelti ofan við Nesjavelli í
Grafningi við Þingvallavatn. Sigu
hinir vösku björgunarsveitar-
menn eftir kindunum og tókst að
bjarga þeim öllum nema einni
en styggð komst að henni og hún
hrapaði til bana. Ein kind hafði
hrapað áður en björgunarsveitin
kom á vettvang.
Verið var að reka þessar kind-
ur í Hafravatnsrétt í fyrradag, er
gangamenn misstu þær fram af
bjargbrúninni. Gátu þeir ekkert
að gert og urðu frá að hverfa.
I gærmorgun er réttir hófust í
Hafravatnsrétt var ákveðið að
leita fyrir um hjálp hjá Flug-
björgunarsveitinni við að bjarga
kindunum. Var það auðsótt mál.
Var komið austur í Grafning um
klukkan 1.
Urðu að síða 100 metra
Kindurnar voru aðallega á
tveim stöðum í hamrabeltinu,
þar sem flestar ærnar stóðu. Urðu
bjargsigsmenn, sem neðst fóru
að siga um 100 m. — Voru þar
sex kindur, sem björgunarmenn
létu síga niður fyrir bjargið.
Þar var bjargið þverhnípt. Ofar
í því var lausagrjót á sillunum
þar sem flestar ærnar stóðu. Urðu
björgunarmenn að fara mjög var-
lega að kindunum til þess að
missa þær ekki fram af. Ein kind
stökk fram af sillunni, er styggð
kom að henni. Var hún lifandi
er að var komið, en henni var
strax lógað.
Það var ekki nóg að ná kindun-
um, því björgunarmennirn urðu
að fara upp með hverja einustu
þeirra, til þess að þær ekki meidd
ust á því að slást utan í bergið.
Bændur þeir sem með bjögunar
sveitarmönnum voru fóru mjög
lofsamlegum orðum um bjarg-
sigsmenn og hve vel þeim tókst
að leysa þennan vanda, en er
björgun kindanna var lokið var
ekið með þær á bíl í Hafravatns-
rétt.
BÆNDUR í næsta nágrenni
Reykjavíkur, einnig þeir, sem
sauðfjárbúskap stunda í bæjar-
landi Reykjavíkur, komu með fé
sitt heim í gærdag, en þá voru
réttir allvíða svo sem í Hafra-
vatnsrétt, í Arnhamarsrétt á
Kjalarnesi, uppi í Kjós Voru og
réttir. Var mikið fjölmenni í
Hafravatnsrétt um hádegisbilið
í gær, og kom þangað mjög margt
fólk úr Reykjavík, t. d. voru þar
margir með börn sín með sér.
Ljósmyndari Mbl. átti síðdegis í
gær leið hjá Arnhamarsrétt á
norðanverðu Kjalarnesi. Voru
bændur þar í góðu réttarskapi,
svo sem vera ber. Er þetta ekki
ýkja stór rétt, en réttarsvæðið,
sem er rétt við þjóðveginn undir
hömrum er hið fallegasta.
Hvað
verð
er raunverulegt útsölu-
landbúnaðarafurðanna?
Engar upplýsingar fáanlegar um hve
mikið niðurgreiðslurnar voru auknar
S V O virðist sem illmögulegt ætli að verða að fá upplýsingar um
raunverulegt útsöluverð landbúnaðarafurðanna á þessu hausti. —
Ems og kunnugt er varð samkomulag um það fyrir skömmu að
verðlagsgrundvöllur landbúnaðarafurða skyldi hækka um 1,8%. —
Þýðir það að bændur eiga að fá þá hækkun í sinn hlut á afurðum
sinum. Hefur það nú verið reiknað út að samkvæmt hinum nýja
verðlagsgrundvelli eigi bændur að fá 60 aura hækkun á kjötkílóið,
þ. e. kr. 19,65 í stað kr. 19,05 í fyrrahaust. Er þá miðað við súpukjöt.
— Ennfremur eiga þeir að fá 7 aura hækkun á mjólkurlitrann
eða kr. 3,50 í stað kr. 3,43 í fyrra.
verð þeirra er þá einnig dulið.
En auðvitað verða neytendur að
greiða það þó ríkið hafi um skeið
tekið að sér að halda verðinu
niðri með framlögum úr ríkis-
sjóði.
Fráleitur feluleikur
Þess verður hiklaust að krefj-
ast, að ríkisstjórnin skýri þegar
í stað frá því opinberlega, hvern-
ig í þessum málum liggi. Felu-
leikurinn með hið raunverlega
útsöluverð þýðingarmestu neyzlu
vara almennings er fráleitur og
ekkert annað en lymskuleg til-
raun til blekkinga. Ríkisstjórnin
er enn einu sinni .að dulbúa dýr-
tíðina og tilraunir sínar til þess
að velta henni yfir á herðar al-
mennings.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
skýrði blaðinu svo frá í gærdag,
að kona hafði orðið fyrir bil,
einnig hefði barn lent fyrir bíl.
Meiðsl á fólki þessu voru ekki
talin mikil, en konan var flutt
í slysavarðstofuna.
Útsöluverð kindakjötsins var í
fyrrahaust kr. 24,65 fyrir kílóið
af súpukjöti. Hélzt það verð ó-
breytt allan veturinn þar sem
ríkissjóður greiddi jafnóðum nið-
ur þá hækkun, sem varð á
geymslukostnaði kjötsins.
Nú hefur verið ákveðið að fyrst
um sinn skuli útsöluverð súpu-
kjöts vera hið sama og sl. haust,
eða kr. 24,65 kílóið. Hefur ríkis-
sjóður ákveðið, að borga niður
hinn aukna kostnað við meðferð,
dreifingu og sölu afurðanna.
Hvert er raunverulegt
útsöluverff?
Mbl. hefur reynt að afla sér
upplýsinga um, hve miklu þessi
aukni kostnaður næmi á hvert
kjötkílo. En hvorki framleiðslu-
ráð landbúnaðarins eða aðrir op-
inberir aðilar, sem leitað hefur
verið upplýsinga hjá, hafa haft
þær á reiðum höndum. Af því
leiðir að ekki er hægt að fá
vitneskju um, hve miklu niður-
greiðslurnar á afurðaverðinu
nemi. Hið raunverulega útsölu-
Vöruskipfajöfn-
uðurinn hag-
stæður í águst
V ÖRU SKIPT A J ÖFNUÐURINN
var hagstæður um 27,7 millj. kr.
í ágústmánuði. Nam þá innflutn-
ingurinn 76,9 millj. kr., en út-
flutningurinn 104,6 millj.
í blaðinu á sunnudaginn mis-
ritaðist óhagstæður í stað hag-
stæður. Þessi prentvilla var hinn
mesti hvalreki á fjörur stjórnar-
blaðanna í gær — og er ekki nema
gott eitt um það að segja, að þau
hafi eitthvað til að hugga sig við.
Eins og frá var skýrt í blaðinu
á sunnudaginn var vöruskipta-
jöfnuðurinn óhagstæður um 169,8
millj. kr. fyrstu átta mánuði árs-
ins, en á sama tíma í fyrra óhag-
stæður um 234,6 millj.
Forselahjónin fara
til Osló
FORSETI íslands og forsetafrúin,
Dóra Þórhallsdóttir, fara til
Noregs og verða við útför Hákon-
ar konungs. Taka þau sér væntan-
lega far með flugvél Loftleiða
n.k. sunnudag.
AKRANESI, 24. sept. — 5 síldar-
bátar voru á sjó í dag. — Alls
lönduðu þeir aðeins tæpl. 150
tunnum. Var hæsti bátur með 45
tunnur.