Morgunblaðið - 10.10.1957, Síða 13

Morgunblaðið - 10.10.1957, Síða 13
Fimmtudagur 10. okt. 1957 MORGVNBLAÐ1Ð 13 Krisfmann Guðmundsson skrifar um BÓKMENNTIR Heimhvörf. Eftir Þorstein Valdimars- son. Heimskringla. Þorsteini hefur farið fram, en ennþá er hann beztur þegar hann gleymir sér í hreinni lýrik, — þegar hann gerir eins og segir í þessari vísu: „Ég legg mínar einstiga leiðir og lyng og grjót undir il; mig varðar ei heldur en vindinn um vega og átta skil“. Því eru fyrstu erindin í „Sum- arkvöld á heiði“ gullfalleg: „Blækyrrð næturvinda djúp af niði linda, angan úr sortnandi lynginu við stararflóann græna, og hvítar álftir mæna niður í lygnu tjarnanna, spegilhimin stjarnanna og hins rauða mána“. En svo man hann allt í einu eftir fugli þeim, er friðardúfa nefnist og þá kárnar nú gamanið: „Hve má lýði leyna lifandi holds og beina kestinum þeim. er taka sér við himins ræfurboga? — Og fyrr en vörn má voga, fyrr en við rofin draumagrið sofendurnir hrökkvi við, ljóst mun í loga!“ Þetta kalla Norðmenn að snýta sér í grautinn sinn. En sem bet- ur fer gleymir skáldið dúfuskratt anum öðru hverju. — „Gýgjar- stef“, „Eldur“ og „Hvíld“ eru fögur litrík Ijóð, einkum hið síð- asta, sem er eitt bezta kvæði Þorsteins: „Blækyrrð, bliknað lyng í breiðum, stafað sól. Móða yfir hnjúkum, sem blárri og blárri teygjast fjær og fjær og hverfa í himindjúp. NOKKUR kveðjuorð um Brún Gunnars Einarssonar að Braut artungu í Lundarreykjatlal. (Brúnn féll tvítugur 1956). Funandi sál þín og fjúkandi manir fylltu upp lífið við dægursins ok. En listin að fljúga sem saklausir svanir er sigurinn hinzti við ferðalok. Ég verð að minnast þín hrafnsvarti hestur með háreistan makka og skínandi bol, með glaðlyndis yfirbragð gæðinga mestur, gripfagur, hástiga markaðir þol. Þú undir þér bezt inn á afrétta heiðum, elskaðir frelsi, varst þústaður létt. Þótt eigandinn góði á alfara leiðum óhikað hleypti þér rjúkandi sprett. Gærdagur ei, né morgunn — miskunn friðar. Lind, sem við grjót og gráan mosa kliðar." Vel gerð og falleg kvæði eru einnig: „Á veg með vindum“, „Fjólan í steininum" (fallegt!), „Norðurljós“, „Koss“, „Andvari", „Mater dolorosa", „Lauffok", „Nótt“, „Við lindina“ og „Tungl- ið og áin“. Allt þetta, sem hér er talið, er hreinn og tær skáld- skapur. Höf. hefur lært vel til verks og öðlazt mikla leikni. Vafalaust er hann efni í stór- skáld, — en ofsatrúarmenn verða sjaldan miklir listamenn (nema innan flokka). Hins vegar er mað urinn ungur og lífið á eftir að dusta hann, — flestir vaxa á því. — „f tjarnarskarði“. Eftir Rósberg G. Snædal. Rósberg G. Snædal hefur áður gefið út sögubók, kvæði og vísna- kver. Hann hefur ekki verið tal- inn mikið skáld, en hin nýja ljóðabók hans sýnir, að hann er vaxandi, — og sá sem vex getur orðið stór! — Hann hefur gert margar smellnar vísur, en það er önnur saga. Skáldgáfu hefur hann og fer lagtega með hana á stundum. Sjá t.d. hið vel kveðna og fallega: „Ljóð“: „Þú komst til mín, sem geisli í morgunmund, sem minning ljúf á beiskri reynslustund, sem gróður vorsins, gull í barnsins hönd, sem gleði í harmi, byr að óskaströnd, sem bjartur draumur, töfrar ljóðs og lags, sem lækjarniður, fegurð sumardags, sem blævar þytur, kvöldsins kyrrð og ró, sem kliður fossins, nótt í laufgum skóg. Nú ertu horfinn mér, hesturinn svarti. Hnípinn ég geymi í minni þín spor. Það má engan undra, þótt eigandinn skarti í anda á þvílíkum gæðing með þor. Beinin þín rotna í Brautartungu, braut þín var mörkuð við heimili það. Þú barst með þér fögnuð í barnshjarta ungu og brunaðir lífsglaður þar heim í hlað. Nú muntu glaður um grundir skokka paradísar á prúðu vengi, þar til að ylja endurfundum gætins vinar og garpi fylgja. — Guðni Þorst. Þú varst mín löngun, vilji, geta og þor, þú varst mér nálæg hvert sem lágu spor. Þú varst mitt fjöregg, lán og lífs míns trú. Að liðnum degi spyr ég: — Hver ert þú?“ Dágóð kvæði eru einnig: „í Tjarnarskarði", „f sefa minn seitlar ótti“, „Gleymdu mér“, „Vísir að ljóði“. „Gjöf“ er snjallt ljóð, sem jafnvel þjóðskáldin hefðu ekki þurft að skammast sín fyrir. Þá er „Kínverskur múr“ dáindis gott. En skemmtilegasta kvæðið — og kannski það bezta? — er „Vítaspyrna": „Ég þreytti lengi knattleik við sifjalið Satans og séð hefur enginn þvílíkan djöfulgang. Ég varðist einn á vallarhelmingi mínum með vindstöðu beint í fang. En upphlaupum hinna ég varðist þó vonum lengur og víst fengu djöflarnir frá mér hættuleg skot. Að lokum varð ég í nauðavörn að neita hnefans, sem náttúrlega var brot. — Og drottinn sjálfur var dómari í þessum leik. Þó dómarar hafi yfirleitt nóg með sig, var liði svo ranglega skipt og mín vígstaða veik, að ég vonaði hann mundi sjá gegnum fingur við mig. Hendi! kallaði drottinn, og dæmdi þeim aukaspark. Og djöfullinn skoraði mark.“ * KVIKMYNDIR * „Milli tveggja elda" ÞESSI ameríska sakamálamynd, sem Stjörnubíó sýnir nú, er byggð á leikritinu „Dead Pigeon“ eftir Lenard Kantor. — Ung stúlka, Sherry Conley (Ginger Rogers) hefur setið í fangelsi í sex ár fyrir að hafa skotið skjóls- húsi yfir afbrotamann. Hún er stödd í þvottahúsi fangelsisins og lætur móðan mása við meðfanga sína, því að hún er glaðlynd þrátt fyrir allt og kann frá mörgu að segja. En nú kemur ein af eftir- litskonunUm og segir Sherry að koma með sér. Sherry er klædd í gömlu dragtina sína og henni er ekið í veglegt gistihús. Herbergin eru glæsileg og henni eru bornar dýrindis krásir og beztu vín. — Hún er forviða, en fær brátt að vita hvað þessu veldur. Hún á að gefa lögreglumönnunum upp- lýsingar um hættulegan bófa, sem þeir eru að reyna að kló- festa. En Sherry vill ekki bregð- ast gömlum kunningja. Hún hef- ur að vísu munninn fyrir neðan nefið, en hún hefur líka hjartað á réttum stað. Bófarnir eru að sniglast í kringum Sherry og lögreglumennina til þess að ráða hana af dögum vegna þess sem hún veit um þá. En það er ekki fyrr en þeir drepa vin hennar, Striker lögreglumann (Brian Keith) að hún ákveður að leysa frá skjóðunni. Myndin er allspennandi og full góðri kímni og skemmtilegum orðaskiptum. Er leikur Ginger Rogers fjörlegur og skemmtileg- ur og Brian Keith og Edward G. Robinson, er leikur saksóknara ríkisins, fara ágætlega með hlut- verk sín. Ego. Málflutningsskrifstofa Einar B. Cuðmundsson Cubilaugur Þorláksson Cuðmundur Pcfursson Aðalstrœfi 6, III. hæð. Símar 12002 — 13202 — 13602. Sér sundtímar kvenna verða fyrst um sinn í Sundhöllinni mánudaga og miðvikudaga kl. 9 e. h. — Ókeypis kennsla. Sundfélag kvenna Skylmingafélagið Gunnlogi byrjar vetrarstarfsemina eftir næstu helgi. — Inn- ritun fer fram föstudaginn 11. okt. n k. kl. 5—7 í íþróttasal Miðbæjarskólans. Þjálfari verður Klem- enz Jónsson. -— Allar nánari upplýsingar gefnar hjá formanni í síma 12690 frá kl. 7—9. Stjórnin. VERJIÐ TENNUR YÐAR SKEMMDIM og látið ekki holur myndast! Farið reglulega til tannlæknis og spyrjið hann um NÝTT „SUPER“ AMM-I-DENT með hinu undraverða FLUORIDE Hotel Kongen af Danmark — Köbenhavn Herbergi með morgunkaffi frá dönskum kr. 12.00. HOLMENS KANAL 15 C. 174 I miðborginni — rétt við höfnina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.