Morgunblaðið - 10.10.1957, Síða 15
Fimmtudagur 10. okt. 1957
MORGUNBLAÐIÐ
15
Ný ijóðabók eftir Guðm. Frímann
saman í ferginspytti.
Stendur í grænni stekkjartjörn
störin vot upp í mitti“.
Framreiðslustúlka
FYRIR nokkrum árum var mjög
í tízku að sagna- og ljóðskáld
skírðu bækur sínar nöfnum, sem
að litlu eða engu leyti gáfu efni
þeirra til kynna. Vera má að
þetta þyki enn góður siður. En
hin nýja ljóðabók Guðmundar
Frímanns er laus við slíkan á-
lappaskap; heiti hennar segir
skýrt og rétt frá meginefni og
innræti bókarinnar, sem er sann-
nefnd: „Söngvar frá sumarengj-
um“. Varla mun nokkur sá, sem
ljóðum ann, les þessa bók um
stund og leggur eyra við söng-
inn, geta varizt því, að horium
hlýni um hjartarætur og samúð,
mildi og hlýja vakni í brjósti
hans. Og því meir verður þessa
vart sem oftar er lesið.
í bókinni eru 32 kvæði, og
af þeim er mikill meirihluti sum-
arsöngvar og vor- og haustljóð.
Hin kvæðin eru um ýmisleg efni.
Fjögur þeirra eru um skugga-
legan lífsferil og váleg endadæg-
ur ógæfumanna, rammaukinn og
kyngimagnaður skáldskapur; en
minnisstæðast verður kannske
„karlmennsku hugurinn harði“
og storkandi æðruleysið í Grenja-
dals-Tobba. Haustnótt hjá Gálga-
gili er draugalegt og geigþrungið
kvæði, mætavel ort. I>á eru
þarna falleg eftirmæli um unga
lronu, vísur um villibráð, sem
ungt fólk, og reyndar fleiri, ættu
að lesa vandlega og skilja til hlít-
ar. Kvæðið um Gullinkollu er
ljómandi gott, frumlegt, elskulegt
og smellið. Og víðar gægist dá-
lítið af hlýjum, hógværum gáska
upp úr kvæðunum.
Hörpusálmur heitir fyrsta
kvæðið í bókinni, það er helgað
vordísinni með bæn um það, að
hún leggi blessun sína yfir dali
og strendur, þíði hjarnið af engi
bóndans og græði sinuhaga, láti
mikil undur gerast, ástarævintýri
vorsins rætast og gefi huggun
Kennarafundur fyrir
Mið-Vesturland
STYKKISHÓLMI, 7. okt. — S. 1.
laugardag og sunnudag var hald-
inn í Stykkishólmi kennarafund-
ur fyrir Mið-Vesturland. Sátu
fundinn um 40 kennarar af sam-
bandssvæðinu. Auk þess mætti
þar námsstjórinn Þorleifur
Bjarnason, Guðmundur G. Haga-
lín og Þorsteinn Einarsson íþrótta
fulltrúi.
Á laugardagskvöldið flutti
Guðmundur Hagalín erindi í
barnaskólanum og talaði um bók-
menntir og skólana. Var erindið
mjög vel sótt og góður rómur
að því gerður. Síðar um kvöld-
ið bauð hreppsnefnd Stykkis-
hólmshrepps fulltrúunum til
kaffidrykkju á hótelinu og stóð
sá fagnaður fram undir miðnætti
og margar ræður fluttar.
Á sunnudaginn hlýddu fulltrú-
ar messu hjá séra Sigurði O.
Lárussyni prófasti, en fundinum
var slitið kl. 6. —Árni.
Danir græSa á
grænlenzku blýi
KAUPMANNAHÖFN, 7. okt. —
Zink- og blývinnsla Dana í Meist-
aravík, Austur-Grænlandi, hefur
gengið vonum betur. í fyrra unnu
Danir þessa málma fyrir 8V2
millj. d. kr., en í ár verður verð-
mæti þeirra um 20 millj. d. kr.
í fyrra var unnið í 6 mánuði að
námugreftri í Meistaravík, en á
þessu ári tæpa 10 mánuði. í síð-
ustu viku kom „Kista Dan“ með
síðasta farminn til Antverpen. Á
þessu ári hafa samtals verið flutt
til Belgíu og Þýzkalands 8750
tonn af blýi og 13.650 tonn af
zinki.
Sérfræðingar álíta, að um 400
þús. tonn af málmi séu í námun-
um við Meistaravík, en Danir
vonast til þess, að þeim takist að
finna fleiri námur.
hverju barni; í stuttu máli: Skáld
ið biður innilega öllu á láði og
legi blessunar vordísarinnar.
Þess vegna kom hálfónotalega
við mig, þegar hún er beðin um
það í næstsíðustu vísunni að gefa
góðum dreng á öngul beztu brönd
una úr Blöndu. Sams konar hugs
un, ósk og bæn er auðvitað al-
geng með okkar þjóð og eðlileg,
óskin sú, að veiðimaðurinn fái
góðan afla. En þarna þykir mér
hún skemma yndislegt kvteði.
Næstsíðasta kvæði Ijóðanna
heitir „Mansöngur". Það er mesta
gersemi í allri bókinni.
Eins og áður getur er í um-
ræddri bók mest af söngvum frá
sumarengjum, þessum yndislegu
lýsingum á seiðandi töfrum nátt-
úrunnar og samlífi skáldsins við
hana. Þetta samlíf er svo náið og
með svo miklum innileik og blíðu
að fáu verður við jafnað. En það
er ekki hið stórskorna, hrika-
lega, hamramma í svipbragði
náttúrunnar, sem einkum hrífur
skáldið til að ýrkja, heldur lág-
gróður jarðar, hin smágerðari,
hlédræga fegurð hennar. Það er
svo að sjá, að ekkert veiti skáld-
inu meiri unað en að reika um
sumarengjar á æskustöðvum, fara
um heiðar og dali, beita athygli
og blanda geði við gróðurilm og
lágfiðlutóna náttúrunriar. Það
dylst víst fáum sem lesa þessi
kvæði, hve blítt er milli hans og
lyngs og víðis, starar og stráa og
hversu hann fagnar því að fá
að greiða mýksta lokkinn í fífu-
flánni. Og hann kætist með, þeg-
ar hann er í Brunnárdal og
„lækurinn ljómar og syngur
og leikur við hvern sinn fingur".
Sumarkvæði heitir innilegt og
fagurt ljóð sem skáldið yrkir með
heimahagana umhverfis sig. Þar í
er þessi vísa:
„Sunnan af engjum blærinn ber
blómangan heita að vitum.
Blessaður fífuflóinn er
fannhvítur yfirlitum.
Leika sér síglöð sílisbörn
Þetta mun ef til vill ekki talin
stórbrotin vísa, en hún er fádæma
yndisleg, og svo er um margt
fleira í „Söngvum frá sumar-
engjum“.
Það eru mörg ágæt kvæði af
þessari söngvategund, sem ekki
er rúm til að minnast á hér, og
aðeins ein heil vísa úr ljóðunum
er birt í greinarstúfnum. En það
skiptir ekki miklu. Oft mun það
fremur verða til skemmda en á-
vinnings fyrir skáld að láta siíta
eina eða fleiri vísur úr kvæðum
þess sem sönnun fyrir ágæti
þeirra.
Þessir söngvar Guðmundar
Frímanns sverja sig í ættina. Þar
er sama næma fegurðarskynið og
snilldarmeðferð hátta, máls og
ríms, eins og áður er kunnugt,
og sömu skáldlegu tilþrif og ang-
urblíðu seiðtöfrar í ljóðum hans.
En tregaþungt örvæni er þar ekki
til, en hins vegar má víða sjá að
skáldið hefir verið þar, sem það
leit „sól skína sunnan á salar-
steina“.
Jakob Kristinsson.
VISITOLUBREF
Veðdeildar Landsbanka íslands (B.-flokkur 3) eru til sölu í af-
greiðslusal Útvegsbankans.
Grunnvísitala flokksins er 187.
Bankavaxtabréfin og vextir af þeim, sem er 514% eru undan-
þegin framtalsskyldu og skattfrjáls og má verja fé ómyndugra og
opinberra stofnana til kaupa á þeim.
Greiða má skatta og opinber gjöld með vaxtamiðum bréfanna.
Bréfin eru tryggð með ábyrgð ríkissjóðs auk annarra trygginga.
Utvegshanki Islands
óskast nú þegar eða 1. nóvember. — Góð laun og
vinnuskilyrði. — Ennfremur vantar stúlkur til af-
greiðslustarfa í verzlun. — Uppl. milli 5 og 7.
Adlon
Aðalstræti 8 — Sími 16737
Afturfjaðrir og fjaðrablöð
fyrir Chrysler, Plymouth, De Soto og Dodge
fólksbifreiðar.
Ennfremur fram og afturfjaðrir
í Fargo og Dodge vörubifreiðar
Ræsir hf.
Skúlagötu 59 — Sími 19550
BÓKAUPPBOÐ í Sjálfstæðishúsinu föstud. 11. þ.m. kl. 5 síðd. Bæk-
urnar verða til sýnis í dag frá kl. 2—7 og á morgun frá kl. 10—4.
Sigurður Benediktsson, Austurstræti 12