Morgunblaðið - 25.10.1957, Síða 1
Feikileg flóð urðu nýlega í borginni Valeneia á austurströnd Spánar. 60 manns drukknuðu þús-
undir manna urðu heimilislausar. Mynd þessi sýnir heimilislaust fólk í borginni sem stendur í
biðröð og bíður eftir brauðskammti sínum. Og enn rignir.
Bandaríski flugherinn skaut
eldflaug hærra en Spufnik
WASHINGTON, 24. okt. — Bandaríski flugherinn tilkynnti í dag,
að hann hefði skotið á loft flugskeyti, sem náð hafi mikilli hæS.
Þar sem ekki er enn búið að ráða dulmálsskeyti sem eldflaugim
sendi frá sér, er ekki vitað nákvæmlega í hve mikla hæð flug-
skeytið komst, en það mun vera einhvers staðar á milli 1600 o*
6400 kílómetra hæð. Til samanburðar má geta þess að rússnesk*
gervitunglið komst upp í 900 km hæð.
Það þykir því víst að hið banda
ríska flugskeyti hafi komizt
hærra en nokkur önnur tæki gerð
af mannahöndum.
Eldflaug þessari var skotið frá
loftbelg, sem fyrst hafði borið
hana upp í 30 þúsund metta
hæð. Hér var um að ræða fjög-
urra-þrepa eldflaug. Var búizt
við, að hún næði 27 þúsund kíló-
metra hraða á klukkustund. í
nefinu bar hún fjölda nákvæmra
mælitækja, sem munu veita mik-
ilvægar upplýsingar um geim-
geisla, segulsvið jarðar og önnur
eðliseinkenni háloftanna.
Tilraun þessi fór fram yfir
Eniwetok eyjaklasa í kyrrahafi.
Flugskeytinu var ekki skotið á
þann veg, að það færi inn á braut
umhverfis hnöttinn eins og hið
rússneska gervitungl.
Stjórnarmyndunin í F i n n I a n d i mistókst
Bændaflokkurinn hafnar
Sœnska stjórnin fallin
Miðflokkurinn rýfur stjórnarsamstarfib
vegna ágrein. um almennan ellilífeyri
Stokkhólmur, 24. okt. — Einkaskeyti frá NTB
SÆNSKI Bændaflokkurinn, sem nýlega tók sér nýtt nafn
og kallar sig nú Miðflokkinn. ákvað í dag að slíta stjórnar-
samstarfi. — í samræmi við það hefur Tage Erlander for-
sætisráðherra ákveðið að beíðast lausnar. Mun núverandi
ríkisstjórn formlega segja af sér á lauggrdaginn.
Stjórnarslitin eru rökstudd
með djúptækum skoðanaágrein-
ingi Jafnaðarmanna og Mið-
Gunnar Hcdlund
foringi Miðflokksins sleit stjórn
samstarfinu
flokksins einkum þó I ellilauna-
málinu. Miðflokkurinn ákvað
stjórnarslitin á sameiginlegum
fundi flokksstjórnarinnar, stjórn
ar þingflokksins og stjórna
Orðsending frá
Morgunblaðinu
VEGNA inflúenzufaraldurs
vantar börn til blaðburðar.
Meðan þannig stendur á þarf
blaðið að fá börn og unglinga
til að hlaupa í skarðið og taka
að sér blaðburð-
Börn þau, sem vilja hjálpa
til eru vinsamlegast beðin að
hringja til afgreiðslu Morgun-
blaðsins, sími 22480, eða koma
og tala við afgreiðsluna Aðal-
stræti 6.
kvennasamtaka og æskulýðssam-
taka flokksins, er haldinn var í
dag. Er það álit manna að full-
komin eining hafi ríkt í flokkn-
um um að slíta stjórnarsamstarf-
inu.
Þegar að ftundi þessum lokn-
um gekk foringi Miðflokks-
ins, Gunnar Hedlund innan-
ríkisráðherra á fund Erland-
ers forsætisráðherra og til-
kynnti honum ákvörðun Mið-
flokksins.
Erlander hefir neitað að láta
hafa eftir sér önnur ummæli um
stjórnarslit þessi en þau, að
stjórnin muni formlega fara frá
á laugardaginn. Á morgun, föstu
dag verður haldi'nn fundur í rík-
isráðinu og því næst mun verða
haldinn fundur i flokksstjórn
J afnaðarmannaf lokksins.
Búizt er við því að Gústav
VI Adolf Sviakonungur muni
biðja Erlander um að mynda
minnililutastjórn Jafnaðar-
NORSKI Verkamannaflokkurinn
sendi rússneska kommúnista-
flokknum í dag svar við bréfi
því sem Krúsjeff skrifaði honum
eins og öðrum jafnaðarmanna-
flokkum Vestur-Evrópu. Þar er ,
bent á það, að allir lýðræðis-
flokkar Noregs standi sameinað-
ir um utanríkisstefnu landsins.
Einnig eru Rússar beðnir um að
stuðla að friði í nálægum Austur-
löndum. — Bréfið frá Norðmönn-
um er svohljóðandi:
Lýðræðisflokkarnir í norska
Stórþinginu hafa um margra ára
skeið staðið sameinaðir um utan-
manna, sem verði eins konar
bráðabirgðastjórn, sem fcr
með vÖld þar til efnt verður
til nýrra kosninga, að líkind-
um í janúar.
Samstarf Jafnaðarmanna og
Bændaflokksins hefir staðið í 6
ár. í fyrstu hafði Jafnaðarmanna
flokkurinn meirihluta á þingi, en
styrkti hann með samstarfi við
hinn flokkinn. Við kosningarnar
í fyrra misstu Jafnaðarmenn
meirihlutann og varð samstarf
við Bændaflokkinn þá nauðsyn-
legt til að skapa stjórninni meiri
hluta á þingi.
Erlander
Myndar hann minnihlutastjórn
ríkisstefnu landsins. Norski
Verkamannaflokkurinn óskar
ekki að taka upp aðra utanríkis-
stefnu utan við það samstarf.
Það er satt, að norsku þjóð-
, inni er það lífsnauðsyn að
tryggja og viðhalda friði í ná-
lægum Austurlöndum og í allri
veröldinni.
Þegar vandamál nálægra Aust-
urlanda hafa nú verið lögð fyrir
Sameinuðu þjóðirnar er það von
okkar, að þátttökuríki S. Þ. geri
sitt til þess að leysa nú
verandi deilur og spennu á þessu
svæði, svo að friður megi ríkja
Norðmenn svara Rússum:
Vonandi að allir stuðli
að friði í nál. Austurl.
samstarfi við Tanner
HELSINGFORS, 24. okt. —
Stjórnarmyndunartilraun
Vainö Tanners, foringja
finnska jafnaðarmannaflokks-
ins hefur nú runnið út í sand-
inn, þar sem Bændaflokkurinn
hefur tilkynnt að hann muni
ekki taka þátt í stjórn, sem sá
maður myndar.
Þegar Bændaflokkurinn gaf
út tilkynningu sína hafði Tann
er rætt við foringja allra
stjórnmálaflokka nema komm
únista um samstarfið.
í tilkynningu Bændaflokks-
ins segir: — Bændaflokkur-
inn er reiðubúinn að ræða við
jafnaðarmannaflokkinn um
þátttöku í ríkisstjórn, sem
jafnaðarmaður veiti forsæti.
Hins vegar vill Bændaflokk-
urinn ekki taka þátt í ríkis-
stjórn undir forsæti Vainö
Tanners.
Mollel reynir stjórnarmyndun
í miðri verkfnllsöldnnni
PARÍS, 24. okt. — Einn verkamaður lét lífið og 12 verkamenn og
15 lögreglumenn særðust í átökum sem urðu við skrifstofur
Atlantic-skipasmíðastöðvarinnar í St. Nasaire á vesturströnd Frakk-
lands. Þetta er versti atburðurinn sem gerzt hefur í mikilli verk-
fallsöldu sem nú gengur yfir Frakkland.
Á meðan er Guy Mollet foringi Jafnaðarmannaflokksins að reyna
stjórnarmyndun. Enn er alls óvíst, hvort það muni takast, þar
sem hægri flokkarnir tveir, íhaldsflokkurinn og Þjóð-republikan-
arnir eru farnir að setja fram skilyrði í efnahagsmálunum. Á
mánudag mun Mollet beiðast trausts þingsins.
Stjórnmálafréttaritarar segja
ð erfiðasti hjallinn fyrir Mollet
/ið stjórnarmyndunina séu efna-
lagsmálin. Er talið að Mollet
etli sér að taka upp skömmtun
á innfluttum neyzluvörum. Ann-
ar sé ekki úrkosti, því að vara-
sjóður Frakka af erlendum gjald-
eyri verði þrotinn upp úr nýjár-
inu. Þá er ætlunin að leggja á
nýja skatta að upphæð 100 millj-
arða franka og draga úr ríkisút-
gjöldum.
fommúnistar skildu við fjár*
hag San Marino í rústum
3AN MARINO 24. okt. — Það
er nú að koma í ljós, að þegar
kommúnistar létu af völdum fyr-
ir nokkru í smáríkinu San Mar-
ino, skildu þeir við fjárhag rík-
isins í rústum. Reikningar ríkis
ins voru allir í óreiðu og fékk
hin nýja stjórn löggiltan endur-
skoðanda til að ganga í gegnum
þá og gera rannsókn á fjárhag
San Marino.
Margt furðulegt hefir komið í
ljós við þessa athugun. Það er nú
t.d. ljóst að ríkisskuldirnar nema
nærri 20 milljónum króna, sem er
mjög mikil upphæð fyrir ríki
með aðeins 13 þúsund íbúa. Þó
er álitið að frekari rannsóknir
leiði í ljós enn meiri skuldir.
Þá hafa kommúnistar þegar
eytt öllum tekjum ríkisins af
tekjuskatti þrjú ár fram í tím-
ann og þeir hafa stórskemmt
tvær helztu tekjulindir San Mar-
ino með ofnotkun, það er frí-
merkjaútgáfan og veiting aðals-
tignar. Hafa þeir notað sér þess-
ar leiðir í svo ríkum mæli, að
mjög hefir t.d. dregið úr eftir-
spurn eftir frímerkjum frá San
Marino.
Enn furðulegri eru upplýsing-
arnar um hvernig þessu fé hefir
verið sóað. Okurvextir hafa verið
greiddir af ríkislánum og fjöl-
skyldur embættismanna og starfs
manna kommúnista hafa notið
stórkostlegra hlunninda.