Morgunblaðið - 25.10.1957, Side 13
HORCUNBLADIÐ
Föstudagur 25. október 1957
1»
Skipsfjórinn dæmdur, því
áfengiseigandinn fannst ekki
í HÆSTARÉTTI hefur verið
kveðinn upp dómur í smyglmáli.
Ákæruvaldið höfðaði málið gegn
skipstjóranum á Tröllafossi, Agli
Þorgilssyni, þar eð enginn fannst
eigandi að áfengi, sem tollverðir
hér í Reykjavík fundu í skip-
inu.
Þetta gerðist í september 1956.
Þá kom Tröllafoss til Reykjavík-
ur frá New York og var fram-
kvæmd venjuleg tollleit í skip-
inu.
Daginn eftir komu skipsins
fór tollvörður um borð í skipið.
Hitti hann þar tvo drengi á að
gizka 9 og 11 ára. Drengir þessir
báðu tollvörðinn að skoða í kassa
sem væri uppi á brúarvængnum.
Þeir létu þess og getið við toll-
vörðinn að meira væri uppi á
reykháfi skipsins. Tollvörðurinn
fór þegar á kreik. Á brúarvængn-
um fann hann kassa, sem í voru
6 flöskur af spíritus. Uppi á reyk-
háfnum var annar kassi með
jafnmörgum flöskum. Allt voru
þetta pottflöskur. Tollvörðurinn
talaði ekkert frekar við þessa
drengi, heldur vísaði þeim í
land.
Ljóst þótti að hér var um að
ræða áfengi, sem tekizt hafði að
skjóta undan við tollleitina dag-
inn áður, og eigi var sagt til um
við komu skipsins.
Við rannsókn tókst ekki að
finna eiganda þessa áfengis meðal
áhafnarinnar. Og þar sem enginn
eigandi fannst, ber skipstjóri
skipsins ábyrgð á áfenginu, sam-
kvæmt 3. mgr., sbr. 6 mgr. 4. gr.
áfengislaga nr. 58/1954 og því var
mál höfðað gegn honum.
í undirrétti var Egill skipstjóri
Þorgilsson dæmdur í 5200 kr. sekt
til Menningarsjóðs og skyldi 30
daga varðhald koma í stað sekt-
arinnar yrði hún eigi greidd inn-
an 4 vikna frá birtingu dómsins.
í Hæstarétti var dómnum
breytt. Segir í forsendum m. a.:
„Með skírskotun til lýsingar
málavaxta í hinum áfrýjaða dómi
verður að telja ákærða ábyrgan
fyrir greiðslu fésektar samkvæmt
lagaboðum þeim, er þar greinir.
Hins vegar verður honum ekki
dæmd refsivist til vara, ef sektin
greiðist ekki, með því að ekki
er leitt í ljós, að hann hafi átt
nokkurn þátt í brotinu né að það
hafi verið framið með vitund
hans.
Samkvsgmt þessu ber að stað-
festa héraðsdóm að fráskildu á-
kvæði um vararefsingu.
Ákærða ber að greiða allan
áfrýjunarkostnað sakarinnar,
þar með talin laun sækjanda og
verjanda fyrir Hæstarétti.“
Verjandi í málinu var Her-
mann Jónsson en sækjandi Svein-
björn Jónsson.
Gluggatjaldasfengur
GORMAR — KRÓKAR — LYKKJUR
OG STEINNAGLAR
^)eraslunin ^rynÍa
INGÓLFSCAFÉ INGÓLFSCAFÉ
Eldri dansarnir
í Ingólfscafé í kvöld klukkan 9.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. — Sími 12826 i
Félagsvistin í G.T.-húsinu
í kvöld klukkan 9. —
Gjörið svo vel að koma
tímanlega.
Dansinn hefst klukkan 10.30.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 1-33-55
V E T RA RGARÐURINN
DANSLEIKUR
i Vetrargarðinum í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Vetrargarðsins leikur.
Miðapantanir i síma 16710, eftir kl. 8.
S.G.T.
Þórscafe
FOSTUDAGUR
DAIMSLEIKUR
að Þórscafé í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Björns R. Einarssonar.
Vegna brottfarar
er nýr svefnsófi og pólerað-
ur standlampi til sölu á
Rauðarárstíg 42, uppi. —
Verð eófans kr. 2000,00,
lampans kr. 500,00. Til sýn-
ir frá kl. 5—9 e.h. naestu
daga.
TIL SÖLU
steinhús
v/ð Sólvallagötu
65 ferm., kjallari og tvaer hæðir, ásamt ræktaðri og
girtri lóð. í húsinu eru nú 3 íbúðir, tvær 2ja og ein
3ja herbergja.
Nýja fasteignasalan
Bankastræti 7, simi 24-300 og kl. 7,30—8,30 e.h. 18546
Fyrirliggjandi
Asbest rör
IIMKIIM
Notadrjngur — þvottalögur
★ ★ ★
Gótfklútar — borðklútar —
plast — uppþvotlaklútav
fyrirliggjandi.
★ ★ ★
Ólafur Gísiason 4 Co. h.f.
Sími 18370.
fyrir sorprennur’ — 30 og 40 cm víð
Marz Trading Company
Klapparstíg 20 — Sími 1-7373
Bifreiðaeigendur
Farið vel með bílana og látið kvoða undirvagna
þeirra, þegar þeir eru nýir, og verja þá ryði. Ef þeir hafa
ekki verið kvoðaðir eða liðið er lengra en 2 ár síðan, þá
látið gufuþvo þá og kvoða að nýju.
Vélin í bílnum er gangvissari ef hún er hrein. Raf-
straumur leiðir út, þegar leiðslur eru blautar af olíu
og óhreinindum.
Látið gufuþvo vélina, það kostar aðeins kr. 85,00, og
tefur yður ekki meir en tæpan kluk'kutíma.
Leitið upplýsinga í síma 5 0 4 4 9.
Ef bíllinn yðar er dældaður, lendir í árekstri eða þarf
að spraulumálast, þá talið við okkur.
Fljót afgreiðsla — Hringið í síma 5 0 4 4 9.
MÁLNIN G ARSTOFAN
Lækjargötu 32 — Hafnarfirði
Sími: 23-333.
Dansað í kvöld kl. 9—11.30
Hljómsveit Gunnars Ormslev
Söngvari: Haukur Morthens
Atvinnurekendur
Ungur maður, sem unnið hefur við verzlunarstjórn
undanfarin ár, óskar eftir hliðstæðri atvinnu. Góð
meðmæli. Bílpróf. Tilb. sendist Mbl. fyrir 29. okt.
merkl: „3096“.
Verzlunarstjóri óskast
Ein með stærri verzlunum bæjarins óskar að ráða
mann til verzlunarstarfa. —
Tilboð sendist blaðinu fyrir mánudagskvöld
merkt: Verzlunarstjóri — 3119.