Morgunblaðið - 09.11.1957, Qupperneq 1
16 síður og Lesbók
44. árgangur.
255. tbl. — Laugardagur 9. nóvember. 1957-
Prentsmiðja Morgunblaðsins*
^ ií*
Bandaríkjaher heimilað
að reyna við gervitungl
WASHINGTON, 8. nóv. — Bandaríkjastjórn hefur nú ákveðið að
hraða vísindalegu og tæknilegu starfi í sambandi við bandaríska
gervihnöttinn. — í dag tilkynnti landvarnarráðuneytið í Washing-
ton, að herinn myndi afhenda flugskeyti af tegundinni Júpíter,
til afnota við tilraunir með að skjóta gervitungli upp í loftið.
Með þessu fær áætlunin um
gervihnött miklu öflugri tegund
eldflaugar en henni hefur áður
verið heimil. Fram til þessa hefur
verið áætlað að nota flugskeytið
Vanguard við tilraunir þessar, en
það er tiltölulega lítið skeyti og
hafði almennum borgurum verið
falið að framkvæma áætlanirnar
um gervihnöttinn.
Maðurinn sem gleymdist á 40 ára afmæii byltingarinnar. — (Teikning úr Tarantel).
Bandaríkjamenn hafa leysf það
vandamál, hvernig eldflaug á að
falla óskemmd gegnum gufuhvolfið
Eisenhower telur hernaðarstyrk Vestur- *
veldanna í heild enn meiri
en styrk Rússa
í SJÓNVARPSRÆÐU þeirri, sem Eisenhower forseti flutti í fyrra-
kvöld og skýrt var frá stuttlega hér í blaðinu í gær, sýndi hann
bandarískum sjónvarpsskoðendum merkilegan hlut, það var spegil-
fægður oddur af bandarísku flugskeyti.
Eisenhower mælti á þessa leið:
—- Vísindamönnum okkar og verkfræðingum hefur tekizt að
leysa mikið vandamál. Þessi hlutur, sem þið sjáið þarna, oddur
af flugskeyti hefur farið mörg hundruð mílur út í geiminn.
Hann hefur fallið aftur til jarðar gegnum gufuhvolfið og er
óskemmdur, hann hefur ekki brunnið upp.
Þýðingarmiklar
upplýsingar
Þannig sagði forseti að banda-
rískir vísindamenn væru búnir
að leysa eitt erfiðasta vandamál-
ið í sambandi við geimferðir.
Loftsteinar og aðrir hlutir sem
koma utan úr geimnum brenna
og eyðast upp til agna, þegar
þeir snerta gufuhvolf jarðar. Hið
sama gera eldflaugar, sem skot-
ið er út fyrir gufuhvolfið, þegar
þær falla til baka, ef ekki væri
búið að leysa þennan mikla
vanda.
Eisenhower ræddi mikið um
eldflaugatilraunir Bandaríkj-
anna. Hann gaf m.a. eftirfarandi
upplýsingar:
Við höfum þegar sýnt að við
getum skotið stórum eldflaugum
með nákvæmni um 1600 km vega
lengd. Við höfum skotið eldflaug
sem fór jafnvel 5600 km. Við höf-
um þegar komizt langt með að
smíða flugskeyti, sem hægt er að
skjóta milli heimsálfa, en þar sem
við höfum margar framvarðar-
bækistöðvar þá eru meðallang-
dræg flugskeyti eins notadrjúg
fyrir okkur og hin langdrægu
skeyti.
Engin kyrrstaða
Enn ein tegund flugskeyta, hið
stórkostlega „Snark“ flugskeyti
hefur farið eftir 8000 km braut
og náði áfangastað af mikilli ná-
kvæmni.
Við höfum skotið þremur eld-
flaugum upp í 3200 til 6400 km
hæð og fengið frá þeim mikils-
verð skeyti um eðli geimsins.
Eisehower kvaðst gefa þessar
upplýsingar, aðeins til að sýna
mönnum, að það væri ekki kyrr-
staða í vísindalegum tilraunum
Bandaríkjanna. Styrkleiki Banda
ríkjanna færi og vaxandi með
hinum vísindalegu uppfinning-
um.
Tákn fullkominnar tækni
Það að Rússar hafa skotið
fyrstu gervihnöttunum er stór-
felldur árangur og vísindamenn
Rússa, sem hafa gert það eiga
skilið mikla viðurkenningu. Upp
lýsingar um vísindalegar mæling
ar í háloftunum streyma nú til
jarðar og enn munu þær aukast
með nýjum gervitunglum.
Gervihnettir munu í sjálfu sér
ekki hafa nein bein áhrif á öryggi
Bandaríkjanna. Hins vegar eru
þeir tákn þess, að tækninni hefur
fleygt fram. Þeir sýna að not-
aðar hafa verið eldflaugar, sem
eru ákaflega öflugar. Það er
það sem hefur hernaðarþýðingu í
sambandi við þá.
Árásarógnanir Rússa
Rússar leggja enn sem fyrr
megináherzluna á árásarvopn og
iðnað sem þarf til að framleiða
þau. j3ú staðreynd ásamt stjórn-
málastefnu þeirra í alþjóðamál-
um ætti að verða okkur aðvör-
un, um að útþenslustefna þeirra
hefur ekkert breytzt. Heimurinn
hefur heldur ekki gleymt rúss-
nesku hernaðarárásunum á lönd
eins og Finnland og Pólland, stuðn
ingur þeirra við árásina í Kóreu
eða valdbeiting þeirra í hinni
vægðarlausu kúgun ungversku
byltingarinnar.
Eina svarið við hinum rúss-
nesku ógnunum er stöðug árveki
og efling herstyrks hins frjálsa
heims. Þess verður að gæta þang-
að til rússnesku leiðtogarnir
hætta að eyða orku þjóðar sinn-
ar til hernaðarþarfa og beita
henni heldur til að bæta kjör
þjóðar sinnar.
Við viðurkennum einlæglega,
að Rússar eru nú að koma sér
Framh. á bls. 2
Er ný stjórn
að fœðast í
Finnlandi?
HELSINGFORS, 8. nóv. — Held-
ur virðist nú vera farið að rofa
til í finnskum stjórnmálum og
þykjast menn sjá fyrir endann á
hinni löngu stjórnarkreppu. Hef-
ur nú náðst samkomulag stjórna
Bændaflokksins og Jafnaðar-
mannaflokksins um meginefni
nýs stjórnarsáttmála. Samninga-
umleitunum verður haldið á-
fram eftir helgina, og þá mun
m.a. verða Ieitað endanlegs sam-
þykkis í þingflokkum beggja um
myndun samsteypustjórnar. Enn
hefur Kekkonen forseti ekki fal-
ið neinum einstökum. manni
stjórnarmyndun og nrun hann
ekki gera það fyrr en þingflokk-
arnir hafa hvor í sínu lagi sam-
þykkt myndun slíkrar samsteypu
stjórnar. — NTB.
Brezk vetnisspreng-
ing
LONDON, 8. nóv. — Bretar
framkvæmdu í dag mikla
kjarnorkusprengingu yfir
Kyrrahafi. Sprengingin fór
fram í mikilli hæð. Það er tal-
ið fullvíst, að hér hafi verið
á ferðinni vetnissprengja. —
Sprengjunni var varpað út úr
hraðfleygri sprengjuþotu.
— Reuter.
Norðmenn æskja lækkaðra
freðfisktolla í Svíþjóð
Fiskimálaráðherra þeirra staddur í Stokk
hólmi til að vinna sænska markaðinn,
STOKKHÓLMI, 8. nóv. — Einkaskeyti frá NTB
NILS LYSÖ, fiskimálaráðherra Norðmanna, er nú í heimsókn i
Svíþjóð og er það ætlun hans að vinna að aukinni fisksölu til
þessa nágrannalands Norðmanna. Ráðherrann hefur átt tal við
fjölda manns um innflutning á norskum fiski og í tvo daga hefur
hann rætt við sænska landbúnaðarráðherrann Gösta Netzen um
hina háu sænsku tolla á fiski.
Það er ekki vitað nákvæmlega
hvað þeim ráðherrunum fór á
milli, en það þykir víst, að Lysö
fiskimálaráðherra hafi bent hin-
um sænska ráðherra á þá stað-
reynd, að sænskum almenningi
finnist það öldungis óeðlilegt, að
greiða þurfi háa tolla af norsk-
um fiski. Noregur sé grannríki,
er hafi mikil viðskipti við Sví-
þjóð. Þeir kaupi mikið af iðn-
aðarvörum í Svíþjóð og því ættu
þeir að njóta hlunninda við fisk-
sölur sínar.
Sýnt er nú að norski sjávar-
útvegurinn leggur megináherzlu
á það að vinna hinn ört vaxandi
markað fyrir frystan fisk í Sví-
þjóð. Er heimsókn norska fiski-
málaráðherrans til Svíþjóðar s:ð-
asta sönnunin fyrir þeim fyrir-
ætlunum.
Nú hefur ákvörðun verið tekin
um það, að tæknisérfræðingar
hersins skuli hefja starf við undir
búning gervimánans, svo að hin
risastóra Júpiter eldflaug, sem
Bandaríkjaher hefur smíðað og
gert tilraunir með að undanförnu
verði notuð við verkið. Hingað til
hefur verið útilokað að slíkar
eldflaugar fengjust notaðar vegna
þeirra öryggisreglna sem gilt
hafa um meðferð þeirra.
í sambandi við þessa ákvörðun
er rétt að minna á það að tals-
menn bandaríska hersins hafa
bent á það að undanförnu, að ef
tæknideild hersins hefði verið
falið að koma gervitungli á loft,
hefði hún getað framkvæmt
verkið fyrir þremur árum, eða
löngu áður en Rússar urðu til
þess. Með því að banna hernum
að hefja aðgerðir í þessu máli
hafi Bandaríkin orðið fyrir mikl-
um álitshnekki.
Er Sovéttíkin
dauð!
LONDON, 8. nóv. — Tass-frétta-
stofan rússneska gaf enn í dag
út tilkynningu um að gervihnött-
urinn Spútnik II héldi áfram för
sinni kringum jörðina.
Það vakti hins vegar athygli að
í tilkynningunni í dag var ekki
minnzt einu orði á líðan Sovét-
tikarinnar. Er það álit sumra, að
hún muni nú vera dáin.
Á miðvikudaginn tilkynnti
Tass-fréttastofan, að líðan tíkar-
innar væri góð. Á fimmtudaginn
var tilkynnt að haldið væri áfram
að mæla líðan hennar en í dag er
ekki minnzt orði á sovéttíkina í
tilkynningu Tass-fréttastofunnar.
Telja menn það ólíklegt að ekki
hefði verið minnzt á tíkina í til-
kynningunni ef hún hefði verið
lifandi. — Reuter.
Ronnsókn fari
fram ó geislun
íondrúmsloftinu
NEW YORK 8. nóv. — f dag
lögðu átta ríki fram tillögu í
stjórnmálanefnd Sameinuðu
þjóðanna, um að alþjóðanefnd
yrði sett á fót til að rannsaka
geislavirkni í andrúmsloftinu og
hvort hún hefði áhrif á líf og
heilsu manna.
Ríki þau, sem bera fram tillög-
una eru Bretland, Bandaríkin,
Ástralia, Brasilía, Frakkland,
Belgía, Argentína og Svíþjóð.
ER MBL. fór í prentun í nótt
höfðu engar nýjar fregnir
borizt frá skákmótinu í
Wageningen, enda er sæsím-
inn slitinn og skilyrði tíl
skeytaskipta erfið.
%