Morgunblaðið - 17.11.1957, Page 14
14
MORGVNBIAÐIÐ
Sunnudagur 17. nðv. 1951.
Guðmundur G. Hagalín
STÓRBROTIN SKÁLDSAGA
Eftir 12 ára þögn — kemur skáldsaga
frá Hagalín, óviðjafnanleg í byggingu, stíl
og frásögn. Persónurnar koma fram skír-
ar og ógleymanlegar. Sögusviðið er lífið
sjálft — með öllum sínum áætlunum. —
Einn verður ríkur í dag, en tapar um leið
rótfestunni, annar biður og missir af vagn-
inum, en stendur eftir sterkari á eigin
fótum. Bókin talar máli unga fólksins
sem á að erfa landið og sannar, að það
muni standast strauma lífsins.
SÓL Á NATTMALBM mun veita Hagalín
æðsta sess á skáldabekk þjóðarinnar.
Málflutningsskrifstofa
Einar B. Guðmundsson
Gu«51aug;ur Þorláksson
Guðmundur Pétursson
Aðaistræti 6, III. hæð.
Símar 12002 — 13202 — 13602.
Hurðarnafnspjöld
Bréfalokur
Skiltagerðin, Skólavörðustíg 8.
BEZT AB AVGVtSA
t MOKGUNBLAÐliMl
4
Hinar vönduðu Köhler
Sonmavélar
komnar aftur.
Innbyggðar í
traustan
eikarskáp.
Verð kr. 4.625,00.
Pantanir óskast sóttar sem allra fyrst
Búsáhaldadeilcf
Skólavörðustíg 23 — Sími 1-12-48
NÝTT NÝTT
GEVAFOTO-JÖLAKORT
JÓLIN NÁLGAST
Sendið vinum og kunningjum innan-
lands og utan jólakort fjölskyldunnar.
GEVAFOTO-JÓLAKORT
PERSÓNULEGAR JÓLAKVEÐJUR. — YÐAR
EIGIN MYNDIR. — KOMIÐ MEÐ FILMUR
m
YÐAR í TÍMA.
VÉR ÚTBÚUM JÓLAKORTIN.
, Munið Gevafoto-jólakortin
GEVAFOTO LÆKJARTORGI
Mmning
Francisku Olsen
FRÚ FRANCISKA OLSEN and-
aðist 23. f.m. Hún var í tölu elztu
borgara þessa bæjar og komin
af ætt, sem um langa tíð hefur
verið mikils háttar í bæjarfélagi
Reykjavíkur og er það enn. Frú
Franciska Olsen fæddist í Reykja
vík 20. maí 1870 og var dóttir
þeirra Vilhelms Bernhöft, bak-
arameistara og Jóhönnu Lovísu
Bernhöft, konu hans. Frú Franc-
iska var ung að aldri, þegar fað-
ir hennar andaðist en móðir
hennar rak hið alþekkta Bern-
höftsbakarí, þar til Daníel son-
ur hennar tók við rekstri þess.
Annar bróðir Francisku var Vil-
helm Bernhöft, tannlæknir, sem
var alkunnur borgari í Reykja-
vík á sínum tíma. Árið 1896 gift-
ist Fanciska Guðmundi Olsen,
kaupmanni, sem síðar var slökkvi
liðsstjóri hér í bænum. Var Guð-
mundur merkur borgari og vel
þekktur hér í bæ en er nú látinn
fyrir alllöngu síðan. Þau hjón
Guðmundur og frú Franciska
eignuðust 2 dætur Lenu, konu
Kampmanns fyrrum lyfsala í
Hafnarfirði en nú búsett í Lyng-
by í Danmörku og Hönnu, sem
var gift Bjarna Þorsteinssyni, vél
fræðingi.
Franciska Olsen var fríð kona
og hélt hún lengi æskufríðleik
sínum. Hún var gædd góðum
hæfileikum og þeir, sem bezt
þekktu hana, róma mjög vináttu
hennar, tryggð og Ijúfmennsku.
Frú Franciska var jafnlynd og
góðlynd, hún kom mörgum til
hjálpar, þeim sem andstreymt
áttu og leituðu til hennar og
hafði lífgandi áhrif á umhverfi
sitt vegna glaðlyndis og jafnvæg-
is í skapgerð. Frú Franciska var
mjög starfandi í Thorvaldsenfé-
laginu og um skeið formaður
þess.
Frú Franciska var innborinn
Reykvíkingur. Hún mundi langt
aftur. Hún skýrði einu sinni frá
því í blaðaviðtali, þegar hún 4ra
ára gömul hafði fengið að klæða
sig í nýjan kjól og sjá Kristján
konung 9. ganga í land í Reykja-
vík. Það hýrnaði yfir hinni aldur-
hnignu konu, þegar hún minntist
hinna gömlu daga í hinni litlu
Reykjavík, sem engan óraði þá
fyrir að yrði á hennar dögum að
stórri og nýrri borg.
Með frú Francisku Olsen er
hnigin í valinn góð og mæt
kona, gamall Reykvíkingur, ein
af þeirn sem „setti svip á bæinn“
og vinir hennar munu lengi
minnast.
BoM til aukafundar
í Roröurlandaráðinu!
KAUPMANNAHÖFN. — Enda
þótt hinum reglulega fundi Norð
urlandaráðsins, sem vera átti
eftir nýárið, hafi verið skotið á
frest og ákveðið að halda hann
ekki fyrr en í október, er ekki
talið ólíklegt að Norðurlandaráð-
ið verði kvatt saman til auka-
fundar seinni hluta vetrar. Eitt
aðalverkefni slíks fundar yrði að
fjalla um hinn fyrirhugaða nor-
ræna markað og verður boðað til
aukafundarins með hliðsjón af
árangri umræðnanna í París um
fríverzlunarsvæði Evrópu.