Morgunblaðið - 08.01.1958, Page 1
20 síður
Ánægöur „afreksmaður“ á þurru landi!
Sverfur að sjávarútvegsmálaráðherra:
Reynir að breiða yfir afglöpin með því
að endurtaka blekkingar sínar í útvarp
Allf sifur við sama um vandræði úfvegsins og
deilurnar um kaupfryggingu sjómanna
SVO MJÖG er nú sorfið að sjávarútvegsmálaráðherra kommúnista,
að hann sér sér ekki annað fært en að flytja ræðu í Ríkisútvarpið
í gærkvöldi til þess að afsaka þar flumbruhátt sinn og ábyrgðar-
leysi í sambandi við útgerðina á komandi vertíð. í þessari ræðu
ieyfði Lúðvík Jósefsson sér að endurtaka þá blekkingu sína, að
samkomulag hefði náðst við bátaútvegsmenn og sjómenn bátaflot-
ans um starfsgrundvöll og kaup og kjör fyrir síðustu áramót. —
Jafnframt endurtók hann þá staðhæfingu kommúnista, að undan-
farin ár hafi útgerð ekki getað hafizt á venjulegum tíma vegna
samninga við ríkisvaldið.
Ósamið um togarana
Þrátt fyrir þetta varð Lúðvík
Jósefsson að viðurkenna, að allt,
sem Mbl. hefir sagt um þessi mál
undanfaríð, sé satt og rétt. Þær
staðreyndir standa þannig óhagg-
aðar, í fyrsta lagi, að ósamið er
ennþá um rekstrargrundvöll fyr-
ir togaraútgerðina, og að við
borð liggur að togararnir stöðv-
ist. Hins vegar hefir sjávarútvegs
málaráðherra tilkynnt fulltrúum
togaraútgerðarinnar, að ríkis-
stjórnin hafi fallizt á smávægileg
ar lagfæringar á aðstöðu útgerð-
arinnar jafnhliða því, sem kjör
toganasjómanna eru bætt nokk-
uð. Þannig skýrði ráðherrann frá
því í gærkvöldi, að dagstyrkur til
togaranna muni verða hækkaður
um 700 krónur á dag, þegar um
er að ræða veiðar í salt, en um
400 kr. þegar um ísfiskveiðar er
að ræða. Ennfremur hækkar fisk
verð um 3 aura á kg af þorski og
karfa. Þá lofar ríkisstjórnin því,
að verð á olíu verði eigi hærra
en 530 kr. tonnið á árinu.
Hvers vegna hefur ráðherrann
verið á sáttafundum?
í tilefni þeirrar staðhæfing-
ar Lúðvíks Jósefssonar, að sam-
komulag hafi náðst bæði við út-
vegsmenn og sjómenn fyrir ára-
mót, mætti spyrja hann að því,
hvers vegna hann hafi þá verið
á stöðugum fundum undanfarna
daga með fulltrúum þessara
sömu aðilja til þess að reyna að
leysa þau ágreiningsmál, sem
uppi hafa verið milli þeirra?
Ástæðan er einfaldlega sú,
að það hafði ekkert samkomu-
lag náðst fyrir áramót við sjó-
menn í hinum einstöku ver-
stöðvum. Lúðvik Jósefsson
hafði aðeins taiað við nokkra
kommúnista og örfáa aðra
menn, sem ckkert umboð
höfðu til þess að semja, t. d.
um kauptryggingu sjómanna.
Það kom líka á daginn, að hið
svokallaða samkomulag Lúð-
víks um þetta atriði var fellt
í stærstu verstöðvunum við
Faxaflóa, og ennfremur í upp-
hafi í Vestmannaeyjum.
Greinilegri sönnun fyrir því
að sjávarútvegsmálaráðherr-
ann fór með rakalausan þvætt
ing, er hann sagöist hafa
„samið um alla þætti útflutn-
ingsframleiðslunnar fyrir ára-
mót“, þarf ekki. Enn þann dag
í dag hefur ekkert samkomu-
lag náðst við sjómenn á Akra-
nesi, Reykjavík og Keflavík
um kauptrygginguna. Og end-
anlegt samkomulag er ekki
hcldur fyrir hendi í Vest-
mannaeyjum og Ilafnarfirði.
Hefur gefizt upp
Af ummælum Lúðvíks Jósefs-
sonar í gærkvöldi, verður ekki
annað séð en hann hafi ákveðið
að gefast upp við frekari af-
skipti til þess að sætta þann
ágreining, sem uppi er milli út-
gerðarmanna og sjómanna í þess-
um málum. Lagði hann áherzlu á,
að einstök félög sjómanna og út-
gerðarmanna yrðu að semja um
fyrrgreind deiluatriði sín í milli.
Er nú líka þannig komið, að verk
■ fallshótun vofir yfir í einstök-
um verstöðvum. Dylst engum
heilvita manni, að þetta hefur
tafið róðra fyrsta hluta janúar-
mánaðar.
Má segja að róðrar séu svo
til hvergi hafnir að neinu ráði
hér á Suðvesturlandi, enda
þótt Lúðvík Jósefsson fullyrti
hið gagnstæða.
Ber að óorðheldni og blckking'um
I Það er áreiðanlega einsdæmi
| Framh á bls. 19
Um þetta var útvegsmönnum
tilkynnt á fundi, sem fulltrúar
þeirra áttu með sjávarútvegs-
málaráðherra í gær. Engar raun-
verulegar samningaumræður hafa
hins vegar farið fram milli full-
trúa rikisstjórnarinnar og full-
trúa togaraútgerðarinnar um
þessi mál. Boðaður hefur verið
fundur í Fél. ísl. botnvörpuskipa-
eigenda n. k. laugardag til þess
að ræða þau vandræði, sem að
útgerðinni steðja.
Hyggst Diílles leysa Kýpurdeiluna?
LUNDÚNUM, 7. jan. (Reuter). —j
Gríska blaðið Eleftheria, sem gef ,
ið er út í Nicosiu, segir í dag, að <
Dulles, utanrikisráðherra Banda
ríkjanna, muni leggja fram til-
lögu til lausnar Kýpurdeilunni,
þegar hann kemur til Ankara í
næsta mánuði. Þangað fer hann
til þess að ræða efnahagsmál við
Menderes forsætisráðherra lands
ins. — Samkvæmt frétt blaðsins
er gert ráð fyrir því í tillögu
Duiles, að Kýpur fái sjálfstjórn,
en þó þannig að hagsmunum
tyrkneska minnihlutans verði
borgið. Einnig segir blaðið, að
séð verði um, að Makarios, erki-
biskup fái að hverfa aftur heim
til eyjarinnar.
Hinn nýi fjármálaráðhorra Breta segir:
Engin breyting verður á
fjármáiasfefnu brezku
sfjórnarinnar
LUNDÚNUM, 7. jan. (Reuter). —
í dag lagði Macmillan, forsætis-
ráðherra Bretlands, af stað í sex
vikna ferðalag um samveldis-
löndin. Áður en hann hélt af stað,
sagði hann að eftir endurskipu-
lagningu stjórnar sinnar stæði
hún föstum fótum og mundi
vinna að því öllum árum að leysa
þau vandamál, sem upp kæmu
í náinni framtíð. Þá sagði hann,
að tími væri kominn til, að brezk
ur forsætisráðherra endurgjaldi
margar heimsóknir forsætisráð-
herra brezku samveldislandanna
til Lundúna. Skömmu áður en
forsætisráðherrann steig upp í
flugvélina fékk hann skeyti frá
Churchill, sem óskaði honum
góðrar ferðar. Kvaðst Macmillan
hafa glaðzt mjög yfir þessu skeyti
frá þeim Breta, sem hæst bæri
nú.
Gaitskell, leiðtogi Verkamanna
flokksins, sagði aftur á móti, að
Macmillan færi úr landi á mjög
erfiðum tímum. Honum væri nær
að vera heima og horfast í augu
við þau vandamál, sem að steðj-
uðu. Málum væri raunar svo kom
ið í Bretlandi, að stjórnin riðaði
til falls og ætti Macmillan að
leggja fram lausnarbeiðni fyrir
sig og ríkisstjórn sxna og efna til
nýrra þingkosninga.
Thorneycroft, sem sagði af sér
fjármálaráðherraembættinu i
gær vegna deilu, sem komið
hafði upp innan stjórnarinnar,
hefur sagt, að stoðunum yrði
kippt undan gengi sterlingspunds
ins, ef útgjöld ríkisins yrðu hækk
uð. Sem kunnugt er var deilt um
£50 þús. hækkun á fjárlögunum
fyrir þetta ár, og gat Macmillan
þess í gær í bréfi til Thorney-
crofts, að hann harmaði, að
ágreiningurinn hefði risið út af
svo lítilli upphæð. Thorneycroft
hefur ekki viljað ræða lausnar-
beiðni sína við fréttamenn.
Eftirmaður Thorneycrofts,
Heathcoat-Amory, sem áður
gegndi störfum landbúnaðarráð-
herra, sagði í dag, þegar hann
tók við hinu nýja embætti sínu,
að „engin breyting yrði á fjár-
málastefnu stjórnarinnar", eins
og hann komst að orði.
„Yonandi spillir suðurpólsför
Hillarys ekki vináffu Nýsjá-
lendinga og Brefa"
LUNDÚNUM, 7. jan. (Reuter) —
f skeyti, sem borizt hefur til
Lundúna frá dr. Fuch, brezka
leiðangursstjóranum við Suður-
skautið, segir, að leiðangur hans
muni ekki koma til Suðurpóls-
ins fyrr en 17. janúar n. k. Hann
bætir því þó við, að þetta geti
breytzt eitthvað, því að ferðin
sé komin undir því, hvernig færð
in sé og ekki síður hinu, hvernig
tekst með vísindaathuganirnar.
Síðastliðna nótt komst leiðang-
ur dr. Fuch 31 mílu áleiðis til
pólsins þrátt fyrir skafrenning
og slæmt skyggni. Eru þeir félag
ar nú um 290 mílur frá pólnum,
en þeir vonast til að komast 30
mílur á morgun.
Dr. Fuch segir, að þeir félagar
hafi gert ýmsar athuganir, eins
og fyrir þá hafi verið lagt, og
viti hann ekki betur en þær hafi
tekizt prýðilega. Segir hann að
lokum, að þeir vinni að jafnaði
um 15 klst. á sólarhring.
í NTB-skeyti segir, að heim-
skautanefndin í Lundúnum hafi
lagt fyrir Edmund Hillary að
koma upp nýrri birgðastöð fyrir
Fuch-leiðangurinn, sem á fyrir
höndum 1200 km. leið frá póln-
um til Scott-stöðvarinnar. Ekki
er vitað, hvernig Hillary bregzt
við þessari beiðni. — í dag lýsti
forsætisráðherra Nýja-Sjálands,
Walter Nash, því yfir, að stjórn
hans hefði ekki sagt Hillary að
fara til Suðurpólsins. Hann
kvaðst vona, að sú ákvörðun
heimskautafarans mundi á eng-
an hátt spilla vináttunni milli
Nýja-Sjálands og Stóra-Bret-
lands.
Fréttir í stuttu máli
LUNDÚNUM, 7. jan. — Mikið óveður hefur gengið yfir stóran
nluta Evrópu í dag. Fjögur skip lentu í sjávarháska og hollenzki
strandgæzlubáturinn Capella fórst með níu mönnum.
Ernst Lemmer, sá ráðherra í stjórn Adenauers, sem fer með
málefni alls Þýzkalands, sagði í dag, að ef haldinn yrði fundur
ieiðtoga stórveldanna, yrði Berlín mjög hentugur staður fyrir hann,
því að hún lægi á mörkum austurs og vesturs.
í dag fór Eisenhower Bandaríkjaforseti þess á leit við Öld-
ur.gadeildina, að hún veitti 1260 millj. dollara framlag í því skym
£'ð hraða framleiðslu á bandarískum eldflaugum.
i dag var bandarisk þrýstiloftsfluga neydd til að lenda í
Albaníu. Frá þessu var skýrt í útvarpinu í Tirana í dag.
í dag kynnti David Ben Gurion hina nýju samsteypustjórn
sina fyrir Ísraelsþingi. Hinir sömu flokkar eiga aðild að henni og
fvrrverandi stjórn. Fréttir herma, að forsætisráðherrann hafi aldrei
verið eins fastur í sessi og nú eftir myndun hinnar nýju stjórnar.